Pressan - 13.01.1994, Blaðsíða 6

Pressan - 13.01.1994, Blaðsíða 6
Björgvin Ólafsson fur sem kom fyrst fram fyrir augu almenn- ings í viðtali við V haust. Þar talaði liann opinskátt um hverl hlutskipti það er að vera klæðskiptingur; karlmaður sem alltaf hefur dreymt um að vera kona. Björgvin lýsir áliti sínu á þeim tíu karlmönnum sem honum finnst vera kynþokka- fyllstu karlmenn ísiands. OSigmundur Ernir Rúnarsson fréttamaður Hann hefur góða kímnigáfu. Getur komið fólki á óvart. Hann hefur að auki þann sérstaka hæfileika að geta auðveldlega séð í gegnum fólk. Egill Ólafsson, söngvari og leikari Hann syngur mjög vel. Lifir sig inn í allt sem hann tekur sér fyrir hendur og er mjög innilegur. OBergþór Pálsson söngvari Hann er smekklegur. Alltaf hress. Og með mjög fal- leg augu. Hann á það þó til að vera nokkuð rogginn. Magnús Scheving þolfimikennari Mérfinnsthann kyntröll... mjög sexí! Hann ersvo lítið montinn, en það er gaman að horfa á hánn. Friðrik Weisshappel, barþjónn og búðareigandi 0\íuíÆB&}/^',• Prýðilega af guði gerður, líkamlega jafnt sem andlega. Yfirleitt brosandi með B^výMý/virkilega Ijúfa framkomu. ■M Það er alltaf gaman að eiga BSmX1 viðskipti við hann. Bubbi Morthens [j^tónlistarmaður Hann hefur alltaf farið sínar eigin leiðir án þess að traðka á öðrum. Það er góður eiginleiki hjá karlmanni. Jón Kr. Gíslason, körfu- Jl boltahetja og kennari ^Einstakt Ijúfmenni og mjög skilningsríkur. Hefur allt það sem prýða má góðan kennara. BLr® Ossur Skarphéðinsson umhverfisráðherra Kannski ekki mjög sexí, en virkilega skemmtilegur. Hann kemurvelfyrirsig orði og hefur sérstakt lag á að lofa ekki upp í ermina á sér. J|| Eiður Arnarsson, ^Ffyrrverandi „Herra ísland Mér finnst hann bara sætur og vel vaxinn. Þröstur Leó Gunnarsson leikari Spes týpa. Draumaprinsinn væri hann ekki svona „streit". F agmennskan í fyrirrúmi FRIÐRIKA BEIMÓIMÝS „Edda Heiðrún Backman er stjarna kvöldsins í hlutverki Mimiar/Melechios. Hún bókstaflega geislar... Og svo syngur hún alveg hreint einsog engill. “ EVA LUNA KJARTAN RAGNARSSON OG ÓSKAR JÓNASSON BYGGT Á SAMNEFNDRI SKÁLDSÖGU ISABEL ALLENDE LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR ★ ★★★ að er ekkert áhlaupaverk að gera leikgerð eftir sögu Isabel Allende um Evu Lunu. Sagan samanstendur af mörgum sögum sem vefjast hver inn í aðra, samein- ast og greinast eftir eigin lögmálum sem eru óralangt frá lögmálum veruleikans. Og tengjast aðeins vegna návistar sögukonunnar Evu Lunu, sem umskapar veruleikann í sögu til að koma reglu á óreiðuna. En þeim Kjartani Ragnarssyni og Óskari Jónassyni hefur tekist ótrú- lega vel að byggja upp leikverk úr þessum ósamstæðu sögum. Endinn fá þeir að visu að láni úr annarri sögu Ailende, Ást og skuggum, en sá endir á alveg eins vel við sögu Evu Lunu og hnýtir á hana þann endahnút sem nauðsynlegur er. Sýningin ber vitni fagmannleg- um og úthugsuðum vinnubrögð- um hvar sem borið er niður. Tón- list Egils Ólafssonar er falleg og skemmtileg og fellur einsog flís við rass að anda verksins. Flumingur hennar er fagmannlegur og örugg- ur undir stjórn Árna Scheving svo og dansar og hreyfingar leikara sem Micaela von Gegerfelt hefur unnið. Búningar þeirra Guðrúnar Sigríðar Haraldsdóttur og Þórunnar Elísa- betar Sveinsdóttur eru í senn raun- sæir og ævintýralegir og eiga ekki minnstan þátt í að skapa þá ævin- týrastemmningu sem á sviðinu rík- ir. Og leikmynd Óskars Jónassonar er meistaraverk. Þessi grængrái hraukur, sem með lit sínum og lög- un vekur tilfinningu fyrir því ægi- valdi harðstjómar sem persónurnar búa við, er með stigum sínum, stöllum og skúmaskotum endalaus uppspretta nýrra sjónarhorna, nýrra staða og nýs tíma. Því sam- kvæmt Evu Lunu er tíminn ekki til, allt gerist í einu og allir staðir eru í rauninni einn og hinn sami. Lýsing Lárusar Björnssonar undirstrikar og styrkir þennan skilning og fyrir tilstilli hennar verða margar mynd- anna á sviðinu að lifandi myndlist sem smýgur inn í hug og hjarta áhorfandans og sest þar um kyrrt. Og þannig breytist dimmt og kalt vetrarkvöld uppi á Islandi í hlýjan og litskrúðugan sólardag í Suður- Ameríku, þar sem litagleðin og lífs- nautnin ráða ríkjum og bera sigur- orð af gráma og kulda hervaldsins þrátt fýrir allt. Kjartan Ragnarsson leikstjóri sannar hér svo ekki verður um villst hæfhi sína sem leikhúsmanns. Hvert smáatriði í sýningunni er út- hugsað og fágað, hún rennur hratt og áreynslulaust í rúma þrjá tíma, lifandi og gjöful og aldrei dauður punktur. Myndirnar raðast upp ein af annarri, og skapa áhorfendum hroll og hlátur, hamingju og ótta, fögnuð og dapurleika. Ög vekja þrá effir því að ganga inn í þennan heim ljóss og lita til frambúðar. Leikarar í Evu Lunu eru fjöl- margir og bregða sér flestir í ýmissa kvikinda líki, þannig að það væri að æra óstöðugan að tíunda frammi- stöðu hvers og eins. Nægir að segja að undantekningarlaust allir skila sínu með prýði og fúllum sóma. Mest mæðir á nýgræðingnum í sýningunni, Sólveigu Amars- dóttur í hlutverki Evu Lunu. Sólveig skilar þessu krefjandi hlutverki mjög vel og á í fullu tré við hina margslungnu persónu, skilar gáska hennar og lífsgleði jafh sannfærandi og ótta hennar og kvölum. Á köflum verður þess þó vart að rödd Sólveigar er óskóluð, hún nær ekki þeim blæbrigð- um í raddbeitingu sem eldri og reyndari samleikarar hennar hafa svo auðveldlega á valdi sínu. Sérstaklega verður þetta áberandi í samleik þeirra Eddu Heiðrúnar Back- man, sem er stjarna kvöldsins í hlutverki Mimiar/Melechi- os, konunnar sem fæðist í karl- mannslíkama og vinnur sig í gegn- um niðurlægingu og fyrirlitningu til ffægðar og aðdáunar. Túlkun Eddu Heiðrúnar á þessari klofnu persónu er ffábær. Hún bókstaflega geislar, hvort heldur sem er í niður- lægingu kennarans í klæðskiptinga- búllunni eða upphefð hinnar dáðu sjónvarpsleikkonu. Og svo syngur hún alveg hreint einsog engill. Ellert A. Ingimundarson leiki Huberto og skilar þróun hans fi hálfvilltu götubarni til skærulið; foringja mjög vel. Þór Tulinius t fulllitlaus sem Rolf, sérstaklega fyrrihlutanum, enda er þáttur Rol: í verkinu dálítið óskilgreindur o sögu hans, sem tekur svo miki rúm í skáldsögunni, algjörleg sleppt. Karl Guðmundsson dregi upp skoplega og skemmtileg mynd af Maddömunni og Steir unn Ólafsdóttir er hrífandi ser Zulema. Egill Ólafsson og Pétr Einarsson leika þá Ríad Halabi o Rodriguez hershöfðingja og ger það vel, þótt Pétur sé óþarfleg dauflegur og stífur og ansi langt ft hinum kynþokkafulla hershöfc ingja sem veldur Evu Lunu skálc sögunnar ljúfsárri togstreitu. Það er full ástæða til að mæl með þessari sýningu við alla ser vilja gleyma kuldanum og myrkr inu eina kvöldstund og taka heir með sér mynd af lífsgleði og litc dýrð mannlegs hlutskiptis til a hlýja sér við öll hin köldu kvöldin. 6B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 13. JANÚAR 1994

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.