Vísir Sunnudagsblað - 20.02.1944, Side 2

Vísir Sunnudagsblað - 20.02.1944, Side 2
2 VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ Vatnsdalur (eftir málverki). þúsund lömb hafi drepizt af um 180 þúsund, sem ærnar eftir framtali hefði átt að vera þetta umrædda vor. í Árfei'ði á íslandi í 1000 ár, cr getið um að 24. mai 1882 liafi maður orðið úli í Hrútafirði, og ennfremur að frost og fannkoma hafi lialdizt á Vesturlandi til 15. júní, oft með 8—10 sliga frosti á Reamur. Ótíð og grasleysi. Eins og gefur að skilja, fylgdi hafísnum megnasta ótíð, og þar af leiðandi grasleysi. I Hrúta- firðinum grænkaði úthagi iítið, og það litla, sem bæði fékkst af túnunum og reyttist i úthaga, hraktist langt fram á haust. Mér er réttardagurinn i barnsminni. Veðrið var kalt og þurrt. Fólk- ið kom sneirtma heim úr rétt- inni, hafði fataskipti í snarkasti og rauk út á tún til að hera til töðuföngin og herja úr þeim snjóinn. Með þennan lilla iieyafla varð fólk að ganga inn í vetúrinn 1882—’83. HungurVofan. — Landflótti. Eins og ræðst af sjálfu sér, breyttist hagur manna mjög við allar þessar aðsteðjandi Iiörm- ungar. Kaupgetan var orðin að engu. Atvinnuleysi og fyrirsjá- anlegt hungur. En þá kom fram krapturinn í hinum þróttmikía íslenzka stofni. Gripu margir til þeirra örþrifaráða, að flýja land vestur um haf. Eignirnar voru orðnar litlar, og það, sem eftir var, seldist fyrir sáralítið verð. Ýmsra ráða var leilað. Suma styrktu sveitarfélögin, aðrir nutu iijálpar vandamarina, er áður voru komnir vestur, og jafnvel amerísk stjórnarvöld iánuðu sumum fé til fararinnar. Þetta voru þurigir raunatím- ar, og verða alltaf mjög áber- andi þáttur í sögu þjóðarinnar. í landsblöðunum frá þeim tíma eru ýmsar góðar frásagnir um þetta timabjl, en stuttorð- asta frásögnin, sem eg þekki, hvað þetta gekk nærri mörgu fólkinu, er að finna í kvæði Stephans G. Stephanssonar, er hann orti undir nafni föður síns. Tek hér upp þrjú erindi úr kvæðinu: Skjótt líður stundin, og skilja vér eigum, skötnum er ákveðið þctla í heim. Meðan um ævinnar ólgusjó megum ókunnir hrekjast um lífsstunda geim. Skjótt liður stundin í siðasta sinni, sváslega fósturjörð kveðja eg hlýt. En lnin skal mér ætíð i eldhcitu minni, aldregi framar því hana eg lil. Siðasta vísan i kvæðinu er þannig: Ættlandið forna, þér óhöppum varni alföður himneska stjórnandi mund. Meðan að lqgar á íslcnzkum arni eldurinn norræni á feðranna grund...... Eg cfast ekki um. að kvæði þetta sé glögg mynd af hugs- un fjöldans, þótt Stephan G. hafi einn af mörgum þcgið í vöggugjöf að geta lýst hugsun- uin sínum með list i ljóði, en fjöídinn aðeins í jkign sorgar- innar. Erlend samskot. Sagnii- um harðindi á íslandi hárust víðsvegar, enda mikið ritað um ástandið í landinu. Eins og kom fram eftir Dyngju- fjallagosið 1875 átlu íslending- ar hauk i liorni meðal landa er- lendis, og skal stuttlega rifjað upp hvernig einstakir ágætis- menn, hæði hér heima og er- lendis, tóku þessi vandræðamál i sínar hendur, er urðu til þess að hróðurhendur voru réttar ýf- ir hafið — er réð baggamunkm, að ekki varð fellir á fólki af völdum hungurs. í Danmörku var hafizt handa með samskot, fyrir atbeina þeirra Hilmars Finsen lands- höfðingja, Oddgeirs Stephen- sen og Vilhjálms Finsen; safn- aðist jrar um 315 þúsundir króna. I Noregi, fyrir milligöngu og málaleitan þjóðskáldsins Matt- híasar Jochumssónar, er þá var prestur i Odda. Ennfremur er getið um að fjársöfnun hafi verið liafin í Þýzkalandi. í júlímánuði rituðu þeir Pétur Eggerz í Akureyj- um og Árni Thorlacius í Stykk- ishólmi Eiríki Magnússyni, hókaverði i Camhridge, og sendu honum skýrslur um á- standið. Skýrslurnar voru prent- aðar i Skuld, 2. ágúst. Skoruðu þeir á Eiríki að ganga í málið og leita hjálpar hjá Englendingum. Sem vænla mátti hrást Eiríkur vel við áskorun þessari. Kemur þar Ijóst fram, fyrst, hvaða trausl hann hafi skapað sér hér heima, og ennfremur hverra á- lita hann naut í liinum hrezka heimi, sem ráða riiá meðal ann- ars af því, hverjir upprunalega ui-ðu stuðnings og hjálparmenn hans. Skulu hér aðeins nokkrir nefndir: Skáldið og íslandsvinurinn William Morris, Sir John Whitlaken Ellis, Daustci sendiherra í London, •Hertoginn af Dexansteiri, Mannin'g kardináli og borgar- stjórinn i London. Þess utan ýmsir þingmenn og kaupsýslumenn, þeirra meðal Álexander Storr og F. II. Crave; þeir útveguðU skip það, er hall- ærishjálpin var flutt á heim til Islands. Auk þeirra, er hér hafa verið nefndir, voru margir aðr- ir af ágætustu mönnum Breta, er studdu að fjársöfnuninni, auk þeirra hjóna Eiríks og Sig- ríðar, er var ritari fjársöfnun- arnefndarinnar. Saga fjársöfnunarinnar í Eng- landi er löng og margþætt og verður hér ekki rakin, en ár- angurinn af henni varð sá, að 11. scpt. námu samskotin 2200 pundum, er varið skyldi til fóð- urkaupa, að áeggjan Eiríks. Þann 5. okt. lagði Eiríkur af stað frá Glasgow mcð Lylie lil íslands; var skipið hlaðið fóð- urvörum. Skipið kom fyrst til Austur- landsins og lagði á landá Djúpa- vogi 800 sekki. Til Reykjavikur kom skipið þann 13. október. Þar lét Eiríkur leggja á land mikið af matvöru, og lagði fyr- ir, að þvi yrði skípt á milh fá- tæks og þurfandi fólks í Reykja- vik og á Álftanesi. Ennfremur lét hann flytja á land 80 sekki, er áttu að fara í Borgarfjörð. — í Reykjavík varð viðstaða skips- iris nokkru meiri en til hafði verið ætlazt, er skapaðist með- fram af þvi, að á skipinu var eitthvað af vörum til Brenni- steinsfélagsins í Ilafnarfirði. Sem vænta mátti tóku Reyk víkingar Eiríki með ágæturn, og allir sem einn kepptust við að sýna honum sóma. Var honum haldið samsæti og flutti skáldið Steingrimur Thorsteinsson hon- um kvæði; — þeir voru vinir. — Ennfremur flutti einn úr hópi skólapilta honum kvæði. Urðu þeir síðan vinir á meðan ævi enlist. Skólaiiiltur þessi var Þorsteinn Erlingsson skáld. — Þann 1. nóvember lagði skipið af stað norður fyrir land, áleið- is til Borðeyrar, er var einn af ákvörðunarstöðum þess, vegna háginda í héruðunum í kring. Var ferðin örðug; hjálpaðist alll að, ótíð á þeim tíma árs, og ó- kunnugleiki skipshafnarinnar. En þegar kom norður á <Húna- flóa og inn með Ströndunum, tók gamli Ólafur á Kolbeinsá við stjórn á skiþinu og kom því i gegnum brim og boða lieilu og höldnu inn á höfn á Borðeyri. Mér er í barnsminni að sjá þelta slóra og tigulega skip hruna inn Hrútafjörðinn. Líka er mér i barnsminni margar þær heitu árnaðaróskir, er hæði eldri og -yngri sendu himna- föðurnum, að hann launaði vel- gerðamönnunum í fjarlægu Iandi hjálp þeirra á tímum neyð- ar og þrenginga. Á Borðeyri lét Eiríkur leggja á land 2500 sekki af fóðurkorni og nærfellt 700 hagga af heyi. Frá Boreyri hélt skipið áleiðis lil Sauðárkróks. Þar lét Eirikur skipa upp 1000 sekkjum handa Skagfirðingum. Frá Sauðár- króki hélt skipið lil Akureyrar; var þar slcipað á land 1000 sekkjum. Þann 1(5. nóvemher lagði skipið frá Ákureyri austur fyrir land, en hreppti ægilcga storma og varð að hleypa inn á Vopnafjörð og liggja þar í þrjá daga. Ilélt ]>að svO ferðinni áfram og kom til Skotlands 24. nóv. Ilafði ferðin stað'ið ýfir sem næst 50 daga. Á allri þess- ari fcrð hafði Eiríki, hvar sem hann kom, vcrið lekið með meslu virðingu og vinsemd. Varð hann svo ástsæll af alþýðu manna um þelta leyti, og meðan menn mundu frostaveturinn og hallærið 1881-—2, að fáir munu hafa átt svo einhuga ást lands- manna.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.