Pressan - 14.04.1994, Blaðsíða 2

Pressan - 14.04.1994, Blaðsíða 2
Næsti vetur í Borgarleik- húsinu Síðastliðinn mánudag var haldinn fundur með starfs- mönnum Borgarleikhússins þar sem lögð voru fram drög að dagskrá næsta vetrar. Hún kemur til með að litast nokk af 50 ára af- mæli lýðveldisins og fyrirhugað er að á litla sviðinu verði einungis um íslensk verk að ræða. Páll Baldvinsson, dramatískur ráðgjafi Borgarleikhússins, mun leikstýra einu merkasta verki leikbók- mennta Islendinga. Það er „Galdra-Loftur" eftir Jóhann Sig- urjónsson og heyrst hefur að hinn nýútskrifaði Benedikt Erlingsson fái einstætt tækifæri, þ.e. að túlka hið eftirsóknarverða titilhlutverk. Margrét Vilhjálmsdóttir, líka úr útskriftarhópi Ll, fer sömuleiðis með hlutverk í sýningunni. Þá verður nýtt frumsamið leikrit eftir Þór Tulinius á dagskrá. Það er svo flunku-nýtt að það hefur ekki einu sinni fengið nafn ennþá. Einnig er fyrirhugað að á litla sviðinu verði íslenskt barnaleikrit og að öllum líkindum mun Ása Hhn Svavars- dóttir leikstýra því. Verkefhi á stóra sviðinu taka einnig mið af 50 ára afmælinu. Fyrsta verkefnið þar verður leikrit sem heitir „Leyni- melur 13“, en það vill svo til að það er 50 ára og fjallar um líf fólks í Reykjavík fýrir 50 árum. Svo mikil leynd er yfir höfundum Leynimels að enn hefur ekki verið upplýst hverjir þeir eru, en höf- undarnafhið er Þrídrangur. Það verður Ásdis Skúladóttir sem leik- stýrir því. Guðjón Petersen setur BENEDIKT ERLINGSSON (t.h.) hefur fengið stórt hlutverk í Borgarleikhúsinu, leikur sjálfan Galdra-Loft. Hér er hann ásamt ÞRESTI LEÓ GUNNARSSYNI í Sumargestum, sýningu Nemendaleikhússins. söngleikinn „Kabarett“ á svið en hann var sýndur í Þjóðleikhúsinu fyrir 25 árum og var á dagskrá LA fýrir rúmum tíu árum, en þá fór Guðjón einmitt með hlutverk skemmtanastjórans. Hann ætti því að þekkja leikritið vel. Með hlut- verk Sally Bowles fer Edda Heið- rún Backman sem ekki kemur á óvart. Það sætir meiri tíðindum að þvf hefur verið hvíslað í leikhús- heiminum að Ingvar E. Sigurðs- son komi jafnvel til með að fara með hlutverk skemmtanastjórans. Frá þessu hefur þó ekki verið gengið, en Ingvar er fastráðinn hjá Þjóðleikhúsinu. Að endingu má nefna fyrirhugaða uppsetningu Kjartans Ragnarssonar á nýlegu finnsku verki, en það er leikgerð úr bók sem er framlag Finna til Bók- menntaverðlauna Norðurlanda- ráðs. Þess má einnig geta að Holly- wood hefur þegar tryggt sér kvik- myndaréttinn á sögunni sem þar er sögð... Ræðismaður Mexíkó á íslandi, Rolf Johansen, hefur verið í hverri veislunni af annarri upp á síðkastið vegna ailra þessara mexíkósku daga. Hér leggur hann áherslu á mál sitt við Pathriciu Henna sem er menningarfulltrúi Mexíkó í Osló. En sendiráð Mexíkó í Osló stendur einnig að baki veisludögunum á Hótel Sögu. Steingrímur Hermannsson, Oddur Ólafsson og Edda Guðmunds- dóttir voru meðal veislugesta við opnunina á Hótel Sögu á þriðju- dag. Mexíkóskur matur er óneitanlega sá heitasti á íslandi um þessar mundir... Hótel Saga sla af íhalds Það er ekki ofsögum sagt að mexíkóska sælkeramyndin Krydd- legin hjörtu hafi gerbreytt matarmenningu íslendinga. Frá því að sýningar á myndinni hófust hefur hvert veitingahúsið af öðru lagt metnað sinn í mexíkóska matreiðslu. Café Ópera reið á vaðið með tilboð á mat meðfram bíóferð, Hótel Loftleiðir hélt afar vel lukkaða mexíkóska daga fyrir skömmu með tilheyrandi dansmennt og söng og nú — og það þykir tíðindum sæta — er Hótel Saga, sem löngum hefur verið í íhaldssamari kantinum, með það sama upp á teningn- um; mexíkóska viku sem stendur til 17. apríl og hófst síðastliðinn þriðjudag. Skrautfjöður veisludaganna er gestakokkurinn Alejan- dro Caloca, sem mun vera fyrsta flokks matreiðslumeistari. Að auki skemmtir tíu manna innflutt hljómsveit frá Mexíkó undir borðum auk seiðmagnaðra dansara. Þá er sérinnflutt vín á boðstólum og má þar nefna Margarítu, Tequila og mexíkóskan bjór. Leifur Eiríksson og Jónas I SANNLEIKA SAGT IIMDRIÐI G. ÞORSTEIIMSSOIM Islendingar hafa nokkrum sinn- um fundið Ameríku. Fyrstur þangað var Leifúr Eiríksson frá Eiríksstöðum í Dölum vestur. Fyrsti íslendingurinn sem fæddist í Vesturheimi fluttist síðan til Is- lands og bjó í Glaumbæ í Skaga- firði. Ekkert heíúr verið gert hér á landi til minningar um Leif Eiríks- son, nema hvað við léðum pláss undir styttu af honum á Skóla- vörðuhoíti, en þá styttu gáfú Bandaríkjamenn okkur árið 1930, þegar við höfðum enn geð til að minnast fornra tíðinda úr sögu landsins. Nú eru þjóðhetjurnar sóttar í poppheiminn, þar sem frægir atburðir gerast á vettvangi alnæmis og sýru. Á meðan grasið gær á rústum Ei- ríksstaða í Dölum vestur minnast siðmenntaðar þjóðir allra þeirra sem færðu Ameríku á landabréf miðalda með söfúum og styttum og viðhaldi þeirrar sögufrægðar sem tengir saman staði og atburði, svo þeir verði frekar skiljanlegir trylltum samtíma. Hér vantar að vísu ekki digrar stofnanir, en þær eru flestar að fást við naflann á sér og þá takmörkuðu söguhefð sem byrjar eins og loftsteinn utan úr al- heiminum um átta huridruð eftir Krist, þegar víkingar komu albúnir vopnum og skipum út á Norður- sjóinn, eins og þeir hefðu aldrei átt neitt upphaf. Ofan í þetta fálæti berst svo flugufregn um það, að menn norðanlands hafi í hyggju að reisa styttu við Glaumbæ af fýrsta Ameríkumanninum, þ.e. manni sem fýrstur fæddist í Ameríku af ís- lensku foreldri. Islendingar höfðu síðar enn frek- ari kynni af meginlandinu í vestri. Þangað flutti fjöldi fólks á síðustu tugum átjándu aldar undan jarð- bönnum og frostum og öskufalli úr öskju. Þetta var kjarnafólk sem fá- tækt og harðindi höfðu hrakið frá byggðum bólum. Vestur flúði maður á borð við Sigurð frá Bala- skarði og hóf vinnu í kopamámum í Kanada, maður sem síst vék und- an hríðum, enda lá hann úti í stór- viðrum vítt um land; svaf meira að segja eina nótt villtur uppi á Þyrli í Hvalfirði. Jafnvel honum var ekki vært í landinu. En það snjóaði ekki fyrir skilningarvit Sigurðar, því vestra skrifaði hann ævisögu sína í einum þremur bindum; eitt af stórverkum bókmennta okkar og alveg jafngilt ævisögu séra Jóns Steingrímssonar og ritsins I Verum eftir Theódór Friðriksson. Ævisaga Sigurðar hefur hins vegar legið í nokkru þagnargildi; þ.e. hún hefúr ekki verið markaðssett af því það hefur ekki þótt pólitísk nauðsyn. Mörgum Vestur-Islendingum hef- ur verið eins farið og Sigurði frá Balaskarði, að þeim hefúr fundist ísland svo ljómandi af sögu að þeir tala um landið þannig, að popp- þjóðin skilur ekki. Þeir hafa eldd rofið neinar tryggðir. Um þá hlið var séð hér heima. Nýrri saga í samskiptum okkar við Ameríku er eðlilega ekki enn gleymskunni falin. Helsti forystu- maður þjóðarinnar á þessari öld lagði leið sína um Islendingabyggð- ir fýrir seinna stríð og varð fyrir þeim áhrifum í þeirri ferð, að þau bjuggu með honum síðan. I þessari ferð kom fyrst fram hugmyndin um Leifslínuna. Gamall og valda- laus á fýrstu árum kalda stríðsins talaði þessi maður enn um Leifslín- una, sem nú á allra síðustu árum er að öðlast nýja merkingu. Þegar Bandaríkjamenn, í nauðvöm fýrir vestræna menningu og siði, ósk- uðu eftir að gera samning við Is- lendinga um varnir landsins og varnir á Norður-Atlantshafi, og Evrópuþjóðir höfðu hafið víðtækt vamarsamstarf í sama skyni innan Nato, óx upp slíkt andrúm haturs og ofstækis hér á landi, að það þurfti kjark hins gamla leiðtoga til að orða frekari samskipti þjóðanna fýrst vamarsamstarfið var orðið nauðsyn. Jónas Jónsson frá Hriflu steig ótrauður ffarn á sviðið í Gamla bíói að stríði loknu og sagði, að nú væri kominn tími til að gera versl- unarsamning við Bandaríkin til áratuga, sem fæli í sér rétt til „toll- lausra og hömlulausra innflutn- ingsviðskipta jafnlengi og her- verndin væri í gildi“. I raun var hann að brydda á fríverslunar- samningi, sem nú löngu síðar er á döfinni á sama tíma og við óttumst að ná ekki nógu góðum kjömm innan EES. ísland er allt í einu orð- ið til viðræðu um verslunarkjör við aðrar þjóðir, þótt aðeins séu nokk- ur ár síðan slíkt tal jaðraði við landráð. I þessu efni var Jónas langt á undan sinni samtíð, eins og í fleiri málum, en kotungshugurinn og heimalningshátturinn kom að stórum hluta í veg fýrir skilning á orðum hans og gjörðum. Að vísu virðist Jónas hafa hugsað sér að Bandaríkjastjóm myndi annast um sjálf viðskiptin í einhverjum mæli. En hún er að því leyti öðmvísi sett en sósíalskar þjóðir Evrópu, að aðrir en hún verða að höndía með vörana. Jónas vildi selja fiskinn okkar. Þegar viðmælendur vom uppi með viðbárur segir sagan að gamli maðurinn hafi minnst þess, að hið opinbera vestra þarf að reka nokkur mannmörg fangelsi og fangar þurfa að borða. Með hálf- lukt augu tautaði hann við viðmæl- endur sína, að ekki þyrfti að hafa fisk á borðum nema þrisvar í viku í Sing Sing svo öll fiskffamleiðsla okkar seldist. En þetta var nú þá. Svo fór að vísu að mikill hluti fiskffamleiðslu okkar seldist til Ameríku í gegnum Iceland Seafood Corp. og Coldwat- er. Hvort þeir eru farnir að borða fisk í Sing Sing skal ósagt látið. En meginmálið er, að Jónas ffá Hriflu vildi gera fríverslunarsamning við Bandaríkjamenn þegar kommún- istar og fýlgisveinar þeirra vom búnir að hantéra þjóðina þannig, að það var aðeins með herkjum að landsmenn fengu ffið til að ganga í fylkingu með öðrum þjóðum Vest- ur-Evrópu í nauðsynlegu andófi gegn Sovétríkjunum, sem þá buðu upp á annað tveggja, rautt eða dautt. Svo hatrammlega voru ís- lendingar heilaþvegnir í þessu máli, að heilir borgaralegir flokkar virð- ast enn reiðubúnir að ganga til pól- itísks samstarfs við þá rauðu og „Jónas Jónssonfrá Hriflu steig ótrauð- urfram á sviðið í Gamla bíói og sagði, að nú vœri kominn tími til að gera verslunar- samning við Bandaríkin... “ dauðu hvenær sem þeir væla úr kalkaðri gröf sinni, sem þeir tóku sjálfúm sér. Ameríkuhatrið virðist þó vera að linast, vegna þess að ’68- kynslóðin verður að sækja þangað mest af andlegu fóðri sínu, popp- músíkina, og virðist una vel í þeim viðjum andleysis. Stalín mun ekki hafa hugsað fýrfr því að leggja tötralýðnum frá 1968 til neina músík, enda var hann fjarri góðu gamni á þeirri uppskeruhátið hinnar pólitísku kartöflu. 2B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 14. APRÍL 1994

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.