Vísir Sunnudagsblað - 09.06.1940, Síða 3

Vísir Sunnudagsblað - 09.06.1940, Síða 3
VISIR SUNNUDAGSBLAÐ 3 Einhver hin mesta tækniframför á svihi prentlistarinnar var þaö, er þýsk-ameríkumanninum Ottmar Mergenthaler tókst að fullgera setjara- vélina — „Linotype“ —, hina fyrstu nothæfu vél af þessu tæi. ÞaS var áriÖ 1886. ÞaÖ kostaÖi Mergenthaler margra ára tilraunastarf og mikiÖ fé aÖ skapa vélina, og talið er, að ýms hlutafélög í Bandaríkj- unum hafi varið meira en 20 milj. dollara til endurbóta á ýmsum teg- undum setjaravéla, áður en Mergenthaler tókst að gera sína vél nothæfa. Síðar hafa komið á heimsmarkaðinn ýmsar aðrar tegundir setjaravéla, sumar mjög líkar „Linotype" að gerð, en aðrar aftur gerólikar að útliti og starfshætti. — Fyrsta setjaravélin — „Linotype" —- kom til Islands árið 1914. (Hún er mið-vélin á myndinni). MeÖ hana kom Jakob Krist- jánsson prentari, frá Akureyri. Vélin kom í prentsmiðjuna „Rún“, — sem Félagsprentsmiðjan keypti 1918. — Setjaravélarnar létta mjög starf við setningu á blöðum og bókum og dagblaðasetning er vart hugsanleg án þeirra. Með þeim getur einn maður afkastað starfi 4—5 handsetj- ara, eða meira. Góður meðalmaður getur sett 6—8 þúsund stafi á klst. á vél, en varla meira en 1500—2000 úr kassa. — Myndin er af setjara- vélum Félagsprentsmiðjunnar. Minningarhátíðin hófst 24. júní og stóð yfir í þrjá daga. Þriggja alda minningarhátíð prentlistarinnar árið 1740 var ekki haldin í Þýskalandi einu, heldur var afmælisins minst ▼íðsvegar um álfuna, einkum i nágrannalöndum Þýskalands. Hátíðahöld fóru fram í flestum stærri horgum í þessum lönd- um, en þó ekki samtímis. I London var þriggja alda afmæl- isins minst 19. febrúar úti á Themsfljótinu, er þá var ísi lagt. Flutt var prentvél út á ána þenna dag og prentað þar, svo allir gætu horft á. Laust eftir aldamótin 1800 var stofnað félag í Mainz, fæð- ingarbæ Gutenbergs, með það fyrir augum, að reisa af honum styttu þar í borginni. Var hafin fjársöfnun í þessu skyni og síð- ar boðið út til verðlaunakepni fyrir besta teikningu. Þá Var það sem danski íslendingurinn Bertel Thorvaldsen bauðst til að gera líkneskið ókeypis, og það hoð var þakksamlegast þeg- ið. Minnismerkið var afhjúpað um miðjan ágústmánuð 1837 í Mainz, en þá var fjögra alda afmælis Gutenbergs jafnframt minst í þeirri horg. Þýskur rithöfundur, er við- staddur var liátíðahöldin í Mainz, lýsir áhrifunum, er hann varð fyrir, á þenna hátt: „Teikn sáust á himni og jórðu áður en hátiðahöldin hófust. Meðfram endilangri Rín og í öllum nærliggjandi dölum og sveitum geysaði þrumuveður, svo að leiftrandi eldingarnar lýstu upp biksvört ský á nátt- dimmum himni. Það var því líkast, sem myrkur og hamfar- ir miðaldanna væri skollið yfir að nýju — myrkrið, sem ríkti í menningu þeirra áður en prentlistin braut ljósi sinu far- veg gegnum skýjahrannir þess. Póstvagnar ultu, lieil tré rifn- uðu upp með rótum, eldingum, laust niður. Strax í Kassel, útborginni sem liggur að Mainz, varð eg snort- inn af öllum þeim undirhúningi hátíðahaldanna, sem fyrir aug- un bar, mannfjöldanum og hinni auðsæju eftirvæntingu i svip fólksins. Prentararnir studdust fram á liandrið Rínar- brúarinnar, ánægðir með sjálfa sig og tilveruna. Þeir voru bún- ir að gleyma öllum prentara- sorgum, búnir að gleyma öllum bágu handritunum, ólesandi styttingar þeirra, allar n og u villurnar, úlklestar prófarkir og yfirslrikuð orð og línur rit- skoðnnarinnar. Núna var prent- smiðjunum lokað, stafirnir og vélarnar í ró og eg samgladdist svartlistarbræðrunum af heil- um hug — og gladdist yfir sigr- um þeirra. I dag lá heimurinn sigraður fyrir fótum þeirra.“ Rithöfundurinn þýski lýsir að því búnu hátíðahöldunum, afhjúpun myndastyttunnar af Gutenberg og lýkur loks með þessum orðum: „------Mér var öllum lokið. Mér fanst hjartað í m,ér dragast saman, einkum er eg leit á börn- in uppi á pallinum, þar sem þau voru að enda við að syngja Neukomme Tedeum. Hressi- legur, barnslegur hlátur þeirra heyrðist greinilega. Hvað getur heillað menn meir en þessi komandi kynslóð, þessi forboði batnandi tíma? Tilfinningar — óteljandi tilfinningar, er allar áttu rót sína að rekja til sama stofns, brutust fram með regin- afli í sál minni og gagntóku hug minn allan. Nú varð mér fyrst ljóst, að maður verður að vera skáld til þess að geta skynjað dýpt þessa mikla fagnaðar. Hví- lík umskifti þegar maður hrap- ar af sólblikandi tindum drauma sinna — hrapar úr feg- urð þessarar ógleymanlegu há ■ tiðar og niður í djúp veruleik- ans og raunsæisins.“ Á þessari minningarhátið var tekin ákvörðun um það, hvaða dagur og hvaða ár skyldi teljast hinn raunverulegi uppgötvunar- dagur prentlistarinnar. Eftir mikið þjark var þó endanlega ákveðið að 24. júní 1440 skyldi framvegis teljast hinn örlaga- ríki dagur í sögu svartlistarinn- ar. Á 19. öld var fjögra alda af- mælis Gutenbergs minst viðs- vegar um lönd. Þess var minst árið 1837 i Mainz, en annars- staðar fóru hátíðahöldin fram 1840. Veg'Iegust var minningar- hátíðin í Leipzig, sem haldin var dagana 24.—26. júní. Þang- að var boðið „öllum þeim, er fundu sig þrungna af þeim miklu sannindum, að prentlist- in þróaði eilífa framför manns- andans og styddi að batnandi siðferði, menningu og vísind- um á jörðunni.“ Þar mættu fulltrúar frá flestum menning- arlöndum álfunnar og var þar mikið um dýrðir. Tvö hundruð manna liljómsveit lék, undir stjórn tónskáldsins Mendelsolin, 4000 manns tóku þátt i liátíða- dansleik í horginni, nær 60 þús- und manns safnaðist saman á aðaltorginu, til að vera viðstödd hátíðahöldin. Borgin var upp- lýst á kvöldin, flugeldum var skotið, og gengið í hlysförum um götur liennar. Að þessu sinni efndu Norður- lönd einnig til liátíðahalda í til- efni af 4ra alda minningu prent- listarinnar. Fóru aðalhátíða- höldin fram í höfuðborgunum Oslo, Kaupmannahöfn og Stokkliólmi. Enn eru 100 ár liðin, og að sjálfsögðu verður Gutenbergs minst um gjörvallan lieim, i ræðum og ritum, fundahöldum og minningahátíðum. Jafnvel liér heima á Islandi minnast prentarar Gutenbergs með því að fjölmenna í hópför norður að Hólum, þar sem fyrsta prent- smiðjan var reist á landi voru. En livað sem öllum hátíða- höldum í ár líður, má fullyrða það, að þau verða með dapur- legra móti en áður, og eins liitt, að Þjóðverjar munu varla hjóða prenturum frá öllum löndum heims til að talca þátt í þeim, eins og til stóð, áður en styrj- öldin hófst. Ef Gutenberg gæti risið upp úr gröf sinni og látið álit sitt í ljós á þróun og valdi þess menningartækis, sem hann eití sinn fann upp, myndi liann að vísu sjá, að margt hefir prent- listin leitt fagurt og gott af sér, að hún er eitt glæsilégasta tæki, sem fundið hefir verið upp í þágu menningarinnar, en hon- um mundi jafnframt lirjósa hugur við þeirri staðreynd, að mörg fegurstu menn- ingartæki og uppgötvanir þess- arar jarðar hafa verið misnot- uð á svívirðilegan hált, og með- al þeirra er hans eigið óskaharn, það sama sem hann barðist fyr- ir alla sína ævi — prentlistin. éT

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.