Vísir Sunnudagsblað - 30.03.1941, Page 8

Vísir Sunnudagsblað - 30.03.1941, Page 8
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ 8.— NfÐAM Gersamlega óþekktur Eng- lendingur á heiðurinn af því, hversu Bretum tókst auðveld- lega að ná Bardia á sitt vald. Þessi Englendqgur heitir Charles E. Glubb og margir eru þeirrar skoðunar, að hér sé ann- ar „Arabíu-Lawrence“ á upp- siglingu. Það var Glubb, sem benti á beztu leiðina til að koma setu- liði ítala í Bardia í opna skjöldu og hann fór líka í fararbroddi, til þess að gæta þess að her- mennirnir villtust ekki. • Glubb hefir lifað mestan hluta æfi sinnar i Norður- Afriku og hinum nálægari Aust- urlöndum. Hann talar margar mállýzkur hinna innbornu manna og nýtur mikils álits meðal þeirra. • • Þegar brezku sprengjuflug- mennirnir koma úr leiðöngrum sínum til Þýzkalands eða her- numdu landanna, eru þeir jafn- an spurðir um það, livernig eld- arnir, sem sprengjur þeirra komu af stað, hafi verið á litinn. Af því má nefnilega dæma, hvað hafi orðið fyrir sprengjunum. Ef eldur, sem upp kemur, er hvítur, má telja víst, að þar sc um að ræða reyklaust púður. Ef eldurinn er grænleitur eru þar að brenna klór-efni. Pottaska orsakar fjólubláan eld. Flug: vélaverksmiðjur og aðrar verk- smiðjur, sem ekki framleiða kemisk efni, hrenna með rauð- um og gulum eldi, eins og venju- leg liús. • Tveir ítalskir prófessorar við háskólann i Rómaborg, Ugo Cerletti og L. Beni, liafa fundið upp aðferð til að lækna geð- veika. Er lækningin í þvi fólgin, að sérstök vél sendir rafstraum í gegnum höfuðið á sjúklingun- um. Ýms sjúkrahús í Banda- ríkjunum, þar á meðal þrjú í Pittsburg, hafa tekið þessa að- ferð upþ. • John Sabourin i Denver í Texas lenti í árekstri. Vagn lians skemmdist lítið og Sabourin meiddist ekki, en þegar liann var að rífast við hinn bílstjórann um það, hvor ætti sök á árekstr- inum, þá skeði slysið. Sabourin Margt er meyjarjndi! Nemendur úr Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja í útileikfimi. Heima- klettur i baksýn. — Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi, sendi Vísi myndina. sveiflaði öðrum liandleggnum svo hart, er hann var að leggja áherzlu á eitthvað, að hann fór úr liði á öxlinni. • Síðustu tvö ár hafa farjrega- flugvélar ástralska flugfélagsins flogið 160 millj. km. með far- þega, án þess að einn einasti far- þeganna hafi beðið hana af slys- förum. • Það varð enginn undrandi í fjölskyldu Warren Robinsons í Oklahoma i Bandarikjunum, þegar kona lians fæddi tvibura. Ivona Robinsons er nefnilega tviburi, amma liennar var tví- buri, og faðir Robinsons átti tviburabræður. • Heimsmeistari í þyngsta flokki í glímu er Grikkinn Jolm Londos. Hann lætur sér þó ekki nægja að glíma, heldur hefir hann lagt mikla vinnu i að rann- saka uppruna glímunnar, eins og hún er iðkuð viða um heim. Segir hann, að liún sé upprunn- in í Egiptalandi, en japanska glíman, Jiu-jitsu, sé næst-elzt. • í Detroit í Bandaríkjunum er byrjað að reisa sjúkrahús, sein á að kosta 100 millj. dollara og á að vera eingöngu fyrir maga- veikt fólk. • Latína er svo vinsælt mál i menntaskólum í Bandaríkjun- um, að eftirspurnin eftir kenn- urum er miklu meiri en fram- boðið. • Bílaverkfræðingar i Banda- rikjunum spá því, að hreyflar bílanna á árinu 1942, muni verða þeir sömu og 1941, en út- liti bílanna muni verða breytt smávægilega. • Þegar John J. Curry var i Massachussetts-ríkisfangelsinu fyrir 45 árúm stofnaði liann mánaðarblaðið „The Mentor", sem siðan hefir verið gefið út reglulega. Fyi'ir skemmstu var Curry settur „inn“ aftur og tók hann þegar við ritstjórn hins gamla blaðs síns. • Síðan styrjöldin hófst hafa selst um 1.000.000 eintök af söngnum „Beer Barrel Polka“, sem nú er vinsælasti styrjaldar- söngur Breta. Næst kemur söngurinn „South of the Bord- er“, sem er eftir tvo Englend- inga, þótt hann sé saminn fyrir Bandaríkin. I þriðja „sæti“ er „Wish Me Luck As You Wave Me Good-Bye“. Sá söngur hefir selst í um 500.000 eintökum. Sá fjórði í röðinni er svo „Somewhere in France“, sem féll þó mjög í áliti eftir undan- haldið til Dunkirk. Hann seldist í 400.000 eintökum. Enginn þessara söngva mun þó ná jafn miklum vinsældum og sumir söngvarnir, sem sungnir voru í Heimsstyrjöld- inni „It’s a Long Way to Tippe- rary“ seldist í 5 millj. eintökum, „Roses of Picardy“ í 3 millj. og „Keep the Home Fires Burning" í einni milljón eintaka. • „Þjóðarfjandi nr. 1“ i Banda- ríkjunum um þessar mundir heitir Charles Monazym, en hann fékk nafnbótina fyrir bankarán i Detroit 1. maí 1936. Monazym komst undan með 64.740 dollara. Síðan hefir liann farið huldu liöfði, en leitin held- ur áfram i fullum krafti og hefir nú bráðum staðið í fimin ár. • Bandarikjamenn eru farnir að framleiða skriðdreka, sem geta farið bæði á sjó og landi. Telja hernaðarsérfræðingar i Bandaríkjunum, að hægt myndi vera að gera innrás í Bretland, yfir Ermarsund, í svona skrið- drelcum. Þeir eru 4 smál. á þyngd og geta farið með 10 milna hraða, þegar sjór er ekki mjög úfinn. Hafa verið gerðar velheppnaðar tilraunir með þeim, t. d. að láta þá „taka sundið" gegn brimi og stórsjó. • Lundúnabúi einn, sem missti sjónina í Heimsstyrjöldinni, sat i loftvarnaskýli sínu, þegar sprengja féll rétt hjá, svo að allt lék á reiðiskjálfi. Þetta hafði þó það í för með sér að maðurinn fékk sjónina aflur. Uppskerubrestur mikill er fyrirsjáanlegur i Ástralíu. Vet- urinn — þ. e. saina sem s. 1. sumar líér — var óvenjulega þurrviðrasamur, svo og vorið, svo að menn búast við að upp- skeran verði aðeins helmingur móts við það venjulega. • Þegar republikaninn Frede^ rick Hale, öldungadeildarþing- maður fyrir Mainefylki í Banda- ríkjunum, hætti störfum fyrir skemmstu hafði fjölskylda hans átt fulltrúa í öldungadeild Bandarikjanna í 83 ár. Afi Hales varð öldungadeildarþingmaður á tímuin þrælastríðsins, faðir Hales varð þingmaður nokkuru fyrir aldamótin, en sjálfur varð Hale þingmaður 1917. • í gömlum sögnum getur iðu- lega um ræður prestanna fyrr á tímum og vitnað i þær og kennir þar margra grasa. Hér er kafli úr einni: „í morgun, þegar vér riðum til kirkjunnar siáum vér eina örn sitja á Laufskálabökkum hald- andi einum laxi sér í klóm, hver eð virtist mundu rífa undan henni það eina lærið. Þannig vill djöfullinn fara með oss kdstna menn. Hann leitast við, að rífa undan oss það liið andlega lær- ið. En við þvi eru ráð kristinn maður. Taktu skónál skynsem- innar, þræddu upp á hana þráð þrenningarinnar og taktu þar næst leppdulu lítillætisins og saumaðu fyrir þína sálarholu, svo að sjá helvíski kattarormur djöfullinn klóri sig þar ekki í gegnum, si-sona og sí-sona“ — og um leið krafsaði klerkur út í loftið, svo sem til frekari á- herzlu orðum sínum.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.