Pressan - 04.08.1994, Page 15

Pressan - 04.08.1994, Page 15
Gjaldþrot A. Finnssonar hf. á Akureyri GÓÐ GREIÐSLUKJÖR Plan Hevea eldhúsinnrétting .327,- BÆJARHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI. SlMI 651499 Kröfuhafar vilja rannsókn á vjð- skiptum við ís- landsbanka Hópur kröfuhafa í þrotabú A. Finnssonar hf. á Akur- eyri hefúr ráðið Sigurð Eir- íksson héraðsdómslögmann til að gæta hagsmuna sinna gagnvart þrotabúinu. Það eru fyrirtækin Ispan hf., Dreki hf., Gúmmívinnu- stofan hf., Gámaþjónusta Norður- lands hf. og Bæjarverk hf. í bréfi lögmannsins til Gests Jónssonar hrl. skiptastjóra frá þvi 18. júlí síðastliðinn kemur ýmislegt athyglisvert í ljós en þetta gjaldþrot hefur vakið mikla athygli á Akur- eyri. Kemur þar margt til: Fyrir- tækið er ungt og reist á rústum Að- algeirs Finnssonar hf. sem hét eftir aðaleiganda fyrirtækisins, Aðalgeiri Finnssyni. Áður hafði það heitið Aðalgeir og Viðar hf. sem síðar var skipt upp eftir lát annars aðaleig- andans. Kröfúhafar nú eru því margir hverjir þeir sömu og áður hafa tapað á viðskiptum við Aðal- geir. Einnig eru miklar umræður um mismunum kröfuhafa og und- anskot úr þrotabúinu. Ákveðin verk undir smásjána Þetta kemur meðal annars fram í bréfi lögmanns hópsins: „Af hálfu hópsins mun við skiptameðferðina verða óskað eftir sérstakri athugun á viðskiptum hins gjaldþrota hluta- félags og viðskiptabanka þess Is- landsbanka hf. og er í því sambandi óskað sérstakrar athugunar á upp- gjöri eftirtaldra verka þar sem hið gjaldþrota félag var aðalverktaki og þá sérstaklega uppgjör á kröfum bankans á hendur félaginu skömmu fyrir gjaldþrotið.“ Þau verk sem kröfúhafarnir vilja skoða sérstaklega eru Verkmennta- skólinn Akureyri, Drekagil 28, hús- bygging fyrir Bifreiðaskoðun Is- lands hf., dagvistarheimilið Kiðagil, Skipagata 9 hf. og þá sérstaklega hvernig fasteignin Skipagata 9 á Akureyri varð eign þess félags og veðsetningar íslandsbanka á Skipa- götu 9 Akureyri en þar hvíla á 20 milljón króna veð. Ásakanir um undanskot eigna En kröfuhafar hafa miklar áhyggjur af undanskoti eigna: „Þá óskar hópurinn eftir athugun á ráðstöfun einstakra eigna skömmu fyrir gjaldþrotið svo sem sölu á steypustöð Car mix 1&2, sölu á jeppabifreið til einstaks verktaka, sem sagt er að hafi verið greiðsla upp í skuld við hann, sölu á lausa- fjármunum og geymslu s.s. á verk- færum úr eigu hlutafélagsins og að síðustu er óskað athugunar á veð- setningum einstakra íbúða í eigu hins gjaldþrota félags og þá með hvaða hætti og á hvaða tíma um- ræddar veðsetningar urðu til, hvernig þeim lauk og í þágu hvers þær voru. I allra síðasta lagi mótmæla of- anritaðir kröfúhafar sölu einstakra eigna úr þrotabúinu þar til stað- reynt hefur verið að áhvílandi veð á þeim eignum sem seldar eru séu raunverulegar og til orðin með eðlilegum hætti.“ Engir peningar til að kosta rannsókn, segir skiptastjóri Þessu svarar skiptastjóri með bréfi 22. júlí. Þar upplýsir Gestur að þrotabúið eigi á þessu stigi ekki aðra fjármuni til ráðstöfunar en kr. 150.000 tryggingagjald sem lagt var ffarn af skiptabeiðanda. Segir hann kröfuhöfunum að til þess að mögulegt sé að verða við beiðni þeirra þurfi þeir að ábyrgjast búinu þann kostnað sem af rann- sókninni kann að leiða. Að öðrum kosti verður það að ráðast af efnum búsins hvort rannsókn getur farið ffarn. Effir því sem komist verð- ur næst hafa kröfuhafarnir fimm svarað þessu formlega og ábyrgst rannsóknina sem væntanlega verður sett í hendurnar á löggiltum end- urskoðanda. Sá sófasett og málverk borin út Til marks um þær tilfær- ingar sem kröfúhafar vOja skoða eru viðskipti með Mitsubishi jeppa af Pajero gerð, árgerð 1992. Sam- kvæmt eigendaferilsvottorði ffá Biffeiðaskoðun ríkisins þá var bílinn skráður nýr 11. september 1992 í eigu Lilju Margrétar Karlsdóttur, eig- inkonu Aðalgeirs Finnsson- ar. 17. febrúar 1994 er bílinn skráður yfir á nafn Freys Að- algeirssonar, sonar Aðalgeirs Finnssonar. 18. apríl kaupir síðan Pétur Már Halldórs- son, sem mun standa í kunningskap við fjölskyld- una bílinn. 9 dögum seinna eignast Þórir Magnússon bílinn en hann mun vera málarameistari og verktak- inn sem um er rætt. Nú síð- ast 10. júlí er síðan Árdís Svanbergsdóttir, móðir mál- arameistarans, skráð fyrir bílnum. Þar sem verðgildi bílsins er umtalsvert vilja kröfuhafar fá botn í þessi viðskipti en þeir telja að þarna hafi viðkomandi mál- arameistari verið að reyna að bjarga 10 milljóna króna kröfú í þrotabúið. Einnig eru heimildir fyrir því að kröfuhöfum hafi blöskrað umgengni á skrif- 5 stofum fyrirtækisins effir að „ þær höfðu verið innsiglaðar. Varð einn þeirra vitni að því að leðursófasett, málverk, faxtæki og annar skrifstofu- búnaður var borið út úr húsakynnunum. Margir kröfuhafanna eru smáir undirverktakar og hef- ur skapast nokkur órói vegna þess. Er til dæmis vitað til að ekki er búið að borga fyrir akstur og efni í grunn húss Bifreiðaskoðunar ríkisins á Akureyri þó nokkuð sé um liðið síðan byggingu þess lauk. En þar fyrir utan hljóta ásakanir á hendur íslands- banka að vekja mesta athygli. Einstaka menn hafa sagst vilja sjá bókhald Islands- banka þar sem það skarast við rekstur A. Finnssonar. Er það vegna þess að ýmsir staðhæfa að nánast alit bók- hald A. Finnssonar hf. hafi verið haldið í gegnum Is- landsbanka vegna kunnings- skapar Aðalgeirs við útibús- stjórann. Hafi þetta gengið svo langt að útibússtjórinn hafi á tímabili séð um út- borganir fyrir byggingafyrir- tækið. Með þessu hafi bank- inn haft óeðlilega aðstöðu sem kröíúhafi og getað hag- að veðsetningum þannig að hagsmunir annarra kröfu- hafa sköðuðust. Siguröur Már Jónsson UM HEI.GINA MANNAKORN FÖSTUDAGSKVÖLD OG IAUGARDAGSKVÖLD 20ÁRAAFMÆU OG KYNNING Á NÝRRI PþÖTU MANNA- KORNA. MAGNÚS EIRÍKSSON OG PÁLMI GUNNARSSON ÁSAMT EYÞÓRI GUNNARS' SYNI OG GUNNEAUGI BRIEM. BAEE TIE KE 03.00 KOKKTEIEBARINN MEÐ FRÁBÆRA KOKKTEIIA, ÓTRÚEEGT ÚRVAE EEDHÚSIÐ OPIÐ AEEAR HEEGAR FRÁ KE 19.00-23.30 NÝR MATSEÐIEE Borðapantanir í síma 689-686 VAANN t &uú RENAULT fer á kostum! Hann er litli, sæti ærslabelgurinn - fullur af orku, fljúgjandi liðugur og skemmtilegur. Aðrir í fjölskyldunni eru auðvitað mjög stoltir af Twingo litla. Twingo - einstakur bíll á frábaeru verði - frá kr. 838.000.- Komdu og kynntu þér hann betur! (..þú rnunt elska hann eins og við hin.) Bílaumboðið hf. Krókhálsi 1 • Reykjavík • Sími 876633

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.