Pressan - 25.08.1994, Síða 24

Pressan - 25.08.1994, Síða 24
Þrátt fyrir að ljóst sé að samkeppni olíufélaganna felst ekki í bensínverði þá er samkeppnin blóðug á ýmsum sviðum. Má þar nefna slaginn sem hófst eftir að Olíufélagið setti safnkort sitt í umferð í byrjun sumars. Átakið beindist fyrst og fremst að því að auka markaðshlut- deild Esso í bensinsölunni en rekstur og umgjörð safnkortsins er nokkur og ef þetta á að takast verður aukin markaðshlutdeild að réttlæta aukinn kostn- að sem fylgir safnkortinu. Hin olíufélögin höfðu lengi gælt við slíka hluti en aldrei þorað að láta verða af því vegna áhætt- unnar. Þau brugðust við með því að veita afslátt og nú heyrast sögur af því að sá mótleikur hafi tekist. Hefur því verið haldið fram að markaðshlutdeild Essó hafi minnkað um 1 prósent á síðustu þrem mánuðum. Með þvi fylgja fullyrðingar um að stóll Geirs Magnússonar for- stjóra hafi hitnað töluvert við þetta þar sem það var hans ákvörðun að hella sér út í slaginn... Upphlaup í utanríkis- þjónustunni undanfarið, með tilheyrandi norna- veiðum, hafa vakið mikla athygli. Menn þykjast sjá merki þess að störf og starfsmannahald í þjón- ustunni ráðist sífellt meira af duttlungum og geð- þóttaákvörðunum Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra og þora menn ekki öðru en að sitja og standa eftir hans vilja. Má sem dæmi taka hlutskipti Guðmundar Eiríkssonar þjóðréttar- ffæðings sem settur hefur verið út í kuldann eftir að hann stóð upp í hárinu á ráðherranum. Þá hafa margir orðið til að rifja upp að ástandið hafi verið keimlíkt þessu í tíð Jóns Baldvins í fjármálaráðu- neytinu þar sem jábræður ráðherrans voru hafhir upp til skýjanna en þeir sem stóðu á móti fengu frystimeðferð... VIÐ HLUSTUM ALLAN SÓLAR- HRING- INN 643090 i i Það eru allir velkomnir í 6 ára afmælisveislu Pizza Hut sem hefst í dag og stendur til sunnudags á Hótel Esju og í Mjódd. aru l A Afmælistilboð: Frír skammtur af brauðstöngum með öllum pizzum Frí áfylling af Pepsi og Egils appelsíni Pizza Hut afmælistert

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.