Tíminn Sunnudagsblað - 13.09.1964, Side 12

Tíminn Sunnudagsblað - 13.09.1964, Side 12
Það hefur áður verið vikið að því hér í Sunnudagsblaðinu, hvernig sí- fellt er að koma í ljós, að saga manns ins er miklu lengri en áður var tal- ið. Nú er svo komið, að fundizt hafa bein úr mannlegum verum, svonefnd um homo habilis, er iíklega hafa ver ið uppi fyrir tveimur milljónum ára. Fregnirnar af þessum beinafundi birtust í þorra blaða í aprílmánuði síðastliðnum, en mun þó hafa verið heldur lauslega getið hérlendis. Vís- indamenn tóku þessum fregnum með varúTS fyrst í stað, því að ekki er það háttur slikra manna að gleypa fyrirvaralaust við hverju því, sem birt er á prenti. En tortryggnin rén- aði, þegar á daginn. kom, að það var hinn heimsfrægi Englendingur, mannfræðingurinn dr. Leakey, sem fyrir þessu var borínn, og enn þóttu meiri líkuf til þess, að hér væri satt frá sagt, er það vitnaðist, að bein þessi hafa verið að finnast síðastlið- in fjögur ár. Þau höfðu því verið rannsökuð gaumgæfilega, áður en frá fundinum var skýrt í blöðum. Það hafði ekki verið flanað að neinu. í kjölfar blaðafréttanna kom svo greinargerð Leakeys sjálfs og nokk- urra aðstoðarmanna hans í viður- kenndum vísindaritum. Þetta var þó einungis undanfari miklu rækilegri greinargerðar, sem ekki er að vænta fyrr en síðar. Dr. Leakey og kona hans hafa stað ið fyrir umfangsmiklum rannsókn- um á fjölmörgum stöðum í Mið- Afríku og gert þar margar stórmerk ar uþpgötvanir, meðal annars við Viktóríuvatn og þó einkum í Oldú- vægljúfrunum í Tanganíku. Þýzkur landkönnunarleiðangur, sem dr. Katt winkel stýrði, fann þessi gljúfur af tilviljun árið 1911. Urðu Þjóðverj- arnir þess þegar vísarí, að þar var mikið af steingervingum, en fengu engri rannsókn komið við. Árið 1913 fór annar þýzkur leiðangur, sem dr. Hans Reck stjórnaði, á þessar slóðir, en þá runnu rannsóknirnar út í sand inn vegna styrjaldaræðisíns. Dr. Hans Reck vildi taka þar til að stríð inu loknu, er hann hafði orðið frá að hverfa, en tókst ekki að afla fjár til þess. Þegar hann var vonlaus orð- inn um það, að honum auðnaðist efna til nýs leiðangurs, skrifaði hann dr. Leakey, er þá var ungur maður, stjórnandi Þjóðminjasafnsins í Næróbí, og bað hann að takast þess- ar rannsóknir á hendur. Fjáðum mönnum og stofnunum var ekki hugleikin þessi rannsókn. Dr. Leakey gekk illa að afla peninga til hennar, þó að hann hefði útí all ar klær, og það var ekki fyrr en árið 1931, að það tókst. En jafnskjótt og hann var kominn á staðinn, varð hon um ljóst, að Oldúvægljúfrin myndu hvergi eiga sinn líka í veröldinní. Niðri í gljúfrunum var mergð grófra og ólögulegra verkfæra úr steini og fjöldi steingervinga úr dýraríkinu. Dr. Leakey fann þar þegar í fyrstu lotu leifar hundrað dýrategunda. Þetta var ekki anna. en upphaf langra og mikilla rannsókna, sem var- að hafa áratugum saman og varpað óvæntu ljósi á þróunarsögu mann- kynsins. Þessar rannsóknir hafa mest hvílt á dr. Leakey og konu hans, en á síðari árum hafa synir þeirra tekíð vaxandi þátt í þeim. Ár eftir ár hélt dr. Leakey til Oldúvægljúfranna, og sífellt fjölgaði steinverkfærum þeim og steingerving um, sem hann flutti þaðan. En það dróst á langinn, að hann fyndi leif- ar þeirra vera, sem höfðu búið til verkfærin. Oldúvægljúfrin í Tanganíku eru nyrzt í landinu, nokkuð fyrir sunn- an miðjarðarbaug. Þau eru fjörutíu til fimmtíu kílómetra löng og níutíu til hundarað metra djúp. Endur fyr- ir löngu hefur fljót rist sér farveg í tiltölulega losaralegt, fornt set frá kvartertíma jarðsögunnar niður á hraungrýti, er undir var. Setinu í gljúfurbörmunum hefur dr. Leakey skipt í fjögur lög eftir aldri þeirra. Þrátt fyrír margendurtekin von- brigði hélt dr. Leakey áfram að leita leifa frumstæðra mannvera í þessu seti. Og loks varð honum að von sinni. 17. júlí 1959 var hann sjálfur lasinn og hafðist við rúmfastur í tjaldi sínu, og fór kona hans ein þennan dag til þess að vinna við uppgröftínn. Sem hún skreið á fjór- um fótum fram og aftur um gryfju þá, er hún var að grafa, rak hún allt í einu augun í litla beinflís, sem hún þóttist þegar sjá, að væri úr hauskúpu. Litlu síðar fann hún tvær brúnsvartar tennur nokkru ofar í gryfjubarminum. Hún merkti stað- inn, sem var í elzta setlaginu miðju, hljóp til bifreiðar sinnar og ók sem hún máttí heim að tjaldinu. Dr. Leakey heyrði hana hrópa, er hún nálgaðist tjaldið: f^Í^^nniH4nuni nra I <52 T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.