Pressan - 30.12.1993, Síða 4
V I ÐTA L
Fimmtudagurinn 30. desember 1993
4 PRESSAN
Björk—kona órsins
yiNSÆLASTI
ISLENDINGUR
HEIMS
Björk Guðmundsdóttir sannaði
það endanlega á árinu að hún er
einhver öflugasta landkynning
sem íslendingar hafa eignast fyrr
og síðar. Eftir að „Debut“, fyrsta
sólóplata hennar, kom út snemm-
sumars hefúr enginn fslendingur
fyrr eða síðar fengið jafnmikla
umfjöllun í heimspressunm.
Árið 1993 var ár Bjarkar, platan
seldist í um 1.200 þúsund eintök-
um á heimsvísu og viðtöl við hana
urðu á annað þúsund talsins áður
en árið var úti. „Debut“ var m.a.
valin plata ársins í tímaritunum
The Face og New Musical Express
og móttökurnar voru ef eitthvað er
enn betri en þegar Sykurmolarnir
geystust fyrst fram á sjónarsviðið
fyrir sex árum. Björk lauk vel
heppnuðu hljómleikaferðalagi um
Evrópu og Bandaríkin rétt fyíir jól
og heldur áffam til Japans og Ástr-
alíu á næstunni.
Síðastliðin sex ár hefur Björk ver-
ið meira og minna stöðugt í sviðs-
ljósinu en að eigin sögn varð síðast-
liðið ár annasamara en hana óraði
fyrir í fyrstu. „Ég var svo heppin í
Sykurmolunum að Einar Örn var
mikið fyrir að gefa viðtöl og sá al-
veg um þá deild. Á þessu ári sá ég
um að koma upp og stjóma eigin
hljómsveit, skipuleggja hljómleika-
ferðalagið og taka ákvörðun um öll
viðtöl og myndatökur. Áður fyrr
þurfti maður bara að passa sig á að
verða ekki hás á tónleikum, en
núna var ég á hljómleikaferðalagi
með tuttugu og eins manns hóp,
þurfti að ákveða allt sem snerti
hljómleikahaldið og veita viðtöl of-
an á það. Maður svaf aldrei meir en
fimm tíma á nóttu.“
Afhverju að leggja svo mikið á sig?
Hefði ekki verið einfaldara að láta
einhvem annan um að bera ábyrgð-
ina og taka ákvarðanir?
„Ég hef mjög gaman af þessum
hlutum og er algjör vinnusjúkling-
ur eins og flestir íslendingar. Það
eina sem var leiðinlegt við þetta var
öll fjölmiðlavitleysan. Stundum
gæti ég hugsað mér að taka upp
Uzi-byssu og hreinsa aðeins til í
þeim bransa. Ég er alveg í skapi til
þess núna.“
Þegar þú lítur til baka yfir liðið ár,
varþað eins ogþú bjóst við?
„Ég bjóst við því að kannski tíu
[unnannl
\unnoun(
\unnona(
Virðisaukaskattur
af matvælum
Frá og með 1. janúar 1994 lækkar virðisaukaskattur af ýmsum
matvælum úr 24,5% í 14%.
Lækkun nær ekki til drykkjarvöru, sælgætis og annarrar vöru sem
fellur undir gjaldflokk D í lögum um vörugjald nr. 97/1987, né heldur
til áfengra drykkja og ógerilsneyddrar mjólkur.
Matvæli sem bera áfram 24,5% virðisaukaskatt eru m.a. ávaxtasafar,
gosdrykkir, ölkelduvatn, kakóduft, kakómalt, kaffirjómi í duftformi,
sætakex, smákökur, edik, marsípan, núggatmassi, skrautsykur og
íssósur. Vítamín og fleiri vörur í töfluformi (s.s. lýsistöflur, hvítlauks-
töflur o.fl.) bera einnig áfram 24,5% virðisaukaskatt.
Um veitingahús, mötuneyti og aðra hliðstæða aðila gildir að á sölu
þeirra á tilreiddum mat skal reikna 24,5% virðisaukaskatt sem
endurgreiddur verður að hluta samkvæmt sérstökum reglum.
Gefin hefur verið út reglugerð um virðisaukaskattsskylda sölu á
vörum til manneldis o.fl. og kveður hún nánar á um framangreint
efni.
Virðisaukaskattsskrifstofa ríkisskattstjóra og skattstjórar veita nánari
upplýsingar um virðisaukaskatt af matvælum.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
BJÖRK. „Debut" seldist í 1.200 þúsund eintökum á árínu og viðtölin urðu á annað þúsund áður en yfir lauk.
prósent af aðdáendum Sykurmol-
anna myndu kaupa þessa plötu. Ég
trúði því að þetta væri einhver sér-
viskuplata þar sem ég væri úti í
mínu horni að gera það sem mér
sýndist. Ég bjóst alls ekki við þess-
um móttökum.“
1 Bandaríkjunum fékkstu nokkuð
misjafna dóma. Rolling Stone birti
aftökudóm og virtist svekktast yfir
því að þú vœrir farin að gera ein-
hverja tölvutónlist.
„Ég bjóst alveg eins við því. Ef
maður ætti að nefna eitt blað sem
telur sig vera framsækið, en er í
raun það íhaldssamasta, hlýtur það
að vera Rolling Stone. Mér var sagt
að það eina sem þeim líkaði við á
plötunni væri endirinn á Human
Behaviour, sem er í eina skiptið
sem rafmagnsgítar heyrist á plöt-
unni.“
Hvað með áhuga tískupressunnar?
Þú varst m.a. í tískuþœtti hjá hinu
ítalska Vogue og í Rolling Stone.
„Ég er bara stolt af því að þetta
fólk hafði áhuga á mér. Þegar mað-
ur fær svona tækifæri segir maður
ekki nei við því að geta bætt einni
línu í lífsreynslubókina. En þetta
var líka tækifæri til að komast að
því að fýrirsætustarf er ekkert fýrir
mig. Tónlistin er mitt sérsvið.“
En maður hefur heyrt að þér hafi
borist ótal tilboð úr tískuheiminum
um að taka þátt í myndatökum og
tískusýningum sem þú hafnaðir oft-
ast.
„Ég á svolítið erfitt með að áttá
mig á því, en ég væri að ljúga ef ég
segði að ég hefði ekki orðið vör við
að það væri verið að reyna að setja
mig í einhverja kategóríu með fýr-
irsætum eins og Kate Moss, þó ég
sé nú alls engin mjóna.“
Þú œtlaðir að halda tónleika hér-
lendis í desember. Hvað gerðist?
„Það var bara svo rosalega dýrt.
Það gekk ekki upp að sinni. Flug-
farið til Islands er skandall, það er
svo dýrt, og sérstaklega fýrir svona
stóran hóp. Það hefði gjörsamlega
kollvarpað túmum og sett hann al-
gjörlega í mínus. Ég stefhi að því að
koma fljótlega á næsta ári en ég
myndi þurfa einhvem stuðning, því
miðasalan borgar bara brot af
kostnaðinum við að setja upp
svona tónleika. Það væri toppurinn
að geta spilað hér heima. Maður er
alltaf með mestan taugatitring yfir
tónleikum hér og ef þeir ganga vel
er maður virkilega glaður.“
Það skiptirþig ennþá máli að spila
á íslandi?
„Það skiptir öllu. Hér era hörð-
ustu dómaramir.“
Einhverjar stefnubreytingar í tón-
listinni á nœstuplötu?
„Mig langar að gera einfaldari
tónlist en samt djarfari. Takmarkið
er náttúrulega að gera eitthvað sem
er byltingarkennt og gjörsamlega út
í hött en um Ieið þannig að fimm
ára krakki geti sungið með. Það er
kannski hægara sagt en gert og ég
eyði líklegast allri ævinni í að reyna
að semja þetta eina lag!“
Þorsteinn Högni Gunnarsson