Tíminn Sunnudagsblað - 13.09.1964, Page 22

Tíminn Sunnudagsblað - 13.09.1964, Page 22
að hann hæfi nýja rannsókn. Haust- íð 1810 var þó hjónaskilnaðarmál þeirra Jóns og Ingunnar tekið upp og hjúskap þeirra loks slitið á lög- legan hátt. En barnsfaðernismálið frestaðist þar til seint í aprílmánuði 1811. Þá var barnið sjálft fyrir löngu dáið, og eitt vitnanna, Ingibjörg Ijósmóðir á Hellu, var einnig komið undir græna torfu. Ólafur ættfræðingur Snóksdalín, sem um þetta leyti bjó á Hrísum í Fróðársveit, hafði verið skipaður sækjandi, og varð þegar ljóst, að hann myndi verða nökkuð þungur á bárunni. Þegar í upphafi hins fyrsta þings sló í harða brýnu milli þeirra nafna, og lét Ólafur Snóksdalín að því liggja, að Munaðarhólsbóndi hefði þegar játað á sig mannvillu. En Ólafi Björnssyni var sízt í huga að vægja. Hann hrópaði á mótí: „Það hef ég aldrei talað. Ég lýsi yður lygara fyrir það.“ Heimtaði þá Ólafur Snóksdalín, að hann yrði sektaður fyrir ill orð, og dæmdi sýslumaður sjálfum sér óðar nokkra sekt úr hendi Munaðarhóls- bónda. Að þessu sinni var Jón í Brekku- bæ úrskurðaður vitnisbær, enda hafðí landsyfiréttur skipað svo fyrir. Samt setti sýslumaður þau skilyrði með tilvísun til Norsku laga, að honum leyfðist ekkj að bera vitni um orð eða orðaskiptí, er fallið höfðu, áður en sökin var tekin upp. Þetta hefur sennilega átt að koma í veg fyrir, að hann greindi frá orðaskiptum þeirra Ólafs um barn Ingunnar. En Olafur Snóksdalín hafði þetta að engu. Hann spurði sem hann lysti, og Brekkubæjar-Jón svaraði fullum fet- um, þó að sýslumaður áminnti hann „varkárlega að vitna um orð og orða- tiltæki." Hér fór því svo, að þeir Brekkubæjar-Jón og Jón Gottskálks- son sögðu allt af létta. Þar bættust við vitnisburður Þorleiks og Mar- teíns Einarssonar og fleiri manna, sem vissu nokkur skil á málavöxtum, þeirra á meðal Jóhanns Markússon- ar. En ekki verður séð, hvað þeir séra Jón í Stapatúni, Jón í Eiði og Ólafur sjálfur hafa sagt, því að þeim voru heimilaðir skriflegir vitnis- burðir, sem nú eru glataðir. En eng- um gat blandazt hugur um það að þessari rannsókn lokinni, að Ólafur á'Munaðarhóli hafði sjálfur átt bam það, er hann fékk Jón í Brekkubæ til þess að gangast við. Sigurður Guðlaugsson komst nú ekki hjá því að kveða upp þann dóm, að Ingunni skyldi heimilt að sverja barnið á Ólaf. Og þá var í rauninni ekki annað eftir en ákvarða, hverjir bera skyldu kostnaðinn. Sjálfum sér * úrskurðaði hann níu dali frá hvoru, Ólafi og Ingunni, auk þess sem þau skyldu greiða lítilfjörlega sekt í dómsmálasjóð og sveitarsjóð. Einnig skyldi Ólafur borga nafna sínum, sækjandanum, þrjátíu dali, „og fyrir óþarfa og misþenkjanlega mílligöngu . . . í þessu máli betali hann til fátækra féhirzlu Neshrepps utan Enn is tíu rikisdali kúrant." En nú fór Sigurður gætilega: Þess- um dómi skyldi ekki framfylgt fyrr en háyfirvöldin hefðu samþykkt hann. Ingunn kvaðst þegar vilja sverja eiðinn og alls ekki hafa hug á áfrýj- un, en Ólafur baðst þess, að sér yrði veittur frestur. En í rauninni hafði hann sloppið svo áfallalítið frá leiðu Framhald af 848. síðu. grennd við bæ plássbóndans. Á Önd- verðarnesí er brunnurinn Fálki, æva- forn og rammlega hlaðinn. Niður i hann eru fjögur eða fimm þrep, en gert yfir hann með afarmiklum hell- um, sem einhvern tíma hafa verið sóttar langar leiðir til þessara nota, og er langt síðan græn gróðurtorfa hefur lagzt yfir þær. Þarna bjó Gisli Einarssson, sem í æsku sinni var lífvörður Jörundar hundadaga konungs, og hér söng hann sjálfur yfir Fransmanninum, er skútukarlar frá Dunkirkju fluttu dauðan á land vorið 1875, og jós hann moldu með sömu ummælum og prestar viðhöfðu við slík tækifæri. Samt lét yfirvaldið grafa hann upp af hótfyndni sinni og séra Árni Böðv- arsson á Sveinsstöðum syngja yfir honum upp á nýtt. Þetta er þó ekki eina skiptið, sem Öndverðarnesmenn hafa staðið í stórræðum vegna ásóknar útlendinga, lifandi eða dauðra. Líkt og víðar á útskögum hafa sjófarendur stundum gert sig heimakomna í fuglabjörgum þar ytra og farið um rænandi og myrðandi í fuglabyggðinni. Slíku var illa unað, og reyndist þó torvelt að reisa rönd við þessu háttalagi. Sýslu- maður héraðsins sat víðs fjarrí, svo að ekki kom til greina að kalla hann á vettvang, en eftirmálum dauflega sinnt, þó að þá leið ætti að fara. Þeir, sem harðir voru af sér, gripu þess vegna stundum til þess ráðs að reka sjálfir af höndum sér ófögnuð- inn. Atburður af því tagi gerðist við Öndverðarnes fyrir fimmtíu eða sextíu árúm. Norsk bátshöfn réðst þar í fuglabjörg til rána. Fór þá r" 1 Laysn I 32. krossgátu máli sem framast gat orðið, svo að auðvitað varð ekki af áfrýjun af hans hálfu. En vafalaust hefur hon- um sárnað mjög ósígurinn, en Jón í Eiði hælzt um að sama skapi. Ólafur virðist hafa farið gætilegar eftir þetta. Þegar önnur vinnukona í sveitinni, Guðrún Arngrímsdóttir að nafni, kenndi honum barn nokkr- um árum síðar, gekkst hann orða- laust víð því. En ef til vill hefur Guðrún átt meiri ítök í honum en Ingunn, því að hún dvaldist á Mun- aðarhóli eftir barneignina og virð- ist hafa verið Ólafi handgengin til æviloka hans. garpur frá Öndverðarnesi á vett- vang með konu sína og son, og voru þeir feðgar báðir með skot- vopn. Er skemmst af þeirri viður- eign að segja, að einn skipverja varð fyrir skotí og særðist nokkuð, og urðu af þessu eftirmál. En líklega hafa ræningjar hikað við að ganga þarna á Iand eftirleiðis, er það spurð- ist meðal fiskimanna, hve harðfengi- lega Öndverðarnesmenn vörðust þeim, er á þá leituðu. Enn var á þessum slóðum ein veiðistöð með hverfi þurrabúðar- manna, áður en kom inn á Hellis- sand — Gufuskálar. En þar er ekki lengur þingað um fiskidrátt og sjó- veður fremur en í öðrum gömlum veiðistöðvum yzt á Snæfellsnesi. Fiski mennirnir eru gengnir veg allrar ver- aldar, varirnar fullar af grjóti og naustín hrunin. Mannv.irki eru samt ósmá á Gufuskálum, því að þetta er einn þeirra staða, þar sem setuliðið bandaríska hefur búizt um. Það rak ský fyrir sólu, þegar ég ók þarna í gegn, og bar skugga yfir landið. Og það skyggði líka í hug mér. ÍN' i2 [Z 5 / 0 0 G . * T 1 M l n / M Ó p U 7 / £ 7 7 P p ■ z £ 2L fl p P i / »/. ' K / fl / / B I n z ó £ / z E í [K r J o V V u R 7 K if L y j ý jLj L H / R A Z R n K r L / 5 f íZ w E H n P U i? V 7 K í t K z / z rf R 7 L ö L / n i : o l N N r / 1 N N C 5 p c ) R z p fl T i z fl H S 7 u I - L M z 7 V N G K í) R 7 F j i z z z 6 H *L a □□EfE Z * / ?K fl H r fl r o z /C T z R N fi J K z V 0 r b z 6 V ►T R ó tyi 1 E R R fl G £ R P / / 6 i n -• M fl L u R -> flT -> s T a íZ K z K K R V u / 6 R fl 1 M K E U N I N G u R 7 T Q 3® fl L fl r z fl lel u n R / VESTUR UM SNÆFELLSNES - 862 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.