Pressan - 14.04.1994, Blaðsíða 12
B ö I I
• AMMA LÚ Bards frá írlandi
leika á fimmtudagskvöld. Örn
Árna ásáfntAgga Slæ ogTamla-
sveitinni á föstudagskvöld. Örn
Árna og diskótek á laugardag.
• BÓHEM Papar frá Vestmanna-
eyjum á föstudagskvöld. Blús-
menn Andreu skemmta á laugar-
dagskvöldið. Frítt inn bæði kvöld-
in og bará báðum hæðum.
• BLÚSBARINN Goodfelias á
fimmtudagskvöld; Geir, Tyrfingur
og Sigurður. Dan Cassidy and the
Sundance Kid á föstudags- og
laugardagskvöld.
• CAFÉ ROMANCE lan hinn
breski heldur áfram að leika und-
irglösum.
• FOSSINN, Garðabæ Þuríður
Sigurðardóttir og Vanir menn um
helgina.
• FÓGETINN Jón Ingason trúba-
dor niðri á fimmtudagskvöld.
Djass á háaloftinu með Kidda
Gumm, Kidda Sig og Ómari Eín-
ars. Halli Reynisfrá föstudegi til
sunnudags á einkaflippi með gít-
arinn.
• GAUKUR Á STÖNG Upstick
Lovers föstudags- og laugar-
dagskvöld.
• HÓTEL ÍSLAND Járngerðar-
staðarætt ku vera stærsta ætt á
íslandi. Hún ætlar að halda upp á
tilveru sína með hljómsveit ætt-
armeðlimsins Magga Kjartans á
föstudagskvöldió. Ættinni tilheyra
einnig m.a Álfheiður Ingadóttir,
Tolli, Þórir Steingrímsson, Árni
Bergmann, Elva Ósk Ólafsdóttir
og fleiri sem skemmta munu öðr-
um um kvöldið. Sumargleðin á
laugardagskvöld með stórsveit
Sumargleðinnar án Siggu Bein-
teins, sem nú æfir fyrir Júró.
• HÓTEL SAGA Þjóðhátíðardag-
skráin með Halla, Ladda, Sigga
og Eddu á laugardagskvöld.
Hljómsveitin Saga Class leikur
fyrirdansi. Birgir Tryggva og Þor-
valdur Halldórsson í Súlnasaln-
um. Mexíkósk hátíð í Grillinu til
17. apríl. Frábærtframtak.
• RAUÐA LJONIÐ Rúnar Þór
skemmtir bæði kvöldin.
• SÓLON ÍSLANDUS Lokadagur
stuttmyndahátíðar á fimmtudags-
kvöld. Djasstríó á föstudags-
kvöld. Sveinn Óli spilar fyrir kaffi-
gesti á sunnudag.
• TVEIR VINIR God is myCo Pi-
lot er amerískt rokkband sem
skemmtir á fimmtudagskvöld. Á
laugardagskvöld ersuðrænt
kvöld — loksins — með Snigla-
bandinu og Skúla Gauta.
• ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN
Leikhúsbandið bæði kvöldin.
SVEITABÖLL
• HM-KAFFI, Selfossi Bubbi
Morthens aftur kominn í gúan-
óstellingarnar og syngur sig út úr
atvinnuleysinu á fimmtudags-
kvöld.
• HVOLLINN, Hvolsvelli Bubbi
Morthens syngur sig út úr eymd-
inni á föstudagskvöldið.
• SJALLINN, Akureyri Nýdönsk
á föstudagskvöldið. Geirmundur
og félagar laugardagskvöld.
• VÍK í MÝRDAL Bubbi á sunnu-
dagskvöldið. Á þriðjudag verður
hann á Hótel Höfn. Síðasta vetr-
ardag á Ojúpavogi.
/
baukinn
Það hefur líkast til ekki farið framhjá neinum leikhúsáhugamanni að í kvöld
frumsýnir Þjóðleikhúsið Gaukshreiðrið eftir Dal^ Wasserman, byggt á One
Flew Over the Cuckoo's A/esfeftir Ken Kesey. Hérer.á ferð hárbeitt ádeila á
kerfið og þótt Kesey hafi skrifað bók slna árið 1962 er víst að boðskapurinn á
enn fullan rétt á sér. Flestir kannast við kvikmyndina ep þar fór Jack Nichol-
son hamförum í hlutverki McMurphys. Kvikmynd og leikhús er ekki sami mið-
illinn en hins vegar veróur vart hjá því komist að áhorfendur beri Pálma
Gestsson, sem fer með hlutverk McMurphys, saman við Nicholson. Þá er og
Ijóst að hlutverkið er eftirsótt meðal leikara þannig að mikil pressa er á
Pálma, sem samkvæmt því verður væntanlega hæfilega víraður á sviðinu í
kvöld. Jim Smart skrapp á æfingu og eyddi nokkrum film-
Dolli
Þetta er ljóti barlómurinn
sem tröllríður Fróni.
Hvaða væl er þetta eigin-
lega? Þama kemur hver kverúlant-
inn á fætur öðmm á flenniskeiði
fram á sjónarsviðið og segir að at-
vinnuleysi sé mannskemmandi.
Og auðvitað hvarflar ekki að
nokkmm manni að einn einasti af
þessum exebisjónistum sé án at-
vinnu. Nei, svona karlar em vanir
að ota sínum tota þegar á þarf að
halda og kunna svo sannarlega að
maka krókinn á einhverju ámóta
gáfulegu og því að segja atvinnu-
leysi mannskemmandi. Þvert á
móti er megnið af því sem alls
konar aumingjar em að dúlla sér
við auvirðileg, siðlaus og sóðaleg
djobb — fjölmiðlalýður, félags-
ráðgjafar, viðskiptaffæðingar, lög-
ffæðingar, auglýsingateiknarar
o.s.frv. Og sjáiði bara bankakerfið,
þessa blóðsugu sem er búin að
iíma sig á háls þjóðarinnar. Ég
geymi mína aura undirkodda.
Það em aðeins um 15% þjóðar-
innar sem skapa hinar raunvem-
legu þjóðartekjur—hinir em af-
ætur. Og þetta lið þykist geta bor-
ið höfuðið hátt. Haa! Ég hef ekki
verið í fastri vinnu undanfarin sex
ár eða allt síðan ég var á einhverj-
um táfýludalli úr Grindavík. Og
ég mana hvern sem er til að reyna
að halda því fram að ég sé verri
maður en hver annar. Nei, at-
vinnuleysi er svo sannarlega guðs-
gjöf. Þá gefst tími til að rækta eigin
garð, rækta vini sína og huga að
ýmsum málefnum eins og Guð-
rún Bergmann benti réttilega áhjá
Völu Gunn. Synd að sú dama
skuli vera hætt að stunda barina
eins og hún var nú góð hér í denn.
Þessar hugsanir flugu urn huga
mér þar sem ég sat í góðu yfirlæti
og var að djúsa á 22 um daginn.
Ágætir hálsar, nú er kominn tími
til að taka afstöðu — í allar áttir
og vera pólitískur. Kosningar að
nálgast og þá er gósentíð fyrir
okkur sem teljum það fyrir neðan
okkar virðingu að þiggja laun fyrir
einskisnýta vinnu. Það er hins
vegar ekkert rangt við það að
þiggja glas af þessum kjánum sem
vilja hafa áhrif á skoðanir manns.
Alveg er ég til í að taka undir það
ef svo ber undir að það vantar
vissulega fleiri dagvistarrými í
Reykjavík—fyrir einn viskí. En ef
atvinnumálasjóðurinn er á dag-
skrá kostar það vissulega meira
brennivín. Þetta er allt spumingin
um að verðleggja hlutina rétt.
i íð
mœlum með:
Á:
... Makkajökkuin. Nýjasta trendið eru gömlu góðu mokkagærurnar. Þær
eru ekki bara hlýjar og góðar í nepjunni heldur alveg mega-töff.
... Banthai. Örsmár tælenskur veitingastaður fyrir ofan Hlemm. Staðsetn-
ingin er að vísu ekkert til að hrópa húrra fyrir og þjónarnir jaðra við að vera of
kurteisir. En maturinn er hreint afbragð.
... Góðum ökumönnum. Þetta hefur verið sagt áður og ítrekast hér
með: Það er makalaust hvað það getur verið ergilegt þegar maður er að spara
bremsumar og lætur sig renna í rólegheitum að götuvitum til að láta ljósin
stemma og þá kemur eitthvert flfl og treður sér fram fyrir mann þannig að það
verður að stöðva bílinn. Hættið þessu illamir ykkar!
... Leðurvestum. Eins og mokkajakkarnir eru leðurvesti í tísku núna.
Þau eru flott og mjög nytsöm. Flest em með vösum og þar má geyma ýmislegt
smálegt. Skilyrði er að hafa zippókveikjara í einum vasanum — það er algjört píp
að þeir séu ekki í tísku — þeir eru sígiidir.
... Gesti Einari Júnassyni. Það breytir engu þó að hann sé latur og
leggi litið í þátt sinn Hvíta máva. Ekki heldur það að hann smitar hvem einasta
tæknimann sem vinnur með honum af einhverjum klaufaskap. Maðurinn er ein-
faldlega orgínall og allir hafe gott af því að heyra kveðjur sem landsbyggðarfólkið
sendir hvað öðru.
12B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 14. APRÍL 1994