Vísir Sunnudagsblað - 29.11.1942, Blaðsíða 8

Vísir Sunnudagsblað - 29.11.1942, Blaðsíða 8
VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ SÍDAA Ýnisir vísindamenn í Banda- ríkjunum vinna nú að því af kappi að komast að aðferð þeirri, sem Þjóðverjar nota við að vinna benzin úr kolum. Að- almaðurinn við þessar rann- sóknir er vísindamaður, sem lieitir dr. Storch, en hann komst að því fyrir sex árum, hvernig Jiin svonefnda Bergius-aðferð Þjóðverja er, en síðan hafa þeir fundið upp nýja aðferð, sem nefnist Fischer-Tropsch-aðferð- in. Sú aðferð við vinnslu benz- íns úr kolum er sérstaklega þýð- ingarmikil, því að hún vinnur jafnframt efni, er heitir Butene, en það er notað til framleiðslu á gúmmíi úr kolum. • Fy'rir niu árum varð hjúkrun- arkona ein í Ástralíu, Ken- ney að nafni, þess vör, að börn, sem fengu lömunar- veiki, urðu alheil aftur, ef heit- ir bakstrar voru settir við fót- leggi þeirra, til þess að hindra vöðvasamdrætti í útlimum sjúklinganna. Síðan hefir Ken- ney hjúkrunarkona barizt fyrir þvi, að læknar reyndu þessa að- ferð hennar, en þeir ekki verið fáanlegir til þess,.fyrr en nú fyr- ir skemmstu, að tveir kennarar við Rochester-sjúkrahúsið i Bandaríkjunum tóku sig til og gerðu rannsóknir á gildi aðferð- ar hennar. Komust þeir að ]>eirri niðurstöðu, að aðferð Kenney hjúkrunarkonu væri al- veg eins góð og hún befði hald- ið fram. • Maður einn í Austurríkjum Bandaríkjanna telur sig eiga elzta hest i heimi. Klárinn er 43 vetra og er við íurðanlega góða heilsu, segja dýralæknar. Hann fær þó aldrei að fara út frarnar. • Styrjöldin liefir margskonar breytingar í för með sér. Ein af þeim breytingum, sem hún hefir orsakað í borginni Los Angeles á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna, er sú, að borg- arstjórnin hefir ákveðið að ráða sérstakan mann í þjónustu sína til þess að duhnála ýms fyrir- tæki, sem, nauðsynlegt er að ekki verði eyðilögð, ef loftárás skyldi verða gerð á borgina. Fyrsta hjólaskipið í heimi, sem er gert að flugstöðvarskipi, er nú tekið til starfa á vötnun- um miklu á landamærum Bandaríkjanna og Kanada. Það var áður notað lil farþegaflutn- inga um vötnin og hét e. s. Seeandbee, en framvegis verður það æfingaskip fyrir flotann. Öðru farþegaskipi á vötnunum stóru — Greater Buffalo — verður einnig breytt í sama skyni. Skip þessi eru um það bil af sömu stærð og meðalstór flugstöðvarskip. • í Argentínu er farið að nota nýja hraðfrystiaðferð, sem tekur aðeins sex klukkustundir, í slað nokkurra daga með þeirri að- ferð, sem nú er algengust. Kjöt- ið sogast inn i málmhylki með því móti, að öllu lofti er dælt úr því, en því næst er frosllegi sprautað í það. • Einn af norsku flugmönnun- um, sem hér eru, fór næstum því umhverfis hnöttinn áður en hann komst hingað. Hann slapp yfir landamærin til Sviþjóðar litlu áður en Þjóðverjar réðust á Rússa, eii þaðan flaug hann síðan til Finnlands. Frá Finn- landi fór liann með járnbraut- arlest til Leningrad og Moskva, en þaðan til Odessa, yfir Svarta- hafið til Istanbul, með járn- brautarlest til Baghdad, flugvél til Karachi á Indlandi og þaðan í lest til Bombay. Þegar þangað var komið komst hann á norskt skip og fór með því lil Kolumbo á Ceylon, Höfðaborgar í Suður- Afriku og loks til Montreal i Kanada. Þegar hann var búinn að vera nokkura mánuði við flugnám í Litla-Noregi, fór hann þaðan til Englands, en þaðan var hann svo sendur hing- að. • Fyrsta dagblað, sem gefið var út í Kaliforniu 'í Bandaríkjun- um, kom út í borginni Monterey árið 1846. Helmingur þess var prentaður á ensku og hinn á spænsku. Kalifornia var nefni- lega fyrst numin af Spánverj- um. • Flöskur, sem varpað er i sjó- inn til að afla mönnum þekk- .ingar um bafstrauma, fara oft Jangar leiðir. Að jafnaði eru þær lengi á volkinu, en nú skal sögð saga um eina, sem var ekki lengi að biægða sér heimshaf- anna milli: Tveir menn á Nantucket-eyju, sem er undan ströndum MassachuSetts-fylkis í Bandarikjunum, vörpuðu flösku í sjóinn, en settu miða SkammdesJ' Það er góð tilhögun, að skammdegið skuli hjá flestum, a.m.k. borg- arbúum, vera mesta annríkistímabil ársins. Manni myndi dauðleið- ast, ef nokkur tími væri aflögu til þess, því að svo ömurlegt og nið- urdrepandi er þetta langa skammdegisrökkur. Og þá er líka allt líf- laust og dautt; blöðin fallin af trjánum og allir litir kaldir og gráir. Hér á myndinni sést einstök hrísla, sem hefur orðið fyrir ómjúkri meðferð af stormum og hríðum skammdegisins, enda bera hinir krækl- óttu angar hennar þess menjar. Á líkan hátt geta einstaklingar mann- lífsins farið, ef þeir standa einir og njóta hvergi skjóls. innan í hana, þar seni voru letr- uð nöfn þeirra og þess óskað, að þeim væri tilkynnt hvar flaskan fyndist. Þetta gerðist 9. maí s.l. — Tveim mánuðum siðar —- nánar tiltekið 12. júlí — fengu mennirnir tilkynningu um það, að flaskan hefði fund- izt undan Flattery-höfða, sem er í Washington-fylki, en það er á strönd Kyrrahafsins! • Verkamenn i verksmiðjum Curtiss-félagsins i Bandaríkjun- um, sem starfa að smíði liinna svonefndu Commando-flutn- ingaflugvéla, eru látnir hafa sima til þess að geta lalað sam- an i vinnutímanum. Það er ekki vegna þess, að verksmiðju- stjórnin telji að það flýti fyrir, ef verkamennirnir fá að rabba saman, heldur stafar þetta af því, að Commando-flugvélarnar eru svo stórar og hávaðinn svo mikill í verksmiðjunum, að það er ekki hægt að gefa skipanir frá einúm enda flugvélarinnar til annars, nema með aðstoð tal- sima. • Þegar Spánverjar settust fyrstir manna að i Ameriku, þar sem nú er Colorado-fylki, skírðu þeir á eina þar hinu langa nafni: E1 Rio de Las Animas Perdidas en Purgalorio ( á hinna glötuðu sálna í hreinsunareld- inum). Þegar Frakkar settust síðai’ að á þessum slóðum styttu þeir nafnið í „Purgatoire", en nú heitir þessi 'sama á aðeins Picketwire, þvi að það heyrðist fyrstu enskumælandi mönnum liún vera nefnd. • Ungur maður í Fíladelfiu var handtekinn og grunaður- um að hafa verið að njósna um, starf- semi í Verklsmiðjum General Electric, þvi að hann var að skoða þær í sjónauka, þegar lög. reglan tók liann. Pilturinn kvaðst hafa verið að reyna að koma auga á kærustuna sína, sem ynni i verksmiðjum þess- um, og þegar búið var að finna stúlkuna, var liann látinn laus. • Preslur nokkur i Alabamaríki í U. S. A. var að kveðja söfnuð sinn fyrir fullt og allt, og ávarp- aði hann á þessa leið: — „Braíð- ur og systur, eg kem hingað til að kveðja yður. Eg held að guð elski yður eklci, því enginn yðar deyr nokkurntíma. Eg held að þér elskið ekki hvert annað, því eg hef aldrei gift neitt yðar. Eg held að þér elskið eklci mig, því þér hafið ekki borgað mér nein laun. Gjafir yðar hafa ver- ið myglaðir ávextir og ormétin epli, og „af ávöxtum þeirra skuluð þér þeklcja þá“. Eg er að fara héðan í belri stað. Eg hefi verið kallaður sem prestur í betrunarliúsi. „Og veginn þang- að sem eg fer þekkið þér. Og eg fer burt að búa yður stað. Og þegar eg hefi búið yður stað, kem eg aftur og mun taka yður til mín, til þess að þér séuð og þar sem eg er.“ Drottinn varð- veiti sálir yðar. Yerið þér sæl.“

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.