Pressan - 09.12.1993, Síða 28
Davíð Oddsson fékk að kveikja á jólatré:
Hefur ekki náðst úr jóla
sveinabúningnum síðan
Reykjavík, 8. desember.________
„Ho, ho, hó,“ var það eina
sem Davíð Oddsson vildi láta
eftir sér hafa, en miklar breyt-
ingar má nú sjá á forsætisráð-
herranum. Eftir að hann fékk
að kveikja á jólatré í byrjun
vikunnar má segja að hann sé
allur annar maður.
. „Hann mætti hér á ríkis-
stjórnarfund í jólasveinabún-
ingi og sagðist ætla að vera
góður við alla um jólin. Þetta
er auðvitað dálítið ankanna-
legt en ég get ekki sagt að þetta
hafi mikil áhrif á stjórnarsam-
starfið,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson.
Þessi mynd var tekin af Davíð yfir Vestfjörðunum en
hann ætlar að bæta þeim upp þorskskerðinguna með
veglegum gjöfum.
„Það getur vel verið að ég sé dálítill
sóði en konan vissi það þegar hún réð
sig,“ sagði Hallsteinn Þórhallsson.
Eftir því sem næst verður komist var
myndin tekin í eldhúsinu.
Jólatiltektin farin að
taka sinn toll
Heimilishjálp-
in gekk á dyr
Álög á þætti eftir Baldur Hermannsson
Þátturinn birtist aftur
og aftur
Reykjavík, 8. desember._________
„Okkur er þetta fullkomlega
óskiljanlegt. I hvert skipti sem við
göngum frá sýningarvélunum
birtist þessi þáttur Baldurs um álög
á Borgarfirði eystra. Ef til eru álög
þá eru þetta álög,“ sagði Svein-
björn Baldvinsson, dagskrárstjóri
sjónvarps, en upp hefur komið
furðulegt mál um álög hjá sjón-
varpinu.
„Eftir að slökkt er fara vélarnar
sjálfar að sýna þáttinn hans Bald-
urs, — það er nánast eins og yfir-
náttúruleg öfl séu að verki,“ sagði
starfsmaður í tæknideild.
„Það er að minnsta kosti ekkert
yfirnáttúrulegt við launareikninga
Baldurs,“ sagði Hörður Vilhjálms-
son fjármálastjóri.
Jósteinn Friðriksson á Borgarfirði
eystra fannst svona við tækið sitt
eftir að þáttur Baldurs hafði birst
honum hvað eftir annað.
-
Ný>«tí,lh
VELDU ÞAÐ SEM ER
- FYRIR ÞIG!
44
á
ISLENSKUR MJOLKURIÐNAÐUR