Pressan - 13.01.1994, Side 9
MAGNÚS PÁLSSON: „Veraldarsagan er að töluverðu leyti ímynduð, uppdiktuð og skrifuð eftir hentugieikum."
Fallegar og dramatískar sápur
Þeir sem heimsækja Nýlistasafnið þessa dagana verða fyrir ým-
iskonar hrifum. Þar stendur yfir sýning sem ber heitið Varla...
Þar er komið fyrir stórum strigarömmum og á þá er raðað, eftir
kúnstarinnar reglum, sápustykkjum af öllum stærðum og gerð-
um. Það er góður andi í Nýlistasafninu — gott loft — þefvæn sýn-
ing er það fyrsta sem kemur í hugann.
011 skilningarvitin verða
fyrir áreiti á sýning-
unni í Nýlistasafninu.
Einn þáttur er radd-
skúlptúrar. Hljóð-
myndin er flutt af leikurunum Am-
ari Jónssyni, Guðrúnu Stephen-
sen, Jóhönnu Jónas og Jóni St.
Kristjánssyni og unnin í samvinnu
við Þjóðleikhúsið — Kristbjörg
Kjeld leikstýrir. Maðurinn sem
stendur að baki öllu þessu heitir
Magnús Pálsson.
Magnús hefur starfað sem mynd-
listarmaður ffá 1959 og mótaði ný-
listadeildina við Myndlista- og
handíðaskóla Islands á sínum tírna.
Hann er menntaður sem leik-
mynda- og búningahönnuður og
hefur starfað mikið í leikhúsi. Það
kemur því ekki á óvart að verk hans
skuli leika um yítt svið og í seinni
tíð hefur Magnús unnið sérstaklega
með rými og texta. Sýningin
Varla... samanstendur af þremur
„rjóðrum“: Atlantis, Djengis Khan
og Étán-Langbrók. Magnús vill
ekki gera mikið úr allri þessari sápu
né heldur vill hann jánka því að
verið sé að skírskota til hinnar
hreinu listar.
„Nei, nei, þetta eru bara daglegir
hlutir sem margir hafa farið hönd-
um um á löngum tíma. Þá íinnst
mér sápustykkin falleg og dramat-
ísk — þau eru búin að eiga þátt í lífi
margs fólks.“
Magnús hefur safnað hráefni í
sýninguna í ein 10-12 ár. Hann
hefur bæði fengið sápuna gefha og
stolið henni ffá vinum og kunn-
ingjum, með góðvilja þó. En hvern-
ig tengist hljóðmyndin myndlist-
inni?
„Þetta er allt hluti af einhvers
konar veraldarsögu. Skriftin nefnir
þessi nöfh úr veraldarsögunni: Atl-
antis, Djengis Khan og þessar írsku
goðverur sem ég skíri á íslensku Ét-
án og Hallgerði langbrók. Hún er
goðvera fyrir mér og ég vil gefa
henni írskan goðlegan uppruna
með því að tengja hana Étán. Þetta
er minn leikur með söguna en er
kannski ekkert miklu óáreiðanlegri
en veraldarsagan yfirleitt, sem er að
töluverðu leyti ímynduð, uppdikt-
uð og skrifhð effir hentugleikum
þeirra sem skrásetja hana. Sagnir
um Djengis Khan eru byggðar á
munnmælum og Atlantis er
draumur Platóns og hefur kannski
aldrei verið til, en er kannski til. Það
er mottó við sýninguna sem hljóð-
ar: „Sagan flýgur áffam og tekur á
sig maska.“ Þannig er þetta nú
hugsað.“
Magnús er ffamúrstefnumaður í
myndlist en hann treystir sér ekki
til að skilgreina ffamúrstefnu í
stuttu máli.
„Abstraktlistin var ffamúrstefha
á sínum tíma. Á sjöunda áratugn-
um komu ffam aðrar hugmyndir
sem voru andstæðar abstraktlist-
inni og voru ffamúrstefna þess
tíma, þannig að framúrstefna er sí-
breytileg.“
Leikhúsið hefur meðal annars
verið vettvangur Magnúsar að und-
anförnu og verk effir hann sem
heitir „Sprengd hljóðhimna vinstra
megin“ og var flutt í Þjóðleikhúsinu
1991 vaktí mikla athygli. Hann er
búsettur úti í London en dvelur
talsvert hérlendis. Magnús segist
ekki þurfa vinnustofu léngur, vinn-
ur þar sem hann er, og tölva er
helsta verkfæri hans núorðið. Sýn-
ingunni lýkur 23. janúar og ekki úr
vegi að koma við í Nýlistasafninu
fyrir þann tíma, sjón er sögu..., nei,
lykt er sögu... eða þannig.
Jakob Bjarnar Grétarsson
Bjartara
yfir Bóhem
Það fer að verða óhætt að mæla með kvöldstund á Bóhem
aftur, ef marka má hugarfarið sem þar á að ríkja á næst-
unni. En Bóhem hét sem kunnugt er Plúsinn áður og þar
áður Púlsinn, hinn firnagóði tónlistarbar, þegar best lét.
Ætlun Kára Waage og félaga, sem tekið hafa við rekstri
Bóhem, er að hafa lifandi tónlist þar um hverja helgi og
eins fjölbreytta og hugsast getur. Þegar Þorrinn rennur
upp má svo búast við því að efri hæðin verði tekin í notk-
un fyrir þá sem vilja skaka sér við þá tónlist sem ekki
telst lifandi. Breytingar á staðnum eru þegar hafnar og má
sjá fyrsta vísinn að því sem koma skal nú um helgina.
KK ætlar m.a. að líta inn, en „grand opening" bíður
betri tíma.
• Amma Lú: Páll Óskar og Millj-
ónamæringarnir á föstudagskvöld
ásamt Erni Árnasyni. Örn einn og
yfirgefinn á laugardagskvöld.
• Barrokk: Andrea Gylfadóttir
hefur numiö land á Barrokk og
verður þar á föstudags- og laug-
ardagskvöld. Á rólegu nótunum.
• Bóhem: Hljómsveitir á föstu-
dagskvöldið. KK-band á laugar-
dagskvöld.
• Blúsbarinn: KK-band á fimmtu-
dagskvöld. Lipstick Lovers á
föstudags- og laugardagskvöld.
• Café Romance: Birgir Tryggva-
son og hinn ódauðlegi Richard
Scobie skemmta á hverju kvöldi
fram til 15. janúar.
• Dansbarinn: Hljómsveit Rúnars
Þórs heldur uppi eins miklu fjöri
og hún getur bæði á föstudags-
og laugardagskvöld.
• Feiti dvergurinn: Hljómsveitin
Sjarmör, sem ku vera helmingur
Sniglabandsins, ætlarað
skemmta á föstudags- og laugar-
dagskvöld.
• Fjörðurinn: Diskó alla helgina,
enda hljómsveitapása.
• Fógetinn: Djass að venju á
fimmtudagskvöld, nú með Krist-
jáni Guðmundssyni píanóleikara,
Dan Cassidy fiðlusnillingi og
Þórði Högnasyni kontrabassa-
leikara. Utlagarnir verða á neðri
hæðinni þetta sama kvöld. Har-
aldur Reynisson trúbador
skemmtir svo á föstudags- og
laugardagskvöld. En Jón Ingólfs-
son á sunnudagskvöld.
• Gaukur á Stöng: Tríó Jóns
Leifssonar á fimmtudagskvöld.
Marmelaði frá Akureyri á föstu-
dags- og laugardagskvöld.
• Hótel ísland: Eina sem er vitað
erað þarna verðurdiskó.
• Hótel Saga: Þorvaldur Hall-
dórsson og GunnarTryggvason
skemmta á Mímisbar á föstu-
dags- og laugardagskvöld. Dans-
leikur í Súlnasal á laugardags-
kvöld.
• Rauða Ijónið: Hljómsveitin SÍN
verður þar um helgina eftir því
sem næst verður komist.
• Tveir vinir: Black out leikur
gegn engum aðgangseyri á föstu-
dags- og laugardagskvöld.
• Þjóðleikhúskjallarinn: Leik-
húsbandið á föstudags- og laug-
ardagskvöld. Listaklúbburinn á
mánudag með þýðendakvöld.
Þeir sem koma fram eru m.a. Sig-
urður A. Magnússon, Ingibjörg
Haraldsdóttir og Baldur Óskars-
son.
SVEITABÖLL
• Gjáin, Selfossi: Black out kem-
ur þar við á fimmtudagskvöld áð-
ur en hún heldur á Tvo vini.
• Hafurbjörninn, Grindavík: Örk-
in hans Nóa á föstudagskvöld.
Enn á flakki.
• Sjallinn, Akureyri: Diskó á
föstudagskvöld. Árshátíð vél-
sleðaeigenda með hljómsveitinni
Karma á laugardagskvöld. Guð-
mundur Rúnar Lúðvíksson „him-
self" í kjallaranum.
• Þotan, Keflavík: KK-band á
föstudagskvöld. Hljómsveitin
Saga Class skemmtir hins vegar
kaupmönnum á Suðurnesjum á
laugardagskvöld. Allir velkomnir
eftir miðnætti.
Hvernig
var Eva
Luna?
Síðastliðinn föstudag var
leikritið Eva Luna frumsýnt
í Borgarleikhúsinu. Sé mið-
að við gagnrýnendur þá er
sýningin umdeild. Jón Við-
ar Jónsson í Dagsljósi var
ákaílega fúll með sýninguna
«n Friðrika Benónýs gefur
henni hæstu einkunn í
PRESSUNNI. Hvernig fannst
öðrum frumsýningargest-
um?
Valur Valsson
Ragnheiður
Erla Bjamadótt-
ir prestur:
„Mérfannst
mjög gaman.
Tónlistin var
skemmtileg og
sýningin mikið
sjónarspil með
sérlega góðum
dansatriðum. Leikaramir standa
sig mjög vel og sýningin gekk upp
fyrir mér. Ég tek það fram að ég hef
ekki lesið bókina, þannig að ég veit
ekki hvernig þetta er skrifað frá
höfundarins hendi. Surnt var
spennandi fýrir þann sem er að sjá
þetta í fyrsta sinn. Þó vissi maður
auðvitað að söguhetjan mundi
komast af, því það var jú byrjað á
öfugum enda. En ég skemmti mér
mjög vel. Þetta er löng sýning en
maður tekur ekkert eftir því. Það
má alltaf finna eitthvað til að pota í
en sýningin rann vel áfram.“
Sigurjón Pét-
ursson húsa-
smiður:
„Mér fannst
hún mjög góð,
eiginlega þannig
að ég varð stein-
hissa þegar ég
leit á klukkuna í
sýningarlok.
Sýningin er löng en hún virkaði
ekki þannig á mig. Mér finnst þetta
með allra bestu stykkjum sem ég
hef séð í leikhúsunum á undan-
fömum áram. Þetta er mikil sýn-
ing, alltaf mikið að gerast á sviðinu,
ffábærlega vel leikið af flestum leik-
urum og leiddi mig inn í heim sem
mér er ókunnugur og mér fannst
komast vel til skila þessi fátækt og
ógn sem þarna ríkir.“
Valgerður
Matthíasdótt-
ir, arkitekt og
dagskrárgerð-
arkona:
„Ég skemmti
mér konunglega
á sýningunni.
Það byrjaði strax
eg fékk gæsahúð um mig
alla vegna þess að bæði tónlistin og
heildaruppsetningin var mjög
sterk. Margir leikaranna léku stór-
kostlega vel. Sólveig Arnarsdóttir
og Edda Heiðrún Backman eru sér-
staklega eftirminnilegar. Og eins og
oftast þegar Kjartan setur upp sýn-
ingu þá verður maður ekki svíkinn
um gott leikhús."
bankastjóri:
„Égskemmti
tnér vel og það
tr meginatriðið.
Vlér fannst höf-
andarnir koma
nokkuð vel til
skila hugai'heimi
bóka Allende. Músíkin studdi verk-
ið vel. Eins og alltaf þá er frammi-
staða leikara misjöfn, en þar er oft-
ast um að ræða smekksatriði hvers
áhorfanda um sig.“
FIMMTUDAGURINN 13. JANÚAR 1994 PRESSAN 9B