Vísir Sunnudagsblað - 29.10.1941, Blaðsíða 3

Vísir Sunnudagsblað - 29.10.1941, Blaðsíða 3
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ S sinnum stærra en vatnið sjálft, svo að það getur tekið mánuði eða jafnvel misseri sé um snjó að ræða, að úrkoma þess nái að valda hækkun í Kleifarvatni. (Sumt af úrkomunni kemst þangað auðvitað ekki, en gufar upp). Það eru því miður engar mæl- ingar til af vatnshæð Kleifar- vatns árin 1928—29, þegar úr- koman var lægst á Eyrarbakka, en liins vegar er mönnum það í fersku minni, að árin 1928—32 var vatnsborð Kleifarvatns lægra en það liefir verið síðan og um langt skeið á undan. Það er því einnig samræmi í línu- ritunum yfir þessi ár. Aðalástæða fyrir hinum miklu breytingum, sem verða á vatns- hæð Kleifarvatns, eiga fyrst og fremst rót sína að rekja til hinn- ar allstórfelldu úrkomu, sem oft á sér stað á Reykjanesfjallgarði. Fjallafaðmur Kleifarvatns, stendur þar opinn fyrir úrkom- unni, sem kemur með suðlæg- um vindum af hafi. En fjöllin draga úrkomuna til sín, þegar vindarnir kólna á leið sinni yfir þau. Það er því eðlilega miklu meiri úrkoma við Kleifarvatn en t. d. við Rauðavatn. Að sinu leyti eins og ineiri úrkoma er sunnan í aðalliálendi íslands en norðan í þvi. Hins vegar er svo uppgufun- in, sem sífellt vinnur i öfuga átt við úrkomuna. Uppgufunin er sjálfsagt allmikil þarna, þegar hlýtt er og góðviðri i skjóli við háan fjallahring. Syðst í vatninu er og nokkur jarðhiti, sem hefir ef til vill örfandi áhrif á upp- gufun þess. Svo þegar liátt er i vatninu og það gengur upp á engjarnar í Krýsuvík, myndast þar gi-ynningar, sem hafa til- tölulega meiri uppgufun en vatnið sjálft. Þá er Lambliaga- tjörn norðan við vatnið með miklu flágrynni, en ekki djúp. Tjörnin er enn þá inniluktari en vatnið, því að hár höfði, Lamb- hagi, er á milli. Á tjörninni er stundum hlýtt og „slétlur sjór“, þó að kul og alda sé á vatninu. Þar ætti því einnig að vera tals- verð uppgufun og tiltölulega meiri en úr vatninu. Þá vinnur og niðurrennsli, ef á sér stað, að lækkun i vatninu eins og uppgufunin, svo sem fyrr er greint. IV. Hér á undan hefi eg leilazl við að sýna fram á, að hækkun og lækkun í Kleil'arvatni slafaði aðallega af úrkomu og uppguf- un, og það væri úrkoman, sem aðalbreytingunum ylli. Það ætti því að vera vaxandi úrkoma, sem veldur því, að Kleifarvatn fer smáhækkandi ár frá ári um langt skeið, jjó að stundum smá- lækki á milli, og svo aftur minnkandi úrkoma, sem veldur þvi, að vatnið fer lækkandi um mörg ár, unz hækkun hefst að nýju, og svo koll af kolli. Til þess að geta gengið úr skugga um þetta, vantaði enn tilfinnan- lega úrkomumælingar frá.Kleif- arvatni, eða fjallgarðinum þar í grennd, úrkomumælingar, sem næðu yfir marga tugi ára, helzt tvö eða fleiri timabil að jafn- lengd við þau, sem Kleifarvatn á að þurfa til þess að hækka og lækka, svo að hera mætti saman, hvort nokkur slík sambærileg hækkunar og lækkunar timabil væru í úrkomunni. En nú var elcki liægt að nota úrkomumæl- ingar frá Eyrarbakka eða öðr- um veðurstöðvum í svipaðri fjarlægð frá Kleifarvatni, ann- aðhvort vegna þess, hve þær náðu skammt aftur í tímann eða af því, hve þær voru slitróttar. Það voru úrkomumælingar fiá þremur stöðvum, sem kom til greina að nota, sem sé frá Teig- arhorni við BerUfjörð, Vest- mannaeyjum og Stykkishólmi. Þó að hins vegar mælingar á þessum stöðvum næðu ekki eins langt aftur i tímann og æskilegt væri. Úrkomutöl- urnar frá þessum þremur slöðvum, sem meðfylgjandi línurit byggjast á, eru sumpart fengnar frá Veðurstofunni í Reykjavik en sumpart teknar eftir Meteorologisk Aarbog. fs- lenzkri veðurfarsbók og ,Veðr- áttunni". Punktarnir í linúrit- uni þessum tákna heildarúr- komu ársins á hverjum stað, en strikin, sem dregin eru í gegn- um linuritin, sýna meðalúr- komu staðárins,1) Þegar litið er á línuritin yfir 1) Tölurnar, sem meðalúr- komulínurnar hyggjast á, eru teknar eftir: Um úrkomu á ís- úrkomuna á þessum þremur stöðvum, koma tímabil greini- lega í ljós. Fyrst er úrkoman í stórum dráttum að smáaukast, unz hún hefir náð hámarki, en úr þvi fer hún að smáminnka, unz hún kemst aftur í lágmark, liliðstætt við hækkunina og lækkunina i Kleifarvatni. f þess- um límabilum, sem vara ára- tugi, eru svo aftur smærri tima- bil, sem taka nokkur ár, stund- um 11 ár (t. d. í Stykkishóhni), stundum fleiri eða færri, en ekki skal frekar farið út í þau. Tíma- bilin þekkjast á því, að nálægt þeirn miðjum eru fleiri eða færri ár i röð, sem hafa meiri en meðalúrkomu, og eru þau að jafnaði einna úrkomuhæst á tímabilinu. En þar, sem tíma- bilin mætast, eru hins vegar nokkur ár samfleitt með úr- komu undir meðallagi. Úrkomu- mælingar hafa enn varað svo skamma stund hér á landi, að ekki nema eitt timabil kemur fram frá hverjum hinna þriggja staða. Greinilegast kemur tímabilið í ljós i úrkom- unni í Stykkishólmi, enda ná mælingar þar langlengst aftur i tímann.Hinsvegar sést ekki eins greinilega, hvað timabilin á Teigarhorni og í Vestmannaeyj- um ná langt aftur, vegna þess. hvað mælingarnar byrjuðu þar seint. Tímabilið i Sfj’kkishólmi hefst upp úr 1881, nær liámarki á árunum 1896—1901 og er lok- ið 1916, eða eftir 35 ár. Þá hefst svo nýtt timabil. Helzt litur út fyrir, að þetta nýja timabil hafi náð hámarki árið 1933 eða þar um kring. En þessu timabili er enn ekki lokið. Ekki kernur timabilið á Teig- arhorni eins skýrl í ljós, meðai annars vegna þess að mælingar ná þar miklu skemmra aftur, og andi eftir Þorlcel Þorkelsson. BÚnaðarrit, 38. árg. er því erfitt að glöggva sig á, hvar það tímabil byrjar, en liá- mark þess virðist vera á árun- | um 1901—1906,og er tímabilinu 1 lokið 1917. Að því búnu hefst i svo nýtt tímabil, sem stendur enn þá. Á því tímabili er mikil 1 úrkoma árin 1926—35, og er liá- mark þess sennilega um það leyti. Að lokum eru Vestmanna- eyjar. Þar sem úrkomumæling- ar ná skemmst aftur i tímann á þessum þremUr stöðvum. Það er þvi hér eins og á Teigar- horni ekki hægt að segja með vissu, hvar tímabilið liefst, þó er það að likindum nálægt 1885. Hámark þess er svo á árunum 1903—14, og árið 1932 er því lokið. Þá hefst svo nýtt timabil, en ekki er urnt að segja að svo stöddu, livort það eða þau önn- ur, sem nú eru að liða, munu vara sömu eða svipaða tíma- lengd og hin, er á undan gengu. V. Vegna þess, hvað vatnshæðar- mælingar á Kleifarvatni ná skammt aftur í tímann, liefi eg aflað mér Upplýsinga hjá mönn- um, kunnugum vatninu, um hreytingarnar á yfirborði þess fyrr á timum, og hefi eg borið þær saman við úrkomuna í Vestmannaeyjum. Jón Magnússon, sem bjó i Krýsuvik á árunum 1907—14 hefir tjáð mér, að þegar Árni Gíslason sýslumaður fluttisl þangað um 1880, hafi verið að korna slægja á Nýjalandi, en svo heitir engjaflæmi, sem Krýsu- vik á við suðurenda Kleifar- vatns, og vatnið flæðir yfir að meira eða minna leyti, er hátt er í þvi. Nýjaland kvað hafa gefið af sér um 600 hesta, þegar bezt var. Jón segir og, að árið 1907, þegar hann fluttist þang- að, hafi verið síðasta árið, sem hægt var að heyja á Nýjalandi um langt skeið, vegna þess livað þá var orðið liátt í vatninu, og hafi aðeins kragi af Nýjalandi verið upp úr, enda ekki heyjaðir nema um 100 hestar það ár. Sama ár er haft eftir Guðmundi, sem þá bjó í Nýjabæ og hafði búið að undanförnu, að hann hefði aldrei séð vatnið eins mik- ið og þá, en þó segir Jón Magn-; ússon, að hækkaði hafi í því; eftir það. Um 1912 kvað svo ( hafa verið hæst í vatninu á þeim t tirna, sem Jón Magnússon var í [ Ki-ýsuvik, og mun það þá hafa > flælt hér Um bil yl'ir Nýjaland.; Skömmu síðar fór svo vatnið að [ lækka og hefir yfirleitt farið lækkandi fram til ársins 1932, ; en úr því fór það svo að liækkal Frh. á 7. siðu.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.