Pressan - 17.02.1994, Side 10
Innrömmun og hannyrðir — Skóbúðin í Mjódd
Innrömmun og hannyrðir —
Skóbúðin í Mjódd er ein og
sama verslunin. Hún er staðsett
í Þönglabakka 6. Eigendur hennar
eru Hafsteinn Ágústsson og Margr-
ét Andreasdóttir. Þau ráku áður
verslunina Innrömmun & hann-
yrðir í Leirubakka 36 í Breiðholti. Á
miðju ári 1992 keyptu þau Skó-
verslun Helga og í dag reka þau
báðar þessar verslanir í sama hús-
næðinu. Hafsteinn segir að þetta sé
sérstök blanda en góð. „Það voru
rnikil og góð umskipti að flytja í
Mjóddina. Hér eru góðar sam-
göngur við önnur hverfi og bæjar-
félög með strætisvögnum. Fólk
kemur hingað með strætó og versl-
ar og tekur jafhvel sama vagn til
baka. Við höfum átt trygga við-
skiptavini í rúm tíu ár. Þrátt fyrir
að fólk flytji í önnur hverfi og bæj-
arfélög heldur það áfram að versla
hjá okkur. Meginástæðan fyrir því
er líklega sú að við höfum alltaf
reynt að bjóða upp á eins lágt verð
og við getum. Við vitum að fólk
kann að meta það og það spyrst
/ . «
ut.
Hafsteinn segir að að undan-
förnu hafi orðið mikil söluaukning
á prjónagarni og hannyrðavörum.
„Fólk hefur áttað sig á því að það er
ódýrt að prjóna og einnig að það
eru miklu meiri gæði í heima-
prjónaðri vöru en fjöldaffam-
leiddrir Nú er mikið í tísku að
sauma út og hekla.“
Gullúrið
Eigandi úra- og skartgripa-
verslunarinnar Gullúrsins er
Axel Eiríksson úrsmiður.
Hann rak verslun í Bankastræti 12 í
sextán ár en flutti sig í Mjóddina
fyrir þremur mánuðum og líkar
mjög vel. „Fólk er greinilega mjög
ánægt með að hafa fengið slíka
þjónustu í Breiðholtið. Eg hef á
boðstólum úr og klukkur af öllum
stærðum og gerðum og í öllum
verðflokkum, t.d. frá Seiko, Orient,
Pierpoint og Christian Bernards.
Ég er með eigin innflutning á skart-
gripum og því með svolítið öðru-
vísi skartgripi en gengur og gerist á
markaðnum.“
Þess má geta að Axel leggur
áherslu á að eiga alltaf mikið til af
herragjöfum, t.d. skartgripi, kveikj-
ara og penna. Axel hefur að sér-
stöku áhugamáli að gera við gamlar
klukkur og verðmeta gömul úr.
Hann býður upp á áletranir á
skartgripi og skrautmuni. Axel rek-
ur einnig verslun á Ísafirði og hefur
gert í tuttugu ár.
Svenson -heilsubúðin
Fyrirtækið Belís rekur Svenson-
heilsubúðina í Mjódd. Belís
heilsuvörur hf. var stofnað
fyrir fimm árum, en búðin í Mjódd
var opnuð fyrir þremur árum. Belís
gefur út vörulista nokkrum sinn-
um á ári og sendir inn á hvert
heimili í landinu, en vörurnar í
^vörulistanum eru einnig til sölu í
búðinni fyrir þá sem vilja skoða
þær. Þetta er vaxandi fyrirtæki og
viðskiptavinir þess eru mjög trygg-
ir. Belís er liður í Svenson-keðjunni
sem selur hágæðaheilsuvörur í fjór-
tán löndum í Evrópu og er núna að
nema land í Vesturheimi.
Svenson-heilsubúðin er í Álfa-
bakka 14 og þar er lipur og góð
þjónusta. Þær vörur sem Svenson
selur hafa allar verið þrælreyndar
gæðalega séð. Þetta eru allt nátt-
úrulegar vörur úr náttúrulegum
efnum. Það nýjasta á markaðnum
eru bandarísku pillurnar „Figure-
Form USA“. Þær hafa verið í sölu
þar í þrjú ár við góðan orðstír.
Þessar piílur hafa áhrif á efhaskipti
líkamans. Þær auka virkni króms
tífalt, sem gerir það að verkum að
það kemst meiri stjórn á blóðsyk-
urinn, blóðfitan lækkar og eggja-
hvítuefnin halda sér í vöðvunum
þannig að vöðvarnir rýrna ekki þó
að maður grennist. Þetta gerir að
verkum að hungurkenndin minnk-
ar svo og ásókn í sætindi.
Metró — miðstöð heimilanna
Veitingastaðurinn Pizza Hut í
Mjódd var opnaður fýrir
þremur árum. Hann er einn
þriggja Pizza Hut-staða á landinu.
Hinir eru á Hótel Esju og í Kringl-
unni. Pizza Hut er stærsta og
þekktasta pizzakeðja í heimi og tel-
ur í dag rúmlega tíu þúsund staði
um allan heim. Pizza Hut í Mjódd
er með veitingasal þar sem boðið
er upp á pizzur, pastarétti, bjór og
léttvín. Hann sinnir heimsending-
arþjónustu fyrir Breiðholt og nær-
liggjandi hverfi.
Skiptistöð vagna í Mjódd var
tekin í notkun í desember
1989. Allir vagnar sem aka um
Breiðholtshverfin stoppa við skipti-
stöðina, þ.e. vagnar á leiðum 11,
12, 111 og 112. Þá hafa vagnar á
leiðum 3, 4 og 16 endastöð í skipti-
stöðinni, auk leiðar 63, sem ekur í
stöð í skiptistöðinni. Nánari upp-
lýsingar um leiðir og tímaáædun er
að finna í leiðabók strætisvagn-
anna.
Með tilkomu skiptistöðvarinnar
skapast fjölmargir möguleikar fyrir
fólk að notfæra sér betur þjónustu
Hársel
Hárgreiðslustofan Hársel átti tíu ára afmæli 2. desember síðast-
liðinn. Hársel er til húsa í Þarabakka 3 á annarri hæð. Eigend-
umir, Agnes Jónsdóttir og Ingunn Sigurðardóttir, hafa rekið
stofuna í tiu ár, þar af þrjú ár í Seljahverfi, en hafa verið í Mjóddinni í
sjö ár. „Við bjóðum upp á alla almenna hárgreiðslu fyrir herra, dömur
og böm. Hér eru sex stólar og við eram yfirleitt fjórar eða fimm sem
vinnum hérna," segir Ingunn hárgreiðslumeistari.
Möggurnar í Mjódd
Þetta er fjórða árið sem hárgreiðslustofan Möggurnar í Mjódd er starf-
rækt í Mjóddinni. Hún var fýrst í sundinu í Þönglabakka 6 en flutti í
stærra og bjartara húsnæði í Álfabakka 12 í desemberbyrjun á síðasta ári.
Eigendurnir, Ásta Margrét og Jóhanna Margrét, störfuðu áður á hár-
greiðslustofunni Ýri í Hólagarði. Þær bjóða upp á alla almenna hársnyrti-
þjónustu og Ieggja áherslu á vandaða og góða þjónustu.
vagnanna. Til dæmis er tilvalið að
nota skiptistöðina þegar farið er
milli hverfa í Breiðholti eða milli
Breiðholts og annarra borgarhverfa
þar sem vagnar skapa ekki bein
tengsl. Þar sem skiptistöðin er í
verslunar- og þjónustuhverfi er tíl
dæmis sá möguleiki fýrir hendi að
fara úr vagninum í skiptistöðinni,
ef reka þarf erindi í pósthúsi eða
verslun, og fara svo með næstu ferð
áffam.
Skiptistöðin er hluti af þjónustu-
kerfi strætisvagna í Reykjavík og
reyndar á höfuðborgarsvæðinu og
því er mikils virði fýrir notendur
þjónustunnar að þekkja þá mögu-
leika, sem kerfið býður borgarbú-
um. Það er ódýrt og þægilegt að
nota þjónustu strætisvagna í
Reykjavík, og óhætt að hvetja borg-
arbúa til að nota meira þessa ódýra
þjónustu sér til hagsbóta.
Verslunin Metró í Álfabakka
16 var opnuð árið 1987 og
síðan hefrir verslunin verið í
stöðugri sókn. I Metró er verslað
með alla almenna byggingarvöru
ásamt ýmsum vörum til heimilis-
ins. Verslunin skiptist í málningar-
deild, verkfæradeild, innréttinga-
deild, hreinlætis- og blöndunar-
deild, tækjadeild, gólfefnadeild,
hljómtækjadeild og hreinlætis-
tækjadeild. Jafnffamt býður versl-
unin upp á garð- og sumarvöru og
gjafavöru fýrir jólin.
Á síðasta ári voru gerðar gagn-
gerar breytingar á versluninni og
vöruúrvalið aukið til muna. Ný og
glæsileg hljómtækjadeild var opn-
uð á neðstu hæðinni og við bættust
ýmsir vöruflokkar er snúa að heim-
ilinu.
Árið 1992 var opnuð Metr-
óverslun númer 2 á Lynghálsi 10 í
Reykjavík og í lok síðasta árs bætt-
ust þrjár Metróbúðir til viðbótar í
hópinn. Þær eru staðsettar á Akra-
nesi, ísafirði og á Akureyri. Með til-
komu svo margra verslana hefur
verið hægt að hagræða stórkostlega
varðandi innkaup og skilar þessi
hagræðing sér beint út í verðlagið.
Og enn hillir undir ffekari hagræð-
ingu, þar sem búðirnar hafa sam-
einast amerísku innkaupakeðjunni
Servi Star, sem er samband 4.400
byggingarvöruverslana.
Verslunarstjóri í Mjóddinni er
Hilmar Friðriksson, sem ásamt
starfsfólki sínu kappkostar að veita
viðskiptavinum verslunarinnar
ávallt góða þjónustu.
Snyrtistofan Hár-StÚdíÓ
Snyrtistofan Líf hefur verið í
Mjóddinni í fimm ár. Eigandi
hennar er Linda Ingvadóttir.
Hún er löggiltur fótaaðgerðaffæð-
ingur og snyrtiffæðingur. Hún
býður meðal annars upp á raf-
magnsháreyðingu, handsnyrtingu,
húðhreinsun, andlitsbað og auð-
vitað alla almenna snyrtiþjónustu.
Líf selur vörur ffá Clarins og Sixt-
us, en Sixtus-vörurnar eru unnar
úr alpajurtum og hafa reynst mjög
vel.
Hár-stúdíó er í Þangbakka
10, beint á móti Breiðholts-
apóteki. Hárgreiðslumeist-
ari er Ragnheiður Jakobsdóttir.
Stofan hefur verið starffækt frá 4.
desember 1981 þannig að hún er
tólf ára gömul og því með fýrstu
fýrirtækjunum í Mjódd. „Við bjóð-
um upp á alla almenna hársnyrti-
þjónustu og eram með tilboðs-
pakka af permanenti, litun og
strípum. Við vinnum með System
Professional- hársnyrtivörur. Til
margra ára hafði ég alltaf opið á
fimmtudagskvöldum og núna er ég
farin að taka það upp aftur að
bjóða fólki tíma á kvöldin — og
það miðast ekki endilega við
fimmtudagskvöld — en fólk verð-
ur þó að panta með dagsfýrirvara.
Ég vil endilega hvetja Breiðholts-
búa til að notfæra sér þjónustuna í
Mjóddinni, því að þjónustan er
fýrir fólkið,“ segir Ragnheiður hár-
greiðslumeistari.
10 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 17. FEBRÚAR 1994
Vogue
Verslunin Vogue er ein af
fýrstu verslununum sem
voru opnaðar í Mjódd, í
október 1986. Hún er ein af sjö
Vogue- búðurn á landinu, en
Vogue hefur verið starffækt hér í
um fjörutíu ár. Það eru þrjár
Vogue-búðir í Reykjavík, ein í
Hafnarfirði, Keflavík, Akureyri og á
Selfossi.
Að sögn Rögnu Ólafsdóttur,
verslunarstjóra Vogue í Mjódd,
hefur verslunin fengið mjög góðar
viðtökur. „Vogue býður upp á fjöl-
breyttar og góðar vörar á hag-
kvæmu verði. Verslunin er stór og
björt þannig að fólk hefur góða
yfirsýn yfir það sem hér er í boði.
Hér er einnig mjög þægilegt að
vinna. Mér virðist sem konur séu
mjög ánægðar með þessa verslun
enda koma þær hingað alls staðar
að úr bænum. Hér er nóg af bíla-
stæðum og strætisvagnar ganga
beint hingað neðan úr bæ.“ Ragna
leggur áherslu á að hægt sé að spara
umtalsvert með því að sauma. „Það
geta allir saumað sem hafa áhuga.
Hér era haldin saumanámskeið yf-
ir vetrarmánuðina sem njóta sívax-
andi vinsælda. Við eram með mjög
góðan leiðbeinanda á þessum
námskeiðum. Til marks um vin-
sældir saumanámskeiðsins má
nefna að sömu konurnar koma aft-
ur og affur. Um er að ræða sex
vikna námskeið. Það era sex konur
á hverju námskeiði og þær koma
einu sinni í viku. Námskeiðin eru
haldin öll kvöld vikunnar nema
föstudagskvöld og effir hádegi á
laugardögum.“