Pressan - 10.03.1994, Page 17

Pressan - 10.03.1994, Page 17
Sjáið • Harry fær skellinn ★★★ The Plot Against Harr)’ á RÚV á finuntudagskvöld. Bandarísk mynd frá árinu 1969. Harry, sem er gyðingur og bófi, kemur úr fangelsi og uppgötvar að aðrir hafa lagt undir sig yfirráða- svæði hans. Myndin er ein af fon'erum þess sem hefur verið kallað New York-skólinn í kvikmynda- gerð. • Hörkutól stíga ekki dans ★★★ Tough Guys Don’t Dance á RÚV á föstudagskvöld. Byggt á bók eftir Nomian Mailer og tekst ágætlega með Ryan O’Neal og Isabellu Rosselliní (úuhhh) í aðalhlutverkum. 9 Hrafn Friðbjömsson ★★★★★ á Stöð 2 á laugardag. Hér eru mistök sem þarf að leiðrétta. Hralh, þessi spengilegi og geðþekki náungi, fékk kúpu í þessum pistli fyrir nokkru. Það var að sjálfsögðu byggt á frústrasjónum ritara, scm nú er kominn úr skápnum. Hrafh! Takk! • Lísa í Undralandi ★★★ Aliæ in Wonderland á Stöð 2 á laugardag. Fín útfærsla á sögu sem allir verða að þekkja, hún er svo sterk í öllum vís- unum. • Leðurbiökumaðurinn snýr affur ★★ Battnan Retums á Stöð 2 á laugardagskvöld. Þessi mynd olli vonbrigðum en Danny DeVito gerir hana þess virði að sjá. • Allt í misgripum ★★★★ Comedy of Errors á RÚV á sunnudag. Shakespeare í uppfærslu BBC. • Rokkarnir gátu ekki þagnað ★★★★★ á RÚV á sunnudag. Úrval úr tónlistarþáttum sem sýndir voru árið 1986. Óborganleg skemmtun. 9 Ferðin til Ítalíu ★★★ WhereAngek Pear to Tread á Stöð 2 á sunnu- dagskvöld. Frábærlega filmuð mynd byggð á sögu eftir E.M. Forster. He- len Mirren í formi. Vanst: • Viðburðaríkið © á RÚV á fimmtudagskvöld. Sorrý, þetta er einfaldlega ákaflega óspennandi sjónvarpseftii og hreinlega niðurdrepandi að sjá möguleika miðilsins vannýtta með öllu. • Stefán Jón Hafstein © © Gettu beturá RÚV á föstudagskvöld. Hér eru hin mistökin en það var sagt að Stefán félli vel að menntaskólahúmornum: Gallinn er að hann fcllur of vel að þessu andrúmi. Maðurinn er gersamlega að fiíka út í menntaskólakvennafansi og grái fiðring- urinn er allsráðandi. Það að spyrja spum- inga þarf ekki endilega að þýða það að keppnin eigi að snúast um spyrilinn, einkum þegar brandarar virðast ekki hans sterka hlið. Stefán! Ekki nissa yfir sig! • Grammy-tóniistarverðlaunin 1994 © 'Ihc Grammy Awards á Stöð 2 á föstu- dagskvöld. Það að gera dagskrá um eitt- hvert partý fólks sem er að hrósa hvað öðru er algjör úrkynjum og hér er eitt dæmi þess. Þetta er enn leiðinlegra en risatónleikar þar sem poppstjörnum er hrúgað á sviðið, tíu gitarleikarar o.s.frv., og yfir sviðinu stendur Aparthæt eða Bandeid. 9 Eldfuglinn ★ Firefox á RÚV á laugar- dagskvöld. Það er þyngra en tárurn taki en verður víst að viðurkennast að meistari East- wood er ekki óskeikull. Ein af sárafáum myndum með Clint sem em ekki fjögurra stjörnu virði. • Síðdegisumræðan © á RÚV á sunnu- dag. Það verður að segjast að þessir umræðu- þættir hafa verið bragðdaufir og nú á alvcg að keyra um þverbak með spumingunni: Hvernig er að eldast á íslandi? Það var og. HEITT • Sólgleraugu ekki bara til að vernda mann fyrir birtunni heldur til þess að vernda aðra fyrir því að sjá manns eigin líkamslýti. í sumar skulu þau vera dökk, í pönkstíl. • Valdafemínismi þ.e. að kon- ur hætti að telja sig til fórnar- lamba heidur temji sér hugsunar- hátt sigurvegarans. Þetta frábæra slagorð segir allt sem segja þarf: Góðar konur komast til himna — hinar komast þangað sem þær vilja. • Vídeó- höllin ekki nóg með að þar sé að finna annað en amer- ískar stór- myndir í miklu úr- vali heldur er opið þar fram eftir nóttu. • íþróttafatnaður þykkur og þægilegur. Dökkur, helst svartur. Jafnvel þó að hann sé ekki beint ÞREYTT • Seðlabankastjórastólarnir þegar svo margir telja sig eiga séns í stöðurnar liggur það í augum uppi að staða banka- stjóra við Seðlabankann er ekki lengur áhugaverð. Eftir alla þessa umfjöllun er mystíkin í kringum þetta háa embætti farin. Maður getur ekki einu sinni ímyndað sér lengur að þarna séiT eingöngu menn sem hafa ekkert annað fyrir stafni en að naga blýanta. • Barir sem byggja á tónlist, brennivíni og augngotum ein- göngu. Það vantar tilfinnanlega eitthvað annað og meira í bar- menninguna en spilaskassa. Hvernig væri að reyna almenni- legt „stripshow", þar sem Leoncie fengi t.d. að spreyta sig? • Háar bíkinínærbuxur sem halda maganum inni. Ekki nóg með að lappirnar þurfi að vera tipp topp vegna stuttpilsatísk- unnar heldur þarf maginn að vera stæltur því bíkiní-buxurnar verða svo litlar í sumar að þær sjást varla. Bíó 9 Kryddlegin hjörtu ★★★★ Stórskemmtileg mexíkósk kvik- mynd og vel heppnaður óður til konunnar. Regnboganum 9 Frú Doubtfire ★★★ Robin Williams er drepfyndinn í þessari mynd, bæði sem kona og karl. Sambíóunum 9 Njósnaramir © Undercover Blues Það er eitthvað að efhaffæð- inni í henni sem gerir hana bjána- lega en ekki skemmtilega. Bíóhöllinni 9 Króginn ★★★ The Snapper Satt best að segja var ég að hugsa um að fara út eftir fýrstu tíu mín- úturnar. En svo kemur í ljós stór- skemmtileg mynd. Háskólabíói 9 Leið Carlitos ★★★ Al Pac- ino hefur á tjaldinu návist sem er mögnuð birting frumkrafta karl- dýrsins. Háskólabíói 9 Hús andanna ★★★★ Til- finningaþrungnustu atriðin sleppa við að vera væmin, þótt þau kalli á vasaklút. Sambíóunum 9 Sagan af Qiu Jiu ★★★★ Hún er fýndin og einlæg og ættu kvikmyndasælkerar, ferðaáhuga- fólk og aðrir sem láta sig fagur- kvikmyndir einhverju skipta ekki að láta þessa framhjá sér fara. Háskólabíói 9 Banvæn móðir ★ Hún er uppfull af gömlum þriller-töktum og ffekar slaklega leikin af annars ágætum leikurum. Laugarásbíói 9 í nafhi föðurins ★★★★ Þessi skrípaleikur er sönn saga. Hann er eitthvert mesta hneyksli sem riðið hefur breskum réttar- farshúsum ffá því pyntingar og limlestingar voru stundaðar í Tower of London. Háskólabíói Laugarásbíói Emilio á villigötum DOMSDAGUR LAUGARÁSBÍÓI © Þeir sem hafa verið duglegir við að lesa „Fólk í fféttum" í gegnum árin hafa oft rekið sig á klausur um að leikarar séu að rembast við að velja úr bunka af handritum. Þetta hljómar stund- um eins og þeir séu að velja af mat- seðli, ekkert mál. En þetta getur verið töluvert vandasamt og marg- ar gildrur að falla í. Með Dómsdegi (Judgement Night) hefur Emilio Estevez og umboðsmönnum hans brugðist dómgreindin. Dómsdagur er ein risastór klisja. Ég hef að vísu látið hafa eftir mér í þessum dálki áður að það sé svo KVIKMYNDIR HALLUR HELGASOIM sem í lagi að fara með klisjur ef vel er staðið að því. Fínt að fara og sjá eltingaleiki og bang bang og smá „love“ og þyrlur og vélbyssur, þó maður hafi séð það allt áður. Þessi byrjgpá heimiliskrísu sem stafar af því að ungur fjölskyldu- faðir ætlar að skilja.nýbakáða móð- ur, konuna sína, eina eftir heima og fara með vinum sfnhm á box- í þessari viku er ekki um að ræða tvífara vikunnar heldur afhjúpun. Þetta makalausa kameljón, sem íslendingar þekkja undir nöfnunum Joe Grimson eða Jósafat Arngrímsson, dúkkar upp hvar sem er í veröldinni. Þegar hann er ekki að stunda kaupsýslu úti i heimi hvílir hann sig á íslandi undir nafninu Pétur Jónasson Eiríksson og titlar sig framkvæmdastjóra hjá Flugleiðum. Og svo rækilega hefur honum tekist að hreiðra um sig rneðal þjóðarinnar að það má slá honum upp í bókinni Sam- tíðarmönnum. keppni. Vinimir fara að tínast sam- an fýrir firaman húsið... ekkert að athuga við þessa byrjun. Fljótlega eftir að þeir em komnir af stað í risastórum húsbíl, sem „höstlerinn“ í hópnum hefúr logið út úr einhverjum bílasala, fer að koma í ljós að sá hinn sami er frek- ar óviðkunnanlegur karakter. Ein- hvern veginn veit maður strax að eitthvað slæmt á eftir að koma fýrir hann. Og þegar hann er drepinn kemur það ekkert á óvart, því að fram að þvi hefur blikkandi ör nánast bent á manninn með text- anum „þéssi verður drepinn“. Það sem gerist er að félagarnir lenda í umferðarteppu á leiðinni og ákveða að stytta sér leið í gegn- um frekar skuggalegt hverfi. Þar keyra þeir ffam á særðan mann, halda reyndar að þeir hafi keyrt á hann, bera hann helsærðan inn í bíl og ætla með hann á spítala. Skömmu síðar kemur í ljós að maðurinn er með illa fengið fé inn- an á sér sem tilheyrir glæpaforingja hverfisins og sá er allt annað en ánægður. Eftir að illþýðið nær hin- um særða af drengjunum og drep- ur hann fýrir framan augun á þeim snýst restin af myndinni um eftir- för óþokkanna við Emilio og fé- laga, það er jú ótækt að láta vitni að aftökunni komast undan. Fyrir utan óffumlegan söguþráð eru samtöl í myndinni illa skrifúð og ná hámarki hallærisgangsins þegar vinirnir, innilokaðir i risa- stórum holræsabrunni, ákveða að taka á sig rögg, snúa bökum saman og snúa vöm í sókn. Ákvörðunin og samstaðan er sett ffam eins og Lára Ingalls og co. eigi í hlut, væmið og halló. Myndin gefur reyndar nokkuð Dómsdagur er ein risastór klisja. “ raunsanna mynd af andstæðunum góðu“ hverfi yfir á svæði þar sem í bandarískum stórborgum. Það ástandið er nánast eins og í borg- tekur ekki nema tíu til tuttugu arastyrjöld. Slæm saga í raunveru- mínútur að keyra úr „venjulegu legu umhverfi. ■" INDVERSKA PRINSESSAN LEONCIE HEITASTI SKEMMTIKRAFTUR Á ÍSLANDIVILL SKEMMTA ÁÁRSHÁTÍÐUM OG í EINKASAMKVÆMUM Á OPINBERUM STÖÐUM UM LAND ALLT. HINN FRÁBÆRICD „STORY FROM BROOKLYN“ SEMINNIHELDUR HEIT LÖG EINS OG „SAVING MY BODY FOR YOU“, ERNÚFÁANLEGUR AÐEINS HJÁ LEONCIE. SÍMI: 91-42878 MEIRIHÁTTAR SHOW FIMMTUDAGURINN 10. MARS 1994 PRESSAN 17B

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.