Pressan - 25.08.1994, Blaðsíða 20
Klassik
litir og
Nú detta af manni allar dauðar lýs, diskóklæðnaðurinn er að koma aftur með
öllum sínum æpandi litum og glansandi efnum. Það er þó vonandi að hug-
sjónaleysi diskósins fylgi ekki með. Tískan verður sem betur fer ekki einsleit í
vetur. Margt meira athyglisvert verður upp á teningnum enda vart við því að
búast að allskonar fólk á öllum aldri fáist til að klæðast sleikibrjóstsykurslitun-
um, hvað þá hermannabúningum í felulitunum, sem líka munu vera fyrir aug-
um okkar í vetur. f hinum smáa tískuheimi á íslandi í vetur verður óneitan-
lega að telja forvitnilegasta væntanlega opnun hjónanna Mörtu Bjarnadóttur
og Þorsteins Ólafssonar, eigenda Gallerís, Centrum og Evu, á nýrri Donnu
Karan verslun, eða því sem hefur verið kallað shop in shop á ensku. Hún
verður opnuð út frá versluninni Evu í október. Donna Karan er hvað vinsæl-
asti og virtasti hönnuðurinn á meginlandinu um þessar mundir.
Paui Smith veit
jafnt um hvað
kvenleikinn og
karimennskan
snúast.
Hælarnir fara
mjókkandi.
ítir því sem
tískuspekingur
PRESSUNNAR
hefur komist
næst, af kynn-
um sínum við
þennan sí-
breytilega heim
í gegnum tíð-
ina, fær hann
ekki betur séð
en að tískan
endurspegli
árstíðirnar og
ekki hvað síst árferðið. Það hefur
vart farið framhjá neinurn að
kreppa hefur ríkt 4 Islandi undan-
farin ár. í tískunni hefur kreppan
einmitt endurspeglast í því að du-
stað hefur verið rykið af gömlu
notuðu fötum mömmu, pabba,
ömmu og afa, gamalla frænka og
svo framvegis. Og jafnffamt mynd-
uðust biðraðir fyrir utan verslanir
eins og Vero Modo sem tókst í
kjölfarið að lækka verð á tískufatn-
aði til muna á íslandi. Nú vilja
menn meina að allt önnur teikn
séu á lofti sem fylgi batnandi hag,
vonandi með blómum í haga. Hag-
ur vel flestra fyrirtækja er að batna,
segja spekingarnir og ríkisstjórnin
heldur sama ffóðleik á lofti, sem
auðvitað verður þó að reiknast
með pólitískum fyrirvara. Allar
þessar yfirlýsingar virðast vera að
síast með ógnarhraða inn í þá sem
telja sig hafa eitthvert vit á viðskipt-
um. Fyrir utan Donnu Karan versl-
unina, sem er í burðarliðnum,
spruttu nýverið upp verslanir eins
og Flauel, Frikki og dýrið hafa
stækkað við sig og Noi heldur enn
velli við Skólavörðustíginn, fyrir
utan auðvitað allar hinar verslan-
irnar. En byrjum á því merkileg-
asta, Donnu Karan á Islandi.
Heiður að fá Donnu
Karan
Donna Karan er án efa einhver
vinsælasti og virtasti tískuhönnuð-
urinn í heiminum í dag. I hvaða er-
lenda blaði sem maður flettir þessa
dagana finnur maður grein um
Donnu Karan. Nýverið var einmitt
sagt frá því að hún væri að opna
eigin verslun á Bond-Street, þannig
lítur út fyrir að ísland sé framarlega
á tískumerinni, eins og off áður. Að
sögn Mörtu Bjarnadóttur er þó
eingöngu stefnt að því að vera með
ódýrari línu Donnu Karan, svokall-
aða DKNY-línu, eða Donnu Karan
New York línuna, enda er hin línan
hennar dýrari og vart íslendingum
bjóðandi. „Við erum búin að vera
að velta þessu fyrir okkur í tvö ár
og erum þegar búin að kaupa tvær
collectionir og erum að fara að
kaupa þá þriðju núna,“ segir Marta
og heldur áfram. „Við byrjum að
selja merki hennar í Evu í næstu
viku en ætlum hins vegar í október
að opna það sem kallað er shop in
shop undir þá línu, eða byggja við
Evu út að húsgagnabúðinni okkar.
Þar fáum við stóran sal þar sem við
ætlum að hafa bæði fatnað og aðra
fylgihluti frá DKNY.“
Marta telur það heiður að fá að
selja Donnu Karan vörurnar því
fyrirtæki hennar sé í senn vel upp-
byggt og vel rekið. Útsendarar
hennar hafi komið hingað til lands
og kannað allar aðstæður áður en
þeir gáfú samþykki sitt. Að auki
fylgist hún vel með öllum fyrirtækj-
um sínum.
En hvað er svo í tísku?
„Tískan er mjög margbreytileg.
Donna Karan hefur mjög breiða
línu, sem er allt frá því að vera töff í
neonlitunum upp í fínan og klass-
20 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 25. ÁGÚST 1994
ískan klæðnað. DKNY-línan
spannar mjög breiðan aldur. Hún
er í senn rnjög ódýr og nokkuð dýr
og allt þar á ntilli. í hennar línu nú
er t.d töluvert um hnésídd á pils-
um, sem er rnikið að ryðja sér til
rúms núna, svo er líka mikið um
sítt og alveg stutt. Allt þar á milli
tilheyrir ekki tískunni núna. Hins
vegar erum við lítið með skó frá
Donnu Karan. Þeir eru einfaldlega
ekki fyrir buddu íslendinga.“
Hvað er að gerast með skótískuna.
Mér sýnist sem mjóu hœlarnir séu að
koma aftur?
„Já, það er rétt að hælarnir eru
að mjókka á skóm fyrir þá sem á
annað borð vilja vera á hælum.
Annars eru að koma voða mikið
flatbotna skór, mjög flatir. Það
verður þó eitthvað gróft í vetur. Á
meðan stutta, svokallaða A-laga
tískan, er enn ríkjandi passar vel að
vera á þykkum skóm. En það á
mest við um unga fólkið."
Að öðrum kosti telur Marta tíð-
arandann öllu bjartari en hann var.
„Það hefur lítið verið um nýjungar
hér á landi í tískubransanum. Fólk
hefur verið að halda að sér hönd-
unum. Það er gaman að takast á
við nýtt verkefhi einmitt þegar tím-
arnir eru svolítið erfiðir. Það er eins
og fólk trúi nú að botninum sé náð
og nú sé allt upp á við.“
Lifandi gallerí
Enn með hugann við vetrartísk-
una tók Friðrik Weissappel, tísku-
búðareigandi, í sama streng og
Marta hvað það varðar að allt væri í
tísku og að litagleðin væri með
brjálaðra móti, og það þrátt fyrir að
vetur væri í nánd. Það sem sérstaka
athygli vekur, í hinni nýopnuðu
búð hans og Dýrleifar Örlygsdótt-
ur við Laugaveginn, er að þar eiga
nú fimm íslenskir hönnuðir,
reyndar enginn þeirra með próf í
greininni, fatnað. Þetta eru þær
Katrín Ólafsdóttir, betur þekkt
sem Kata dansari, Hildur Hafstein,
Ragna, Svava og Margrét en allar
eru þær að gera mjög góða hluti.
Það sem gerir hönnun stúlknanna
fýrst og ffemst spennandi er vand-
virkni þeirra og ekki skaðar að flík-
ur þeirra eru einstakar, þ.e.a.s fátt
er til af hverju, eins og raunar af
öllu öðru í hinni nýju og stækkuðu
verslun þeirra. En fyrir utan skreyt-
ingu á mannslíkamann fást þar for-
látir lampar sem vakið hafa mikla
athygli. Ekki veit ég hvað skal kalla
þá en þeir eru vatnskenndir og allir
á iði þegar maður rýnir í þá. Til að
skýra þessa ótrúlegu samsuðu vill
Friðrik koma því á framfæri að
búðin sé ekkert annað en, „lifandi
gallerí.“
En það eru ekki bara íslensku
Hönnuðirnir í Frikka og dýrinu í
eigin flíkum, Ragna, Katrín Ólafs,
Ásdís, sem er staðgengiil Hildar
Hafstein í flík frá henni, Alda og
Margrét. Enginn þessara hönnuða
hefur hlotið menntun í faginu.
Leiða má líkur að því að kreppan
hafi fengið þær til að ganga á eig-
in forða. Og útkoman er alls ekki
slæm.
hönnuðurnir og Donna Karan sem
verða hvað athyglisverðastir í vetur.
Paul Smith kom nýverið með
kvenlínu sem nú fæst í versluninni
Heimsmönnum. Það eru einkum
og sér í lagi kvenjakkafötin, eða
öllu heldur buxnadragtirnar frá
honum, sent vakið hafa mikla at-
hygli. Hann komst enda að því, eft-
ir að hafa hannað fatnað á karl-
rhenn eingöngu í nokkur ár, að
konur notuðust ekki hvað síst við
þann fatnað. Kvenlína hans ber
þess glöggt merki því hún er í senn
klassísk og töff. Paul Smith hefur
það sem veganesti að kvenfatnaður
geti verið afar kynæsandi án þess að
eitthvað af líkama kvennanna sjáist.
Að sama skapi og kvenfatnaður-
inn, eru karlmannaföt í vetur einn-
ig margslungin. Þó má benda á það
að ætli karlmaður sér aðeins að
fjárfesta í einum alfatnaði íyrir vet-
urinn eru bestu kaupin í brúnum
jakkafötum með einhvers konar
teinum. Ýmis efni koma tO greina,
t.d flauel og ull. VOji karlmenn hins
vegar eitthvað sem endist þeim tO
ársins 1999 er íburðarmikifl frakki í
dökkgráum, svörtum eða dökkblá-
um lit góð hugmynd. Vilji karl-
maðurinn vera nokkuð áberandi er
hermannaffakki töfralausnin.
Felulitir og rússneskir
frakkar
Af öUum sólarmerkjum að
dæma ætti einnig að verða góssent-
íð ffamundan hjá verslunum eins
og Arma Supra, en sú verslun ber
nafn með rentu því hún hefur ekki
bara að geyma svokallaðan her-
mannafatnað heldur alla fýlgOUuti,