Pressan - 10.03.1994, Qupperneq 6
le
ðir Cil
kerlin
Aþessum lausgirtu tímum þar sem skilnabir eru
eins og faraldur og oftast tjaldab til einnar
nætur (eru ekki allir búnir ab gleyma þessu
aids?) þá er ekki verra ab hafa yfir góbri tækni ab
rába þegar grípa á bólfélaga. PRESSAN hafbi sam-
band vib nokkra annálaba kvennamenn sem létu
té ráb sem hafa gefist þeim vel.
1. Gefa sig út fyrir að vera nettskrítinn. Það
sakar ekki að blanda smábæklun inn í dæmið og
þykjast vera að gera kvikmynd! Það getur ekki
klikkað — áður en þú veist af ertu kominn með
fjórar blondínur við borðið og þú bara velur.
2. Komast að því hvað hún er að fást viö. Allra
best er ef hún er í skóla að skrifa ritgerð. Síðan þvaðr-
ar þú um það eins og þú vitir allt um málið. Þetta er eitt
skotheldasta ráðið. Bæði heldur hún að þú sért svona
alhliða gæi og að auki að þú berir hag hennar fyrir
brjósti og elur þannig á falskri öryggiskennd.
10. Segja gamansögur af
sjálfum sér frá því maöur var
unglingur. Þá fær hún þá rang-
hugmynd að þú hafir eitthvað
þroskast síðan. Og ef hún skilur
ekki má bæta við: „Mikið var
maður nú vitlaus og grænn í þann
tíð.“
12. „Playitcool-dæmiö“. Vera ekki
ákafari en svo að henni finnist það vera
sigur fyrir sig aö sænga hjá þér en ekki
öfugt. Þetta er eitt af grundvallaratriðun-
um og þarf að fara með öllum hinum.
. íí:|f ):*■*!*
11. Þykjast
vera trúaður. Að minnsta kosti tala um trúmál
eins og þú hafir áhuga á þeim. Þá fær hún það á
tilfinninguna að ef eitthvað meira verður úr en
þessi eina nótt, sem þú stefnir á, muni aldrei
skorta umræðuefni á heimilinu. Eilífð-
armálin eru náttúrulega eilífðar-
mál. Þetta þarf að spilast svolít-
ið eftir eyranu, oft gefst
vel að aðhyllast sértrú-
arsöfnuði, búdda eða
islam.
3. Ljúga upp á sig ríðingasögum. Góð hugmynd er a
hafa verið með Lindu Pé á föstu en sagt henni upp. Henr
svo mikið um að hún leitaði að mannsefni út fyrir landstc
fann Skota sem heitir Les.
4. Þykjast eiga sand af seðlum. í gamla daga dugði það trix að
skrifa himinháa ávísun og brenna hana til að ganga í augun á kven-
fólki. Nú á dögum er kvenkynið miklu útfarnara í bankamálum en karl-
menn, þannig að það er ekki væniegt til árangurs. Hitt hefur ekki
breyst að þær eru enn jafnginnkeyptar fyrir aurunum. Það má t.d.
missa það upp úr sér að faðir þinn bankastjórinn liggi fyrir dauðanum
og arfurinn sé á næsta leiti.
5. Ljúga sig 2-3 árum eldri en hún er. Þetta krefst þess að þú komist að því hvað hún er
gömul. Það er nokkuð sem ekki má spyrja beint að heldur verður að bera sig iymskulega að
við það. Til dæmis: „Bíddu, hvaða ár var það sem þú varðst stúdent?" Svo bætirðu u.þ.b.
þremur árum við það þegar þú segir til aldurs. Þær vilja nefnilega hafa karlmenn ívið eldri
vegna þess að þær telja sig þroskaðri.
13. Ekki láta
hana halda að
þú sért róni.
Þetta gerirðu til
dæmis með því
að stinga ekki úr
síðasta bjórglasi
kvöldsins heldur
skilja eftir sem
nemur tveimur
tii þremur sop-
um. Þig munar
ekkert um það
hvort sem er.
14. Láttu hana
halda að þú sért
róni. Þarna reynir
á sálfræðina, því
flestar konur vilja
síður vera með
róna núna á þess-
um síðustu og
verstu. Þó er það
svo að sumar ala í
brjósti þann draum
að bjarga rónanum
og gera hann að
betri manni. Láttu
það því eftir þér að
klára úr glasinu.
15. Segjast vera hommi. Það er
jú ergileg staðreynd að allar konur
dreymir um að snúa hommum. Sjá-
iði bara Pál Óskar! Þarna kemur
margt til, eins og að það fer í taug-
arnar á konum að karlmenn skuii
ekki girnast þær heldur kynbræður
sína. Annað er að þær mundu líta á
það sem eins-
konar últrasig-
ur hins kven-
lega aðdrátt-
arafls.
16. Vera-útlendingur-trixið. Eitt það allra öruggasta f bókinni. Tala bara
ensku (varast ber norsku) og til að vera alveg „on the safe side“ er rétt að
maka á sig brúnum skóáburði. Ef þú ert hávaxinn má bæta því við að mað-
ur sé í „basketball".
6. Ljúga því að þú sért nýkominn heim úr námi. Ekki
verra að það sé eitthvert praktískt nám en það er þó ekki
algilt. Grasið er grænna hinum megin og það að vera að
koma að utan fær þær til að halda að þú sért heimsborgari.
17. „Vertu þú sjálfur.“ Einhver kann að segja að þau ráð sem þegar eru komin byggist á lygi. Og
hvernig er annað hægt þegar konur eru búnar að skilgreina karla sem harða, þá mjúka, síðan semí-
harðmjúka og loks kenna þær hinum gagnkynhneigða karlmanni um allt sem aflaga hefurfarið í gegn-
um tíðina? Þú verður því að játa á þig vissar efasemdir um réttmæti kvenfrelsis þó að það hljóti auðvit-
að að vera sjálfsögð jafnréttiskrafa. Þá hugsar hún sem svo: „Ja, þarna er þó heiðarlegur náungi. Best
að bjóða honum heim og sannfæra hann endanlega."
6B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 10. MARS 1994