Vísir Sunnudagsblað - 29.10.1941, Blaðsíða 1

Vísir Sunnudagsblað - 29.10.1941, Blaðsíða 1
 1941 Sunnudaginn 29. október 43. blaö l.4\vii«lar«lóniiir Eftír (íeir CaígjUi Kleifarvatn§ GEIR GÍGJA. I. Kleifarvatn hefir lengi veri'ð mönnum ráðgáta. Fá vötn, sem ekkert gefa í aðra hönd, hafa vakið eins mikla athygli hjá al- þýðu manna og einmitt það. Aðalástæðan til þessa eru breyt- ingar þær, sem verða á yfir- borðshæð vatnsins og liafa vald- ið tjóni á engjum í Krýsuvík, sem liggja að vatninu að sunn- an. Einnig er leiðin um fjörurn- ar, fram með vatninu að vestan, ófær, þegar hátt er í því. Kleif- arvatn hefir litið verið rannsalc- að vísindalega fram til ársins 1910, að Fiskideild Atvinnu- deildar Háskólans lét gera ná- lcvæmar rannsóknir á því í sam- ráði við Hafnarfjarðarbæ, sem kostaði þær að mestu leyti. Við dr. Finnur Guðmundsson unn- um að rannsóknum þessum. Rannsökuðum við vatnið á 32 stöðum, þannig, að við mældum dýpi þess, hita við botn og yfir- borð með samanburði við loft- hita og tókum jarðefni á vatns- botninum og sýnishorn af gróðri lians og dýralífi. Einnig tókum við sýnishorn af svifi við yfir- borð vatnsins og sýnishorn af vatninu sjálfu til efnarann- sókna. Við athuguðum og fjör- urnar fram með vatninu, gróður þeirra og dýralíf og jarðmynd- anir i umhverfi vatnsins. Frá þessum rannsóknum mun verða skýrt nánar innan skamms. Sá, sem þetta ritar, lxefir auk þess gert nokkrar athuganir 1 sam- bandi við hækkun og lækkun á yfirborði Kleifarvatns, og verða hér birtar í fáum dráttum helztu niðurstöður af þeim. En áður en farið er út i það, skal geta um nokkra fræðimenn, er hafa at- hugað vatnið og sumir þeirra getið þess í ritum sínum. Þor- kell Vidalin segir t. d., að Kleif- arvatn liafi breytzt við jarð- skjálfta árið 1603.1) Þorvaldur Thoroddsen lýsir umhverfi vatnsins og skýrir frá ferð sinni fram með því 1883.2) Segir hann, að vatnið hækki og lækki til skiptis og getur þess, að svo hátt hafi verið í því, þegar hann var þar, að ekki hafi verið fært fyrir Stapann.1) Árið 1930 lét Emil Jónsson vitamálastjóri setja merki við Kleifai’vatn til þess að sjá, hvernig hækkun og lækkun í vatninu væri háttað. Hefir svo afstaða merkjanna til vatnsyfir- borðsins verið athuguð árlega 1) Ferðabók eftir Þorvald Thoroddsen I. b. 2) Sama rit. 1) Það er höfði, sem gengur út í valnið að vestan og hægt er að komast fyrir framan, þegar lágt er í því. siðan. Sama ár athugaði Pálmí Hannesson rektor vatnið og mældi dýpi þess, en ekkert hef- ir hann birt um þær rannsóknir. í Árbók Ferðafélags íslands árið 1936 ritar dr. Bjarni Sæ- mundsson grein, er hann nefnir „Suðurkjálkann“.Segirþar með- al annars: „Kleifarvatn er þriðja stærsta vatn á Suður- landi, 6—7 km. langt frá NA til SV, og 2 km. breitt og auðsjá- anlega orðið til við landsig milli Sveifluháls og vesturhlíða Lönguhliðarhásléttunnar. Ligg- ur vatnið þarna allniðurgrafið á milli hamraveggja Sveifluháls og snai’brattra skriðna Vatns- hlíðarinnar, afskekkt og lítið þekkt eins og óbyggðavatn, enda þótt það liafi hingað til verið ná- lægt byggð og árlega heyjað á bökkum þess, og má það furðu- legt heita, þegar þarna er um eitt merkasta stöðuvatn heims- ins að ræða, enda þótt um- hverfið sé hrjóstrugt í meira lagi. Vatnið hefir lítilsháttar að- rennsli, en ekkert sýnilegt frá- rennsli. Það er stórmerkilegt vegna þess.að yfirborð þess,sem að jafnaði er ca. 135 m. y. h. hækkar ca. 4 m. á fáum árum og lækkar svo smám saman aftur á ca. 30 árum, án þess menn viti neitt um, hvernig á Kleifarvatn. Geir Gígja. því stendur.“ Dr. Bjarni hafði þekkt Kleifarvatn um langt skeið, að minnsta kosti af af- spurn, því að liann var alinn upp íGi’indavik,og sjálfur hafðiliann séð vatnið. Er því óhætt að full- yrða að það, sem hann segir hér um það, er það réttasta, sem vit- að var um það á þeirn tima. Ái’ið 1938 athugaði Ólafur Friðriksson rithöf. Kleifarvatn og lét í ljósi þá skoðun, að hækk- unin og lældamin í því stafaði af breytingu á afrennsli þess neðan jarðar. Ekkert hefir hann birt á prenti urn þessar atlmg- anir sínar. Áx’ni Óla blaðamaður getur um Kleifarvaln í Lesbók Morg- unblaðsins ái-ið 1932 og 1940. í síðai-i greininni, þar sem lianu ræðir um hækkun og lækkun í vatninu, kemst hann að þeiri’i niðurstöðu, að vatnið fái af- rennsli um sprungux’, er opnist við jai’ðskjálfta, en sigi svo sam- an og smáfyllist af sandi. II. Hér á undan liefi eg drepið á það helzta, sem gert hefir verið til þess að auka þekkingu manna á Ivleifarvatni, sérstak- lega með tilliti til liækkunar og lækkunar í vatninu, og skal nú fai’a um það nokkrum orðum. Menn vii’ðast helzt hafa hall- azt að þeirri skoðun, að breyt- ingarnar á yfirborði vatnsins væru jarðfræðilegs eðlis. Þoi’- kell Vidalín getur um lækkun í vatninu við jarðskjálfta, Ólafur Fi’iðx’iksson álítur orsökina breytilegt niðurrennsli og Árni Óla telur breytingai-nar á vatn- inxx stafa af jarðskjálftum. Það þarf ekki annað en að koixia að Kleifarvatni og sjá jai’ðlögin í Sveifluhálsinum til þess að ganga úr skugga um, að miklar byltingar af völdum jai’ðskjálfta hafa átt séx* þar

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.