Pressan - 25.08.1994, Page 2

Pressan - 25.08.1994, Page 2
fœr Ólafur Skúlason, biskup,fyrir að afneita kraftaverk- um Gengurðu með sjávarútvegs- ráðherrann í maganum, Ein- ar? „Ertu að gera símaat í mér?“ Einar Oddur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hjálms hyggst bjóða sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Vestur- landskjördæmi fyrir næstu kosningar. FYRST & FREMST Sóknarnefnd Seltjarnarness skelfur enn Áður en september rennur upp má gera ráð fyrir því að til ein- hverra tíðinda dragi innan sóknar- nefndar Seltjarnarness enda ekki allir innan nefndarinnar á eitt sáttir um ákvörðun biskups, séra Ólafs Skúlasonar að setja Solveigu Láru Guðmundsdóttur aftur í starf sóknarprests á Seltjarnarnesi. En sem kunnugt er vék hún frá í kjöl- far skilnaðarmáls sem upp kom á vordögum. Jafnvel þótt sóknar- nefndin hafi ekkert með ákvörðun biskups að gera og geti með engu móti breytt henni er enn það mikill hiti í nokkrum sóknarbörnum að þau geta ekki sætt sig við þessi málalok. Hefúr PRESSAN heimild- ir fyrir því að allt að fimm manns af þeim sjö sem nú skipa sóknar- nefhdina ædi að segja af sér er Sol- veig kemur aftur til starfa 1. sept- ember. Eftir því sem PRESSAN kemst næst eru stuðningsmenn Solveigar innan sóknarnefndarinn- ar þau Guðmundur Einarsson og Ema Kolbeins, á móti eru þau Haukur Bjömsson formaður sóknarnefndarinnar, Elísabet Ei- ríksdóttir varaformaður, Jón Sig- urðsson, Þorbjörg Guðmunds- dóttir, Unnur Ágústsdóttir. Þá hefur heyrst að frá þeim hörðustu hafi komið sú tillaga að leggja beri málið undir sjálfa sóknina sem skeri þá úr um hvort hún vilji prestinn áfram eður eigi. Lyfjalög ÍSÍ ná yfir Gými Fulltrúar Hestaíþróttasambands Islands (HÍS) hafa undanfarið átt fundi með Sigurði Magnússyni, framkvæmdastjóra Iþróttasam- bands Islands, um það hvernig brugðist verði við máli Hinriks Bragasonar eiganda og knapa hestsins Gýmis sem sleginn var af nýlega eftir að hann hafði fót- brotnað á landsmóti. Þrátt fyrir að Landsmótið á Hellu hafi verið utan lögsögu ÍSÍ, enda haldið í nafni Landssambands hestamanna, þá er ljóst að íþróttaþátttaka Hinriks er innan vébanda ÍSl og heyrir þá um leið undir þ'fjalög ISÍ. Þar sem mál sem þetta hefur aldrei komið upp og HÍS tiltölulega nýlega gengið í ÍSÍ þá liggur ekki ljóst fyrir hvernig brugðist verður við því. Á sama tíma vakti þátttaka Hinriks í lands- liðinu á Norðurlandamóti í Finn- landi töluverða athygli, bæði hér heima og erlendis. Forráðamenn HÍS hafa gefið þá skýringu að Hin- rik hafi verið valinn í landsliðið áð- ur en niðurstöður lyfjarannsókna lágu fyrir. Hafi þeir ekki treyst sér til að vísa honum úr liðinu áður en málið væri fullkannað. Á sama tíma heyrist að aðilar erlendis hyggist meina Hinriki þátttöku á mótum þar þangað til málið sé að fullu upplýst. Mun þeim síðarnefnda vægast sagt hafa runnið í skap vegna þessa. Sagt er að hann hafi reynt allt hvað hann gat til þess að koma í veg fýrir skipun Gunnlaugs en án árang- urs... Lögmenn vilja Gauk í Hæstarétt Hart var lagt að dr. Gauki Jör- undssyni, umboðsmanni Alþingis, : ] ■ að sækja um þá stöðu Hæstaréttar- dómara sem Gunnlaugur Claes- sen, ríkislögmaður, hreppti en hann vísaði slíkum málaleitunum alfarið á bug. Þykir mörgum lög- mönnum að nauðsyn beri á að fleiri fræðimenn setjist í dómara- sætin. Staða réttarins þykir þó hafa styrkst við skipun þeirra Garðars Gíslasonar, Markúsar Sigur- bjömssonar og Gunnlaugs. Meira þykir þó verða að koma til og því vonast menn til að Gaukur gefi sig þegar Þór Vilhjálmsson lætur af störfúm, en hann hefúr rétt á því á næsta ári. Óttast þeir að enn verði skrípaleikur í kringum Hæstarétt í vetur í ljósi þess að Hrafn Braga- son verður forseti hans allt til loka næsta árs... Kóki svindlar í Þýskalandi Herbert Ólason, sem jafúan geng- ur undir nafninu Kóki, hefur verið útilokaður ffá hestamótum í Þýskalandi vegna pretta. Um nokk- urra ára skeið hefur hann rekið hrossabúgarð þar og stundað um- fangsmikil viðskipti með íslenska hesta. Ástæðan fyrir því að hann hefur verið útilokaður frá keppni er sú að hann hefur sýnt sömu hryssuna á að minnsta kosti tveim- ur mótum undir mismunandi nöfrium. Hryssan, sem bera nafnið Nunna og er frá Sandhólafeiju, var sýnd 2. júní og aftur 30. júlí en þá undir nafninu Krafla frá Sigríðar- stöðum. Dómararnir þóttust kann- ast við gripinn og flettu ofan svindli Kóka. Það var Félag eigenda íslenskra hesta sem tók þessa ákvörðun og hún gildir þar til ann- að verður ákveðið en málið er litið mjög alvarlegum augum. Þýska meistaramótið verður haldið um næstu helgi og þá verður Kóki fjarri góðu gamni... Jón Baldvin vildi ekki Gunnlaug Jón Baldvin Hannibalsson, utan- ríkisráðherra, lagðist mjög gegn því að Gunnlaugur Claessen yrði skipaður hæstaréttardómari. Ástæðan mun ekki síst vera sú að Gunnlaugur neitaði að afhenda Jóni Baldvin greinargerð og gögn sem hann taldi sig eingöngu hafa unnið fyrir fjármálaráðuneytið. Vinaþel í Norðurá Eins og PRESSAN greindi frá á sínum tíma fóru höfuðpaurarnir í hjaðningarvígunum á Stöð 2 í lax- veiði í Norðurá um síðustu mán- aðamót. Þar mættu m.a. Sigurjón Sighvatsson, Sigurður Gísli Pálmason og Bolh Kristinsson. Ferðin var ákveðin í desember í lok síðasta árs þegar allt lék í lyndi eða töluvert áður en Sigurjón keypti Otamdir varð- hundar Benny Hinn hrella Ijós- myndara Fjölmiðlar voru sem kunnugt er ekki velkomnir á kraffa- verkasamkomu Benny Hinn í Kaplalérika á sunnudagskvöldið. Jafnframt var stranglega bannað að taka myndir í íþróttahúsinu meðan samkoman stóð yfir. I föruneyti Bennys voru nokkrir kraftakarlar sem virtust gegna hlutverki lífvarða. Á samkomunni var greinilegt að þeir höfðu meðal annars því hlutverki að gegna að koma í veg fýrir myndatökur. I þeirri viðleitni sinni sýndu þeir ekki alltaf kristilegan bróðurkær- leik í verki. Ungur ljósmyndari, Eggert Jóhannesson, fýlgdist með samkomunni fýrir utan íþrótta- húsið en dyr þess voru opnaðar vegna þrengslanna innifyrir og eins til þess að gefa þeim sem frá urðu að hverfa kost á því að fylgj- ast með því sem ffarn fór. Eggert var með myndavélina með sér og tók nokkrar myndir fýrir utan. Síðan beindi hann linsunni inn í húsið og smellti af þegar Hinn hafði beðið viðstadda að lygna aft- ur augunum. Skipti þá engum togum að einn lífvarðanna kom snarlega á vettvang, þreif í vél Egg- erts og reyndi að opna hana til að eyðileggja filmuna. I þann mund kom annar starfsmaður á vettvang og kom í veg fýrir það. Sagði hann lífverðinum að verknaður hans væri ólöglegur og hann yrði að kalla á lögregluna ef hann vildi gera eitthvað í málinu. Við svo búið hraðaði Eggert sér á brott. Það er greinilegt að Hinn þarf að siða varðhunda sína betur áður en hann kemur aftur til íslands að lækna halta og blinda. stóran hlut í Stöð 2 og myndaði meirihluta með fjórmenningunum svokölluðu. Við það urðu m.a. al- gjör vinslit milli Sigurjóns og Ósk- ars Magnússonar en áður hafði Óskar verið lögffæðingur hans og trúnaðarvinur. Sigurjón fékk Óskar til þess að annast sölu á bréfum sínum þótt hann væri sjálfur kaup- andinn og töldu þeir það blekk- ingaleik til að dylja kaupin. Þegar Sigurjón hringdi loks í Óskar til að segja honum tíðindin brást Óskar hinn versti við, sagðist ekki tala við drullusokka og skellti á. Óskar átti bókaða stöng í ferðinni en hætti við á síðustu stundu til þess að þurfa ekki að vera í návistum við Jonna... Jonni að kaupa fleiri bréf? Eins og við höfum margoft greint frá leitar minnihlutinn í Stöð 2 allra leiða til að selja hlutabréf sín. Verðbréfafýrirtækið Oppen- heimer hefur leitað eftir tilboðum í lokuðu útboði og er niðurstöðu að vænta fýrir áramót. Á dögunum kom hins vegar maður að nafni Jefifrey D. Montgomery frá fýrir- tækinu Baring Communications Equity og falaðist eftir bréfum, þeirra í gegnum fyrirtækið Hand- sal. Minnihlutinn sagði við hann að þeir væru alveg tilbúnir að selja honum bréfin þótt þá grunuðu að Sigurjón Sighvatsson hefði fengið Bretann f verkið. Ekkert varð af kaupunum og minnihlutinn telur sig nú hafa sannanir fyrir því að Montgomery hafi verið hér á veg- um Sigurjóns... Limbó slegið af Nú hefúr verið hætt við fýrirhug- aða grínþætti Radíusbræðranna, Steins Ármanns Magnússonar og Davíðs Þórs Jónssonar sem verið hafa á teikniborði Sjónvarpsins. Komið var nafn á þættina, Limbó, sem átti að setja á dagskrá strax í haust á besta tíma eftir fréttir á laugardagskvöldum. Þegar á reyndi kom í ljós að hvorki voru til pen- ingar hjá stofnuninni né var nægj- anlegur áhugi fýrir hendi á þeim hugmyndum sem Steinn og Davíð höfðu sett ffarn. Þó var aðeins talað um þrjá þætti til reynslu... í vikunni... ... urðu kraftaverk í tugatali á íslandi fyrir tilstilli Benny Hinn. Biskupinn vildi ekki þiggja náðina og flúði austur. ... gerðist það óumflýjanlega að útgerðarmenn fóru í hár saman vegna væntanlegs stríðsgróða í Bar- entshafi. ... kom Solla úr brúðkaupsferðinni hress og endurnærð og heimtaði laun í fríinu eins og Markús sem segist þó ekki hafa fengið nóg. ... voru afhjúpaðar fyrirætlanir um að eyðileggja Dettifoss í því skyni að framleiða rafmagn sem eng- inn vill kaupa. ... hegðaði Hinrik Bragason, eigandi Gýmis, sér eins og sannur íþróttamaður og þóttist ekkert vita um einhver lyf. 2 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 25. ÁGÚST 1994

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.