Vísir Sunnudagsblað - 13.08.1944, Page 6

Vísir Sunnudagsblað - 13.08.1944, Page 6
é yfirgáfu allir húsið. Frú Moffat var full örvæntingar og ógnaði okkur Hammond með lögsókn, ef við færum ekki með þessa skelfingu á brott. En við svör- uðum: j(Við skulum fara, ef þér Viljið, en við neitiun að taka skepnuna með okkur. Þér get- ið flutt liana burtu sjálfai'í ef þér viljið. Hún birtist í yðar húsi og ábyrgðin hvíbr þvi á yður.“ Við þessu gat hún ekkert sagt. Hvað sem í boði hefði ver- ið, liefði frú Mofíat ekki getað fengið nokkurn mann svo mikið Sem til að nálgast hina dular- fullu veru. En hið skringilegasta Við þetta allt var þaðj að við höfðum ekki minnstu hugmynd um á hverju skepnan bfði. öll hugsanleg fæða var sett fyrir hana, en hún var aldrei svo inikið sem snert. Það var ótta- legt að vera vitni að því, dag eftir dag, hvernig rúmfötin Voru tætt til og frá, heyra and- ardrátitnn og vita að skepnan svelti. Tíu dagar bðu, siðan tólf og fjórtán og enn bfði hún. En hjartsláttur liennar varð samt með degi hverjum daufari. Og loks var varla unnt að finna hann lengur. Það leyndi sér ekki, að skepnan var að deyja af næringarskorti. Mér leið illa meðan á þessu dauðastríði stóð. Eg gat ekki sofið. Enda þótt skepnan væri í fyllsta máta hroðaleg, þá var hún aumkun- arverð, þegar maður hugsaði um þær kvalir, sem hún hlaut að þola. Loks dó hún. Morgun einn fundum við Hammond hana kalda og stirða í rúminu. Hjartað var hætt að slá og lung- un önduðu ekki lengur. Við flýttum okkur að grafa hana í garðinum. Það var einkennileg greftrun, þegar við létum þenn- an ósýnilega líkama síga niður i raka gröfina. Mótið af skepn- unni afhenti eg X lækni og hann geymir það i safni sínu i 10. götu. Þar sem eg er að leggja upp í langa ferð og ekki með öllu víst, að eg eigi afturkvæmt úr þeirri ferð, hefi eg í fáum orðum sagt hér frá atburði, sem er hinn ein- stæðasti, sem eg hefi nokkurn- tíma heyrt getið. (Lausl. þýtt.) vism sunnudagsblaö ^ t ^ ís OG ELDUR Jóhann Scheving; ls og eldur eru hugtök ög veruleiki, sem vér Islendingar þekkjum meira en að nafninu til. Hið mikla skáld, Bjarni Thorarensen, segir i liinu ágæta kvæði „lsland“: ,,Fjör kenni oss eldurinn, frostið oss herði, fjöb sýni torsóttum gæðimi að ná, bægi sem Kerúb með sveipanda sverði silfurblár Ægir oss kveif- arskap frá.“ Én þó að náttúruhamfarir séu lærdómsrikar, þá getur þó of mikið af svo góðu tekið af gamanið og skapað þá skapgerð í þjóð, sem á við það að búa, sem ekki er æskileg. Víl Islend- inga, barlómur og durtsháttur stendur i beinu sambandi við hin erfiðu bfskjör, er þeir hafa átt við að striða. Eldur og ís hafa gert oss þungar búsifjar, ásamt fleiri erfiðleikum, svo bf hinnar íslenzku þjóðar hefir verið „eilíft liraftaverk“, eins og Davíð Stefánsson komst að orði í Þingvallaljóðum sínum. En eg ætla hér ekki að segja sultar- og kúgunarsögu vora að þessu sinni, aðeins tala um kúg- ara okkar, isinn og eldinn. Styðst eg hér við erlendar heimildir og ábyggilegar. Is þekur y10 af yfirborði jarð- arinnar (að undanskildum höf- arinnar ). Og ef ísinn bráðnaði allur, hækkaði sjórinn um 105 fet, eða 35 metra. Vér sjáum því að ísinn hefir mikil völd. Þeir, sem ferðazt hafa um Alpafjölbn, hafa fengið dálitla hugmynd um ísinn. Það er ekki lítið vatn, sem streymir árlega frá ölpunum. Albr kannast við hinar miklu ár, sem þar eiga upptök sín. Ef vatnsframleiðsla Alpajöklanna stöðvaðist einn góðan veðurdag, mundi gróður- inn verða lítilfjörlegur um- hverfis Rín, Rón, Dóná, Pó og aðrar ár, er frá þeim faba. En það er engin hætta á, að ísinn hverfi eða dragist mikið saman. Þó að miklar ísbreiður séu í Alpafjöllum, eru þær þó stór- fenglegri i Kákasus, Himalaja, Pamir, Kordillafjöllum og víð- ar. En þó eru ísbreiðurnar á heimsskautunum og umhverfis þau stærstar og mikilfenglegast- ar. Isinn á heimsskautunum skapar helming af allri veðráttu 1 heiminum. T.d. má nefna ísinn á Grænlandi. 1000—2000 metra þykkur ís þekur þessa afarstórp eyju, að undanskildum mjóum ræmum við strendurnar. Lengd þessa íss er um 2500 kilómetrar, en breiddin frá 500—1000 kíló- metrar. Suðuroddi þessa íss nær niður á 60°. Hefir sömu legu og Oslo. Á Grænlandi er ís, sem 40 sinnum méira vátn er í én bæði Norðursjónum og Eystra- salti. Ef allur ís á Grænlandi bráðnaði, hækkuðu öb heimsins höf um 8 metra. Hann er 3 milljónir □ km. og er leifaf frá ísöldinni eða -öldum. Á lslandi eru mikbr jöklár. Vatnajökull einn er stærri en allir jöklar á meginlandi Ev- rópu eru til samans. Suðurheimskautsísinn er 7 sinnum stærri en Grænlandsís- inn. Hann er ságður 13 milljón- ir Dkm. að flatarmáb, og oft tabnn sérstök heimsálfa. Isbreiðan öll, sem liggur á landshluta jarðar, er tabn að vera 15,2 milljónir □km. stór. Ef allur þessi ís yrði að vatni, flæddi það svo yfir hin láglendu lönd, að aðeins hæstu liæðir og turnar stæðu tipp "úr. Damnörk yrði ekki til lengur. Upp úr stæðu Ejer Bavnehöj, Himna- fjallið, nokkrir krítartindar, svo sem Stevns Klint og" fáeinir hólar. - Menn vita um miklar breyt- ingar á hæð eða dýpt hafanna. Fyrir 750,000 árum var ísöld. Þá voru jöklar þrefalt stærri en nú, eða um 45 milljónir □ km. Um það leyti var sjórinn um 70 metrum grynm’i. 1 Evrópu rignir yfirleitt svo mikið, að nauðsyn jökla er þar minni en viða annarsstaðar. — Tökum til dæmis Turkestan. Turkestan væri eyðimörk, ef árnar frá jöklunum í Pamír flyttu ekki þeim vatn. Stærsti jökulbnn í Pamír er Fedtschenko, 77 km. að lengd. Þama hafa Rússar sett á stofn jarðeðbsfræðilega athugunar- stöð. Er hún í 4700 metra hæð. Frá þessari stöð hefir áin Amú- darja, sem kemur úr Pamír- jöklunum, verið athuguð. Amú- darja flytur árlega 60 milljarda kúbikmetra af vatni. En 90% af því rennur í Aralvatnið ,og kemur engum að gagni. Vatn þessarar einu elfu nægði til þess að rækta 4 milljónir hekt- ara lands. Hinar stóru indversku og kínversku ár eiga upptök *sín í jqklum. Þýðing þeirra fyrir milljónir manna er öllum kunn. Það þarf ekki að fara til Aust- urlanda tb þess að sjá landbún- að, sem grundvabast á jökul- vatni. 1 efri Róndalnum, í þurrustu héruðum Sviss,. eru bændur sem leiða „jöldamjólk- ina“ á akra sína. Þessar leiðslur samanlagðar eru um 2000 km. langar. Lengsta lciðslan er 20 km. Margar aflstöðvar í Alpa- fjöllmn eru reknar með jökul- vatni. Grimselstöðin í Sviss, sem er 12,000 hestöfl, veitir jökla- vatni i túrbinur sinar. Þessi stöð framleiðir 542,4 milljónir kílówattstundir af rafmagm. Vermuntstöðin i Austurriki (Austurmörk) fær alla sina orku frá Silvrettajöklunum. ÞesSi stöð sendir rafmagn í 1000 kílómetra fjarlægðir. Af skriðjöklum, sem liggja að sjó, brotnar mikið árlega. Mjög er misjafnt, hve langt þeir mjalcast fram dag hvern. Karajakjökubnn á Gi'ænlandi fer 18 metra á sólarhring. Þeg- ar brotnar af lionum, verður þess vart í 15 km. fjarlægð á þann hátt, að sjórinn lyftist um 2 metra. Einn jökulbnn á Spitzbergen sígur aðeins 18— 40 sentnnetra á dag. En ísinn, sem hann árlega flytur til strandar, er 55 milljónir kúbik- metrar. Hann er þó aðeins 3ja kilómetra breiður, þar sem hann springur fram. Kingsjökvbbnn á Spitzbergen skriður 8 metra á sólarhring. Ársframleiðsla hans af ís út í hafið er 140 millj. kúbikmetrar. En mikilvirkastur er Jakobs- hansskriðjökulinn. Hann fram- leiðir 41 millj. kbm. á dag, eða 15 mibjarda kbm. árlega. Þessi ís, sem í hafið hrynur, hefir miklar hitabreytingar í sjónum í för með sér. En isjakarnir eru hættulegir skipum. Titanicslysið 15. apríl 1912, er þetta mikla skip fórst við árekstur á jaka, er mörgum minnisstætt. Þar fórust 1490 manns. Það má segja, að heimurinn geti ekki án íssins verið. En vér Islendingar höfuð búið og bú- um of nærri honum. Þó er bk- legt, að ísinn kæb svo höfin kringum Island, að nytjafiskar vorir þrífist hans vegna betur. Þeir mundu hverfa eða fækka, ef hitastig sjávarins hækkaði mikið. Með aukinni menningu og tækni hafa mennirnir smám saman náð langt í því, að veijj- ast sjúkdómum, eldi, vatni, eld- ingum og margskonar hættum, sem ógna lífi þeirra og vellíð-- an. — En gagnvart eldgosum og jarðskjálftum megnar ckki

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.