Pressan - 10.03.1994, Síða 8

Pressan - 10.03.1994, Síða 8
Lei khús • Gauragangur. ★★1/2 Mér er óskiljanlegt hvers vegna verkið var ekki bara látið gerast um 1970, það hefði verið muntrú- verðugra, enda eiga klisjurnar sem vaða uppi í því uppruna sinn á þeimtíma. (FB) Þjóðleikhúsinu, lau. og sun. kl. 20. • Blóðbrullaup. ★★★ Ef þeim Ingvari og Steinunni Ólínu tækist að kveikja eldinn á milli sín væri ég til í að sjá þessa sýningu aftur og aftur og aftur. (FB) Þjóðleikhúsinu, Smíðaverkstæði, fös. kl. 20 • Seiður skugganna. ★★★★ Það er ekkert faiið, engin fjar- lægð frá ömurleikanum, þu geng- ur inn í verkið og engist í klóm þessarar fjölskyldu, sem að meira eða minna leyti erfjöl- skylda okkar allra. (FB) Þjóðleikhúsinu, Litla sviðinu, iau. kl. 20. • Mávurinn. ★★★ Sýning sem óhætt er að hvetja alla til að sjá, ekki síst þá sem standa í þeirri meiningu að Tsjekhov sé svo óskaplega þungur höfundur. (FB) Þjóðleikhúsinu, þri. kl. 20. Auka- sýning. • Allir synir mínir. ★★★ í þessu merka verki Millers er reynt að takast á við hugmyndir hans um glæp, ábyrgð, fjölskyldutengsl og fleira, og allt sem þau mál snertir er prýðilega vel túlkað. (MR) Þjóðleikhúsinu, fös. kl. 20. • Skilaboðaskjóðan. Nýttís- lenskt barnaleikrit eftir Þorvald Þorsteinsson. Þjóðleikhúsinu, lau. og sun. kl. 14. • íslenski dansflokkurinn. Ball- ettar eftir Auði Bjarnadóttur, Maríu Gísladóttur, Lambros Lambrou og Stephen Mills. Þjóðleikhúsinu, fim. kl. 20 • Gleðigjafarnir. Eftir Neil Sim- on. Leikstjórn, þýðing og stað- færsla: Gísli Rúnar Jónsson. Að- alhlutverk: Bessi Bjarnason og ÁrniTryggvason. Borgarleikhúsinu sun. kl. 20.. • Eva Luna. ★★★★ Kjartan Ragnarsson leikstjóri sannar hér svo ekki verður um villst hæfni sína sem leikhúsmanns. Hvert smáatriði í sýningunni er úthugs- að og fágað, hún rennur hratt og áreynslulaust í rúma þrjá tíma, lifandi og gjöful og aldrei dauður punktur. (FB) Borgarleikhúsinu, fim., fös. og lau. kl. 20.. • Bar-par. eftir Jim Cartwright. Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson. Leikarar: Sunna Borg og Þráinn Karlsson. Leikfélag Akureyrar, SýntíÞorp- inu fös., lau. og sun. kl. 20.30. • Vörulyftan eftir Harold Pinter. Leikstjóri: Pétur Einarsson. Leik- arar: Halldór Björnsson og Þór- arinn Eyfjörð. íslenska leikhúsið, Hinu húsinu, lau. og sun. kl. 20. • Besti volgi bjórinn í bænum. ★★ 1/2 Það er skemmtileg til- breyting að setjast inn á bar til að horfa á leiklist og ekki spillir að verkin eru skemmtileg og vel unnin og eiga, eins og klisjan segir, erindi við okkur öll. (FB) Þormaguð, Naustkjallaranum, sun. kl. 20. Móeiður og Ey- þór með nýja hönnun á Bong-lógóinu. Þau eiga mest spilaða lagið um þessar mundir af mest spiluðu plöt- unni. LIFIÐ EFTIR VIIMIMU "\ Skipstjórarnir á Bong-fleyinu lUleð Helga Pé í mokkajakkanum brenndan í vitundina Bakhliðin Flytja inn nýjustu tækni og vísindi veituhúsinu við Elliðaár, á topp- stöðinni svokölluðu, þar sem ýms- um töffarastáltækjum ægir saman, en það er kaffistofan sem kveikti í hjörtum Kjól og Anderson. Það hefur ekki verið hreyft við henni í tugi ára. Hún heffir á sér svokaUað- an sýrublæ þar sem litir eru sterkir, til að mynda appelsínugulir og grænir, og ekki heffir verið hreyft við gluggatjöldunum í mörg ár. Þetta var þaulhugsað hjá drengjun- um. Þeir klipptu m.a. myndbandið á nóttunni í Fjölbrautaskóla nokkrum. Vinnslu lagsins er enn ekki lokið, því til stendur að gera endurhljóð- blöndun á 45 snúninga vínýlplötu fyrir diskótekara bæjarsins. Enda vOja þeir allra nútímalegustu ekki sjá annað á fóna sína. Hafþór Ólafsson meistarakokk- ur er lítið við pottana um þessar mundir utan hann tekur helgi og helgi vestur á Búðum. Hann starf- ar aðallega sem dægurlagasöngvari þessa dagana, en sem annar helm- ingur dúettsins Súkkats er hann að syngja um land allt. Súkkat-menn eru nýlega komnir ffá Stuttgart þar sem þeir skemmtu ásamt Herramönnum á urrandi þorra- blóti. Hvert er eftirlœtisfarartœkið? ,>Ætli það sé ekki fjarskalega gaman að fljúga, þá með flugvél, maður gerir svo lítið af því.“ Hver er langfyndnastur á íslandi aðþínu mati? „Ég ætla að velja heila hljóm- sveit í það: Herramenn frá Sauðár- króki. Þeir eru með allt litrófið í því sem teljast má fýndið.“ Hefurðu verið í skátunum? „Að sjálfsögðu, engin spurning með það.“ En ef ég ætti að fara núna þá væri það helst að blikka. Ætli það sé ekki enn inni?“ Hefur þig dreymt furðulega drauma umfrœgtfólk? „Ég hef ekki lent í því.“ Hver er eftirlœtismeðlimur þitin í Ríó-tríóinu? „Það er Helgi Pé. Þar hjálpast margt að, hann átti til dæmis mjög flottan mokkajakka hér í eina tíð og ég hef aldrei komist yfir það.“ Hvaða dýr vildirðu helst vera? „Það er kamel. Þeir eru flottir.“ Hvert er uppáhaldsljóðskáldið þitt? „Hallgrímur Pétursson er svolít- ið lunkinn og skemmtilegur þó að margir komi til greina. Djúpur og skemmtilegur karlinn.“ Áttu frœga forfeður? „Ekki svo ég viti. Það væri helst Grímur í íshúsinu.“ Hvað varstu garnall þegarþú dast fyrst í það? „Ég var um 14-15. Ég man að við félagarnir skriðum yfir holtið og vorum að fara á skólaball. Það var mjög gaman en ég man ekki hvort við komumst á ballið.“ Hver er uppáhaldslíkamspartur- inn þinn? „Mér finnst nú ennið svoldið gott.“ Á Bóhem um helgina m.a. til af því að nýjustu tækni og vísindum var beitt við gerð þess, þ.e.a.s. myndbandið var unnið með svokallaðri Rank Cinetel-digital- tækni. Án þess að útskýra það nán- ar er þessari tækni nú beitt í fyrsta sinn á innlent tónlistarmyndband, að sjálfsögðu með hjálp útlendinga. En af hverju þessi ofuráhersla á góð myndbönd? „Það er okkar miðill. Við spilum ekki á tónleikum. Við þurffim með einhverjum hætti að koma okkur á framfæri, þess vegna gerum við þetta almennilega. Við trúum líka á það að sigandi lukka sé best og för- um því hægt í sakirnar með því að gefa út eitt og eitt lag. Við höffim gert samning um að gefa út þrjú lög á þessu ári.“ Myndbandið er tekið upp í raf- að er ekki eins og dúettinn Bong sé að spretta upp úr jörðinni nú þegar hljómsveit- in Todmobile og djasskvartett Móeiðar hafa lagst í dvala. Bong heffir verið starfandi meira og minna í tvö ár og gaf m.a. út tvö lög á plötunni Núll og nix á síðasta ári. Um þessar mundir á Bong svo eitt mest spilaða lagið af mest seldu plötunni. Það er lagið Do you rem- ember af safhplötunni Reif í tólið. Og vel að merkja; það er eina jiýja íslenska lagið á plötunni. Á morgun birtist á skjánum — í þættinum hjá Dóru Takeffisa — væntanlega metnaðarffillt mynd- band ffá Bong. Móeiður Júníusdóttir og Eyþór Arnalds skipa að sögn aðeins ffam- varðarsveit dúettsins: „Við erum aðeins skipstjórar á Bong-fleyinu.“ Því í bakgrunninn hljóma tónar ffá ýmsum aðilum. I nýjasta laginu spilar t.d strengjasveit undir, auk þess sem Bogomil bregður sér í hlutverk Sigtryggs Baldurssonar og ber á bumbur. Og á næstunni eru þau að fara að vinna með hollensk- um slagverksleikara. Það eru auðvitað verðlaunahaf- arnir í Kjól og Anderson sem standa að baki myndbandinu. „Enginn leggur sig ffam eins og þeir,“ útskýrir Eyþór. Enda kom á daginn að þeir félagar eru í mínus fjárhagslega eftir að hafa lokið gerð myndbandsins, sem í heild kostaði 300 þúsund krónur. Kemur það Hvers konar gceludýr vœrirðu helst til í að halda? „Það er kötturinn. Þeir eru elskulegir kettirnir." Hver er uppáhaldssjónvarpsþátt- urinn þinn? „Það er Dagsljós. Langskemmti- legasti þátturinn." Finnst þér Markiis Örn Antons- son sjarmerandi týpa? „Eg sá hann í fféttunum í flot- galla og það gekk upp fyrir mér. Hann er ákaflega sjarmerandi í hafi.“ Ef þú ert á kvenmannsveiðum, hvaða brögðum beitirðu? „Ég er eiginlega búinn að gleyma því hvernig maður fór að þessu, enda er árangurinn eftir því. Daðrar þú í vinnunni? „Já, absalútt. Það má segja að það sé partur af djobbinu." Hvaða ritningargrein valdirðu viðfermingu? „Ég man ekki effir því og man ekld heldur hvort þar var um eitt- hvert val að ræða. En jú, ég er fermdur." Hvor finnst þér fyndnari: Björg- vin Halldórsson eða Gunnar Þórð- arson? „Ég heyrði einu sinni Bjögga panta pítu svoleiðis að hann verð- ur að eiga vinninginn.“ Hver er leiðinlegasta íslenska bíó- mynd sem þú hefur séð? ,Ædi það sé ekki Löggulíf. Þetta voru þétt, samfelld leiðindi." Stundarðu líkamsrcekt? „Já, ég spila fótbolta og svo fæ ég töluverða líkamsrækt með líflegri sviðsffamkomu með Súkkat." Hvertferðu þegar þú vilt láta þig hverfa? „Þá bregð ég mér upp í rúm og í draumheima.“ Hvort vildirðu heldur vera ívar Hauksson eða Hjalti Úrsus? „Ef ég má ekki vera á milli þeirra þá held ég að ég velji Hjalta, því ég held að hann geti lamið ívar en ekki öffigt." Hvaða persónu sögunnar líturðu helst upp til? „Æra-Tobba. Hann er kjaftfor og skemmtilegur." Finnskt rokkabillírytmablúsrokk Þeir sem hafa gaman af tónleikahaldi geta tekið gleði sína. Honey B. & T-Bones, tríóið kraftmikla frá Finnlandi, er á leiðinni og er þetta fjórða heimsókn þeirra til landsins. Þetta er alvöruband, það hefur spilað frá því um 1982 og er óþreytandi við að halda tónleika um allan heim. Sveitin, sem á tónlistarlegar rætur sínar í blús, er allsérstæð að sjá. Esa Kuloniemi spilar á gítar og syngur. Hann er slánalegur töffari sem minnir einna helst á Sam Shepard. Bassaleikarinn er hörkutútta sem heitir Aija Puustinen. Hún hefur pönkað yfirbragð og krafturinn í spilamennskunni er eftir því. Trommarinn er tiltölulega nýr og kemur úr hinni goðumsagna- kenndu hljómsveit Leningrad Cowboys og heitir Pimme Korhonen. Það var sjálfur Pétur W. Kristjánsson sem upphaflega stóð fyrir því að Honey B. & T-B kæmu til landsins en núna er það Kári Waage og staðurinn Bóhem sem flytur Finnana inn, en þar spila þeir á föstudags- og laugardagskvöld. 8B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 10. MARS 1994

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.