Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 26.09.1965, Qupperneq 13

Tíminn Sunnudagsblað - 26.09.1965, Qupperneq 13
Tvær litlar ár renna til sjávar í gegnura bæinn út í smávoga, Hafnará og Sandá. Neðri hluti Hafnarár, sem til skamms tíma rann í hlöðnum stokk, er þó nú horfin undir sements- hellu og malbik. Þeir, sem héi eftii koma til Færeyja, geta ekki sett sig í spor skáldsins í Elfarstofu, sem lék sér barn við þessa á og viðf 'ægði hana á manndómsárum sínum í ljóði. Þannig þurrkar framvindan út spor kynsióðanna og dregur skugga á feg- urð og yndi, sem fyrri mönnum voitt- ist. Milli ánna tveggja eru klapparás- ar, sem enda í klettahleinum, sem ganga fram í sjóinn á milli vogánna tveggja. Það er Þinganes. Þar háðu Færeyingar lögþing sitt í þúsund ár, og þar var óralengi bækistöð dönsku konungsverzlunarinnar. í margar aldir var þarna eini verzl- unarstaður Færeyinga. Þangað urðu ailir að sækja verzlun, jafnt norðan úr Norðureyjum og sunnan úr Suð- urey, þótt þaðan væri yfir opið haf að fara. Það var ekki fyrr en á nítjándu öld, að þremur verzlununum var bætt við — einni í Klakksvík, annarri í Vestmannahöfn og hinni þriðju á Þvereyri á Suðurey. Auðvitað var yfir því vakað á einokunartímunum, að Færeyingar ættu engin viðskipti við erlenda fiskimenn, sem komu að eyj- unum, óg urðu ófáir að láta jarðir sínar, er sannir urðu að því. Svo stranglega var þess gætt, að Færey- ingar ættu ekki mök við aðrar þjóðir, að þeir fengu um langt. skeið ekki að fara úr landi nema gjalda stórfé fyrir sérstakt utanfararleyfi, fimmtíu ríkisdali. Siglingar stunduðu þeir að sjálfsögðu aldrei meðan konungs- verzlunin hélzt, nema hvað Englend- ingar leyfðu hinum nafnfræga Nóls- eyjar-Páli siglingar á skútu sinni, Royndinni fríðu, eftir uppgjöf Kaup- mannahafnar árið 1807 til þess að ráða bót á hungursneyð í eyjunum. En Royndin fríða hvarf í hafi í Eng- landsferð með allri áhöfn, og var því trúað í Færeyjum, að danskt eða norskt vkingaskip, gert út af verzlunarstjóminni, hefði skotið skút- una í haf. Þetta urðu endalok Nóls- eyjar-Páls. — Verzlunarfrelsi komst ekki á í Færeyjum fyrr en upp úr miðri nítjándu öld, árið 1856. Enda- lok konungsverzlunarinnar voru jafn- framt upphaf þess, að Færeyingar risu á legg. Á Þinganesi eru enn gömui hus, þótt eldur hafi valdið þar usla. Elzt er svonefnd munkastofa frá kaþólskri tíð. Húsin á Þingnesi voru þó flest reist í þágu konungsverzlunarinnar og þeirra manna, sem Danir létu stýra málum sínum í Færeyjum, og þar situr nú landstjórnin færeyska í húsum frá einveldisdögum Dana. Bændur, sem fóru lamgan veg í kaupstað til Þórshafnar, urðu að fara T 1 M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ Þinganes í Þérshöfn, þar sem lögþingið var háð í þúsund ár og danska var tíðum treg hjá verzluninni. Þar að auki urðu menn oft að bíða byrjar dögum saman. Um þingtímann sátu lögþingsmenn þar einnig að dómum. Byggðin í Þórshöfn var aftur á móti lítil á þessum tímum og fólk fátækt, svo að örðugt var að fá húsaskjól. Þetta varð til þess, að aðkomumenn, sem tíðum áttu þar dvalir, tóku að reisa sér iitlar stofur til þess að haf- ast við í, er með þurfti. Þær risu meðal annars upp í krikanum upp frá eystri vognum. Þar heitir nú Gongin, er þessi smáhýsi voru reist, og er þar mergð lítilla, tjargaðra húsa, sem bera það með sér, að þau eru frá gamalli tíð. Snyrtimennska Færeyinga veldur því, að þessi gömlu hús endast lengi, þótt rigningasamt sé. Árið 1816 var færeyska lögþingið tekið af og lögmannsembætti lagt nið ur, en Færeyjar gerðar að dönsku amti. Löngu seinna var byggður all- veglegur amtmannsbústaður, nokkuð upp frá Eystravogi, falleg bygging. Hún er oft nefnd amtmanmsborgin í þeim blöðum Færeyinga, sem andvíg eru afskiptum Dana af færeyskum málum. í kringum þetta hús er stór garður, og í einu horni hans er ininn- ismerki, sem Níels R. Finsen heíur verið gert. Hann fæddist sem kunn- ugt er í Færeyjum árið 1860, og er klöpp, sem hann hjó í stafi sína, er hann var þar drengur, hluti af þessu minnismerki. Austan við meginbæinn gengur fram klettahryggur, Skansatangi, Fremst á þessum klettahrygg eru virkisleiíar með fjórar gamlar fall- byssur í grasi. Sniðhallt fram af klett- unum er hafnargarðurinn, sem mill|- landaskipin leggjast að, þegar þau koma til Þórshafanar, en undir þeini einokunarverzlunin hreiðraði um sig. fjölmennir á stórum bátum. Litlar fleytur var ekki unnt að nota, því að hvorki höfðu þær nægjanlegt burð- armagn né voru hæfar til slíkra lang- ferða um stríð su-nd og sollið haf í misjöfnum veðrum. Það var því oft mannmargt í Þórshöfn í kauptíðinni, og bætti ekki úr skák, að afgreiðsla 'X 11111 ™ iFæreyskur græðisteinn. kléberg, og skarðið er í hann sökum þess, að skafið hefur verið úr honum ofan í sár. 877

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.