Tíminn Sunnudagsblað - 29.07.1962, Blaðsíða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 29.07.1962, Blaðsíða 5
að það' væri gott íyrir lögreglumenn að hafa að einhvefjn að hverfa í frí- stundum sínum, enda alveg rétt, því að það býr mann ekki eins vel undir á- tök að ganga á götunni allan daginn og að ryðja land eða velta grjóti. Og það kom sér líka vel að fá þetta á þess- um árum, því að þá var ekki um auðugan garð að gresja, hvað vinnu snerti. — Og þú varst að heyja í dag? — Já, ég var einn í þessu núna, en það er vel sprottið. Um vikutíma hef-1 ur verið hér óðaspretta, en það var orðið fullsprottið hjá mér fyrr. — Ertu gamall sveitamaður? — Já, búskaparáhuginn er í blóð- inu, og ég álít betra að fást við þetta heldur en flækjast einhvers staðar á sjoppunum. Maður er búinn að fá nóg af að horfa á það. — Hvaðan ertu af landinu? — Eg er fæddur árið 1895 að Skerð- ingsstöðum í Hvammssveit í Dalasýslu, sem er næsti bær við Hvamm. Eg fæddist 16. júní eða daginn áður en Jón forseti kom í heiminn 84 árum áður. Móðir min hét Sigurlaug Snorra- dóttir, en faðir minn Guðmundur Guðmundsson. Þau voru bæði úr Döl- um, en þeirra naut ekki lengi við, því að hún dó 1905, en faðir minn ári síðar, þegar ég var 11 ára. Rétt eftir að búið var leyst upp og faðir minn dó, þá fluttist ég að Ásgarði og var þar um vorið. Þann 14. maí var blindbylur í Dölum, en 16. sama mánaðar fór ég með föggur mínar á bakinu til frænda míns, Bjarna Jens- sonar í Ásgarði, sem þá bjó þar og víðkunnur að rausn og höfðingsskap. Hjá honum var ég fram að slætti. — Eg hef heyrt, að Bjarni í As- garði hafi verið ógleymanlegur mað- ur. — Hann var það. Hann var fram- úrskaranrb '»reiðamaður, gestrisinn með afbrigðum er óhætt að segja, svo að það ern ekki dæmi til slíks. Menn gátu ekki komizt fram hjá Ásgarði án þess að koma þar inn og þiggja góðgerðir. Og aldrei var tekið neitt fyrir það Á'-"->rður var miðstöð. Þang- að hringdi fólk, ef vantaði lækni og bað Bjarna að ná í hann, og allt var gert þar til hjálpar, sem beðið ' um og hægt var. — Varstu pkki hjá Bjarna nema vorið? — í sláttarbyrjun fór hann með mig suður að Hvanneyri. til Hjartar Snorrasonar, sem þá var þar skóla- stjóri. Hann var móðurbróðir minn og hafði borizt til að taka mig og ala mig úpp. Svo fluttist ég 1907 með Hirti að Ytri-Skplísbrekku og var þar minn- ir mig til 1914. Eg fór á Hvitárbakka- skólann 1912—’13 og aftur veturinn eftir. Það var tveggja vetra skóli. — Kannski þú segir mér svolítið frá skólanum. — Það þætti nú ekki nýtizku skóli núna, en vai merXilegur á sinni tíð. Sigurður Þórólfsson var skóiasíjóri, og ég man eftir skólanum í Hjaröar- holti í Dölum, þar sem hann var fyrst, en ég er búinn að gleyma, hvenær hann fluttist að Hvítárbakka, en hann var þó búiun uð starfa þar nokkra vetur, þegar ég var þar. — Hvað voru margir nemendur á Hvítárbakka þá7 — Mig minnir helzt, að það væru um 50 nemendur. Eg man nú eftir mörgum góðum roönnum, sem þar voru, t. d. má nefna Kristján Einars- son, fyrrum skrifstofustjóra, scm dó í vetur, og konu hans, Gísla Jónasson, skólastjóra, Óskar Jónsson í Haínar- firði og Tryggva bróður hans frá Fjallaskaga i Dýrafirði og marga fleiri. — En kennararnir? — Það var nú kannski hægt að segja, að þeir væru þrír, einn kenndi þó einkum leikfimi Fyrri veturinn var Þorsteinn Sigurðsson kennari þar og kenndi íslenzku, reikning og dönsku, en veturinn eftir fór hann til Reykjavíkur og varð þar kennari,- Þá kom Hermann Þórðarson í stað- inn. Hann kenndi söng, og það var nýlunda. Eg man vel eftir því, hann kenndi söng og lék á orgel. Leikfim- iskennari var síðari veturinn Mágnús Pétursson, síðar á Akureyri. Sjálfur kenndi Sigurður aðallega sögu, bæði mannkynssögu og íslandssögu og var góður sögukennari. Guðjón Eiríksson var líka kennari á Hvítárbakka annan veturinn minn og kenndi dönsku. — Hvernig var svo skólalífið? — Skólalífið var yfirleitt gott eft- ir aðstæðum, og menntunin var tví- mælalaust góð fyrir þá. sem nenntu að læra. Og fyrirmyndin var frá Askov, þar sem Sigurður hafði lært. Eg get getið þess, að þarna voru þrír skólar hver hjá öðrum, Hvítárbakka- skólinn, Hvanneyri og Hvítárvalla- skólinn. Sá síðastnefndi var mjólkur- bússkóli, og þar voru stúlkur. Á hverjum vetri héldu skólarnir skemmtanir og buðu gagnkvæmt. — Og þið hafið aldrei farið í stríð út af stelpunum? — Nei, nei. Ekki man ég eftir því. Og þá sást aldrei fyllirí á neinum, því að þá þekkti maður hvorki fyllirí né vín, a. m. k. hafði enginn orð á því að fá sér vín fyrir þessar skemmt- anir eða neitt því um líkt. — Svo þegar þú varst búinn á Hvítárbakka . . . — Þá fór ég á flæking. Á vorin var ég við plægingar um allan Borgar- fjörð. Á haustin stundaði ég pylsu- gerð og vann i sláturhúsi, fyrst hjá Sláturfélagi Borgfirðinga í Borgar- nesi og síðar hjá Jónunum, sem kall- aðir voru, eða Verzlun Jóns Björns- sonar í Borgarnesi. Tvær vertíðir var ég á sjó, aðra á mótorbát, en opnum bát hina suður í Sandgerði. Frá 1914 til 1919 var ég kaupamaður á sama bæ, Bæ í Bæjarsveit, hjá Birni Þor- steinssyni, og reyndist hann mér hinn bezti húsbóndi. Svo var ég vetrarmað- ur á tveim bæjum í Borgarfirði, fyrri veturinn á Kvígsstöðum og þann seinni á Skálpastöðum í Lundar- reykjadal, og það var frostaveturinn mikli 1918. — Er þér það ekki minnisstæður vetur? — Jú, það fraus allt. Ég svaf í óupp- hitaðri stofu, og það var alltaf hrím í kringum andlitið á mér á morgnana, þegar ég vaknaði og allt frosið þar inni, sem frosið gat. Það var alltaf yfir 20 og upp í 30 gráða frost og mátti aldrei fara út með bert andlit. Jæja, eftir sláturtíðina 1919 fór ég til Noregs, til Jens Gausland, Anda, Kleppstation, Jæren; ég vildi nú helzt læra landbúnað og var auðvitað ungur og vildi fara utan og sjá mig u-n, eins og gengur og gerist. Þar var ég svo til ársins 1921, en þá kom ég heim. — Og líkaði þér vel í Noregi? — Já, prýðilega. Mér fannst fólkið alveg prýðilegt og kunni vel við mig í alla staði. Mig langaði hálfvegis að vera lengur, en óttaðist, að ég mundi þá ílendast þar. í apríl 1922 réð ég mig með þúfnabanann annað ái-ið, sem hann starfaði, með Árna G Ev- lands. Við vorum að plægja með hon- um í góðri tíð fram á haust — f-=ra í nóvember. Unnurn með honum 116 hektara í nágrenni Reykjavíkur' Og þá erum við loksins komnir að lög- reglustarfinu. — Hvernig vildi það til, að þú gekkst í lögregluna? — Það var nú það. Það var alltaf vont að fá vinnu, og um vorið 1922 var auglýst staða hjá lögreglunni Eg sótti þá um vorið, en svo í janúar 1923 bað Jón Hermannsson mig að finna sig, og þá hafði ég ekkert að gera, svo að ég sló til. Svo byrjaði ég 1. febrúar 1923. — Hvernig leizt þér á starfið í fyrstu? — Mér hefur nú aldrei geðjazt að því. Þetta voru allt of fáir menn, sein stóðu í þessu þrasi. Við vorum til dæmis bara fjórir á vakt úti á næt- urnar í Reykjavík, sem þá hefur sennilega, talið um 20.000 íbúa. Og við höfðúm meira en það, því að einn þessara fjögurra varð alltaf að fara út í skip, ef þau komu að næturlagi og þess þurfti nauðsynlega með. Og maðurinn, sá eini, sem var á stöðinni, varð að fara út, ef hringt var og leita að okkur og biðja okkur að fara á viðkomandi stað. Þá voru lögreglu- þjónarnir í allt og allt 14 talsins. Við hættum vanalega kl. 6 eða 7 á morgn- ana, sem vorum á næturvakt, þá komu tveir og vor* til 10, en þá bætt- ist dagvaktin við. TÍHIINN SUNNUDAGSBLAÐ 509

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.