Pressan - 13.01.1994, Qupperneq 8
Ljóð í lauginni
Allsérstæð ljóðasýning hefst
15. janúar og stendur í mán-
uð. Vart er hægt að hugsa
iér óhefðbundnari stað til listsýn-
ngar en þann sem hýsir þessa sýn-
;ngu, nefnilega ofan í sundlauginni
Laugardal. Það er hinn frumlegi
itvarpsmaður Þorsteinn Joð Vil-
■rjálmsson sem sýnir ljóðið „Djúpt.
3júpt.“ og verða ljóðúnnendur að
<afa niður í laugina til að berja ljóð-
ð augum, en því er komið fýrir á
glergluggum undir vatnsyfirborð-
nu.
Höfundurinn þvertekur fyrir að
þetta tiltæki sé tilraun tO að brúa bil
þrótta og lista.
„Þetta hefur ekkert með sund að
gera og alls ekki ædunin að fá fólk
LEIKHÚS
Seiður skugganna Leikrit eftir
Lars Norén í leikstjórn Andrésar
Sigurvinssonar.
Þjóðleikhúsinu, Litla sviðinu,
frurnsýning lau. kl. 20.
til að hreyfa sig. Það er tilvalið fyrir
okkur sem aldrei nennum nema í
pottana að setja upp sundgler-
augu og lesa ljóðið
nokkrum sinnum. Það
er jafnlangt og nem-
ur einni innöndun.
Þar er miðað við
meðalreykinga-
mann, þó ekki
mjög andstutt-
an.“
Nú er þetta
ffemur óhefð-
bundinn sýningar-
staður.
„Þetta ljóð á hvergi
annars staða heima en
undir vatnsyfirborði. Ég hringdi I
Kristján forstöðumann og leitaði
eftir því að fá að sýna í lauginni.
Hann hefur trúlega haldið að ég
væri allsherjar vitleysingur en gaf
þó góðfuslegt leyfi.
Um leið og maður dregur and-
ann og fer niður upplifir maður um
stutta stund þetta fullkomna ástand
sem ljóðið lýsir, en maður verður
óumflýjanlega að fara upp aftur.
Þetta er einskonar „snapshot“ af al-
sælu.“
Nú má greina rómantík í Ijóðinu,
er Þorsteinn Joð á rómantísku
skeiði núna?
„Ljóðið varð til fýrir um ári,
þannig að það liefur fátt eitt
að gera með rómantík í lífi
mínu núna. Þetta ár hef
ég verið að vandræðast
með hvað ég gæti gert
við það og þá komu
sundlaugarnar til
bjargar. En að svo
miklu leyti sem skáld
getur tjáð sig um eig-
in verk þá lýsir ljóðið
kannski ffemur hold-
legu ástandi en róman-
tísku.“
„Ég ogþú ástin mín,
og hreyfðu þig nú alls ekki neitt.
Egskal sýna þér
hvað éggetgert,
með votumþvottapoka..."
Þetta er ekld nema sirka 1/3
ljóðsins. Þá er að grípa andann og
kafa.
Mávurinn ★★★ Sýning sem
óhætt er að að hvetja alla til að
sjá, ekki síst þá sem standa í
þeirri meiningu að Tsjekhov sé
svo óskaplega þungur höfundur.
(FB)
Þjóðleikhúsitw lau. kl. 20.
• Allir synir mínir. ★★★ í þessu
merka verki Millers er reynt að
takast á við hugmyndir hans um
glæp, ábyrgð, fjölskyldutengsl og
fleira, og allt sem þau mál snertir
er prýðilega vel túlkað. (MR)
Þjóðleikhúsinu fös. kl. 20.
íðSkilaboðaskjóðan. Nýtt ís-
lenskt barnaleikrit eftir Þorvald
Þorsteinsson.
Þjóðleikhúsinu lau. ogsun. kl. 14.
&Kjaftagangur. Gamanleikur eftir
Neil Simon í leikstjórn Askos Sar-
kola.
Þjóðleikhúsinu fim. kl. 20.
#Eva Luna. Leikrit með söngvum
eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar
Jónasson byggt á sögu Isabel Al-
lende, tónlist eftir Egil Ólafsson.
Viðamesta sýning Borgarleik-
hússins til þessa.
Borgarleikhúsinu fim. og sun. kl.
20..
JSpanskflugan. ★ Ég vona að
einhverjir geti haft gaman af
þessu. (MR)
Borgarleikhúsinufös. og lau. kl. 20.
ANDREA GYLFADÓTTIR, fyrrverandi söngkona Todmobile, hefur
fundið sér farveg á rólegri nótum en áður.
Enginn
hávaði
lengur á
Barrokk
JEIín Helena. ★ Fyrir utan
nokkrar vel samdar og vel leiknar
senur fannst mér Elin Helena alls
ekki sérstakt leikrit. Án þess að
lýsa atburðarásinni leyfi ég mér
að segja að sagan sjálf sé langt
frá því að vera merkileg og upp-
bygging hennar bæði fyrirsjáan-
leg og langdregin. (MR)
tíorgarlcikhúsinu, Litlá sviðinu,
fun.,fös. oglau. kl. 20.
jRonja ræningjadóttir. Barna-
leikrit Astrid Lindgren í leikstjórn
Ásdísar Skúladóttur.
Borgarleikhúsinu sun. kl. 14.
áGóðverkin kalla! — átakasaga
Nýr íslenskur gamanleikur eftir
þrjá Þingeyinga, sérstaklega sam-
inn fyrir leikara LA.
Samkomuhúsínu á Akureyri, fös.
og lau. kl. 20.30
JÉvgení Ónegín. Ópera eftir
Pjotr I. Tsjajkovskí. Texti Púshkíns
í þýðingu Þorsteins Gylfasonar.
Íslensku óperunni lau. kl. 20.
Söngkonan geðþekka, Andrea
Gylfadóttir, virðist hafa fund-
ið sér farveg eftir að hafa yfir-
gefið Todmobile. Auk þess að
skemmta endrum og sinnum með
Borgardætrum nýtur hún sín ágæt-
lega án þeirrar aðstoðar, nema ef til
vill ef vera skyldi undirleiks píanó-
leikara. í því formi kemur Andrea
frarn um helgina á Barrokk þar sem
allt er fallið í ljúfa löð eftir að Ital-
irnir sögðu samingi sínum lausum.
Einhverra hluta vegna skildi maður
aldrei af hverju þessi hávaði var þar,
enda passar það engan veginn að
inni á Barrokk sé allt á háa séinu.
Andrea er ein af fjölmörgum lista-
mönnum sem ráðnir hafa verið til
þess að skapa hárómantíska og
þægilega stemmningu sem að sögn
mun einkenna Barrokk á næstunni.
Með henni í för er Kjartan Valde-
marsson píanósnillingur.
8B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 13. JANÚAR 1994
C LIFIÐ EFTIR viwnu
Til að losna
úr viðjum
vernleikans
um helgina mælum við með...
__kokkteil-
drykkju
Það er alveg gefið að þeir sem
sulla saman mörgum víntegund-
um og drekka stíft missa minniö
um stund.
...spilakössun-
um
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur. í Ijósi nýjustu fregna
um vannýtingu spilakassanna er
hætt við því að spilasölunum
verði lokað einum af öðrum. Með
alla þessa fimmtíukalla í hönd-
unum gleymist líka strax hvað
maður er blankur.
_kvoldstund á
Pasta basta
Þar er auðveldlega hægt að
teikna sig frá hinum firrta raun-
veruleika með því að snæða
ágætan mat og fantasera um leið
með vaxlitunum, eins og Sævar
Karl gerði á meðfyigjandi mynd.
Jafnvel þannig að maður verði
þátttakandi í eigin teiknimynda-
sögu.
...tónleikum
með Black out
Á Tveimur vinum um helgina.
Það telja flestir sig hafa skemmt
sér vel á tónleikum með þeim en
enginn man þó fyllilega eftir því.
MYNDLIST
Ásmundarsafn: Náttúran í list
Ásmundar Sveinssonar. Opin 10-16
alla daga.
Gallerí Greip: Ásmundur Ás-
mundsson, Magnús Sigurðarson
og Margrét H. Blöndal opna sýn-
ingu í Gallerí Greip þann 14. janúar
og stendur hún til 3. febrúar.
Gallerí Sævars Karls: Ljós-
myndasýning ívars Brynjólfssonar
opnuð föstudaginn 7. janúar og
stendurtil 2.febrúar.
JGallerí Úmbra: Fyrsta einkasýn-
ing Ingibjargar Jóhannsdóttur
stendurtil 26. janúar. Hún sýnir ell-
efu myndir unnar með blandaöri
tækni á pappír.
Götugrillið: Guðmundur Rúnar
Lúðvíksson sýnir skissur að högg-
myndum, unnar úr gulli og silfri og
með blýanti, í Borgarkringlunni.
Kjarvalsstaðir: Þrjárnýjarsýn-
ingar sem standa til 13. febrúar:
Magnús Kjartansson sýnir ný mál-
verk, Finnbogi Pétursson opnar
sýningu á hljóðskúlptúrum og Geof-
frey Hendricks FLUXUS-maður
sýnir.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonan.
Sýningin Hugmynd-Höggmynd, úr
vinnustofu Sigurjóns Ólafssonar,
stendurfram á vor.
Norræna húsið: Þór Stiefel sýnir
andlitsmyndir unnar með vatnslitum
í anddyri hússins. Sýningin hófst8.
janúar og stendur yfir í þrjár vikur.
.
Nýlistasafnið: Sýning á verkum
Magnúsar Pálssonar stendurtil 23.
janúar. Hún nefnist „Varla..." og
samanstendur af þremur rjóðrum,
smáhlutum og raddskúlptúrum.
Sólou islandus: Skúlptúrsýning
Vignis Jóhannssonarstendurtil 18.
janúar.
Veitingahúsið Tilveran: Gunnar
Jóhannsson sýnir verk úr pastel, ol-
íu og vatnslitum frá 8. janúartil 8.
febrúar.
;Önnur hæð: Sýning á verkum
Stanleys Brown í sýningarsalnum á
Laugavegi 37 er opin á miðvikudög-
umfrá 14-18.
DANSAÐU EKKI
AF ÞÉR SKÓNA
UM HELGINA...