Pressan - 09.12.1993, Blaðsíða 7
Fimmtudagurinn 9. desember 1993
BÓKA- OG PLÖTUBLAÐ
PRESSAN B7
■\
Ljónið öskrar
I- Stórvirki í ævisagnaritun
Jónas frá Hriflu var einn aðsópsmesti stjórnmálamaður íslendinga
á þessari öld og áreiðanlega sá umdeildasti. Hann fór sjaldan
troðnar slóðir og markmið hans voru ekki alltaf þau sömu og
þeirra sem áttu að heita samherjar hans. Það gustaði af Jónasi
hvar sem hann fór og stundum skall á gjörningaveður.
Er árin færðust yfir einangraðist hann æ meir. Völd hans
minnkuðu og gamlir fylgismenn sneru við honum baki.
En röddin sem kveikt hafði eldmóð og baráttugleði með
sumum, óslökkvandi hatursbál með öðrum, þagnaði þó
ekki: Ljónið hélt áfram að öskra í nóttinni.
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur rekur hér
lokaþátt þessarar stormasömu átakasögu.
Fyrri bækur hans um Jónas hafa vakið mikla
athygli og hefur höfundurinn hlotið einróma
lof fyrir fjörlega og lifandi frásögn samfara
vandaðri úrvinnslu heimilda.
ÍÐUNN
Hafborg
- Snjöll og trúverðug lýsing
á veruleika sjómannsins
Hafborg eftir Njörð P. Njarðvík er snjöll lýsing á Iífi og veruleika
íslenskra sjómanna á öld síðutogaranna; skáldsaga sem leiðir
hvern landkrabba inn í hrollkaldan heim sjómannsins sem á hið
kaldranalega haf að ævilöngum veruleika og lýsir á lifandi hátt
gráglettnum samskiptum skipverjanna og baráttu
mannskepnunnar við náttúruöflin.
„Samfélagið um borð verður einkar trúverðugt og sama
—. gegnir um lýsingar á athöfnum skipsfélaganna í landi. .
athyglisverð Iýsing á sérstökum þætti íslensks mannlífs
þætti sem hingað til hefur verið vanræktur í íslenskri
sagnagerð.“ (Jón Þ. Þór, Tíminn)
Fjórða hæðin
- Margslungin og áhrifarfk skáldsaga
Fjórða hæðin eftir Kristján Kristjánsson er margslungin saga um mannleg samskipti og
blekkingar minninganna, saga sem knýr lesandann áfram í leit að því sem undir býr.
„Skáldsaga Kristjáns Kristjánssonar er ákaflega vel heppnuð. Mikil natni er lögð í
persónusköpun bræðranna, málnotkunin ríkulega raunveruleg. Bréf bræðranna
eru til að mynda frábærlega gerð. Frásagnartæknin er þaul-
hugsuð og vel útfærð í alla staði þannig að útkoman verður
átakamikil saga og listilega trúverðug lýsing þess tíma og
staðar sem hún fjallar um.“ (Ólafur Haraldsson, Pressunni)
„... lýsingin er hrífandi dramatísk, myndræn og nákvæm, með |Fðl JÍMÍSÍ
áherslu á breytileikann." (Örn Ólafsson, DV)
I