Pressan - 04.08.1994, Side 7

Pressan - 04.08.1994, Side 7
FLOKKSEIGENDANNA EYJÓLFUR KONRÁÐ JÓNSSON: „Ég tek ákvörðun um framboð með skyndingu." EINAR ODDUR: Stefnir í slag við nafna hans Guðfinnsson? GUNNAR I. BIRGISSON: Talinn munu blanda sér í slag- inn. HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON: Engin hallarbylting í þetta skipti. Eggert Haukdal hyggst gera en hann hefur verið einangraður í flokknum upp á síðkastið og nán- ast verið sviptur öllum embættum og titlum. Sumir halda því fram að hann hyggi enn á ný á sérframboð enda meti hann möguleika sína betri þannig heldur en ef hann tæki 3. sæti hjá sjálfstæðismönnum. Heimildir segja að sjálfstæðismenn geri nú sitt ítrasta til að fá Eggert ofan af sérframboði en hann hefur setið 16 áráþingi. Ekki er gert ráð fyrir prófkjöri á Suðurlandi heldur hefur verið rætt um að stækkað kjördæmaráð stilli INGI BJÖRN ALBERTSSON: Eðlilegt að halda prófkjör. EGGERT HAUKDAL: Hefur undirbúið sérframboð. GUÐMUNDUR ÁRNI: Nokkuð öruggur um fyrsta sæt- ið úr því Reyknesingar vilja ekki Jón Baldvin. upp. Ef þar eru teknir varamenn með þá væri það samkoma upp á 220 til 230 manns. Talið er að bar- áttan um þriðja sætið standi á milli Drífu Hjartardóttur, sem fékk flest atkvæði í framkvæmdastjóm Sjálf- stæðisflokksina á síðasta lands- fúndi, og Fannars Jónassonar á Hellu. Margir hafa viljað veðja á Drífú sem ffamtíðarmanneskju fyr- ir flokkinn í kjördæminu en það hefúr unnið gegn henni að geta ekki höggvið í persónulegt fylgi Eggerts í Rangárvallasýslu. Þá hefur verið rætt um að Guðjón Hjör- leifsson bæjarstjóri í Vestmanna- eyjum komi inn í 4. til 5. sæti. Tilfæringar hjá krötum Innan Alþýðuflokksins er víða áhugi á breytingum, en þær velta trúlega eingöngu á þvi hversu mörg prófkjör verða haldin í þetta sinn. I Reykjavík verða þeir Jón Baldvin og Össur Skarphéðinsson í efstu sæt- um og hefur Jón Baldvin eindregið lagst gegn því að haldið verði opið prófkjör. Þessu lýsti hann í frægu samtali sínu við Jóhönnu Sigurðar- dóttur áður en hún sagði af sér ráð- herradómi og hefur endurtekið þá skoðun síðan. Össur vill hins vegar halda opið prófkjör til að sýna styrk sinn og mun jafnvel hafa fullan hug á að stefna á fýrsta sæti iistans ef til þess kæmi. Rætt hefúr verið um að fá til liðs við flokkinn í Reykjavík Valgerði Bjamadóttur í Brussel, en það eru frekar hugleiðingar for- ystumanna en alvarleg áform. Ekki hefúr verið rætt við Valgerði. Á Reykjanesi er ástandið óviss- ara, enda tveir þingmenn, þeir Jón Sigurðsson og Karl Steinar Guðnason, horfnir til annarra starfa. Töluvert var rætt um að Jón Baldvin flytti sig yfir í Reykjanes og nyti þar stuðnings síns hjá Suður- nesjamönnum — og gerði líka Jó- hönnu kleift að taka sæti í Reykja- vík — en þeirri hugmynd hefur verið stungið undir stól. Trúnaðar- menn í Reykjanesi héldu á dögun- um samráðsfund um stjórnmála- ástandið þar sem frarn kom mikil andstaða við þessar ráðagerðir, ekki síst hjá Rannveigu Guðmunds- dóttur. Að öðru jöfúu er rétt að gera ráð fýrir að Guðmundur Ami Stefáns- son sitji í efsta sætinu, en einhverjir hafa þó hug á að þar verði Rann- veig Guðmundsdóttir. Guðmund- ur Árni hefúr lýst yfir að hann vilji hafa opið prófkjör og þá gæti Petr- ínu Baldursdóttur úr Grindavík verið hætt komin. En hvernig sem það veltur er almennt mat flokks- manna að listinn á Reykjanesi verði mun veikari en hann hefur verið í undanförnum kosningum. í þingsæti krata á Vesturlandi sit- ur nú Gísli Einarsson sem hefur fullan hug á að halda áffarn þing- mennsku. Tveir eru þó taldir geta truflað þau áform, nafnarnir Sveinn Hálfdanarson í Borgarnesi og Sveinn Elinbergsson, sem báðir eru taldir hafa áhuga á sætinu. Gísli hefúr umtalsverðan stuðning víðs vegar um kjördæmið, Sveinn Hálf- danarson nýtur fylgis í Borgarnesi og á Akranesi, en Sveinn Elínbergs- son helst á Snæfellsnesi. Þeir nafnar eru helst taldir geta ógnað Gísla ef þeir snúa saman bökum í hugsan- legu prófkjöri og nýta sér þannig dreifingu atkvæða sinna. Á Vestfjörðum situr Sighvatur Björgvinsson á sínum stað, en Pét- ur Sigurðsson hyggur ekki á að taka annað sætið. I Norðurlandi vestra er búist við að Kristján Möller forseti bæjarstjórnar á Siglufirði, taki fýrsta sætið, en Jón Hjartarson skólameistari á Sauðár- króki það næsta. Á Norðurlandi eystra er Sigbjöm Gunnarsson tal- inn veikur, en óvíst hvort nokkur verður til að velta honum úr sessi. Þar eru þó helst nefndir til sögunn- ar Alffeð Gíslason á Akureyri og Sigurður Amórsson ffá Húsavík. Á Austurlandi heldur séra Gunnlaugur Stefánsson sínu sæti á lista, en á Suðurlandi er allt í óvissu um framboð. Rólegt hjá Framsókn Framsóknarmenn ganga til kosninga undir forystu nýs for- manns, Halldórs Ásgrímsonar. Sá möguleiki hefur verið ræddur að Halldór verði að flytja sig um kjör- dæmi, jafnvel í gamla kjördæmi Steingríms Hermannssonar, Reykjanes, en engin ákvörðun hef- ur verið tekin um það. Hatrammur prófkjörsslagur var í Reykjavík síðast á milli þeirra Finns Ingólfssonar og Guðmundar G. Þórarinssonar. Guðmundur hefur dregið sig út úr flokkstarfinu en gárungarnir segja að hugsanlegt framboð hans velti á því hvar hann sé staddur í Hamlet. Ekki er reiknað með neinum umtalsverðum breytingum á fram- boðslistum Framsóknar annars staðar á landinu. Ólafúr Ragnar Grímsson for- maður Alþýðubandalagsins hefur boðað þingmenn og formenn kjör- dæmisráðanna á fúnd á laugardag- inn kemur til að ræða haustkosn- ingar. Alþýðubandalagið hefur eitt flokka lýst yfir áhuga á samstarfi við Jóhönnu Sigurðardóttur og má búast við að það verði töluvert um- ræðuefni á fúndinum. Að öðru leyti er ekki búist við breytingum á ffamboðslistum enda eru þeir, sem höfðu hug á að reyna slíkt, ekki í stakk búnir til stórræða með svo að er fáránlegt að ímynda sér að þessar kosningar komi til með að snúast um Evrópu- sambandið á meðan atvinnumálin eru eins og þau eru,“ sagði þing- maður á Vestfjörðum þegar blaðið spurði um baráttumál í væntanleg- um kosningum. Svipaðar skoðanir hafa heyrst frá forystumönnum stjómarandstöðunnar sem segja að kosningarnar muni snúast um „hin raunverulegu vandamál“: at- vinnuleysi, fjárlagahalla og velferð- arkerfið. Eigi að síður er ljóst að Evrópu- sambandið og stefnan í aðildarvið- ræðum kemur til með að vega þungt, þótt ekki væri nema vegna þess hversu mikinn áhuga fjöl- miðlar sýna henni. Þar mun Al- þýðuflokkurinn hafa sérstöðu þar sem Jón Baldvin Hannibalsson hefúr lýst þeirri persónulegu skoð- un sinni að íslendingar eigi að sækja um aðild að ESB sem fyrst, þótt flokksþing hafi ályktað með varfærnari hætti. Allar líkur em á að Jón Baldvin muni veðja á Evrópuaðild sem kosningamál og þannig reyna að sækja atkvæði til hægri, inn í Sjálfstæðisflokk- inn, þar sem margir vilja mun ákveðnari stefnu gagn- vart Evrópu en forysta Sjálf- stæðisflokksins býður upp á. „Jón Baldvin er í pqlitísk- um leik þessa dagana. Hann á von á því að Jóhanna fari í sérframboð og þess vegna vill hann leggja áherslu á að kosið verði um ESB. Hann vill að Alþýðuflokkurinn fái þá sérstöðu að vera eini flokkurinn sem vill sækja um aðild. Með því móti gæl- ir hann við að halda Alþýðu- flokknum í 12 til 13 prósent- um atkvæða þrátt fýrir klofning. Það væri mikið pólitískt affek,“ sagði pólit- ískur andstæðingur Jóns á þingi. Ovíst er hvaða áhrif tíma- setning kosninganna hefúr á umræðuna um Evrópumál. Margir munu benda á að ekki sé hægt að taka vitræna afstöðu fýrr en Norður- landaþjóðirnar hafa greitt at- kvæði um aðild, sem mun gerast eftir kosningar. Á móti benda alþýðuflokks- menn á að þetta geri þeim kleift að hafa stefnu sína loðnari og óljósari en ella, en samt skýrt aðgreinda frá öðrum. Þar fýrir utan hafa bæði Jón Baldvin og Sig- hvatur Björgvinsson sagt að það skipti engu máli hvort til dæmis Noregur samþykkir skömmum fýrirvara. Þannig hefði að öðru jöfnu mátt búast við ein- hvers konar atlögu að vígjum Svav- ars Gestssonar í Reykjavík og Hjör- leifs Guttormssonar á Austurlandi, en varla verður neitt úr þeim áformum. Kvennalisti í fríi Af ffamboðsmálum Kvennalista er litlar fféttir að hafa þessa dagana, enda virðist stór hluti forystusveit- arinnar vera staddur á Kvennaráð- aðild eða ekki — íslendingar eigi að sækja um burtséð ffá því. Evrópuumræðan hefúr þann aukakost fýrir Alþýðuflokkinn að gera málefnaágreining við Jó- hönnu Sigurðardóttur að aukaat- riði, fortíðarmáli en ekki framtíð- arstefnu. Málflutningur Jóhönnu mun líkjast málatilbúnaði stjórnar- andstöðunnar að því leyti, að áherslan verður á velferðarmál, at- vinnuleysi og að komist verði út úr kreppunni. Til hliðar við þetta mun Sjálf- stæðisflokkurinn leggja áherslu á það sem áunnist hefur á erfiðum tímum í þjóðarbúskapnum, stöð- ugleika, litla sem enga verðbólgu, hreinsanir í sjóðakerfinu og ein- hver merki um bata í augsýn. Hann mun fyrst og ffemst leita eff- ir endurnýjuðu umboði til að stjórna á svipuðum nótum og ver- ið hefúr. Um ríldsstjórnarmynstur að loknum kosningum eru spádómar jafnmargir þeim sem rætt er við. Algengast er þó það viðhorf að stefnu í Finnlandi. Það er þó vitac að Anna Ólafsdóttir Bjömsson oj Kristín Einarsdóttir láta nú a þingmennsku. Um hugsanlega arf- taka er erfitt að fúllyrða, en naff Þórunnar Sveinbjamardóttur bei þó iðulega á góma varðandi ffam boð í Reykjavík. Siguröur Már Jónssor og Karl Th. Birgissor Framsóknarflokkur, Alþýðu- bandalag og Alþýðuflolckur myndi saman stjóm undir forystu Hall- dórs Ásgrímssonar, en þá vegtyllu fengi Halldór væntanlega ekki í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Núverandi stjórnarþingmönnum þykir flestum eðlilegast að sama stjórn sitji áffam, fái hún til þess meirihluta, en láta um leið í ljós efasemdir um hversu vel það sam- starf muni ganga effir átök síðustu mánaða og raunar ára. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki ffá- hverfur samstarfi við Alþýðu- bandalagið, þrátt fýrir yfirlýsingar Davíðs Oddssonar um Ólaf Ragn- ar Grímsson á þingi í vetur. Bent er á að brátt verði formannsskipti í Alþýðubandalaginu og þrátt fýrir allt hafi aðstæður í heims- og landsmálum breyst svo mikið að samstarf við Alþýðubandalagið sé alls ekki eins fjarstæðukenndur kostur og oftast áður. GLÆSILEG OG VÖNDLD UPPÞVOTTAVÉL Á GÓÐU VERÐI 7 ÞVOTTAKERFI, HLJÓÐLÁT, SPARNEYTIN. TEKUR BORÐBÚNAÐ FYRIR 12 MANNS VERÐ 48.900 stgr. Fjöldi ánœgdra viðskiptavina er okkar besta viðurkenning RÖNNING \4 BORGARTUNI 24 SÍMI 68 58 68 FIMMTUDAGURINN 4. AGUST 1994 PRESí Um hvað verður kosið? Að sækja um eða ekki

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.