Pressan - 02.06.1994, Page 9
INGIMUNDUR SIGFÚSSON
Var beðinn að halda áfram sem
stjórnarformaður. Hann neitaði
og mun segja af sér eins og
allir stjórnarmenn í gamla
meirihlutanum.
SIGURÐUR GÍSLI PÁLMASON
Tvímenningarnir í Hagkaup
vöknuðu upp við vondan draum
— illa sviknir.
ÓSKAR MAGNÚSSON
Æskuvinur Sigurjóns Sighvats-
sonar og lögmaður hans. Var
fenginn til þess að selja helm-
ing af hlutabréfum Sigurjóns í
góðri trú en í Ijós kom að þau
voru aðeins sett á sölu til að
hylja kaupin. Á mánudag
skellti hann á trúnaðarvin sinn
og sagðist „ekki tala við
drullusokk". Sigurjón hefur
samt orðað hann við sjónvarps-
stjórastól.
sjónvarpsstöðva, einkum ABC-
sjónvarpsstöðvarinnar. Þetta er
hugmynd sem ekki er ný af nálinni
— Sigurjón hefur rætt þetta síðast-
liðið ár — en samkvæmt heimild-
um PRESSUNNAR eru engin
áform uppi um sölu á þessari
stundu. I þessu samhengi má einn-
ig minna á að samningar við NBC
voru á lokastigi þegar Jón Óttar
Ragnarsson var sjónvarpsstjóri, en
NBC hætti við á síðustu stundu.
Áhugi þessara erlendu sjón-
varpsstöðva er þríþættur. í íyrsta
lagi er það akkur fyrir þær að
tryggja afsetningu á efni, þ.e. senda
eigið efhi til sýningar á öðrum
sjónvarpsstöðvum. Stöð 2 eyðir ár-
lega hundruðum milfjóna í kaup á
efhi og erlendar stöðvar hafa áhuga
á að auka þar hlut sinn. í öðru lagi
tengist þessi áhugi Evrópukvótan-
um svokallaða í tengslum við
GATT-samninginn. Evrópskar
sjónvarpsstöðvar eru skyldugar til
að hafa helming af efni sínu frá
Evrópu. Bandarískar sjónvarps-
stöðvar hættu mótmælum við það
atriði samningsins þegar þær sáu
JÓHANN J. ÓLAFSSON
Rætt um hann sem næsta
stjórnarformann.
að þær komast auðveldlega ffam-
hjá þeim reglum með því að fara út
í sameiginleg verkefni (Co-
production) með evrópskum sjón-
varpsstöðvum, en þannig verður
efhið sjálfkrafa evrópskt sam-
kvæmt reglunum. Með hlutdeild í
Stöð 2 eða öðrum evrópskum
sjónvarpsstöðvum er hægt að eiga
slíka samvinnu og komast framhjá
kvótareglunum. Þriðja atriðið
tengist einfaldlega þeirri staðreynd
að Stöð 2 er talin vænleg fjárfest-
ing.
Hlutabréf hækka væntan-
lega enn frekar
Aðilar í gamli meirihlutanum
hafa í samtölum við PRESSUNA
lýst yfir áhyggjum sínum um að
bréf þeirra verði einskis virði —
enginn vilji kaupa bréf minnihlut-
ans og því séu nýjustu kaup þeirra
upp á 70 milljónir tilgangslaus. Það
verður hins vegar að hafa í huga að
bréfm í Stöð 2 hafa hækkað gífúr-
lega í verði síðustu árin. Stutt er
síðan menn vildu ekki kaupa bréf-
in á genginu 0,6 og þegar Sigurjón
ÁSGEIR BOLLI KRISTINSSON
Hann, Guðmundur Óli, Ingi-
mundur Sigfússon, Hagkaup,
Þorgeir í Odda, Hildur Petersen
og fleiri ákváðu að kaupa
hlutabréf fyrir rúmlega 70
milljónir til að tryggja meiri-
hluta sinn með Sigurjóni Sig-
hvats.
kom fýrst inn í fýrirtækið fýrir
tveimur árum keypti hann á geng-
inu 1,6. Nú hefúr hann keypt bréf
á genginu um og undir 3, sem
myndi verðleggja heildarverðmæti
Stöðvarinnar á yfir 1,5 milljarða
króna. Það er ekki óeðlilegt í ljósi
þess að undanfarin ár hefur hagn-
aðurinn verið um 150-200 millj-
ónir árlega og eigið fé var orðið já-
kvætt um síðustu áramót um 210
milljónir, samanborið við neikvætt
eigið fé upp á 257 milljónir 1990. í
ár er gert ráð fýrir 181 milljón í
hagnað og eftir þriggja mánaða
uppgjör var Stöðin komin ffam úr
áætlun. Framtíðaráætlanir gera ráð
fýrir hagnaði upp á um 250 millj-
ónir árlega og gangi það eftir er
gengi upp á 5 ekki óeðlilegt. Það
verður líka að hafa í huga að gengi
bréfanna var um 2,75 áður en Sig-
urjón hóf kaupin, svo menn hafa
haft mikla trú á arðsemi fýrirtækis-
ins.
PálmiJónasson
JÓHANN ÓLI GUÐMUNDSSON
Stjórnarmenn og varastjórnar-
menn, að Sigurjóni undanskild-
um, hittust hjá honum í Secu-
ritas á þriðjudagskvöld. Þar til-
kynnti Ingimundur að hann
segði af sér eins og ajlir stjórn-
armennirnir. Jóhann Óli var
stærsti einstaki hluthafinn fyrir
yfirtökuna með rúmlega 70
milljóna króna hlut að nafnvirði
eða 210 milljónir miðað við
sölugengi nú.
Vel geflnn og upplýstur
Björgvin HaUdórsson: „Sigurjón er vel gefinn maður og
vel upplýstur um ólíklegustu mál. Hann er mjög vel skipu-
lagður og prófessjónal í því sem hann tekur sér fýrir hendur.
Það var gott að vinna með honum þegar við vorum saman í
Flowers og Ævintýri. Hann sá um alla skipulagningu og það
klikkaði aldrei neitt. Hann er hugmyndaríkur vinnuþjarkur
sem hlífir sér ekkert í verkefnum sínum og svo er hann ró-
legur í tíðinni og yfirvegaður. — Gallarnir voru kannski þeir
að við áttum það til að láta skapið hlaupa með okkur í gön-
ur en það hefur örugglega elst af okkur.“
Harðduglegur og
glaðlyndur
Hallur Helgason: „Sigurjón er harðdug-
legur maður sem hefur alltaf ákveðna til-
finningu fýrir þeim hlutum sem hann er að
gera. Hann hefur gott innsæi og er glað-
lyndur, hefur húmor og er einnig mjög
greiðvikinn. — Gallinn við hann er hvað
hann er alltaf upptekinn.“
Æviágrip Sigurjóns Sighvatssonar
Bítillinn sem varð
kvikmyndamógúll
Jonni ólst upp á Skaganum, var í mörgum vinsælum
bítlahljómsveitum en fór síðan út í viðskipti með mis-
jöfnum árangri. Eftir kvikmyndagerðarnám stofnaði
hann Propaganda Films, sem malar honum gull.
Sigurjón Sighvatsson stofnaði
Propaganda Films ásamt
skólabróður sínum, Steve
Golin, árið 1986. Fyrirtækið gekk
ljómandi vel og fýrir tveimur árum
seldu þeir 51% hlut sinn til Poly-
gram fýrir metfé. Síðan hefúr Sig-
urjón látið að sér kveða m.a. á Is-
landi. Fyrst keypti hann um 46
milljónir að nafnvirði í Stöð 2 árið
1992. Nú bætir hann 50 milljónum
við þær 50 sem hann átti fyrir og er
orðinn langstærsti einstaki hluthaf-
inn í Stöð 2 og stýrir meirihlutan-
um.
Hippi frá Akranesi
Sigurjón er fæddur og uppalinn
á Akranesi, sonur Sighvats Karls-
sonar, matreiðslumanns ffá Akra-
nesi, en afi hans, Sighvatur Bjama-
son, var fýrsti bankastjóri Islands-
bankans gamla. Móðurætt hans er
hins vegar frá Neskaupstað. Móðir
hans var Sigurborg Siguijónsdótt-
ir Ingvarssonar skipstjóra. Faðir
hans og Iangafi Sigurjóns var Ing-
var Pálmason alþingismaður. Sig-
urjón tók stúdentspróf ffá Verslun-
arskólanum og Iærði bókmennta-
ffæði við Háskóla Islands.
Jonni, eins og hann er jafnan
kallaður, tók virkan þátt í tónlistar-
lífinu og var reyndar kallaður
„Kútur“ sem litli bróðir Karls heit-
ins Sighvatssonar. Hann var bassa-
leikari í fjórum þekktum hljóm-
sveitum. Upphaflega var hann í
hljómsveit sem bar nafnið Mods,
síðan var hann í Flowers ffá ’67-’69
ásamt bróður sínum Karli, Jónasi
R. Jónssyni sem sá um sönginn og
fleirum. Næstu þrjú árin var hann
með Björgvini Halldórssyni og
fleirum í Ævintýri og ffá '12—11
spilaði hann með Brimkló þar sem
Jónas R. og Björgvin sungu til
skiptis. Einnig spilaði hann með
Þokkabót ’76-’77 en þá fór hann
utan í kvikmyndagerðarnám. Sig-
urjón þótti prýðisbassaleikari en í
Rokksögu Islands segir að textar
hans hafi verið „klénir“.
Viðskiptaferill á íslandi
Sigurjón tengdist tónlistarlífinu
ekki eingöngu með spilamennsku
— hann tók virkan þátt í viðskipta-
lífinu með misjöfnum árangri.
Hann var umboðsaðili fýrir Ampex
á Islandi og stofnaði síðan fyrirtæk-
ið Sonic ásamt Jóni Ólafssyni í
Skífunni. Reksturinn gekk ágætlega
en Jón keypti Sigurjón út úr
fýrirtækinu og á það nú einn.
Þá stofnaði Sigurjón mynd-
bandafyrirtækið Stig ásamt
Steinari Berg og gáfú þeir
m.a. út Dynasty-þættina en
fýrirtækið varð gjaldþrota.
Sigurjón var einnig einn af
stofhendum Hljóðrita árið
1974 og framkvæmdastjóri
fýrstu fimm árin. Fyrirtækið
var ffumkvöðull á sínu sviði
og mun hafa gengið mjög
vel. Einnig var hann einn
stofúenda Hins leikhússins
sem náði að setja upp tvö
leikrit. Fyrst settu þeir upp
Litlu hryllingsbúðina 1985 í
Gamla bíói. Leikstjórar voru
SIGURJÓN SIGHVATSSON
Hann og Jónas R. Jónsson, hinn
brottrekni dagskrárstjóri
Stöðvar 2, voru meðal annars
saman í hljómsveitinni Flowers.
Sigurjón og Páll Baldvin Baldvins-
son og gekk verkið glimrandi vel.
Síðan var leikritið Rauðhóla-Ransý
sett upp, en það var gjörsamlega
misheppnað og setti fyrirtækið á
hausinn.
Stórgróði Propaganda Films
Það var svo árið 1977 sem Sigur-
jón hélt utan og var í fimm ár í há-
skólanámi í kvikmyndagerð. Skóla-
bróðir hans var Steve Golin og
saman áttu þeir eftir að stofna gull-
námuna Propaganda Films.
Reyndar var fýrsta verkefúi þeirra
félaga eftir útskriffina að vinna með
Jakobi Magnússyni að gerð mynd-
arinnar Nickle Mountain ásamt
fjölmörgum Islendingum. Það var
síðan árið 1986 sem Propaganda
Films var stofnað. Upphaflega ein-
beittu þeir sér að gerð tónlistar-
myndbanda og náðu yfirburða-
stöðu á þeim markaði fyrstu árin
og það lagði grunninn að stórveldi
þeirra. Sjónvarpsstöðin MTW var
farin að njóta stóraukinna vinsælda
og Propaganda Films var í raun
fýrsta fyrirtækið sem sérhæfði sig í
gerð tónlistarmyndbanda. I seinni
tíð hafa fleiri fýrirtæki komið inn á
þann markað og nú hefur fýrirtæk-
ið nálægt fjórðungsmarkaðshlut-
deild á því sviði. Fyrirtækið hefúr
síðan smám saman fært út kvíarnar
og hefúr starfseminni verið skipt
upp í fjóra meginþætti; gerð kvik-
mynda, sjónvarpsþátta, auglýsinga
og tónlistarmyndbanda. Meðal
sjónvarpsþátta sem fýrirtækið hef-
ur ffamleitt eru hinir geysivinsælu
Beverly Hills 90210 og Twin Peaks
eftir David Lynch, sem báðir hafa
verið sýndir á Stöð 2. Af kvik-
myndum má nefna Wild at Heart,
Stranger Among Us, In Bed with
Madonna, Blue Iguana og Candy-
man eitt og tvö. Þá sá Sigurjón
einnig um ffamleiðsluna á Ryði
með Lárusi Ými Óskarssyni, en
þeir hafa lýst áhuga á frekara sam-
starfi. Nú er svo komið að Propag-
anda Films veltir árlega vel yfir
fimm milljörðum króna og skilar
árlega yfir hundrað milljónum í
hagnað.
Polygram-plötufýrirtækið, sem
er í eigu hollenska fýrirtækjarisans
Philips, átti 49% í fýrirtækinu á
móti Steve Golin og Sigurjóni en í
ársbyrjun 1992 keypti það 51%
hlut þeirra félaga. Sérffæðingar
hafa metið þá sölu á mörg hundr-
uð milljónir en reyndar ber þess að
geta að söluverðið ræðst nokkuð af
árangri Steves og Sigurjóns, því við
kaupin var samið um að þeir störf-
uðu hjá fýrirtækinu næstu fimm ár.
Sigurjón á því nærri þrjú ár eftir af
þeim samningi.
Harðduglegur og vel að sér
Sigurjón er kvæntur Sigríði Þór-
isdóttur Jónssonar, fýrrverandi
biffeiðainnflytjanda, en í tengslum
við valdabaráttuna á Stöð 2 er rétt
að geta þess að hún er systir Guð-
mundu, eiginkonu Sigurðar Gísla
Pálmasonar í Hagkaup. Sigríður er
sérkennari með mastersgráðu ffá
Kaliforníu-háskóla, eins og Sigur-
jón. Saman eiga þau soninn Þóri
Snæ, sem er stúdent ffá Verslunar-
skólanum en dvelst nú í Frakk-
landi. Þess má einnig geta að Steve
Golin er kvæntur íslenskri konu,
Vilborgu Aradóttur.
Þeir sem þekkt hafa Sigurjón í
gegnum tíðina bera honum yfirleitt
vel söguna. Hann er sagður harð-
duglegur, viðræðugóður og vel að
sér í öllu er tengist þessum við-
skiptum. Hann er mjög atorku-
samur og í því sambandi má geta
þess að fýrir fáeinum árum fékk
hann hastarlega blóðeitrun í Mexí-
kó. Læknar ráðlögðu honum að
fara sér hægar en Sigurjón hefur lít-
ið sinnt því heldur stundar vinnu
sína af óbreyttum krafti þótt hann
hafi ekki náð sér að fúllu af veik-
indunum.
PálmiJónasson
„Sem fyrsta bók sinnar
tegundar á íslensku er hún
sannarlega tímabær.u
Arni Vilbjálmsson prófessor wn bókina:
VERÐBRÉF OGÁHÆTTA
Hvernig er best aö ávaxta peninga?
I bókabúðum um land allt!
FIMMTUDAGURINN 2. JÚNÍ1994 PRESSAN 9