Pressan - 14.04.1994, Qupperneq 16
Göngum á röðina í ríkinu
Hrafinhildur Valbjömsdótt-
ir, eigandi verslunarinnar
Heimsljóss í Kringlunni og
tyrrverandi íslandsmeistari í vaxt-
arrækt, leyfði PRESSUNNI að líta
inn í vínskápinn sinn þessa vik-
una. Hrafnhildur er sannkallaður
fagurkeri á vín og mikil áhuga-
manneskja um það þótt hún
drekki ekki að sama skapi mikið
— sjaldnast nema tvö til þrjú glös
í senn. „Ég er mest fyrir freyðivín,
kampavín og rauðvín og drekk
þau má segja einungis. Mér finnst
gaman að grauta i og smakka á
öllum sortum af slíkum vínum.
Ég les mér mikið til um vín — er
svona að tuða um hverju ég er
ekki sammála um í vínbókunum.
Ég og nokkrir vinir mínir — með
svipaðan vínsmekk og ég — hitt-
umst stundum til að smakka vín.
Það þarf ekki að vera neitt merki-
legt. Við göngum bara á röðina í
ríkinu og prófum nokkrar sortir í
hvert skipti og strikum út það
sem okkur finnst vont. Kampavín
er að vísu svo dýrt að ég nenni
ekki að hafa áhuga á því.“ Hrafn-
hildur á þó ýmsar aðrar tegundir
af áfengum drykkjum en léttvín,
en það er fýrir gesti — foreldra,
tengdaforeldra, vini og kunningja.
Mér sýnist á skápnutn að þú sért
tneð eindœtnutn gestrisin.
„Það er gott að eiga örugglega
það sem fólk vill. Ég er búin að
eiga margt af þessu í mörg ár.
Annars gengur þetta ekki nógu
vel út — ég hlýt að vera svona
leiðinleg að fólk vill ekki koma til
mín! Flestir sem ég þekki vilja t.d.
gin og tónik eða romm og kók
eða hvað þetta heitir allt saman og
auðvitað koníak. Síðan á ég líkjör-
ana aðallega handa mömmu og
tengdó. Ég hef nú smakkað alla lí-
kjörana mína en ég fæ rosalegan
hausverk af líkjör af því ég þoli illa
svona sætt — er með hálfgert
sykuróþol að þessu leyti — og
mér finnst þeir ekki það góðir að
ég nenni að fórna hausnum á mér
fýrir þá. Apríkósulíkjör finnst mér
góður og mömmu líka og hann á
ég handa henni. Galliano-líkjörinn
er líka góður (í löngu mjóu flösk-
unni sem hún heldur á á mynd-
inni), svona einn „hot shot“ en
ekki meir. Ég er alltaf svolítið ítölsk
í mér — veik fýrir Ítalíu.“
Áttu engan bjór?
„Það er oftast til Heineken-bjór á
heimilinu því maðurinn minn
drekkur hann, en mér finnst hann
ekki góður og drekk hann ekki.“
Hvaðfinnst þér utn vítiin í ríkinu?
„Þau eru yfirleitt mjög góð fýrir
minn smekk nema hvítvínin. Þau
eru yfirhöfuð vond nema eitt, Po-
illy-Fuissé. Það vantar gott hvítvín í
ríkið. Það er nú ekki til mjög mikið
af freyðivínum þar en ég á mína
uppáhaldstegund, sem er Cordon
Vert — og hún er líka á góðu verði.
Það er þurrt freyðivín og mér
finnst það best.“
Þúferðast mikið erlendis. Notarðu
þá ekki tœkifœrið ogfjárfestir í víni í
leiðitmi?
„Jú, jú, þá kaupi ég kampavín og
rauðvín — eitthvað nýtt.“
Þegar Hrafnhildur verður gömul
ogfer á elliheimili œtlar hún að vera
dálítið hress og þess vegna eiga alltaf
lager af ísköldu freyðivíni og kampa-
víni inni á herbergi, þ.e.a.s. ef Guð
gefur hetini góða heilsu til að þola
sukkið. „í morgunmat ætla ég að fá
mér kampavín og ristað brauð, í há-
deginu samloku og kampavín, með
kajfinu ostapinna og kampavín og í
kvöldmat pasta eða fisk og kampa-
vín. “
Þess má geta að Hrafnhildur er
líka með glasadellu. „Ef ég mætti
ráða þá ætti ég herbergi fullt af
glösum. Ég flyt náttúrulega sjálf inn
glös. Ég er mjög glysgjörn og að
sama skapi nýjungagjörn þannig að
ég á ekki mjög mörg af hverri sort.“
Dulinn næringarskortur
Lífaldur manna er að lengjast,
a.m.k. á Vesturlöndum. Menn
eru sammála um það. Far-
aldrar, skyrbjúgur og svartidauði
eru útdauð, en það er samt ekkert
tilhlökkunarefni að vita til þess að
þessi tíu viðbótarár byggjast á að
eta úr heilum lyfjagámi, „plásturs-
lyf‘ við hinum og þessum krank-
leikum og sjúkdómum sem voru
afar sjaldgæfir áður fýrr. Orsök?
Dulinn næringarskortur. Það deyja
fleiri ótímabærum hægfara dauð-
daga á Vesturlöndum en í þriðja
heiminum vegna hans. Menn
spyrja sig hvort fæðið okkar sé ekki
orðið fúllkomið, allt til alls í versl-
unum. Svo virðist ekki vera. Græn-
meti og ávextir verða snauðari og
snauðari af næringarefnum. Vaxt-
arhraði þeirra er keyrður áfram
undir svipu hormóna- og eiturefna
í snauðum jarðvegi. Sama gildir
um kjötið, þó ekki hér á íslandi.
Dýrin eru keyrð upp á sterum og
hormónum, eta snauðan og ólíf-
rænan gróður eða fæði. Þeim er
síðan slátrað, bestu bitunum skellt í
kjötborðið en afgangurinn of-unn-
inn og mixaður með fleiri eiturefh-
um, soðinn og yfirsaltaður og
komið fyrir í velútlítandi umbúð-
um og plantað í hillur og frystikist-
ur verslana. Síðan bætum við við
sykri, kaffi, (sígarettum), hvítu
hveiti, smjöri, smjörlíki, majónesi,
við brösum og ofsjóðum og skol-
um öllu saman niður með ólíf-
rænni, gerilsneyddri og fitu-
sprengdri mjólk. Maginn og melt-
ingarfarvegurinn taka við öllu, en
80-100 trilljónir frumna líkamans
bíða daglega eftir sinni 98 oktana
næringu til endurnýjunar og vaxtar
en fá aðeins 78 oktan! Hægt og
hægt gefur líkamsvélin sig. Skortur
á amínósýrum og próteini fær hin-
ar viðkvæmu taugafrumur til að
leggjast í þunglyndi og kvíða. í
kjölfarið fá frumur líkamans gusur
af neikvæðum tilfinningum og
orku sem ábæti. Magi og þarmar
verða eins og úldin og slímug
borðtuska sem hindrar alla upp-
töku ef ske kynni að vítamín, snef-
ilefni og steinefni ættu leið fram-
hjá. Hin agnarsmáa ffumuvél hætt-
ir smátt og smátt að hafa mátt og
orku til skilja út og losa sig við úr-
gang og eiturefni og þau setjast í
vöðva og húð. Vöðvabólga og ex-
em koma í ljós. Þykkt kólestrólið
flýtur um slagæðarnar og farvegur
blóðsins þrengist og þrengist.
Hjartað stoppar. Fitufrumurnar
eru í stanslausri át-orgíu og harð-
neita að skila af sér fitunni, hvorki
vilja né geta enda lamaðar af
stjórnleysi, leti og biluðum losun-
arútbúnaði. Eftir langvarandi nær-
ingarskort umbreytast frumurnar
úr því að vera brennsluvél í gerjun-
armaskínu, gefast upp eins og nið-
urnídd bygging yfirfull af krimm-
um og dópistum í formi krabba-
meinsfrumna sem fjölga sér og
dreifa sem innbrotafaraldur um
allan líkamann.
Þegar í óefni er komið er sjúk-
lingnum rétt „plásturslyf ‘ til að lifa
af daginn, halda áfram við næring-
arsnauðu fæðuna, auk þess að púla
í sjötta gír á þol- og eróbikkstöðv-
16B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 14. APRÍL 1994
Kynlíf /^\ f/ fx n
% & ■ W • f XflB w
il
N 11^ W
iii yy inyi
anneskjan er í eðli sínu sveimhugi.
Lætur sig dreyma um ýmislegt ann-
að og meira en hún framkvæmir. Sem
betur fer kannski í sumum tilvikum. Aðr-
ar fantasíur væri ekki úr vegi að láta eftir
sér. Varðandi kynlíf virðist meðfærilegur
leikfélagi(ar) allt sem þarf. Hugur flestra
starfar eins og gildir þá nánast einu hvort um er ræða karl- eða
kvendýrið.
í könnun sem gerð var í henni Ameríku meðal fólks á aldrin-
um 18 til 34 ára — nánar tiltekið meðal lesenda tímaritsins Deta-
ils sem maður þorir að veðja að séu nokkuð forvitnilegir ekki
síður en blaðið — kemur fram að um 60% karlmanna dreymir um
að eiga mök við tvo í einu, en aðeins 24% hafa látið það eftir sér.
Fjórðung kvenna dreymir sama draum. Framkvæmdagleðin er þó
hlutfallslega hærri þar, því 13% kvenna hafa látið til skarar
skríða.
Það sama gildir um þá sem dauðlangar að fylgjast með öðr-
um í ham, langtum fleiri dreymir en reyna það! Nærri helming
karlmannanna dreymir um hóp-reið, aðeins 13% hafa prófað og
ekki nema 4% kvenna, þótt 21% þeirra blóðlangi.
Hvernig væri fyrir þá sem dreymir blauta leðurdrauma að
gera eitthvað í málunum? Leðurfatnaður er á hverju strái og hefur
aldrei verið ódýrari. 23% karlmanna dreymir um að lenda í leður-
leik og 16% kvenna, en helmingi færri af báðum kynjum hafa
reynt. Þetta er bara spurning um að finna rétta aðilann.
Dæmið fer þó að verða svolítið öfugsnúið þegar kemur að
flengingum, því meira en helmingi fleiri hafa tekið þátt í slíkum
leik en virðast vilja það. Og það sem meira er: fleiri konur en
karlar hafa tekið þátt í flengingum, eða 34% kvenna en 29%
karla.
Maður veit ekki hvort það borgar sig að mæla með þessari
hugaríþrótt. Það má a.m.k. benda á það að hún getur dregið dilk
á eftir sér. En 38% karlmanna dreymir um að sofa hjá bestu vin-
konu eiginkonunnar/kærustunnar og 13% hafa látið það eftir sér.
Konur með slíka óra eru ekki eins margar, eða 19%, og 8% hafa
sofið hjá besta vininum.
Það sem vekur kannski samt mesta forvitni er að langflestir
hafa látið eftir sér að gera það úti á víðavangi, meira að segja
fleiri en hafa látið hugann um það reika. Yfir helmingur bæði
karla og kvenna hefur gert það á því sem kallast opinberir staðir.
Óvenjulegir staðir þar sem fólk hefur framkvæmt þessa athöfn
eru hins vegar mýmargir. Sem dæmi hefur einn gert það í leigubíl
og það með leigubílstjóranum, annar gerði það undir jólatré,
einn komst yfir ráðherradóttur ofan á teppi í forstofunni heima
hjá ráðherranum, bílaþvottastöð varð fyrir barðinu á pari einu,
verönd prests nokkurs í öðru tilfelli. Þá sagðist einhver hafa tek-
ið í ofan á þvottavél í almenningsþvottahúsi, á brautar-
stöð, aftur í skutbíl sem faðir einnar keyrði og svo koll
af kolli.
&
um — svona til að losna við hann
sem fýrst af yfirborði jarðar enda
sjúkdómskerfið orðið staurblankt.
Krabbameinsfrumurnar fá gusur af
banvænum geislum enda dugar
ekkert minna en atómsprengja á
krimmabyggðina. Gósentíð lyfja-
iðnaðarins verður endalaus og nær
smátt og smátt yfirráðum yfir pen-
ingum jarðarinnar — og læknum.
Rót vandamáls-
ins er geymd sem
ríkisleyndarmál
og aldrei opin-
beruð.
Einstaka sjúk-
lingar fara aðra
leið. Leita sjálfir
að rótum vand-
ans. Breyta fæðu-
vali sínu sam-
kvæmt makró-
bíótískum kenn-
ingum þar sem
lífrænt fæði er uppistaðan og sam-
setning þess háþroskuð fræði.
Leysa upp neikvæðar tilfinningar,
forrita huga sinn upp á nýtt og
stunda rólegar en hnitmiðaðar
hreyfingar af austrænum uppruna,
samhæfðar fýrir líkama og sál.
Hvort sem viðkomandi hlýtur bata
eður ei, eftir því hve alvarlegur
sjúkdómurinn er, deyr hann a.m.k.
sáttari en ella þó að hann sé for-
dæmdur af læknastéttinni, kirkj-
unni og bókstafstrúarsöfnuðum
fýrir að stunda austrænt kukl.
Uppskrift dagsins
Vertu jákvæður, farðu að sofa
fýrir miðnætti og
sofðu í 7-8 tíma.
Upprættu nei-
kvæðar tilfinn-
ingakreppur sem
fljóta um eins og
geislavirk þrumu-
ský í staðnaðri
hringrás. Endur-
skoðaðu heila- og
hugarforrit þitt
sem samfélagið
hefur innprentað
þér frá unga aldri
og auktu víðsýni þína. Vandaðu
fæðuval þitt og bættu sköpunar-
gleði og kærleik í matreiðsluna.
Stundaðu skynsamlegar líkamsæf-
ingar sem auka andlegan og líkam-
legan styrk en slíta hvorki liðbönd,
vöðva né liðamót.