Pressan - 10.03.1994, Page 4
Portrettið
beinlínis
„sæll og
blessaður"
á svipinn
orvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarmaður um myndina af sjálfum sér: „Þessi
maður þarf að fara í klippingu, sérðu hvað hann er orðinn síður í vöngunum?
Klukkan er að verða fjögur og hann ætlar sér að ná í bankann. Þú lest það í aug-
unum: „Drífa sig." Svipurinn er fullhörkulegur miðað við það hvernig hann verður við
bankann. Þá stendur konan með lyklana í gættinni og hann setur upp hundsfésið: Auga-
brúnirnar falla niður og það kemur hundslegt bros og þá hleypir hún honum kannski inn.
Þessi náungi er ekki eins sólbrúnn og myndin gefur til kynna, hann er miklu fölari. Hárið
og eyrnalokkurinn gefa til kynna að hann sé ekki í skrifstofuvinnu. Það er syfja í augun-
um, hann vaknar ekki snemma á daginn sem bendirtil þess að hann sé í showbiz. Samt
get ég ekki neglt það, ég mundi ekki giska á að það væri popp í gangi. Frekar eitthvað í
sambandi við fjölmiðla. Hann gæti verið í sambandi við kvikmyndir eða myndbönd. Það
er einhver smáuppreisn í kringum hann en samt á ekki að ögra alla leið. Þessi eyrnalokk-
ur er píkulegur, hann ætti að rífa lokkinn úr sér og gera eitthvað almennilegt. Þetta hálf-
glott bendir til óþolinmæði og hroka. Hann vill að hlutirnir gerist hratt og vill skipa fyrir,
vinnur í skorpum og þarf að standa við „deadline". Það er þreyta, sérstaklega við hægra
augað, jafnvel þynnka — honum finnst allt í lagi að drekka. Þegar hann er í þeim hamn-
um er hann ekki mikið að spá í útlitið. Mig grunar að eyrnalokkurinn sé úr silfri og orðinn
brúnn. Hann hefur gleymt honum þarna í og er búinn að fara í ansi mörg hitaveituvatns-
böð og það er farið að falla á hann. Hann er sáttur við sig og einhver kraftur í honum
sem gæti beinst að hinu kyninu, en ég á erfitt með að sjá þennan mann í föstu sambandi.
Hann er hræddur við að binda sig og á erfitt með að sjá það ganga upp miðað við sína
rútínu — það er ekki kominn tími á að festa ráð sitt. Hann er varkár og vill ekki vaða út í
hvað sem er út í bláinn. Þetta er ekki maður sem ég mundi setjast við hliðina á og búast
við „næs" viðbrögðum. Hann er ekki beinlínis „sæll og blessaður" á svipinn. Það er púki
í honum. Ég held að þetta sé ekki körfuboltamaður, þó að það sé erfitt að sjá það á
myndinni, þannig að hann beitir fremur orðum fyrir sig en hnefum til að verja sig. En
stundum gleymir hann því og kemur sér í vandræði. í það heila gæti ég trúað að hann
væri ekki eins mikill töffari og hann virðist á myndinni.
„Efþú telur þig eiga í höggi við Jjand-
samleg öfl að handan, eða vilt losna við
forynjur sem drekka í gegnum þig, get-
urðu alveg eins gert galdraseremóníu
eins og eitthvað annað. “
endur kalla hann, var besti karl. Ég nokkurs konar Einstein galdra-
mun gera hann að umtalsefni ein- fræðanna og mótaði alveg nýja
hvem tímann síðar, enda var hann stefhu í geiranum.
JOIMAS SEIM
Ef marka má útlenda miðla
sem hafa komið hingað í við-
skiptaerindum, þá eru all-
skyns ill öfl á sveimi í Reykjavík.
Einn af þessum miðlum, sem ég
man ómögulega hvað heitir, hélt
því fram í sjónvarpinu að ástæðan
væri meðal annars einhvers konar
unglingaveiki. Hér væri nefnilega
ungt fólk á glapstigum sem hefði
ekkert þarfara að gera en að fikta
við andaglas og allskyns særingar.
Við það kæmu illir andar sem
gerðu ýmsar skráveifur á heimili
kuklaranna og hafa heilu fjölskyld-
urnar flæmst úr híbýlum sínum af
þessum ástæðum. Ekki er þó nóg
með það, því annar miðill hefur
sagt að á ákveðnum bar í miðborg-
inni leki ósýnilegt „astral-tertu-
gubb“ niður eftir veggjunum.
Sumir telja nefhilega að djöflar lað-
ist að vínveitingastöðum, vaði þar
uppi og fremji illvirki sín með því
að drekka í gegnum fólk. Sam-
kvæmt þvl er alkóhólismi ekki lík-
amlegur og félagslegur sjúkdómur
eins og meðferðarpostular halda
fram, heldur púkaveiki.
E.t.v. er þetta bara ofsóknarbrjál-
æði. En ef þú telur þig eiga í höggi
við fjandsamleg öfl að handan, eða
vilt losna við forynjur sem drekka í
gegnum þig, geturðu alveg eins
gert galdraseremóníu eins og eitt-
hvað annað. Galdrarnir byrja á því
að þú vígir vatn, en það er einfald-
ara en margan grunar. Vígt vatn er
bráðnauðsynlegt í hvers kyns
djöflaútrekstri og er kenningin sú
að slíkt vatn eyði neikvæðri orku.
Ekki þarf prest til að vígja vatnið,
enda á bara að fara með bænir yfir
smáræði af salti, síðan yfir glasi af
vatni og hella svo saltinu út í vatn-
ið. Þetta getur hver sem er gert án
þess að depla auga.
Til að byrja með verður að hafa
altari. Það má vera venjulegt borð,
og á hvítur dúkur að vera þar á. Þú
getur staðið eða setið við altarið
þitt, en í öllu falli áttu að horfa í
austur, með borðið fyrir ffaman
þig. Við þann enda altarisins sem
snýr ffá þér á reykelsi að brenna, en
í vestri, þ.e.a.s. þeirri hlið borðsins
sem vísar að þér, er vatnsglas. Á
norðurenda altarisins — til vinstri
— er diskur með u.þ.b. einni mat-
skeið af sjávarsalti, en í suðri hvítt
kerti. Best er að gera þessa athöfn í
svefnherberginu áður en þú tekur á
þig náðir enda er maður vamar-
lausastur sofandi. Fyrst kveikirðu á
kertinu og reykelsinu, en síðan
signirðu þrisvar sinnum yfir saltið
og biður Guð — eða hvað það er
sem þú trúir á — að blessa það.
Um leið geturðu ímyndað þér að
saltið fýllist af ljósi og verði sjálflýs-
andi. Næst gerirðu það sama við
vatnið, en svo hellirðu saltinu í
glasið og signir þrisvar sinnum yfir
saltvatnsupplausnina. Um leið
ferðu með bæn um að Almættið
vígi vatnið og hjálpi þér í barátt-
unni við óffeskjur og skrímsli.
Þegar þessu er lokið skaltu nota
teskeið til að skvetta vígða vatninu í
kringum þig og gleymdu heldur
ekki að láta nokkra dropa á rúmið
þitt. Svo tekurðu kertið og gerir
stórt krossmark með því í austri.
Um leið skaltu segja: „Eg ákalla ffið
og lækningu; ég ákalla mátt erki-
engilsins Rafaels. Megi Rafael
vemda þá sem sofa hér, nú og um
alla tíð.“ Næst horfirðu í suður (til
hægri), signir með kertinu og segir:
„Ég ákalla kærleika og hugrekki; ég
ákalla mátt erkiengilsins Míkaels.
Megi Míkael vernda þá sem sofa
hér, nú og um alla tíð.“ Nú snýrðu
þér í vestur, gerir kross með logan-
um sem fýrr og segir: „Ég ákalla
skilning og hugarró; ég ákalla mátt
erkiengilsins Gabríels. Megi Gabrí-
el vernda þá sem sofa hér, nú og
um alla tíð.“ Norðuráttin er síðust,
en effir að hafa signt méð kertinu
segirðu: „Ég ákalla góðan svefh og
læknandi drauma; ég ákalla mátt
erkiengilsins Úríels. Megi Úríel
vernda þá sem sofa hér, nú og um
alla tíð.“ Að endingu geturðu sett
lok yfir glasið með vatninu og haff
það í gluggakistunni í svefnher-
berginu. Þá er gott að klippa smá-
lokk úr hári þínu, setja hann út í
vatnið og geyma hann þar.
Fyrir þá sem eru að flýta sér er
líka hægt að gera annað, ef óvættir
sækja að. ímyndaðu þér að þú sért
inni í dimmbláu eggi og að í blá-
manum séu gylltar stjörnur. Eggið
er sterkt og myndar verndarhjúp í
kringum þig. Úm leið skaltu setja
vísifingur hægri handar upp að
munninum, eins og þú sért að
sussa á einhvern. Þetta er örugg
leið til að „loka árunni“ og er kom-
in frá galdrameistaranum Aleister
Crowley. Crowley gamli, eða Krolli
boy eins og íslenskir Krollaaðdá-
Hvemig losna skal við illa anda
4B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 10. MARS 1994