Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1964, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1964, Blaðsíða 4
VI. Coghill fjárkaupmaður. Einn fyrsti maðurinn, sem ég man glöggt eftir, var Coghill fjár- kaupmaður. Einn morgun að haust- lagi, þegar ég var í heimsókn hjá móður minni á Borðeyri, ungur að árum, ekki nema sjö eða átta ára, — sé ég mikinn mann og vörpuleg- an ganga ofan „plássið". Þetta var Coghill, ég þekkti hann, því að sjálfsagt hef ég verið búinn að sjá hann áður, þótt ég muni ekki til þess nú, eftir sjötíu ár. Það, sem vakti athygli mína í þetta sinn, var skrín, ekki stórt, sem hann bar á öxlinni. Mikið hefði ég til unnið að mega renna augunum ofan í þetta skrín og horfa á þær dásemdir, sem þar voru geymdar, því að þarna vissi ég að voru skínandi gullpeningar. Reyndar var ég búinn að sjá einn og einn pening áður, en hvað var það í samanburði við að sjá þá gló- fögru auðlegð í einum og sama stað. Svo var ég ekki ósnortinn af mann- inum sjálfum, því að mér fannst hann svo ólíkur öðrum mönnum, þessi þrekni og karlmannlegi maður, með svart alskeggið og skozka húfu. Það, sem ég fyrst veit um þennan merka mann og bjargvætt íslenzkra bænda á tímabilinu frá 1875 til 1891, var þegar hann fyrst hélt hrossa- markaði norður í Eyjafirði 1875 og fór norður í Húnavatnssýslu 1879. Árið 1881 fór hann að kaupa sauð- <fé, helzt tveggja vetra sauði og geldar ær og eitthvað af veturgömlu fé. Hann keypti fyrir skozkan stór- kaupmann, Robert Slimon að nafni, og ef til vill hefur hann einhvern hlut átt sjálfur. Ilann kom á hverju sumri þangað til hann hætti, við lækkandi verð í Bretlandi. Með sín- um rómaða dugnaði og drengskap ávann hann sér almenna tiltrú, svo að nærri mátti segja, að bændur tryðu á hann, enda kom sér vel enska gullið frá honum, og mikil voru viðbrigðin frá því, sem áður var, sérstaklega meðal hinna fátæk- ari, sem aldrei gat heitið, að séð hefðu slegna mynt, Ef fátækir bændur komu til Cog- hills og buðu honum hross eða kind fyrir lægra verð en hann yfirleitt borgaði, þá hló hann og sagði: „Andskoti vitlaus, karlinn, kann ekki að selja, karlinn", og borgaði meira en upp var sett. Verð það, er hann greiddi bænd- um, var frá 18 til 21 krónu fyrir tvævetra sauðr, 15—16 krónur fyrir geldar ær og 14 krónur fyrir vetur- gamalt fé. Engin kind var vigtuð, allt tók hann eftir átaki og vaxtar- lagi kindarinnar. Hross voru venju- lega að meðaltali 54 krónur. Sauða- salan komst í tíð Coghills upp í 70.000 árið 1890, en nam ekki nema 24.000, þegar hann hætti. Sumarið 1885 rituðu 27 þingmenn þakkar- ávarp til þeirra Slimons og Coghills í viðurkenningarskyni fyrir þau miklu hlunnindi, sem íslendingar hefðu haft að viðskiptunum við þá. Þegar fram á sótti þetta tímabil, fóru bændur að ganga í félagssam- tök innan hreppanna um að panta hjá Coghill ýmsar vörur, svo sem þakjárn og fleira. Þótti þeim gott að verzla við hann, því að verðið var lægra á vörunni en menn áttu að venjast. Coghill var með þeim fyrstu hér, sem fluttu inn þakjárn. Af þessu öllu varð maðurinn yfirtak vinsæll, enda hörmuðu bændur 196 V í M l N N — SUNNUDAGSBLA®

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.