Pressan - 14.04.1994, Blaðsíða 3

Pressan - 14.04.1994, Blaðsíða 3
• • Allar hendur á lofti Þegar maður heyrir minnst á Black out dettur manni fátt annað í hug en gleymska vegna almennilegs fyll- erís eða einhver geðræn truflun. Black out er þó að- eins nafn á hljómsveit nokkurri. íslenskri. Eðlilega grunar mann, svona í fyrstu, að hér sé á ferð graðhestagrúppa ell- egar dauðarokkssveit. Því fer hins vegar fjarri. Að minnsta kosti ef dæma má af nýjasta lagi hljómsveitarinnar, Come around, sem er Ijúf ballaða sem hver ástfangin manneskja gæti verið stolt af að senda kærustanum(unni) með kveðju á einhverri útvarpsstöðinni. Við nánari eftirgrennslan kemur í Ijós að lagið er svosem ekki einkennandi fyrir hljómsveit- ina. En hvað einkennir þá hljómsveitina? Jóna de Groot, söngkvinna sveitarinnar, situr fyrir svörum: „Við spilum rokk og ról fyrst og fremst. Okkar eigið rokk og ról að mestu, enda Leifur Hammer (meðlimur Black out) ótæmandi brunnur. Við eigum örugglega orðið efni í tvær breiðskífur. Annars höfum við einnig gamla standarda á borð við Led Zeppeiin, RATM, Black Sabbath og James Brown með á tónleikum." Hljómsveitin er um þessar mundir að koma úr tveggja mánaða æfingapásu, auk þess sem skipt var út tveimur meðlimum til að styrkja bandið. Auk Jónu og Leifs spila nú með Black out þeir Stefán Sigurðsson og Hreiðar Júlíus- son." Manni heyrist á röddinni í þér (þetta er símaviðtal) að þér hljóti að svipa eitthvað til söngkonu 4 Non Blonds í söngham. „Já, ég hef ekki farið varhluta af þeirri samlíkingu og hlýt að vera stolt af því." Frá og með apríllokum er hljómsveitin svo að segja full- bókuð fram í júlí, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu heldur einnig á landsbyggðinni. Þetta vilja Jóna og félagar ekki síst þakka góðum umba. Fyrsta giggið með nýskipunina héldu þau um síðustu helgi og þótti takast vel til. Þið syngið eins og flestar aðrir íslenskar rokkgrúppur á ensku! „Já, af þeirri einföldu ástæðu að á fyrstu æfingu greidd- um við atkvæði um hvort við ættum að syngja á ensku eða íslensku; áttum að rétta upp hönd ef við vildum syngja á ensku og svo vildi til að allar hendur voru á lofti." Stefán, Hreiðar, Leifur brunnur og Jóna de Groot, sem líkt hefur verið við söngkonu 4 Non Blonds. ERT I»l ÞARNAIROÐINNI? Ef ekki, þá er um að gera að drífa sig til okkar því nú fer hver að verða síðastur á þessari stórkostlegustu vor rýmingarsölu ársins. ALLT A AÐ SELJAST VEGNA ÞESS AÐ VIÐ RÝMEM FYRIR NÝJUM VÖRUM!!!!!! SMIÐJUVEGI 6, KÓPAVOGI SÍMI: 91-44544 OPIÐ VIRKADAGA KL. 09:00 - 18:00 LAUGARDAGA KL. 10:00 -18:00 SUNNUDAGA KL. 12:00 -18:00 Lifir lengur... FIMMTUDAGURINN 14. APRÍL 1994 PRESSAN 3B

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.