Tíminn Sunnudagsblað - 13.09.1964, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 13.09.1964, Blaðsíða 6
Gamlar tóftir undlr kletti ofan vlS Hellnavör. — Ljósmynd: J.H. ist heyrt hafa með fegurri rödd kvæði kveðið, sá er þar var hjá.“ Nú opnaðist völvunni sýn inn í framtíð- ina við svo fagran söng, og gat hún heitíð því, að hallærinu myndi linna, er vetur væri úti, en Guðríði spáði hún því, að hún myndi kvonfang fá á Grænlandi, en „eigi tll langgæðar,“ og myndi vegur hennar liggja til ís- lands á ný, þar sem mikil ætt myndi af henni spretta — „og yfir þínum kynkvíslum skína bjartari geislar en ég hafi megin til að geta slíkt vand- lega séð,“ sagði völvan. Þorbjörn komst nú til Brattahlíðar á fund vinar síns, Eiríks rauða, er gaf honum land á Stokkanesi, þar sem nú er flugvöllurinn í Eiríksfirði. Svo er að sjá, að Guðríður hafi fyrst verið gefin Þóri nokkrum Aust- manní og verið í förum með honum, og bjargaði Leifur heppni þeim hjón- um úr skeri við fimmtánda mann, er hann kom úr Vínlandsför sinni. En Þórir Austmaður var bráðfeigur. Sótt- fellt var sem oftar á Grænlandi og dó Þórir um veturinn og sumir manna hans. Þá gekk Þorsteinn Eiríksson að eiga Guðríði. En ekki naut hann hennar lengur. Hann dó í Vestri- byggð í Lýsufirði, og er sums staðar talið, að hann hafi farið þangað til að vítja bús, sem hann átti, en ann- ars staðar er svo frá sagt, að hann hafi ætlað að sækja lík Þorvalds, bróður síns, vestur um haf, velkt úti sumarlangt og tekið loks land í Vestribyggð í vetrarbyrjun. Hin heim ildin telur Þorvald hafa lifað Þor- stein. • Skammt var milli stórtíðinda í lífi Guðríðar frá Laugarbrekku. Árið 1006 kom Þorfinnur karlsefni til Grænlands, sonur Höfða-Þórðar, og gekk hann að eiga Guðríði í Bratta- hlíð um veturinn. Réðust þau síðan til Vínlandsferðar næsta sumar með þeim Bratthlíðingum. í þessari för ól Guðríður Snorra Þorfinnsson, er ’ fyrstur fæddist hvítra manna vestan Atlantshafs. Að sjö árum liðnum sigldí Þorfinnur karlsefni skipi sínu til hafnar í Skagafirði og settist að í Glaumbæ með konu sína. Ferðum Guðríðar var þó ekki lokið. Hún fór enn utan á gamalsaldri og gekk suð- ur. Að lokinni Rómargöngu sinni gerðist hún eínsetukona í Skaga- firði, og hefur þessi kona fræg- ust og víðförlust fæðzt upp á Hellis- völlum á Snæfellsnesi. XI. Þegar átta hundruð ár voru liðin frá uppvexti Guðríðar Þorbjarnar- Þesslr gömlu vegglr standa vel, enda englnn hörgull á hellum í bergstálinu við vlð Hellna. — Ljósmynd. J. H. 846 T « Itt 1 N ISI — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.