Tíminn Sunnudagsblað - 29.07.1962, Page 16

Tíminn Sunnudagsblað - 29.07.1962, Page 16
hjálmur Ásgautsson þá fara inn ■ j bæjardyrnar með barnið, því að veð ! ur var kalsafengið, en Oddur Oddsson j varnaði honum inngöngunnar með hægð. Sagði hann Vilhjám ekki í bæ- inn fara með barnið, á meðan þeii ; væru ekki viðstaddir, er þar reðu í húsum. Eftir nokkra bið kom Jón á Lamba stöðum út. Tók hann við barninu rakti yztu dulurnar af reifastrangan um og setti hann á slorskrinu við bæj ; arþil. Voru þá menn farnir að tínast að og sýnt, að Jón Þórðarson var ekki svo fáliðaður sem í fyrstu mátti virðast. Ekki þekktu þeir mennina nema hvað þeir báru kennsl á Jór Sæmundsson a Kalmanstjöyn. Jón á Lambastöðum sneri sér nú með nokkrum embættissvip að þeim, sem úti voru, nefndi votta og lýsti barnið Solveigu Guðrúnardóttur komið að Junkaiagerði. heilt og ósjúkt, og falið ábyrgð og umsjá Jóns Þórðarsonar. Skipaði hann siðan förunautum sínum þremur að skunda brott samsíða sér. Hlýddu þeir þegar en er þeir vildu sanga utar eftir hlaðinu. viku fimm eða sex sjómenn í veg fyrir þá og gerðu sig líklega til þess að stöðva þá. Varð af þessu nokkurt þóf, og riðl- aðist breiðfylking Jóns á Lambastöð- um, en allir komust þeir félagar þó út fyrir túngarg til hesta sinna, án þess að sjómennirnir gerðu meira en að . hrekja þá nokkuð. Aftur á móti bólaði ekki á Þórði Gissurarsyni, og fór þá að gruna, að hann sæti í gislingu hjá Jóni Þórðar- syni í stofu í Junkaragerði. Vildu þeir með engu móti brott hlaupast frá að- alforingja leiðangursins í óvinahönd- um. Steig því lón Eyjólfsson á bak hesti sínum og reið heim, því að hann þóttist betur fær tii undankomu á hestbaki, ef sjómennirnir gerðu aðsúg að honum, einum síns liðs. Nú víkur sögunni til Þórðar Giss- 1 urarsonar. Ráðagerð þeirra félaga 1 virðist hafa verig sú, að hann brytist út úr bænum, hvort sem Jóni Þórð- j arsyni líkaði betur eða verr, þegar Jón á Lambastöðum hefði selt barnið af höndum með viðeigandi formála. En það var ekki auðhlaupið fyrir hann j úr bæjarhúsunum i Junkaragerði, því að maður var í hverju skoti og lítill bilbugur á Jóni. Þó barst leikurinn um síðir fram í bæjardyr og út á hlað. j Þar tók Jón Þórðarson barnið af skrín- unni og bauð Þórði að fara með brott i það, svo sem hann hafði þangað kom- ; ið Þórður aftók það. Þá gerði Jón sig i blíðari og bauð til sátta að gjalda j meðlag með því til þings þess, sem boðað hafði verið til á Járngerðar- stöðum. Þórður hafnaði því boði einnig. Þá hafði Jón Þórðarson engar vöfl- ur á lengur. Lét hann veita Þórði at- ^göngu, og varð hann brátt yfirbugað- ur, því að Jón hafði ærinn liðskost vaskra manna, auk kvenna og ung- linga. Batt Jón sjálfur barnið á bak Þórði með meira en tveggja faðma löngu reiptagli. T þessum svifum reið Jón Eyjólfsson heim túnið. Féllust honum hendur, þegar hann sá félaga sinn svo hart leikinn, enda var hann umkringdur þar fáa faðma frá bæn- um. Tók Jón Sæmundsson í taumana á hestinum, en Jón Þórðarson, Loft- ur, sonur hans, og Sæmundur Eyjólfs- son, efnabóndi á Kalmanstjörn, er hafði ungur komið af sveitarframfæri i vinnumennsku til Jóns í Junkara- gerði og tekið við hann tryggð, drógu Þórð út á túnið. hófu hann á loft með barnið á bakinu og sveifluðu honum upp á klárinn íyrir aftan embættis- bróður sinn. Fjðrtán eða fimmtán sjómenn skipuðu sér síðan kringum hestinn með ófriðlegum og vígaleg- um tilburðum, svo að hreppstjórarnir gætu ekki steypt sér af honum, nema látið fallas't niður í óvinaflokkinn. Teymdi Jón Sæmundsson hestinn að svo búnu út fyrir túngarð í miðjum sjómannaskaranum. Fylgdist Sæ- mundur á Kalmanstjörn með hópnum, en Jón Þórðarson gekk stillilega til bæjar, fullviss þess, að hann hafði unnið eftirminnilegan sigur í þessari. lotu, þótt meira væri það með harð- fengi en kunnáttu þeirri, er hann var talinn búa yfir. Vilhjálmi Ágústssyni og félögum hans varð ekki um sel, þegar þeir sáu, hvernig komið var fyrir hreppstjór- unum. Hlupu þeir bráðasta á hesta sína, því að þeim þótti viðbúið, að þeir myndu sæta hinni háðulegustu meðferð og jafnvel misþyrmingum, ef þeir leituðu ekki þegar undankomu. Hröðuðu þeir sér brott með hrepp- stjórana, þegar þeir voru lausir úr herkvínni, en heimamenn veittu þeim eftirför, unz þeir voru komnir vel á veg heimleiðis. Gremja þeirra Þórðar og Jóns Eyj- ólfssonar var megn. En ekki treyst- ust þeir til fleiri ferða suðpr í Hafnir, þótt mjög væri það til umræðu. Var sagt, að séra Bjarni Pétursson á Út- skálum hafi einkum verið þess hvetj- andi, að liði vrði safnað. En það þótti samt óráð. Þótt saman yrði dregið lið um Miðnes og Garð, svo fjölmennt, að Hafnamenn fengju ekki yfirunn- ið það, uxu mönnum í augum slík stór- ræði, ekki sízt vegna sjósóknarinnar, auk þess sem þeir sá.u tvísýnu á lífi barnsins og óttuðust meiðingar á mönnum. Tóku þeir því þann kost að sendá mann til Frydensbergs og skjóta málinu til aðgerða hans. Frydensberg skrifaði hreppstjór- unum í Höfnum og lýsti megnustu óánægju sinni með framferði Jóns í Junkaragerði og fylgismanna hans. Kvað hann slíkar aðfarir vekja andúð allra réttsýnna manna. En með því að sér væri á móti skapi, að þetta mál yrði til meiri hneykslunar en orðið væri, vildi hann enn hlífast við, ef Hafnamenn hættu þegar öllum mót- þróa. Að öðrum kosti yrði afleiðing- arnar harla óþægilegar. y Manntalsþingið á Járngerðarstöðum var haldið 22. dag maímánaðar. Ekki er óhugsandi, að öldurnar hefði iægt svo, að eftirmál hefðu farizt fyrir, ef yfirheyrslurnar hefðu leitt til óyggj- andi niðurstöðu. En því fór fjarri. Til þess skorti mjög á, að þeim væri öll- um stefnt, er þurft hefði að yfirheyra, ef leiða hefði átt málið til lykta. Guð- rún lýsti fyrst Jón Erlendsson föður barnsins og kvað hann hafa komið í sæng til sín, þegar hún hafði verið hálfa aðra vikti í Kirkjuvogi. Þegar á hana var gengið, sagðist hún einnig hafa haft náin kynni af Sigurði í Býj- arskershjáleigu, en þau hefðu síðast átt samfundi einhvern tíma fyrir krossmessu, þótt ekki myndi hún glöggt, hvenær það var. Loks stað- festi hún, að Jón Erlendsson hefði leitazt við að fá vinnumann sinn til þess að gangast við barninu. Jón Er- lendsson gekkst að sönnu við því, að hann hefði iagt lag sitt við Guðrúnu, en hann fékkst með engu móti til þess að viðurkenna, að það hefði ver- ið fyrr en í fimmtándu eða sextándu viku sumars. Vildi hann fá sverja fyrir Solveigu litlu á þeim forsendum. Hreppstjórarnir í Rosmhvalanes- hreppi mótmæltu því, að Jóni yrði leyfður sá eiður. að svo lítt rannsök- uðu máli. Kvað þá Frydensberg upp þann úrskurð, að Guðrún væri svo óstöðug í framburði sínum — auk þess hún ætti flekkaða fortíð, þar eð hún hefði áður átt barn í frillulífi — að hann yrði ekki metinn fullgildur til þess að dæma Jóni Erlendssyni frí- unareið eftir honum, að vinnumanni hans, Eiríki Gunnlaugssyni, óyfir- heyrðum. En fullkomlega væri sann- að, að barnið hefði fæðzt í Hafna- hreppi og bæri honum að leggja því til, eftir því sem á brysti, að móðirin ynni fyrir því. Barnið skyldi fyrst um sinn vera hjá móður sinni í Rosm- hvalaneshreppi. Jóni í Junkaragerði þótti málið slælega rekið, sc-m og var, því að ekki var hirt um að stefna þeim til yfir- heyrslu, er beinlínis höfðu verið við það brugðnir. Hann neitaði með öllu að sætta sig við þennan nýja úrskurð og kvaðst myndi virða hann að vett- ugi. Fékk Frydensberg engu um þok- að. Sagði Jón af sér hreppstjórn í þessari sennu og skipaði Frydensberg þá tvo bændur á Merkinesi í hans stað, Teit Jónsson og Erlend Jónsson, gegna menn, en ekki jafnoka Jóns að áræði og harðfengi. Var hinn síðar- nefndi tengdasonur Jóns og hafði ver- ið vinnumaður hans fyrr meir. Var nú eftir að sjá, hversu þeir stýrðu fley- inu í gegnum brotsjóina. 520 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.