Pressan - 30.12.1993, Side 2
FYRST OG FREMST
2 PRCSSAN
Fimmtudagurinn 30. desember 1993
„Einnig álykta ég að Davíð Oddsson
gangi með.valdasýki á háu stigi og hann
finni alls ekki til þeirrar miklu ábyrgðar
að vera forsætisráðherra, enda tala verk-
in. Síðan hann tók við er atvinnuleysi,
gjaldþrot og allskonar leiðindi, ásamt
hjónaskilnuðum, og fólk styttir sér aldur
í ríkum mæli eftir því sem mér er sagt.“
Regína Thorarensen, fréttaritari DV.
„Bryndís er konungsgersemi. Það hafa
margir öfundað mig af henni og ýmsir
reynt að ræna mig henni."
Jón Baldvin Hannibalsson konungur.
„Það kemur ekki til greina að ég verði
undirmaður Jóns Sigurðssonar í Seðla-
banka íslands."
Steingrímur Hermannnsson forsætisráðherra.
„Á Veðurstofunni er mikill þjóðmála-
áhugi og sumir segja að þar ríki mestur
stjórnmálaáhugi sem um getur á vinnu-
stöðum í landinu. Menn dreifast bless-
unarlega niður á alla stjórnmálaflokka og
átta sig á að guð einn veit hver verður
svo heppinn að eiga skoðanabróður í
viðeigandi ráðherrastól um næstu veður-
stjóraskipti.“
Þór Jakobsson veðurviti.
„Ég er tilbúin að fara í formlegt andóf
innan flokksins og takast á við forystu
flokksins og þau öfl sem styðja óvinsælar
aðgerðir ríkisstjórnarinnar og standa
gegn Nýjum vettvangi.“
Olína Þorvarðardóttir andspyrnuhreyfing.
„Það er gott að Ari ífóði er dauður og
þarf ekki að lesa DV.“
Steingrímur J. Sigfússon, hinn forni.
„Það er með ákveðnum hætti partur af
eilífðinni að ríða á æxlunarfæru gæð-
ingshrossi og hafa það í undirmeðvit-
undinni að einhvem tíma eignist maður
annan gæðing undan því.“
Páll Pétursson þingmaður.
„Ég segi að þetta hafi verið pólitísk
ákvörðun af því að ég er pólitískur ráð-
herra og tek mínar ákvarðanir og ber
mína pólitísku ábyrgð.“
Ólafur G. Einarsson, pólitískur Hrafnavinur.
„Mikið ofboðslega er nýi fram-
kvæmdastjórinn vemleikafirrtur.“
Svavar Gestsson óvinur.
„Minn þáttur í ráðningu Hrafns
Gunnlaugssonar til Sjónvarpsins er eng-
inn.“
Davíð Oddsson veruleikafirrtur.
„Ég er fýrst og ffemst embættismaður
og embættismaður veit hverjir eru yfir
hann settir.“
Heimir Steinsson útvarpsprestur.
„Ég held að það sé ekki umræðuhæft
þótt menn fari einhverja daga og veiði
lax.“
Sverrir Hermannsson, bankastjórí og veiðikló.
„Ég er ekki viss um að sá Heimir sem
starfar í dag sé sá sami og ég réð sem út-
varpsstjóra.“
Ólafur G. Einarsson, krunkar úti.
„Or þeim bæ var innangengt í fjósið
og þangað fór ég eins og aðrir, skeit í
flórinn og skeindi mig á töðu eins og
var alsiða.“
Baldur Hermannsson bóndasonur.
„í mér bærist fól.“
Heimir Steinsson fól.
„En því trúir enginn sem mig þekkir
að hafi ég slegið Örn Karlsson sjö högg
og tekið hann fangbrögðum hafi hann
eftir það mátt kokhraustur ljúga.“
ívar Hauksson handrukkari.
„Michael Jackson er mjög skemmti-
legur og alveg laus við stæla.“
Anna Mjöll Ólafsdóttir Barbiedúkka.
„Skelfing finnst mér leiðinlegt að
horfa á verk sem eru skrifuð fýrir kyn-
færi og kölluð leikrit."
Súsanna Svavarsdóttir leikritaslátrarí.
„Vont kynlíf er ef til vill betra en gott
kynlif.“
Gunnar Smárí Egilsson ritstjórí.
1 a n d i
brott og taki við sendiherrastarfi.
Þetta kemur ffam í Beztablaðinu á
Suðurnesjum. Þar er einnig sagt
að eftirmaður Þorsteins verði Ró-
bert Trausti Ámason, skrifstofu-
stjóri Varnarmáladeildar. Þá er
rætt um að Guðmundur Eiríks-
son þjóðréttarffæðingur taki við
af Róberti Trausta, þannig að ef
allt þetta gengur eftir verður tölu-
verð uppstokkun í þjónustunni...
JL ví er haldið ffam að breyt-
ingar séu fýrirhugaðar í utanríkis-
þjónustunni, sem feli meðal ann-
ars í sér
að Þor-
s t e i n n
Ingólfs-
s o n ,
ráðuneyt-
isstjóri í
ráðuneyt-
i n u ,
hverfi af
ú er ljóst að kosningaslag-
ur verður í Félagi bókagerðar-
manna á næsta aðalfundi. 20. des-
ember síðastliðinn rann út ffam-
boðsfrestur og komu þrjú fram-
boð. Það sem vekur kannski
mesta athygli er að fyrrverandi
formaður, Þórir Guðjónsson,
hefur ákveðið að bjóða sig fram
aftur, en hann var nánast neyddur
til að segja af sér á miðju kjör-
tímabili „vegna persónulegra
ástæðna“ eins og það hét. Einnig
verður starfandi formaður, Sæ-
mundur Amarsson, í framboði,
en hann var náinn samstarfsmað-
ur Þóris þegar hann hætti. Þriðji
ffambjóðandinn er síðan Margrét
Rósa Sigurðardóttir sem lengi
hefur haldið uppi andófi í félaginu
og tapaði formannsslagnum síðast
fýrir Þóri...
nýársdag er á dagskrá
Sjónvarps athyglisverð heimilda-
mynd. Það er íslensk náttúrulífs-
mynd og að sögn þeirra sem hafa
séð hana gefur hún erlendum
myndum i sama dúr ekkert eftir.
Myndin
h e i t i r
„Húsey“
og er eff-
ir Þor-
f i n n
Guðna-
son eða
T o f f a
eins og
hann er
kallaður. Toffi fékk styrk úr Kvik-
myndasjóði til að gera þessa
mynd en hann hefur unnið að
henni undanfarin þrjú ár. Ætlun-
in er að koma „Húsey“ á ffamfæri
á erlendum mörkuðum og hefur
Toffi fengið Magnús Magnússon
hjá BBC sér til liðsinnis í þeim
efnum, Magnús verður þulur í er-
lendu gerðinni en Gylfi Pálsson
er þulur myndarinnar í íslensku
útgáfunni. Húsey er á afskekktum
stað við Héraðsflóa og þar er að
finna öll villt spendýr Islands. í
myndinni mun meðal annars geta
að líta einstæðar tökur af ástalífi
refa...
Jr orvarður Elíasson, skóla-
stjóri Verslunarskólans, þykir
með afbrigðum röggsamur og líð-
ur nemendum sínum ekki hvað
sem er.
Nú hefur
h a n n
k o m i ð
því til
leiðar að
e i n n
nemandi
skólans,
G u ð -
mundur
A ð a 1 -
steinsson, hefur fórnað síðu og
fallegu hári til að tryggja áfram-
haldandi vist sína í skólanum.
Guðmundur þessi leikur og syng-
ur hlutverk Júdasar í söngleiknum
Jesus Christ Superstar sem settur
verður upp eftir áramót. Þykir
mönnum Júdas ekki svipur hjá
sjón eftir breytinguna. Forsaga
málsins er sú að Guðmundur var
rekinn úr skólanum fýrir agabrot
á skólaballi og skilyrði Þorvarðar
fýrir að taka hann að nýju inn í
skólann var að piltur léti klippa
sig...
T7
L.j in þeirra bóka sem
drukknuðu í jólabókaflóðinu en
eru engu að síður allrar athygli
verðar heitir: „og turninn rís
hærra og hærra“ og er gefin út af
Ó1 j ó n -
istasam-
tökun-
u m ? !
Höfund-
u r i n n
heitir Ól-
a f u r
Sveins-
son og er
þ e t t a
hans fyrsta bók. Ólafur er við
kvikmyndanám í Berlín og hefur
verið í tæp fjögur ár. „og turninn
rís hærra og hærra“ ber dám af
dramatísku námi höfundar og er
erfið þeim sem leitast við að
flokka bókmenntir — liggur ein-
hverstaðar milli ljóðs og leikrits.
Fjórar raddir, sem hver hefur eig-
in tíðni, tala út í eitt. Fjór-óma
kannski? Þessar raddir eru ekki
beint teprulegar og segja sköpun-
arsöguna (hvorki meira né
minna) með sínum hætti...
þúsund krónur og þeir starfs-
menn sem ekki verða endurráðnir
verða að bíða eftir greiðslum ffá
ríkisábyrgðarsjóði, en Mótvægi
gat ekki greitt út laun nú um ára-
mótin...
A
JL II fundi með starfsmönn-
um Tímans í gær mun Gunn-
laugur
S i g -
munds-
s o n ,
stjórnar-
formað-
ur Mót-
vægis,
hafa gef-
ið „lof-
orð“ um
að reynt yrði að ráða eins mikið af
starfsmönnum Mótvægis yfir á
hið nýja blað og þörf væri fýrir.
Það er ekki víst að það sé starfs-
fólki til mikillar hugarhægðar,
enda fara ítök Framsóknar í blað-
inu nú óðum þverrandi. Yfirleitt
mun litið á tímabundna ritstjóra-
ráðningu Jóns Kristjánssonar, al-
þingismanns Framsóknarflokks-
ins og fyrrum ritstjóra Tímans,
sem klókindi hjá nýjum eigend-
um, til þess fallin að halda í eins
marga af hefðbundnum áskrif-
endum Tímans og kostur er. í
samræmi við þarfir markaðarins
verður nýja blaðinu, sem ætlað er
að standa í samkeppni við Morg-
unblaðið, gefinn miðju- og
vinstristimpill...
Q
Wíðasta embættisverk Jóns
Skapta-
s o n a r
borgar-
fógeta,
s e m
hættir nú
um ára-
m ó t i n
s ö k u m
aldurs,
v e r ð u r
sennilega
að útnefna bústjóra fýrir þrotabú
Mótvægis hf., útgáfufélags Tím-
ans. Nokkuð kaldhæðnislegt fýrir
góðan og gegnan framsóknar-
mann til margra áratuga...
^^^Jú þegar Mótvægi hf., út-
gáfufélag Tímans, er farið á haus-
inn koma ýmsir til með að tapa
stórum upphæðum. Sennilega er
Oddinn þar efstur á blaði, en
skuld Mótvægis við prentsmiðj-
una nemur um 10 milljónum
króna. Ætlun Tímamóta hf., hins
n ý j a
hlutafé-
lags í
e i g u
Sveins R.
Eyjólfs-
s o n a r,
Harðar
Einars-
sonar og
Frjálsrar
fjölmiðlunar, er að hið nýja dag-
þlað verði prentað í prentsmiðju
DV. Sennilega er skellur fýrrver-
andi ffamkvæmdastjóra Tímans,
Hrólfs ölvissonar, stærstur, en
hann stóð í persónulegum
ábyrgðum fýrir um 4,5 milljónum
króna í yfirdráttarheimild hjá
Landsbankanum. Framsóknar-
flokkurinn lagði ffam hlut metinn
á 4,7 milljónir króna, Olíufélagið
átti 3 milljónir, Ágúst Þór Áma-
son átti ásamt félögum sínum og
fjölskyldu hlutabréf fýrir 4,7 millj-
ónir króna og Stefán Ásgrímsson,
Pétur Sigurðsson og fleiri lögðu
ffam milli 3 og 4 milljónir. Þá á
Birgir Guðmundsson, fyrrum
fréttastjóri Tímans, inni um 300
/ /
K! vikmyndagerðarmenn
munu vera allóhressir þessa dag-
ana eftir að hafa augum litið til-
lögur fjárlaganefndar Alþingis um
framlög til Kvikmyndasjóðs.
Munu aðeins 54 milljónir króna
koma til úthlutunar þetta árið,
miðað við tæplega 70 milljónir í
fýrra. Ástæðumar eru beinn nið-
urskurður um 10 milljónir auk
þess sem nýjum kostnaðarliðum
hefur verið bætt á Kvikmynda-
sjóð, svo sem Kvikmyndasafni ís-
lands, en það er 10 milljóna króna
útgjaldaauki fyrir sjóðinn. Þá var
þátttöku í norrænu samstarfs-
verkefúi bætt á sjóðinn, en vaninn
er að slíkar úthlutanir komi ekki
beint til kasta hans. Þar er um
aðrar 10 milljónir að ræða. Finnst
kvikmyndagerðarmönnum tími
til kominn að reikna myndbanda-
markaðinn inn til stofnframlaga
Kvikmyndasjóðs, en stofnffamlag
í dag reiknast af seldum aðgöngu-
miðum kvikmyndahúsanna. Talið
er að myndbandamarkaðurinn
velti í dag nálægt einum milljarði
og fær ríldð þar tekjur af virðis-
aukaskatti nálægt 250 milljónum
króna. Þykir kvikmyndagerðar-
mönnum við hæfi að eitthvað af
þeim peningum renni til nýsköp-
unar í kvikmyndagerð, enda mun
sá háttur vera hafður á í nærliggj-
andi löndum...
Islenska óperan frumsýnir í
kvöld óperuna Évgení Ónegín eft-
ir Tsjaíkofskí. Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, listrænn fram-
kvæmdastjóri íslensku óperunn-
ar, syng-
ur sjálf
eitt aðal-
hlutverk-
ið og hef-
ur valið
sér hlut-
v e r k
h i n n a r
fimmtán
á r a
gömlu Tatjönu. Er talið að þessi
listræna stjórnsemi Ólafar Kol-
brúnar eigi effir að koma henni í
koll, enda er hún komin hátt á
fimmtugsaldur og margar efnileg-
ar söngkonur sem standa hlut-
verkinu áratugum nær í aldri. En
fýrst Mick Jagger getur talið sjálf-
um sér og öðrum trú um að hann
sé unglingur, því þá ekki Ólöf
Kolbrún...?
(jagnrýnisraddir þeirra sem
þykir fréttaflutningur íjölmiðla af
skemmtunum ffæga fólksins hin
mesta smekkleysa hafa sjaldan
beinst að blaði allra landsmanna.
Það gerðist þó skömmu fyrir jól
að starfsfólki Kaffibarsins Frikka
& Dýrsins þótti ærið tilefni til að
ganga á milli þegar Ámi Sæberg,
ljósmyndari Morgunblaðsins, vfldi
mynda Björk Guðmundsdóttur
og föruneyti sem voru að
skemmta sér á barnum. Aðdrag-
andi málsins var sá að nærstaddur
blaðamaður Moggans, sem var
víst við skál, veittist að Björk og
spurði hvort hann mætti láta
mynda hana. Hún neitaði en
blaðamaðurinn lét sér ekki segjast,
heldur fékk að komast í síma hjá
Kaffibarnum og hringdi í Árna
Sæberg sem hraðaði sér á staðinn.
Þegar hann reiddi upp myndavél-
ina var Björk bmgðið og bar hún
höndina fýrir sig. Kaffibarsmönn-
um þótti nú nóg komið og
fleygðu ljósmyndaranum á dyr.
Eftir þessi ólæti Moggamanna á
staðnum hafa eigendur Kaffibars-
ins tilkynnt að samkvæmisljós-
myndarar borgarinnar séu ekki
lengur aufúsugestir ef myndavélin
er með í för...
Um síðustu helgi var sjö
manna fjölskylda af Seltjarnarnesi
svo lánsöm að vinna fjórfaldan
pott í lottóinu og fékk átján millj-
ónir króna í sinn hlut. Það er
stærsti vinningur á einn miða hér-
lendis hjá íslenskri getspá. Vinn-
ingurinn kom eins og kunnugt er
á miða sem keyptur var í sjopp-
unni Gerplu á Hofsvallagötu, og
það ekki í fýrsta eða annað sinn.
Þess má geta að móðirin í fjöl-
skyldunni sem hlaut vinninginn
er ekki með öllu ókunn, því hún
er bæjarfúlltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins á nesinu og heitir Petra I.
Jónsdóttir...
Meintir ritstjdri og
meintnr misskilningir
Hrafn Jökulsson skrifar
Sigurður Tómas Björgvinsson,
kunningi minn og meintur rit-
stjóri Alþýðublaðsins, sýnir óvænt-
an smekk á bókmenntum í ör-
stuttu viðtali í síðustu
PRESSU.Þai kveðst hann að-
spurður ætla að gefa Önnu Ólafs-
dóttur Björnsson, þingkonu
Kvennalistans, nýja ljóðabók
Hrafns Jökulssonar í jólagjöf. Og
Sigurður Tómas bætir um betur
með því að segja að Anna Ólafs-
dóttir Bjömsson viti að Hrafn
Jökulsson geti skrifað mjög góðan
texta.Það er sannarlega ánægju-
legt að meintur ritstjóri sjálfs Al-
þýðublaðsins skuli með þessum
hætti auglýsa álit sitt á hæfileikum
undirritaðs. Ég þakka fýrir mig.
Nú er því aðeins við að bæta, að
yfírlýsingu Sigurðar Tómasar
fylgdi svohljóðandi athugasemd
blaðamanns PRESSUNNAR: „í
Alþýðublaðinu í sumar birtist afar
rætin grein um Önnu sem olli
uppnámi innan Kvennalistans.“
Eg hef orðið var við að sumir
kunningjar mínir, sem hafa ekki
eins mikið vit á bókmenntum og
Sigurður Tómas Björgvinsson,
em svo gmnnhyggnir að halda að
undirritað ungt skáld hafi mund-
að stílvopn sín gegn Önnu Ólafs-
dóttur Björnsson í umræddri
grein. Ég hef ýmislegt á samvisk-
unni (einsog þessir kunningjar
mínir vita) en ég er því miður og
sem betur fer blásaklaus af því að
hafa skrifað blaðagrein um Önnu
Ólafsdóttur Björnsson. Umrædd
grein var samansúrraður óþverri
frá upphafi tfl enda. Óþverrahátt
er stöku sinnum hægt að fýrirgefa
ef hann er fýndinn en því var frá-
leitt til að dreifa í þessu tflviki.
Nú hvarflar ekki að mér eitt
andartak að meintur ritstjóri Al-
þýðublaðsins (og ábyrgðarmaður
þess sem í blaðinu stendur) sé að
reyna að klína sínum skít á mig.
Ég veit að Sigurður Tómas Björg-
vinsson er vænn pfltur að upplagi
og þokkalega gefinn; semsagt
maður af þeirri gerð sem hagar
sér einsog skepna af tómum
klaufaskap og án þess að vita af
því sjálfúr.
Nóg um það: Ég óska Sigurði
Tómasi velfamaðar með sitt blað
á árinu og vona að hann haldi
áfram að þroska bókmennta-
smekk sinn. Hann hefur þá að
einhveiju að hverfa ef hann skyidi
skipta um vinnu á næstunni.
Eg hef hinsvegar grun um að
Sigurður Tómas hafi steingleymt
að senda Önnu jólagjöfina —
svona einsog sumir gleyma kosn-
ingaloforðum og þessháttar
smotteríi. Þessvegna ætla ég að
taka af honum ómakið og senda
Önnu Ólafsdóttur Bjömsson litlu
ljóðabókina mína.
Með jólakveðju og nýársósk-
um,
Hrafn Jölculsson.