Pressan - 14.04.1994, Blaðsíða 13

Pressan - 14.04.1994, Blaðsíða 13
LIFIÐ EFTIR VIIMIMU FIMMTUDAGURINN 14. APRÍL 1994 PRESSAN 13B hana leikkonu á uppleið. mikið, en ég hef alltaf haft mikið að gera. En þar sem maður er búinn að vera á sama stað hérna í Los Angeles svona iengi, alltaf að vinna fyrir sömu viðskiptvinina, er þetta orðið alltaf það sama. Ég ferðast t.d. miklu minna nú en áður.“ Ertu barasta að verða ráðsett kona í LA? „Já, eða þannig. Ég starfa nú samt á fullu og fæ dágóðan pening fyrir. Ég held bara að ég hafi grætt mestan pening á öllum ferli mín- um núna að undanförnu. Maður er alltaf að græða,“ segir hún hæðnislega. „En það er pottþétt að koma að lokunum hjá mér sem fyrirsæ'tu, enda er ég komin með alveg upp í háls.“ Eftirsótt og en hundlei Bertha hefúr dvalið hér á landi í tvær vikur en fer á morgun aftur utan til bús og manns. „Ég reyni að láta lítið á mér bera alltaf þegar ég kem hingað í heimsókn. Ég vil bara fá að vera í friði með fjölskyidunni. Sumir reyna að gleypa mann þegar maður kemur hingað." Playboy-stúlkan Bertha hefur greinilega tileinkað sér stórborga- hugsunarháttinn og leynir ferðum sínum sem mest hún má á íslandi. Ferðu þá bara í Húsdýragarðinn og svoleiðis þegar þú ert heima á ís- landi? „Já, næstum því. Annars skil ég ekki að fólk skuli ekki vera orðið leitt á mér.“ cd m* ROOKLYN“ G/y ^ 'YFOR YOU“ I — INDVERSKA PRINSESSAN LEONCIE HIN HEIMSFÆGA INDVERSKA PRINSSESSA LEONCIE HEITASTI SKEMMTIKRAFTUR Á ÍSLANDI, VILL SKEMMTA Á ÁRSHÁTÍÐUM OG í EINKASAMKVÆMUM Á OPINBERUM STÖÐUM UM LAND HINN FRÁB. „STORY FRO SEMINN HEIT LÖG Ei; „SAVING MY Í OG „SAVE SEX ERNÚFÁANLEGUR AÐEINS SÍMI: 91-42 Bertha Waagfjörð er komin á spjöld Hollívúdd-sög- unnar eftir að hafa leikið smáhlutverk í kvikmynd með stórstirninu Daryl Hannah. Bandaríska tímaritið Details kallar Leilchús • Gaukshreiðrið. Eftir Dale Wasserman. Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson. Aðalhlutverk: Pálmi Gestsson. Þjóðleikhúsinu, fim. (frumsýning) og lau. kl. 20. • Gauragangur. ★★1/2 Mér er óskiljanlegt hvers vegna verkið var ekki bara látið gerast um 1970, það hefói verið mun trúverðugra, enda eiga klisjumar sem vaða uppi í því uppruna sinn á þeim tíma. (FB) Þjóðleikhúsinu, sun. kl. 20. • Blóðbrullaup. ★★★ Ef þeim Ingvari og Steinunni Ólínu tækist að kveikja eldinn á milli sín væri ég til í að sjá þessa sýningu aftur og afturog aftur. (FB) Þjóðleikhúsinu, Smíðaverkstæði, fös. kl. 20 • Allir synir mínir. ★★★ í þessu merka verki Millers er reynt að takast á við hugmyndir hans um glæp, ábyrgð, fjölskyldutengsl og fleira, og allt sem þau mál snertir er prýðilega vel túlkað. (MR) Þjóðleikhúsinu, fös. kl. 20. Síðasta sýning. • Skilaboðaskjóðan. íslenskt barnaleikrit eftir Þorvald Por- steinsson. Þjóðleikhúsinu, sun. kl. 14. • Gleðigjafarnir. ★★ Það á margur eftir að hlæja hjartanlega í Borgarleikhúsinu, en án þeirra Bessa og Árna er ég hrædd um ad sýningin yrði ansi snautleg. (FB) Borgarleikhúsinu, fim. og sun. kl. 20.. • Eva Luna. ★★★★ Kjartan Ragnarsson leikstjóri sannar hér svo ekki verður um villst hæfni sína sem leikhúsmanns. Hvert smáatriði í sýningunni er úthugs- aö og fágað, hún rennur hratt og áreynslulaust í rúma þrjá tíma, lif- andi og gjöful og aldrei dauður punktur. (FB) Borgarleikhúsinu, fös. og lau. kl. 20. • Óperudraugurinn eftir Ken Hill. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir. Leikfélag Akureyrar, fös. og lau. kl. 20.30. • Bar-par eftir Jim Cartwright. Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson. Leikarar: Sunna Borg og Þráinn Karlsson. Leikfélag Akureyrar, Sýntí Þorp- inu fim. og sun. kl. 20.30. • Sumargestir. ★★★ Þetta er síðasta verkefni þessa glæsilega hóps og verður ekki annað sagt en þau Ijúki leikárinu með sama glæsibrag og þau hófu það. (FB) Nemendaleikhúsið, Lindarbæ, fim. og mán. kl. 20. Bertha Waagfjörð, sem kalla má hið eina sanna íslenska súpermódel, er að því er virðist farin að vekja athygli fyrir meira en bara útlitið eitt. í nýjasta hefti bandaríska tímaritsins Details er að finna eJdd bara risastóra mynd af Berthu þar sem sagt er að hún sé leikkona á uppleið heldur einnig kredit-lista þar sem greint er frá því að hún hafi farið með hlut- verk í kvikmyndinni „Attack of the 50 Foot Woman“, mynd þar sem ekki minni leikkona en Daryl Hannah — amason-blondína þeirra Bandaríkjamanna — fer með aðalhlutverldð. Auk þess leikur einn Bald- win-bræðra stórt lilutverk í mynd- inni, Daniel Bald- win, sem hefur staðið nokkuð í skugganum af bræðrum sínum, þeim Alec og William. Bertha upplýsti PRESSUNA um að hún hefði leikið í þessari mynd fýrir um það bil ári. „Þetta er bara lítið Uutverk í B- mynd. Engu að síður er þetta mjög skemmtilegri mynd, reyndar end- urgerð á gamalli mynd.“ Segirðu eitthvað í myndinni? „Nei, ég geri það raunar ekki en kem við sögu í aðalplottinu, mjög sniðugu plotti.“ Er eitthvað farið að sýtia myndina úti? „Nei, ekki svo ég viti. En hún er aðeins gerð fýrir kapal-kerfi. Ég veit ekki einu sinni hvort hún kemur út á myndbandi.“ Hvað ketnur til að tímaritið Deta- ils leggur svotia mikla áherslu á þig og nokkrar aðrar stúlkur setn leik- konur á uppleið? „Æ,“ segir Bertha eins og henni finnist þetta ekki par merkilegt. „Þetta eru bara mynd- ir af stelpum sem hafa leik- ið smáhlut- verk. Allt módel. Sem módel í LA fær maður alltaf séns á því að gera „cast- ing“ fýrir bíómyndir.“ I Details segir Bertha ein- mitt eina setningu sem snýr að því þegar hún fer með reglulegum hætti i hæfnispróf fýrir kvikmynd- ir. Hún talar í vægast þreytandi tón um það. Segir eitthvað á þessa leið: „Þegar ég fer í hæfnispróf er fólk alltaf samt við sig: „ooo, þarna kemur módelið.“ Þetta er nokkuð sem maður verður bara að lifa við.“ Er kviktnyndaleikur eitthvað sem þú hefðir áhuga á að leggjafýrir þig? „Maður verður bara að sjá hvað setur. Annars er ég orðin hundleið á fýrirsætustörfúnum, enda búin að vera í þessu ffá því ég var sextán ára.“ Ég var að heyra að þú hefðir grentist mjög tnikið ogfettgið etinþá meira að gera setn fyrirsœta fyrir vikið? „Já, það er rétt, ég hef grennst Þarf ekki að beita brögðum við kvennaveiðar Balchliðin Kormákur Geirharðsson er einn af okkar allra sleipustu snerfi- trommurum þótt víðar væri leitað. Hann er nú, ásamt KK-bandi, að endurgera lögin úr leikritinu Jör- undi fyrir Ríkisútvarpið. Hann var alveg til í að sýna PRESSUNNI bakhliðina á sér. Hvert er eftirlœtisland þitt? „ísland.“ Hvar á íslandi vildirðu síst búa? „Á Suðurnesjum.“ Hefurðu verið í skátunutn? „Já, í Garðbúum, en ég hætti mjög fljódega. Flokksforinginn, sem þá var Langi-Seli, var settur af og nýgræðingurinn sem kom í staðinn var svo leiðinlegur að við hættum bara allir.“ Hvers konar gœludýr vœrirðu helst til í að halda? „Risastóran talandi páfagauk.“ Hver er eftirlœtissjónvarpsþáttur- inn þinn? „Iþróttir.“ Vœrirðu til í að fara í tjaldútilegu með Geir H. Haarde? „Nei, ekki þó að ég fengi margar milljónir fýrir.“ Ef þú ert á kvenmantisveiðum, hvaða brögðum beitirðu? „Ég þarf ekki að beita neinum brögðum. Þetta er bara eðlileg þróun.“ Hefur þig dreymt furðulega drauma utn frcegtfólk? „Mig dreymdi Skara (Óskar Jónasson kvikmyndagerðarmann) um daginn.“ Hver er eftirlcetismeðlimur þinti i Sutnargleðinni? „Golf.“ Ef þú vaknaðir upp eftir góða rispu, kviknakinn á milli þeirra Björgvins Halldórssonar og Péturs W. Kristjánssonar — og þeir einttig á Adatnsklœðunum — hvernig brygðistu við? „Ég myndi líklegast kvarta við dílerinn um að hafa gefið mér allt of sterkt eiturlyf." Hvorfinnst þér fyndnari: Salóme Þorkelsdóttir eða Vigdís Finnboga- dóttir? „Golf.“ Hver er leiðinlegasta íslenska bíó- mynd sem þú hefur séð? „Ég get ómögulega gert upp á milli Foxtrott og Ingulóar.“ Hvaða dýr vildirðu helst vera? „Mörður. Ég dró einu sinni spil í einhverju indíána-tarot-dæmi og þá átti lýsingin á merðinum alveg greinilega við mig.“ Hvernig eru nærbuxurnar á lit- inn sem þú ert í núna? „Rauðar." Hver er frægasti ættingi þinn? „Arnar Jónsson leikari.“ Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðir að reykja? „18 ára.“ Hvaða íþróttafélag þolirðu ekki? „Landslið Svía í öllu.“ Stundarðu einhverja líkamsrækt? „Glasaburð." Hvort vildirðu heldur vera Gísli Helgason eða bróðir hans Arnþór? „Ég vildi vera lundi.“ Hver er andstyggilegasta persóna mannkynssögunnar (bannað að segja Hitler)? „Kurt Waldmark, sem rak einu sinni Víkinga úr Evrópukeppninni í handbolta. Hann er Svíi.“

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.