Pressan - 09.12.1993, Page 1

Pressan - 09.12.1993, Page 1
I ===== íslensku bókmenntaverðlaunin 1993 Hvar er Birgir? Fimm bækur í flokki fagurbókmennta og fimm úr flokki fræðibóka hafa verið tilnefndar til íslensku bókmenntaverðlaunanna 1993. Bækur úr fyrrnefnda flokknum eru: BORG eftir Rögnu Sigurðardóttur, ELDHYLUR eftir Hannes Pétursson, FALSARINN eftir Björn Th. Björnsson, HVATT AÐ RÚNUM eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur og SÚ KVALDA ÁST SEM HUGARFYLGSNIN GEYMA eftir Guðberg Bergs- son. Dómnefnd skipuðu Guðrún Nordal, Ásdís Egilsdóttir og Ingibjörg Haraldsdóttir. Hvað finnst mönnum um þessar tilnefningar og hver halda þeir að hreppi hnossið? ÞORGEIR ÞORGEIRSSON rithöfundur: „Ég heyrði af þessu í útvarpinu i gær og mér heyrist þarna vera agæt verk. Það var nú eítthvað af bokum þama sem ég hafði ekkert heyrt um en maður þekkir ósköp lítið til, maður er Iftið farinn að lesa af bókum ársins. Það sem ég þekki til af þessum bókum líst mér vel á. Ekki kem ég því fyrir mig að þama vanti eitthvað, það er aðalat- riðið í þessu forvali að það sé að minnsta kosti ein frambærileg bók í hvorum flokki, en ekki þori ég að spá um hver vinnur — ég veit ekki hverjir skipa nefndina." HALLGRÍMUR HELGASON, rithöfundur og myndlistar- maður: „Þetta virðist ekki vera neitt hneyksli eins og var í fyrra. Það sem kemur kannski mest á óvart er að Helga Kress skuli ekki vera í nefndinni, en það virðist vera tíl- hneiging til þess að fylla þessar nefndir með gráðum prýddum konum úr skólaumhverfi. I ár eru þrjár konur í nefndinni og mér finnst þetta kannski óþarflega mik- ið kvennaveldi sem virðist verða til þess að góðar „karlabókmenntir“ fá þarna ekki inni, samanber Einar Kárason í fyrra og Einar Már í ár. Annars er gleðilegt að sjá Rögnu Sigurðardóttur, það er ánægjuefni að nýiiðar skuli vera teknir alvar- lega. Fyrir mína parta hefði ég vilj- að sjá Tabúlarasa í þessum hópi, að mínu mati bókin í ár. Varðandi verðlaunin: Sú regla virðist komin á að komi roskið og virt Ijóðskáld með nýja bók með hyldjúpum titli þá hljóti það verðlaunin.“ HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON lektor: „Mér líst raunar vel á sjálfar til- nefningarnar. Sjálfur myndi ég veita Hannesi Péturssyni verðjaun- in fyrir fagurbókmenntirnar. Ég er sammála Ragnari í Smára, sem sagði einu sinni við míg að Hann- es Pétursson bæri af öðrum ís- lenskum skáldum eins og gull af eirí. Síðan myndí ég veita Jóni Friðjónssyni verðlaunin fyrir fræði- rit. Hann er framúrskarandi fræði- maður og vanmetinn á sínu sviði. Ég er samt ekki viss um að þessir ágætu einstaklingar fái verðlaunin. Sennilega hljóta Björn Th. Björns- son og Vilhjálmur Árnason verð- launin, því þeir fullnægja því nauð- synlega skilyrði að vera i hirð for- setans, auk þess sem þeir eru báð- ir félagshyggjumenn. Ég er með eina hugmynd að lok- um: Hvernig væri að leggja for- setaembættið niður, þegar Vigdís Finnbogadóttir lætur af því árið 1994, og nota fjármunina sem við 3að sparast í fleiri bókmenntaverð- aun? Svisslendingar komast af án forseta, svo við ættum að geta gert það.“ AUÐUR HARALDS rithöf- undur: „Ég hef ekkert af þessum bókum lesið og kem eiginlega af fjöllum. Eg les ekki heldur blöðin, þannig að ég kem ofan af fjöllum og út úr hól. Mér lí?t vel a tilnefningar fræðibóka. Eg er fræðífrík. Hitt líst mér hvorki illa á né vel. Mér finnst Álfrún alltaf góð og held að Björn Th. hljóti að vera vel að þessu kominn. Hann skrifar skynsam- lega. Ég var hálfundrandi að Birgir Sigurðsson skyldi ekki vera þama á meðal. En hvað eigum við að gera — hafsjór góðra höfunda og aðeins fimm tilnefningar?“ SNÆBJÖRN ARNGRÍMS- SON útgefandi: „Ég er anægður með að Hannes Pétursson og þó sérstaklega Ragna Sigurðardóttir skuli vera þarna. Það kom skemmtilega á óvart. Það er helst að það vanti Birgi Sigurðsson í hópinn og Braga Olafsson auðvitað. Það eru allir vel að þessu komnir og ég vil ekkert gefa út hverjir ættu að víkja fyrir þessum tveimur, þetta er fínn hópur. Atburðurinn sem slíkur er upplyfting en ég tek þessi verð- laun ekki mjög hatíðlega.“ 5IGGI pAls, hörður torfa, iviatti bjariva, VALGEIR GUÐJÚIM5, BJÖRIV TH., JET BLACK JOE, ÚIVIAR RAGIMARSSOIM, FÁRÁIMLEGU5TU BÆKURIMAR OG FLEIRA OG FLEIRA

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.