Pressan - 02.06.1994, Blaðsíða 6
Vilhjálmur Bergsson listmálari í óvenjulegum málaferlum
Fékk borgina
dæmda til að
kaupa af sér
VILHJÁLMUR BERGSSON .
Borgin kaupir myndina „Ýmsar
eigindir" á 230.000 krónur þrátt
fyrir að hún vilji hana ekki.
Aþriðjudaginn gekk dómur í
Héraðsdómi Reykjavíkur
þar sem Reykjavíkurborg
var dæmd til að kaupa málverk eít-
ir Vilhjálm Bergsson listmálara.
Taldi dómarinn, Ingveldur Einars-
dóttir héraðsdómari, að kaup-
samningur hefði komist á og bæri
borginni að uppíylla hann. Dóm-
urinn er um margt athyglisverður
en hann tekur meðal annars til þess
hver ber endanlega ábyrgð á kaup-
um listaverka hjá borginni.
Tildrög málsins eru þau að Vil-
hjálmur Bergsson listmálari, sem
búsettur hefur verið í Þýskalandi í
rúmlega tíu ár, hélt sölusýningu í
Norræna húsinu í maí árið 1992. Á
þá sýningu kom Gunnar Kvaran,
forstöðumaður Listasafhs Reykja-
víkur, og bað um að myndin
„Ýmsar eigindir“ yrði tekin frá.
Vilhjálmur tók myndina ffá og að
sýningu lokinni varð það að sam-
komulagi að hún yrði send að
Kjarvalsstöðum. Þangað sendi Vil-
hjálmur myndina ásamt reikningi
upp á 230.000 krónur, en það var
verð myndarinnar á sýning-
unni.
Deilan reis um það hvort
þama hefði verið komið á
bindandi kaupsamningi, en
myndin var tekin frá að
beiðni Gunnars. Eftir það var
hún í vörslu Kjarvalsstaða í
níu mánuði.
Vilhjálmur, sem býr í
Dusseldorf í Þýskalandi,
spurðist ítrekað fyrir um
greiðslu myndarinnar árið
1992 en fékk ekki svar fyrr en
í byrjun árs 1993. Þá sendi
Gunnar honum bréf um að
Menningarmálanefnd
Reykjavíkur hefði hafhað því
að kaupa viðkomandi mynd
en Menningarmálanefnd á
að fjalla um kaup borgarinn-
ar á listaverkum.
Þrátt fyrir að málið sýnist
ekki viðamikið þá munu bréf
Vilhjálms til embættismanna
borgarinnar hafa vakið mikla
athygli fyrir orðalag. Þessi
bréf voru meðal annars lögð
ffam sem gögn í dómnum.
„Orðfæri Vilhjálms var með
þeim hætti að ég hef ekki séð
annað eins,“ sagði háttsettur
embættismaður.
Vilhjálmur hefur um langt
skeið átt heima í Þýskalandi
en hann nam í París á sínum
tíma. Hann hefur haldið
þrettán einkasýningar í
Reykjavik auk þess sem hann
hefur tekið þátt í samsýning-
um hér og erlendis. Hann
hefur nefht stíl sinn „samlíf-
rænar myndir“ en málverk
hans eru „dálítið nýaldarleg"
eins og myndlistargagnrýn-
andi nokkur orðaði það. Fyr-
ir áhugamenn um ættfræði
má nefha að Vilhjálmur er
bróðir Guðbergs rithöfund-
ar.
Taldi bindandi kaup-
samning kominn á
í raun snerist þetta mál um
hvort bindandi kaupsamn-
ingur hefði verið kominn á
milli borgarinnar og Vil-
hjálms. í niðurstöðu dómsins
segir að þar sem ekki sé venja
að skriflegir samningar séu
gerðir um listaverkakaup
verði að hafa hliðsjón af þeim venj-
um sem myndast hafa um kaup
þessi á milli listasafna og lista-
manna. Fyrir dóminn var lögð yfir-
lýsing tíu listamanna þar sem kom
fram að þeir töldu andstætt venj-
um að opinber söfn létu taka ffá
myndir á sýningum listamanna og
halda þeim ffáteknum til sýningar-
loka, nema ædunin væri að kaupa
viðkomandi Ustaverk. Mættu þrír
þeirra fyrir dóminn og staðfestu
þetta. Þá töldu þeir það andstætt
venju að að opinber söfh óskuðu
eftir afhendingu slíkra verka eftir
sýningar nema kaupsamningur
hefði komist á.
Taldi dómarinn óumdeilt að
þama hefðu verið komin á við-
skipti og segir í niðurstöðu dóms-
ins: „Komið hefur ffam í ffam-
burðum vitna að venja sé að for-
stöðumaður sjái um að koma ffam
fyrir hönd listasafns gagnvart lista-
manninum, þegar falast er effir
myndum á sýningum. Þá hafa vitni
staðfest að listamenn hafi ekki
þurff að ganga úr skugga um að
heimild innkaupanefndar lægi fyrir
til kaupanna. Því verður að telja að
stefnandi hafi mátt ætla að hann
sem forstöðumaður Listasafns
Reykjavíkur hefði haff umboð,
stöðu sinnar vegna, til þess að gera
bindandi samninga fyrir hönd
Listasafns Reykjavíkur, innan
ákveðinna marka, sbr. 2. mgr. 10.
gr. samningalaga nr. 7/1936, er
hann bað um að myndin „Ýmsar
eigindir" yrði tekin frá á sýningu
stefnanda.“
Það kemur ffam að forstöðu-
maður Listasafns Reykjavíkur svar-
aði ekki bréfaskriffum Vilhjálms
þar sem hann segir myndina selda
og krefur um greiðslu. Taldi dóm-
arinn að þá hefði forstöðumaður-
inn átt að gera athugasemdir við
þann augljósa skilning listamanns-
ins að myndin væri seld. Með að-
gerðarleysi sínu hefðu þeir í raun
staðfest kaupin og nú sitja þeir
semsagt uppi með myndina. Fyrir
hana þurfa þeir að borga 230 þús-
und krónur auk þess sem Vil-
hjálmur fékk 90 þúsund krónur í
málskostnað.
Siguröur Már Jónsson
Sumarbókin
er komin!
Veist þú hvemig er bægt að hafa stjóm
á áhœttu og njóta um leiií hámarks
ávöxtunari Þekkir þú alla möguleika
til ávöxtunar í verShréfumí Veist þú
hverjar eru helstu tegundir verðbréfa
og bverjar þeirra henta þér? Síðasti
kafli bókarinnar er helgaður
hagnýtum aðferðum sem einstaklingar
geta notað til að skipuleggja spamað
sinn ogávaxta hann sem best.
VERÐBRÉF OG ÁHÆTTA ER í SENN TIL FRÓÐLEIKS OG TIL ÁNÆGJU,
ÆTLUÐ JAFNT SEM UPPFLETTIRIT OG KENNSLUBÓK. BÓKIN ER HAFSJÓR
UPPLÝSINGA, KENNINGA OG HAGNÝTRA AÐFERÐA VIÐ ÁVÖXTUN PENINGA.
I bókinni er fjallað um innlend skuldabréf og
hlutabréf, erlend verðbréf og verðbréfasjóði.
Þar er að finna upplýsingar um íslenskan og ,
erlendan verðbréfamarkað, auk skilgreininga og
skýringa.
Kjarna bókarinnar er að flnna í köflunum sem
fjalla um ávöxtun og áhættu. Þar er sett fram á
aðgengilegan hátt ein helsta kenning fjármála-
fræðinnar um það hvernig best er að ávaxta
peninga í verðbréfum.
I síðasta hluta bókarinnar eru settar fram
hagnýtar aðferðir sem einstaklingar geta notað
til að skipuleggja sparnað sinn og ávaxta hann
sem best.
I viðauka er orðalisti með yflr 140 skil-
greiningum og einnig er fjöldi formúla settur
fram með einföldum dæmum.
/
I bókabúðnm um land allt!
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
_____• Aðili að Veröbréfaþingi íslands •
Árni Vilhjálmsson prófessor
segir m.a. þetta um bókina:
„Þessi bók er aðdáunarverð bæði um
efiiistök og málfiar. Sem fyrsta bók sinnar
tegundar á íslensku er hún sannarlega
tímabtzr... Það er heillandi hversu vel
höfundum tekst til við útlistun kenninga
fiármálafrteðinnar um val verðbréfa... Og
að sjálfeögðu á bókin erindi við kennara
og nemendur í viðskiptafrteðum bteði í
framhaldsskólum og í háskólum. “
VERÐBRÉF
&
f/(ocrni(j <'/* hc.sl ad unu.x fa fic/u'/u/u?
GUNNAR KVARAN
Skoðuðu myndina í níu ménuði en vildu hana svo ekki.
6 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 2. JÚNÍ1994