Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1964, Blaðsíða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 01.03.1964, Blaðsíða 7
X. Sauðataka og ýmis vinnubrögð. Alla þá tíð meðan lifandi fé var flutt út, var aðalútflutningshöfn á Borðeyri, önnur en Akureyri. Þá var sett upp fjárbryggja, sem ekki þurfti mjög langa, því að aðdýpi er mikið við eyrina að sunnanverðu. Lögðust fjárskipin við hana, og var féð rekið viðstöðulítið fram bryggj- una og ofan í lestarnar eftir hler- um með þverrimlum, sem lágu of- an í lestarbotn, og gekk því furðu fljótt að fullferma skipin. Fjár- bryggjan var tekin Aipp á hverju hausti. Fyrst þegar ég man eftir, voru járnbrautarteinar lagðir ofan á litla bryggju, sem uppskipunarbát- arnir lögðust við. Eftir teinunum gekk flatur sporvagn, og var á hann hlaðið vörunni, og voru með hann venjulega 3—4 menn. Síðan voru vörur dregnar upp og teknar inn um stóra lúgu á miðri efri hæð hússins, en tveir tóku á móti því, er aðrir tveir-drógu upp. Var stórt hjói í hæfilegri hæð til þess að létta dráttinn. Þá voru enn aðrir til að losa í stíurnar, en þær voru tvær, önnur fyrir rúg, en hin fyrir bankabygg. Lágu rennur úr stíun- um ofan í vörugeymsluna, þar sem varan var afhent, og þar var líka mjölvara og baunir. Meðan féð var tekið á fæti, var þegar byrjað að halda fjármarkaði eftir fyrstu rétt, og vóru ævinlega tvennir markaðir í hverjup hreppi á aðalverzlunarsvæðinu. A meðan fyrri markaðirnir fóru fram, safn- aðist mikill fjöldi saman af slátur- fé, svo að skipti mörgum þúsundum. Aðalsafnsins var gætt á hólmunum í Ilrútafjarðará og vakað yfir því hjá Tjaldhól. Sumt var haft úti hjá Valdasteinsstöðum og geymt í nátt- haga um nætur. Þriðji hópurinn var hafður á Borðeyrarmýrum og dag- lega tekið af honum, þar var líka byggður nátthagi. Markaðshaldarar voru Guðni Einarsson, bóndi á Óspaksstöðum, og Jón Jónsson, bóndi á Hömrum í Laxárdal, voru þeir báðir starfsmenn við verzlun- ina milli markaða, Jón innanbúðar, en Guðni verkstjóri. Hafði hann það erilsama starf að kalla verka- mennina til verks á morgnana, en víða þurfti að fara og ekki allir fljótir að vakna. Þá var ekki sam- eiginlegur svefnskáli, svo að verka- menn voru dreifðir alla leið utan af Austureyri og upp að læk, en svo snemma reis Guðni, að allir voru komnir til verks fyrir dag. Voru gálgarnir skildir eftir fullir að kveldi, en borið inn úr þeim meðan birti. Kom hver með sinn skrokk til Hallgríms Bjarnasonar í Laxárdal, en hann var lengi kjöt- höggsmaður og hjó banakringlurnar af jafnóðum og fékk þær í kaup- bæti. Þegar ég var þar fyrst I vinnu, var hann orðinn gamall og gikt- veikur og átti sjáanlega erfitt með þetta stritverk. Þegm- þetta var bu- ið, fóru menn að fa sér morgun- hressingu hjá mörbræðslustúlkunni, sem þar voru margar, hver eftir aðra, og veitti hún öllum kaffi og kandís, en hver hafði sína matar- skrínu, þar sem hann var til húsa. Hildur Jónsdóttir frá Bálkastöðum fram var lengi við mörbræðsluna síð ustu árin í tíð Riis. Þá var líka kom- inn timburskúr, sem kallaður var Glaumbær og bar nafn með réttu, því að mikið var masað og dátt hlegið meðan menn sötruðu kaffið hjá Hildi. Allmikið magn af mör var hnoðað, og fór hann allur vest- ur á ísafjörð og Bolungaryík. Slátr- að var í tvennu lagi hjá Riis. Voru gálgarnir við norðurstafn húsanna, bárujárn yfir og við enda, en opið í austur og vestur. Var illur gustur í gegn í norðangörðöm, en þó héldust menn nokkum veginn þurr- ir, þótt úrfelli væri, nema sá, sem aðskildi, hann var á hnjánum fyrir norðan gálgana og aðskildi úr gær- unum. Flegnir vom skrokkarnir al- veg í gálganum og gekk hver mað- ur algert frá sínum skrokki. Klofið var fram úr bringu og innyflin lát- in falla ofan í gæruna. Bændur gátu fengið keyptan innanúrþvott — not- uðu sér það flestir. Kostaði hann fyrst_ lengi 10 aura fyrir hvert slát- ur. Áttu þær stúlkur illa ævi, sem höfðu þann starfa í vondri tíð, en hærra kaup fengu þær. f þá daga var oft glatt á hjalla hjá verka- mönnunum og létu þá sumir fjúka I hendingum, sem lífguðu upp á félagslífið. Beztur hagyrðingur var Jón Melsteð. Kvað hann ævinlega um viðburði, er eitthvað smáskrýtið kom fyrir. Flaug sá skáldskapur út um allar jaðrir, og var óspart kveð- inn eða sunginn, þegar menn komu saman. Jón var góðum gáfum gædd- ur, en þverbrestir vom á skapgerð hans, sem spilltu svo fyrir honurn, að hánn naut sín ekki eins og æski- legt hefði verið. Hann fluttist frá Borðeyri 1907, og var þá kvæntur Salóme Daníelsdóttur fró Oddsstöð- um, þá nýkominni frá Ameríku, þar sem hún hafði dvalizt upp undir 20 ár. Jón lifði til 1938, en Salóme dó ári fyrr. Lítið ljóðakver kom út eft- ir hánn á seinni árum hans. Það hét „Þráin“. Það bar lítinn keim af fyrri skáldskap hans. XI. Pöntunar- og kaupfélagsstarfsemi á Borðeyri. Eftir að Verzlunarfélag Húnvetn- inga varð að hætta störfum 1878, var alger kaupmannaverzlun á Borð- eyri um næstu 25 ára skeið' En svo átti ekki ævinlega að verða, því að nokkru eftir 1890'var stofnað Verzl- unarfélag Dalamanna undir forystu hlns mikla framkvæmdamanns, Torfa skólastjóra f Ólafsdal. Það var pöntimarfélag eins og þau vora flest í byrjun, og hafði bækistöð að nokkm leyti á Borðeyri eða réttara sagt deild þar. En 1899 var stofnað Verzlunarfélag Hrútfirðinga, sem líka var pöntunarfélag í byrjun, en myndaði innan skamms litla sölu- deild. Fyrsti formaður þess var Kristján Gíslason, síðar bóndi á Prestsbakka, og gegndi hann því starfi meðan hann hafði heilsu og krafta til. Kristján var í alla staði mætasti maður og svo vandaður og trúr í sínu starfi sem bezt varð á kosið. Var það gæfa félagsskaparins að hafa svo góðum manni á að skipa meðan komizt var yfir byrjun- arörðugleikana og það í samkeppni við hinn sterka og yinsæla kaup- mann, Richard Riis. f fyrstu stjórn vom auk Kristjáns síra Páll Ólafsson á Prestsbakka, Finnur Jónsson á Kjörseyri, Jósep Jónsson á Melum og Guðmundur G. Bárðarson í Bæ. Mátti það heita mikil bjartsýni og þrautseigja að halda velli í svo harðri samkeppni. En þar var byrjað smátt en kvíamar færðar út með árunum. Pétur Jónsson frá Hlað- hamri var fyrsti sölustjóri, og gegndi hann því starfi með miklum dugn- aði um 20 ára skeið, meðan heilsa hans leyfði, og þá ekki síður Val- gerður Jónsdóttir, kona hans, eftir að söludeildin var mynduð. Myndi ekki þykja boðlegt nú, það sem þau áttu við að búa fyrst framan af. Fyrstu árin áður en söludeildin var mynduð, fór Pétur að vetrinum um félagssvæðið og safnaði pöntunum hjá bændum og tók á móti loforðum um un og sláturfé. Með þessari að- ferð mun hann hafa haft drjúgum meiri verzlun, því að hann £af sér góðan tíma til þessara ferðalaga var líka mælskur vel að tala máli félags- ins, enda þróaðist félagsskapurinn furðu fljótt. Næstur á eftir Pétri varð Kristmundur Jónsson kaupfé- lagsstjóri. f hans tíð má segja, að kaupfélagsstarfsemin hafi komizt á mestan rekspöl ,enda var þá minni samkeppni að mæta, því að henni lauk við fráfall Riis kaupmanns. I tíð Kristmundar reisti félagið hið stóra og myndarlega verzlunarhús. Það var reist 1928, en svo hörmulega tókst til, að það fórst í eldi þreœ ámm síðar. En þó var lán með óláni, að félagið var alveg nýbúið að kaupa Riisverzlun með öllum húsum, svo að það gat flutt starfsemi sína strax í þau og komizt að samningum við vátryggingafélagið að þurfa ekki að byggja. Um áramótin 1934—1935 verða kaupfélagsstjóraskipti. Kristmundur fer, en í hans stað kemur Pétur Sig- Framhald á bls. 214. TlMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 199

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.