Pressan - 14.04.1994, Blaðsíða 6

Pressan - 14.04.1994, Blaðsíða 6
 *• ImmmSmMtMMi Bakkaflot 1, arkitekt Högna Siguróardottir Mavanes 4, arkitekt Manfreð Vilhjalmsson „Alltaf þótt það einstakt hús.“ „Það er mjög módern, var það á sínum tíma og er enn í dag.“ „Staðið af sér allt.“ „Einstaklega falleg meðferð á steypunni, enda voru mótin klædd að innan með trönustaurum." Fáein önnur falleg sem voru tilnefnd Frostaskjólshverfið, byggt upp fyrir tiu árum „Einfalt og vel heppnað skipulag teiknað af þremur stofum. Segir i raun hvað skipulagsmálin ráða miklu um gæði fremur en einhver einstök hús.“ Birkihæð 1, arkitekt Baldur Svavarsson, og Melhæð 3, arkitekt Gísli Gíslason „Mjög góð og einföld hús sem bæði standa á áberandi stöðum í hverfinu. Það er til lítils að benda á hús sem góð dæmi séu þau ekki aðgengileg.“ Setbergshlíð í Hafnarfirði „Einkanlega hvemig unnið er með landslagið og húsin efst uppi á hryggnum." Fjölbýlið á homi Grensásvegar og Hæðargarðs, arkitekt Vífill Magnússon. „íslensku fjölbýlishúsi með greinilegum höfundareinkennum komið haganlega fyrir.“ Mávahraun 7 Hafiiarfirði, arkitekt Pálmar Kristmundsson „Frumlegt." Fagraberg 50 „Er með glerhýsi sem skiptir því í tvennt. Skemmtilega leyst.“ Raðhúsin við Látraströnd, arkitekt Bjöm Ólafsson „Hef alltaf dáðst að þessum raðhúsum, sérstaklega hvað varðar staðsetningu. Mjög vel leyst hvað varðar form og hlutföll." Lækjarberg Hafharfirði „Með því athyglisverðasta sem ég hef séð hérlendis. Mjög nýstárlegt og skemmtilegt.“ „Eitt af fáum meistarastykkjum í íbúðarbyggingum aldraðra.“ „Sómir sér vel í hverfinu.“ „Liggur afslappað. Eru ekki of há- ar.“ „Fer mjög vel saman við önnur hús í hverfinu.“ „Fellur vel inn í umhverfið.“ „Það er ákveðinn léttleiki yfir því þrátt fyrir bárujámið.“ „Að nota klæðninguna á þennan hátt er í anda íslensks byggingar- stíls. Sýnir að það er hægt að vinna mjög skemmtilega með þetta hefð- bundna efni.“ „Óvenjuleg gluggasetning.“ „Einhvern veginn laust við alla til- gerð.“ „Góð og vel heppnuð tilraun til þess að byggja úr íslensku efni. Það sama má segja um húsin hennar í Kópavogi.“ „Stenst tímans tönn.“ „Sigvaldi var einstakur á sínum tíma og er enn þann dag í dag.“ „Einstaklega vel farið með hlutföll og rými, sem vantar enn þann dag í dag.“ „Mjög fin hús frá öllum sjónar- hornum. Mjög vel heppnuð, bæði hvað varðar innra skipulag og útlit sem og raðhúsin hans í Skeiðarvogi og blokkirnar í Skaftahlíð, Sig- valda-blokkirnar svokölluðu. Eng- inn hefúr byggt eins falleg fjölbýlishús." Álaland 1, arkitekt dr. Maggi Jónsson Það stóð ekki á arkitektunum þegar PRESSAN fór þess á leit við nokkra þeirra að þeir tjáðu sig um umhverfi sitt. Enda flestir sama sinnis; að lítið sem ekkert væri fjallað um íslenskan arkitektúr. Þeir voru einnig á einu máli um að umhverfisslysin væm afar algeng í seinni tíð þótt vissulega mætti víða finna fal- legar og vel ígrundaðar byggingar. Fyrir nökkrum misserum lék PRESSAN nánast sama leik og spurði þá fag- fnennina um fegurstu byggingar bæjarins og jafnframt þær ljótustu. Útkoman var forvitnileg þótt eðlilega félli hún ekki öllum í geð. En til þess er leikurinn ekki endilega gerður. Nú spurðum við hins vegar arkitektana um fegursta og ljótasta íbúðarhúsnæði seinni ára — þótt að vonum slæðist einstaka klassíker með. Fagmennirnir reyndust nokkuð sammála um „ljótustu“ byggingarnar en fegurðarskynið var hins vegar allmismunandi. Spurt var um allt sem flokkast undir mannabústaði á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstaðan er í meira lagi for- vitnileg. Fegursta íbúdarhúsnædid Betur þekkt sem hús Kristjáns Davíðssonar listmálara „Ein af perlunum okkar.“ „Sérstök fegurð sem endurspeglar átök arkitekts og eiganda við þarfir og óskir varðandi ljós og rými.“ „Toppdæmi í íslenskri byggingar- sögu.“ „I senn fallegt og djarft.“ Burstahusm vid Framnesveg, arkitekt Guðjón Samúelsson „Sérstaklega vel heppnað séð frá sjónum.“ „Tilraun til að byggja úr íslensku efhi.“ „Nokkuð gott hjá Viðari, sem hef- ur verið mistækur.“ „Fyrsta húsið sem reis við Steina- vör. Hefði átt að gefa ákveðna línu til að fara eftir, sem það gerði ekki. Húsin sem komu á eftir eru gjör- samlega út í hött. Dæmi um frekju. Stíll hinna húsanna við Steinavör passar engan veginn við, sé tekið mið af umhverfinu.“ „Brattar burstir gefa endurtekning- unni einfaldan og ákveðinn takt. Lengjan hefði þó ekki mátt vera lengri.“ „Prýði Vesturbæjarins.“ 6B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 14. APRÍL 1994

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.