Vísir Sunnudagsblað - 09.06.1940, Blaðsíða 2

Vísir Sunnudagsblað - 09.06.1940, Blaðsíða 2
2 VISIR SUNNUDAGSBLAÐ fram í ættir voru borgarstjór- ar í Mainz, eða höfðu önnur mikilvæg störf á hendi. En árið 1420 er Johann Gut- enberg ekki að finna í Mainz. Á þessum árum höfðu iðnaðar- félögin í horginni brotist til valda en heldri stéttirnar flúið á brott, og talið er sennilegt, að fjölskylda Gutenbergs hafi verið þar á meðal. Eftir dómsskjölunum að dæma, hefir J. Gutenberg skot- ið næst upp í Strassburg. Þar lendir hann í meiðyrðamáli, er höfðað var gegn honum, og tapaði því. Hann lendir þar í öðru máli, sem spanst út af verslunarfélaga lians, Andreas Dritzehn að nafni. Þeir stofn- uðu til verslunarfélags ásamt nokkurum öðrum og tilgangur þess var að búa til og selja spegla handa pilagrímum, sem von var á til hátíðahalda í Aachen árið 1439. Hver ein- stakur félagi átti að borga 80 gyllini í lilutafé. Þetta eru ekki miklir peningar á okkar mæli- kvarða, en það gegndi öðru máli í þá daga. Þá var auðvelt að lifa í tíu ár sæmilegu lifi fyrir 80 gyllini og fyrir 100 gyllini var hægt að kaupa stór- hýsi í borginni. Hvað sem þessu leið, þá var sþeglaverksmiðj- unni komið á laggirnar og speglarnir búnir til, en þá var hátiðahöldunum í Aachen frest- að og pílagrímarnir komu ekki í það sinn. Andreas Dritzehn og félagar hans munu hafa komist í mild- ar skuldir við þessi óliöpp og munu hafa Iagt fast að Guten- berg, að stofna til nýrra gróða- fyrirtækja, og þá helst í sam- bandi við uppgötvanir Guten- bergs, sem þá þegar lék orð á að væru mikilvægar, án þess þó að fólk hefði liugmynd um í hverju þær voru fólgnar. — Það vissi aðeins, að hann fékst við einhverjar uppgötvanir. Hann fór líka mjög dult með þær því að einkaleyfi eða sér- réttiiídi þektust ekki á slíku, en fólkið stóð hinsvegar í þeirri trú, að þarna væri um eitthvert stórvægilegt gróðafyrirtæki að ræða. Gutenberg lét undan og stofn- aði til gróðafyrirtækis með Andreas Dritzehn og öðrum fé- lögum bans. Ákveðið var, að hver hluthafi greiddi 125 gyllini í stofnfé, en ef einhver hluthaf- anna dó, skyldu erfingjar hans fá 100 gyllini endurgreidd. Áð- ur en ár var liðið frá stofnun fyrirtækisins, dó Andreas Drit- zehn, og bræður hans heimtuðu arfinn útborgaðann, en Guten- berg neitaði að greiða. Hófust út af þessu málaferli, er lykt- uðu með sigri Gutenbergs. Hann þurfti ekki að borga bræðrunum nema 15 gyllini alls. Þessi félagsstofnun mun liafa farið út um þúfur og gróði mun sennilega enginn hafa orðið. Um þetta Ieyti mun Johann Gutenberg hafa flust til fæðing- arbæjar síns aftur. Þar kyntist hann ríkum iðjuhöldi, sem hét Jobann Fust. Fust þessi hafði orð á sér fyrir gætni og liepni og þótti forsjáll mjög í gróða- fyrirtækjum sínum. Honum mun liafa litist vel á uppgötvun Gutenbergs og búist við að hún ætti mikla framtíðarmöguleika fyrir höndum, enda kom það á daginn, þótt síðar yrði. Fust lán- aði Gutenberg 800 gyllini, sem var geypileg Upphæð í þann tíma, og ætlaðist hann til að þessu yrði varið til stofnunar prentsmiðju með tilheyrandi vélum og áhöldum. En aulc þessa skuldbatt Fust sig til að greiða 300 gyllini árlega í fyrir- tækið, er verja slcyldi í liúsa- leigu, kaup, pappír, sverlu o. s. frv. Tveimur árurn seinna var Gutenberg búinn að eyða öll- um peningunum. Fust veitti honum þá aftur 800 gyllina lán. Svo liðu 3 ár, Fust borgaði en fékk ekki grænan eyri endur- greiddan. Þá þraut Fust þolin- mæðina.Hann stefndiGutenberg og krafði bann urn greiðslu á 2026 gyllinum auk vaxla og vaxtavaxta. Tildrögin til þessara mála- ferla liafa óefað verið mikil og mörg. Sumir hafa getið sér þess til að Fust hefði snuðað Guten- berg sem hvern annan saklaus- an listamann, er lagði alt í söl- urnar fyrir hugsjón sína. En þessu mun þó liafa verið öðru- vísi farið. Gutenberg var ekki neinn engill — í viðskiftum ekk'i heldur. Annars er mjög óvíst bvað farið hefir á milli þeirra Fust’s og hans, en hitt er vitað, að Gutenberg hafði tvær bækur í prenti — annað var biblia, en bitt var sálmabók, og hana vildi Gutenberg prenta sérstak- lega vandlega. Hvorugri þessara bóka fékk Gutenberg lokið, því hann tap- aði málinu fyrir Fust og varð að láta prentsmiðjuna, allar vélar og báðar bækurnar af hendi til hans. En gamall nem- andi Gutenbergs og tengdason- ur Fust’s, Scliöffer að nafni, tók við stjórn prentsmiðjunnar og lauk þeim störfum, er Guten- berg hafði liafið. Þessar tvær fyrstu prentuðu bækur eru meistaraverk á sínu sviði. Af bibliunni eru til að- eins 41 eintak í lieiminum, svo vitað sé um, og verðmæti þeirra er ótrúlega mikið. Nýlega var eitt þessara eintaka selt til Ameriku, og þá voru 120 þús. dollarar greiddir fyrir það. Gutenberg var skuldunum vafinn mestan hluta ævi sinnar og hann dó skuldugur. Þráít fyrir það leið hann ekki neinn skort síðuslu æviár sín, því að erkibiskupinn í Mains sá lion- um fyrir lífsviðurværi og veitli honum ríkulega við hirð sína. Um dauðdaga eða dánarár Gutenbergs vita menn það eitt, að hann er dáinn árið 1468, því þá stendur í gömlum skjölum, að vélar, prentletur og aðrar eftirlátnar eignir Gutenbergs skuli falla í lilut dr. Conrad Humery í Mainz, manns, sem um langt skeið lijálpaði Guten- berg um fé, eftir málaferlin milclu við Fust. Það má segja, að enda þótt Johann Gutenberg hafi ekki verið með öllu heillum horfinn, þá hafi hann þó ekki noti'ð þeirrar aðdáunar, sem honum að réttu bar. Það var ekki fyr en löngu seinna, að menn möttu réttilega gildi þessarar stór- vægilegu og merkilegu uppgötv- unar. Þann 24. júní 1540 mint- ust prentarar Luthers aldaraf- mælis prentlistarinnar í kyr- þey. Hundrað árum síðar, eða árið 1640, var stofnað til veglegrar minningarhátíðar í tilefni af tveggja alda afmæli prentlist- arinnar. Fóru þau hátiðahöld fram í ýmsum þýskum borgum, svo sem Jena, Strassburg, Bres- lau, en aðal-hátíðahöldin fóru fram í Leipzig — hinni miklu bókamiðstöð Þýskalands. — Fjölda prentara viðsvegar að var boðið á aldarafmælið. í há- tíðarskjali, sem gefið var út í tilefni af minningarhátiðinni 1640 er þess getið, að minning- arhátíð þessi sé kristileg lof- og þakkargjörð, sem allir taki þátt í með fjálgleik og guðsótta. Það er og ennfremur tekið fram, að á eftir guðsþ j ónustunni fari fram heiðursmáltíð, þar sem syndugar lystisemdir, svo sem dans eða óguðleg samtöl, séu fordæmd og enda lögð við há fjársekt, ef út af er brugðið.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.