Pressan - 09.12.1993, Qupperneq 9

Pressan - 09.12.1993, Qupperneq 9
BÓKA- OG PLÖTUBLAÐ Fimmtudagurinn 9. desember 1993 PRESSAN B9 Tröll eru bestu skinn - Gn/la á fullri ferð Tröll eru bestu skinn eftir Andrés Indriðason er bráðfyndin saga um hann Sigga, sem fór í Stóru blómabúðina að velja jólatré með mömmu og pabba. Ekki grunaði hann að þar myndi hann kynnast tröllastráknum Dusa. Fyrr en varir eru þeir félagar komnir á þeysisprett út um borg og bý því að Dusi er búinn að týna mömmu sinni - henni Grýlu - og það er vissara að finna hana áður en illa fer. Eldfjörugt nútímaævintýri, ríkulega myndskreytt af Brian Pilkington. Snoðhausarc ...... - Sprelltjorugir prakkarar í sumarbypun létu krakkarnir í hverfinu snoða sig eins og körfuboltakappa og svo ' tóku ævintýrin við ... Þau fundu stórhættulegt skrímsli í mýrinni, sendu ömmu Pálínu í svaðilför með fljótabát, lentu í styrjöld við Ámunda leigubílstjóra og tíkina Lottu ... Já, það gerðist sannarlega ýmislegt sögulegt hjá snoðhausunum í nýja hverfinu þetta sumar! Snoðhausar er sprellfjörug og frískleg prakkarasaga eftir Jón Hjartarson, myndskreytt af Brian Pilkington Er allt að verða vitlaust - Spennandi og raunsæ unglingasaga Er allt að verða vitlaust? eftir Iðunni Steinsdóttur er fyndin og raunsæ saga úr umhverfi sam allir unglingar þekkja. Flóka, Hildu, Arnari og Olgu stendur þó sannarlega ekki á sama um yfirganginn í töffaraliðinu í 9. bekk. Einn daginn halda þau þó að nú sé öllum hremmingum lokið ... en það reynist skammgóður vermir! i r—vT |KÍ'N.J „Þetta er spennandi og þroskandi saga.“ (Silja Aðalsteinsdóttir, DV). lLvHi N1 N Litlu greyin Frábær barnasaga Litlu greyin eftir Guðrúnu Helgadóttur er spennandi, skemmtileg og hugþekk saga. Trausti, sem er aðalpersóna sögunnar og systur hans, Tobba og Tinna, fara til dvalar í sumarbústað með mömmu sinni. Þar gerist margt sögulegt - amma kemur í heimsókn og týnist - og dularfullur draugur skýtur upp kollinum ... Frábær saga, sögð frá sjónarhóli ýmissa fjölskyldumeðlima, þar sem kímin og nærfærin frásagnarlist Guðrúnar nýtur sín afar vel. Gunnar Karlsson myndskreytti bókina. „... börnin bregðast ekki. Tinna litla systir er eitt af þessum dýrlegu börnum í bókum Guðrúnar, glögg og orðheppin í barnslegri einlægni sinni. ... Trausti er bráðlifandi krakki, heiðarlegur og greindur strákur sem berst við vanmáttarkennd vegna þess að hann er ekki alveg eins og aðrir strákar ... Guðrún skiptir um stíl eftir því hver er að segja frá og tekst það vel. Skemmtilegastar eru frásagnir Trausta, og bestur búturinn úr dagbókinni hans í lokin.“ (Silja Aðalsteinsdóttir, DV) ,, ,, , IÐUNN

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.