Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 17.07.1966, Qupperneq 8

Tíminn Sunnudagsblað - 17.07.1966, Qupperneq 8
með sér í Jm efni. Svo var um fjár hirði nokkurn, sem fann risademant, sem nefndur var Afríkustjarnan. Og vissulega fundu þeir, sem voru á hött unum eftir gu'lli, demöntum og olíu, oft það, sem eftir var sótzt, eða ótváræð ummerki, svo sem logandi gas. En við lifum á vísindaöid, og nú er jarðfræðiþekking ómissandi við jarðefnaleit. Jarðfræðingar rann saka berglög, sem komið hafa fram í dagsljósið, til dæmis í Grand Cany on, þar sem Kólóradófljótið hefur sorfið sín hrikagljúfur. Jarðfræðingar geta beitt þekkingu sinni á jarðlög um til þess að benda á þau lög, sem líklegast er, að jarðefni leynist í. Þetta er auðvelt, þegar jarðlögin blasa við augum, en sé svo ekki, gegn ir öðru máli. Stundum er dýpt jarð laganna mjög breytileg, og eykur það á vandann. Og þegar um er að ræða djúplæg jarðefnasvæði, verður að beita vissium tækjum, sem til slíkr ar ieitar eru ætluð. _ Véfju en komið fyrir í umhverfis leitantækið og riðstraumur leiddur um. Þá er þar iinnur vefja, og þess gætt, að hún hafi ekki áhrif á raf s'við' það, sem skapast kringum aðal vefjúna. Sé nú málmur í nánd við málmlmtartækið, fer um hann strau|úbr, sem aftur myndar span fitraum í mnini. véfjunþi og kemur frani sem bífeur í hgyrnaitæíkjujn, sem v* hflnayni téii|d. íetta tá&i S84 er raunar aðeins hægt að nota, þeg ar um er að ræða hluti, sem eru rétt undir yfirborði jarðar. En að ferðin er góð, og gild, þótt dýpra dragi, einkum, þegar í hlut á málm grýti, sem leiðir vel rafmagn. Segja má, að þetta sé yfirleitt unnt, ef þvermál málmgrýtisins er jafnt dýpt þess undir yfirborði jarðar. Járngrýti er segulmagnað, og geta segulmæling ar iðulega gefið vísbendingu um það, hvar járnlaga sé að leita. Nokkra hugmynd má fá um hulin jarðlög með mælingum á aðdráttar- afli. Aðdráttarafl hlutar er háð massa hans. En vitaskuld hefur að dráttarafl jarðkúlunnar sjáifrar lang mest að segja, og einstök berglög, bæta aðeins örliitlu þar við, þó svo, að fram kemur á nákvæmum mæli tækjum. Þýðingarmest í þessu sam- bandi er það, að afstaða berglaganna á tveimur stöðum getur ekki verið hin sama, ef þar mælist breytilegur aðdráttarkraftur. Til að mynda er hugsanlegt, að fellling í berglagi eigi rót sína að rekja til þess, að þéttara efni hafi ýtt á að neðan. Hin aukna þyngd kemur þá fram á þyngdarmæl ínum. Aftur á móti breytitet sttaða mælisins ekki yfir reglulegum jarð iöguim. Bezta ráðið til þess að kynnast því sem i skaúti jarðar býr, er þó að senda hljóðöldur um jarðskorpuna. Jarðsvéiíilum'ælinigar, sem byggj- ast á endurfkasti (séísmir reflecitión) hafa komið að geysigóðu haldi bæði við oliuleít og mælingar á þykkt jarð skorpunnar. Þegar jarðisveiflumælingar eru framkvæmdar, eru reknir niður hæl ar með nokkru millibili og rafþráð ur strengdur á miili þeirra. Við þráð inn eru tengd sérstök tæki, sem nema allar hræringar i jarðskorpunni. Næsta skref er sprenging. Hljóðbylgj urnar frá henni berast niður í jörð ina í allar áttir og koma fram á mót tökutækjunum. Frá þeim berst raf- straumur eftir þræðinum til mikils mælis, sem gerir línurit af hræring unum. Sumar hljóðöidurnar berast beint til móttökutækjanna, en aðr ar endurvarpast frá djúplægum berg lögum. Kemur því fram flókin bylg.iu hreyfing á línuritinu. Nú er vitað hve lengi hinar ein stöku hljóðbylgjur eru að berast til móttökutækjanna. Með hliðsjón af því má finna út þykkt hinna einstóku jarðiaga. Nauðsynlegt er þó að vit.r hraða hljóðsins í jarðlögunum. Hann er hægt að reikna út með stærð- fræðilegum aðferðum, þegar það er haft í huga, að þær hljóðbylgjur, sem fyrstar koma fram á mót'öku- .tækjunum, hafa borizt eftir yfir borði jarðar. Þó eru endurvarpsbylgj ur fljótari í föruni, þegar um miklar fjarlægðir er að ræða, því að hljóð hraðinn eykst eftir því sem neðar dregur í jarðskorpuna. Hljóðbylgjur frá slíkum sprenging um ná aðeins fáar rastir í jörð nið ur, en jarðskjálftamælingar veita upplýsingar um jörðina þar fyrir inn an, bæði jarðmöttulinn og jarðkjarn- ann. Fram að þessu hefur verið fjallað um gerð jarðefna, myndun þeirra og leit að þeim. Er þá komið að vinnslu þeirra. Ekki er um annað að ræða en bora eða grafa í því skyni. Ýmsar mikilvægar upplýsingar um eðli jarð skorpunnar fást með borun og greftri þvi að oft má leggja það út á fleiri en einn veg, sem jarðeðlisfræðileg- ar mælingar leiða í ljós. Og aldrei verður vitað með vísindum, að olía sé fyrir hendi, nema borað sé. Námugröftur spannar yfir ærið vítt svið. Mikið djúp er staðfest milli guilleitarmannsins, sem skóf ofan af setlagi, hellti vatni sáman við og skildi þyngri efnin frá á frumstæðan hátt, og þeirra, sem grafa námugöng margar rastir í jörð niður. Það eru einkum kol, gull og blájörð, sem graf ið er af svo md'klu dýpi. Blájörð hef ur raunar nokkra sérstöðu. Stór stykki af henni eru brotin í námun um, máluð þegar upp kemur og leðju biandað saman við, svo að þyngri efnin skdljist frá hinum lóttari. Þá er eftir að vinza demantana úr, sem efcki er neinn hægðarleikur. Til þess eru notuð trog smurð með feiti. De- mantar og sumir steinar af öðrum T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.