Vísir Sunnudagsblað - 30.03.1941, Blaðsíða 7

Vísir Sunnudagsblað - 30.03.1941, Blaðsíða 7
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ 7 sérstökum lögregluþjónum, og voru 100 fet milli hvers manns. Á flugvellinum var mikið um að vera. Glæsilega klæddir þýzkir herforingjar stóðu þar í smáhópum og töluðu saman. Spænskir liðsforingjar Iiorfðu með eftirvæntingu eftir vegin- um til Madríd. Enginn mátti vera að því að skipta sér af fólkinu, sem var að koma eða fara með farþegaflugvélunum. Skyndilega heyrðist brak og breslir í hifhjólum, en á eftir þeim kom löng lest glæsilegra amerískra bila. Liðsforingj- arnir stóðu teinréttir og heils- uðu um leið og Himmler sté út úr einum bílnum og gekk inn i biðstofu flugvallarins. Allt datt í dúnalogn, svo að liægt hefði verið að heyra lús hósta. Síðan snéri Himmler sér að liðsfor- ingjunum, sagði tvö eða þrjú orð við livern þeirra og gekk siðan út á flugvöllinn. Þar skoð- aði hann hermannaflokk meðan lúðx-asveit lék spænska þjóð- sönginn og sté síðan upp í Junkers-flugvél, sem þaut af stað og hvai-f í austui'-átt. Það, sem eg furðaði mig mest á, var hversu litlar gætur voru hafðar á óviðkomandi fólki. Áhorfendur voru alveg látnir afskiptalausir og engar í-eglur settar um liegðun þeiri’a. En allt fór eins og eftir áætlun. Dálítið af nýjum einkennisbúningum. Hermennirnir, sem liafði ver- ið skipað að gæta leiðarinnar, höfðu fengið nýja einkennis- búninga, bláa með rauðum bi’yddingum. En það hafði ekki verið til nóg af þessum nýju einkennisbúningum, svo að síð- ustu milurnar út að flugvellin- um liafði rikislögregla verið fengin til að gæta brautarinnar, en hún var í sínum gamla ein- kennisbúningi —- dökkbltáum, með þríhyrnda liatta. Það er óvenjulegt að sjá nýja einkennisbúninga á Spáni, þvi að þar virðist allt vera gamalt. Himmler bjó t. d. á Ritz-hótel- inu, en það var ekkert, sem gaf það til kynna, að það ætti skilið hið mikla orð, sem af því fór áður fyrr. Það hafði t. d. ekki getað útvegað sér nýtt ljósa- skilti i stað þess, sem eyðilagð- ist í borgarastyi'jöldinni. Strætisvagnarnir voi'u orðnir svo lir sér gengnir, að það hefði átt að vera búið að fai'ga þeim fyrir löngu. Þar við bætist svo, að vegna bensínskortsins hefir hver þeirra þrisvar sinnum meira að gera en áður. Það þai'f að nxála húsin og hundruðþeiri'a þarf nauðsynlega að gera við. Egg' eru næstum ófáanleg í Madrid. Brauðið er næstum því kolsvart og maður fær að eins eina brahðsneið í nxál. Smjör er að eins til af skornum skammti og er þessvegna skammtað. Axxk þess er það oft oi'ðið súrt, þegar maður fær það. Kaffið er „er- satz“ og afskaplega vont á bragðið. Sykurs er erfitt að afla sér. Spánverjum leyfist að boi’ða lxjöt þrisvar í viku. Einn dagur i vilcu er ákveðinn „eins-réttar- dagur“, sem táknar, að þá má að eins framreiða einn aðalrétt, að viðbættri súpu, ávöxtum og brauði. Vistasmygl heldur áfram. Hömlui’nar, sem eru á sölu matvæla og vindlinga, liafa kornið af stað allmikilli leyni- sölu á þeim vönxtegundum. Ef maður jxekkir t. d. veitinga- mann, þá getur hann jafnan út- vegað viðkomandi hvað senx er, enda þótt spænskir matreiðslu- nxenn eigi hágt með að hafa mat sinn sérstaklega fjölbreytt- an, vegna þess liversu mikill liörgull er á feitiefnum. Enda þótt maturinn á Spáni sé ekki góður, vii'ðast allar að- stæður batna eftir því sem norðar dregur í landið. Barce- lona, senx varð oft fyi'ir loft- árásurn, hefir verið endux’bætt að miklu leyti og liagsældai’- svipurinn er þar meiri en í Madríd. Þó liggur fjöldi iðju- lausi’a skipa í höfninni þar. Það er lítið um beiningamenn í Bar- celona, en f jöldi þeirx'a er mjög áberandi í Madi’id. 1 Barcelonr. eru heldur ekki eins mörg börn, sem liafa það að féþúfu að safna vindlingastúfum á göt- unum og i veitingahúsunum, til þess að selja þá öðrum. Enn norðar, í litilli sveita- borg, kom eg að ginandi rúst- um eftir loftárásii*. Mér voi'u sýndar rústir loftvarnabyi’gis, sem liafði orðið fyrir sprengju með þeim afleiðingum, að 27 manns, senx i þvi voru, biðu bana. En nxilli kl. 8—9 á kvöldin á maður bágt með að trúa því, að rnaður sé staddur í borg, sem er að liálfu leyti í riistum. Þá flykkjast nefnilega allir út á að- altorgið — Rarnbla — og ganga umhverfis það, til þess að sýna sig og sjá aðra, rétt eins og allt væx’i eins og það á að vera.. Og næsla dag varð eg enn meira undrandi. Þá þurfti billinn, sem eg leigði, að fai-a 16 km. krók, vegna flóða, en ekillinn setti upp ,, fyi’ir-kreppu-verð“. Kontrakt-Bridge __ Eftír frú Kristínu Norðmann - Spurnarsagnir doblaðar, Ef mótspilari doblar spurn- arsögn, skal meðspilari þess, sem spui’ði, redobla, ef hann lxefir kónginn í spui’narlitnum. Hafi hann kóng eða einspil í spurnarlitnum og ás i öðrum lit, skal hann engu skeyta um dobl- unina, en svara samkvæmt reglunum með áslitnum. En sé ásnn í tromplitnum, þai’f með- spilari ekki að segja einum hærra en nauðsyn krefur, lield- ur nægir að segja eins og með þai’f i tromplitnum. Dæmi: V K-10-8-7 A K-D-9-2 ♦ 10-5 * K-D-7 Norður Suður A G-8-7-5 ¥ Ás-D-G-2 ♦ K-D-3 ♦ Ás-2 Suður segir 1 hjarta — vestur pass — Norður 3 hjörtu — Austur pass — Suður 4 lauf — Vestur doblar — Noi'ður i-e- doblar — Austur pass — Suður fjögur hjörtu. Þegar Norður redoblai', veit suður að noi’ður hefir laufkóng en engan ás. Segir suður þá fjögur hjörtu. En ef spil Norðurs liefðu ver- ið eins og þau, sem liér fara á eftii’, og vestur hefði doblað fjögur lauf, átti norður að svara með fjórum lijörtum, og gefa þar með til kynna kóng eða ein- spil í laufi og lijartaás. Dæmi: A K-D-9-2 ¥ Ás-10-8-7 - ♦ 10-5 ♦ K-D-7 NorSur Suður A G-8-7-5 y K-D-G-2 ♦ K-D-3 4» Ás-2 Spurnarsagnir og fjögra- og fimm-grandasagnir. Spurnarsagnir og fjögra- grandasagnir eru eingöngu not- aðar með það fyrir augum, að komast upp í slemsagnir. — Vei’ður venjulega að ákveða í tæka tíð, liver leiðin skuli held- ur valin. En þó er ekkert þvi til fyx'irstöðu, að liægt sé að nota báðar sagnaðferðirnar i sama spili, sé spiluni þannig háttað. Dæmi: & G-9-6-5-3 y Ás-D ♦ 9-7-3 * Ás-D-5 NorSur SuSur A Ás-K-8-7-4-2 y 6 ♦ Ás-K-5-4 * K-3 Suður: 1 spaði 4 tiglar? 4 grönd 6 tiglar? pass Nox’ður: 3 spaðar 4 spað^r 5 gi'önd 6 spaðar Suður spyr með fjórum tígl- um til þess ajð fá vitneskju um tígullitinn og ásana. Ef norður hefði haft einspil í tígli og tvo ása, átti hann að svara með fjór- um gröndum, en suður liefði strax sagt sjö spaða. Norður vei’ður að svara neikvætt þótt hann liafi tvo ása, þar sem liánn getur hvorki átt fyrsta né ann- an slag i tigli. Suður segir fjögur grönd, en norður svarar með fimnx gröndum með tvo ása. Suður veit, að norður hefir eklíi einspil í tigli, þar sem hann svaraði spurnarsögninni nei- kvætt. En nú vill suður fá að vita, livort noi’ður geti átt þriðja slag i tígli (hafi drottningu eða tvispil) og spyr hann því aftur með sex tíglum. Noi'ður vei'ður aftur að svara neikvætt og suð- ur lætur sér nægja að spila sex spaða. Árið 1926 var gerður 136. holskurðui'inn á Harry B. Smythe í St. Louis i Bandai’íkj- unum. Hann hefir alltaf vei'ið skorinn við sama sjúkdómnum, sem er þrálát meinsemd innan í beinunum. Fyi’sti liolskurð- urinn var framkvæmdur árið 1883, þegar hotnlanginn var tekinn lir Smythe. Nú fyrir skemmstu varð hann að leggjast á skurðarhorðið í 137. sinh. Smythe er .67 ára gamall.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.