Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 26.09.1965, Qupperneq 2

Tíminn Sunnudagsblað - 26.09.1965, Qupperneq 2
, --------ssÍSs&Ssw Þetta nús er nú rettra tveggja aida gamalt. ! því hafa faktorar Almenna verzlunarfélagsins drukkið vestfirzkum héraðshöfðtngjum til. GOMLU HUSIN I NEÐSTAKA UPSTAÐ Við íslendingar eigum fátt gamalla húsa. Kemur þar til, að hér var ekki hafizt handa um byggingu steinhúsa fyrr en á átjándu öld, er nálega sam- tímist voru byggð nokkur myndarleg hús, sem enn standa, þótt sumum þeirra hafi um skeið verið harla lítill sómi sýndur. Er meðferðin á Við- eyjarstofu þar sorglegast dæmi. En nokkur timburhús eru líka til viðlíka gömul og jaf.-.vel eldri en þessi steinhús. Það eru verzlunarhús frá einokunartímunum, mjög vönd- uð að gerð og furðulega traust. Hef- ur þó nokkrum slíkum húsum verið tortímt á tíð þeirra manna, sem nú eru á miðjum aldri, svo undarlega sem það lætur í eyrum. Má þar nefna, að ævaforn hús á Eyrarbakka voru rifin og viðirnir úr þeim notuð í salthús eða fiskhús í Þorlákshöfn á þeirn árum, er útgerð var að hefjast þar, og í Höíðakaupstað var rifin svonefnd Assistentsstofa, þegar mest- ar voru ráðagerðir um að koma þar upp umfangsmiklum síldariðnaði. Enginn var á verði er fengi tekið í taumana, áður en þessi hermdar- verk voru unnin. Menn rumskuðu ekki fyrr en allt var um seinan og hinum gömlu húsum hafði verið tor- tímt. Enn eru þó til nokkur hús af þessu 866 tagi. Á Djúpavogi er Langabúð, mik- ið hús og fomt, og fleiri byggingar frá einokunartímunum, þótt margt sé horfið, er sumt hefur fallið fyrir timans tönn, en annað af manna völdum. Fyrir aldamót var þar vind- myl'la á kletti, nokkur hús voru rifin í tíð elztu manna og eitt, svo- nefnd Gamla-Krambúð, á árunum á milli 1930 og 1940. Mesta samstæða gamalla verzlunar- húsa, sem uppi stendur, er þó í Neðstakaupstað á ísafirði. Þetta eru fjögur hús, öll frá átjándu öld, mjög rammleg, stílhrein og svipmikil, og hafa varðveitzt svo vel, að þau geta staðiíf enn um langan aldur, ef þeim er sómi sýndur. Munu ísfirðingar hafa fullan hug á, að örlög þeirra verði önnur en gömlu húsanna á Eyrarbakka og í Höfðakaupstað og sumra húsanna á Djúpavogi. Eiga þeir og traustan mann til varnar gönilum menningarverðmætum, þar sem er Jóhann Gunnar Ólafsson bæj- arfógeti. Hitt er svo annað mál, hvort réttlátt er, að ísfirðingar beri einir þann kostnað, er því fylgir að halda við svo mörgum húsum, og virðist einsýnt, að þar verði fleiri að leggja nokkuð að mörkum. Elzta húsið í Neðstakaupstað er nú rúmlega tvö hundruð og þrjátíu ára gamalt. Það kallast Tjöruhús, byggt árið 1734. Næst þvi að aldri er sölubúð, reist 1761. Mjög jafnaldra sölubúðinni er Faktorshúsið, nú réttra tvö hundruð ára, byggt 1765, og hefur í engu ver- ið breytt. Það er mjög viðamikið og traust, steini hlaðið í grind og þakið tvöfalt. Hefur að öllu leyti verið til þess vandað svo sem frekast var kost- ur, enda þefur það staðið af öll veð- ur tveggja alda, bæði Básaveður og aðrar stórhrinur, og látið furðulítið á sjá. í því bjuggu faktorar ein >k- unarverlunarinnar eins og na.'nið bendir til og síðan eftir þá aðrir verzlunarstjórar í Neðstakaupstað. Og enn í dag er búið í þvi. Kannski gera menn sér betur grem Flutt á 886. sjðu Turnhúsio j NeðstakaupstaS, iiyggt af þýzkum kaupmönnum. f I M I N N - SUNNUÖAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.