Tíminn Sunnudagsblað - 17.07.1966, Síða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 17.07.1966, Síða 16
J WJWIWW>V»WWW\«íí"Wí,'.*.'íW«w-v.v.v,'1*;»1o.^-.v.Yw.1v.v.v»v-* .v.v.v.w.v - • • ......1AV.,A*.ö. lOV.’.\WA"Vl * •• .V.-.-.W.-V........... rfv.-.-... ......—. lt Mynd þeessl var tekin hinn 17. júní áriSS 1945, er minningartafla um Jón Sigurðsson var afhjúpuð á húsi hans við Oster* voidgade eða Austurveg, eins og gatan var gölluð á hafnar-íslenzku. Jón Helgason stórkaupmaður gaf (Félagi islenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn töfluna, og lét félagið setja hana upp. — Lengst til vinstri á myndinni eru Jón Björnsson og kona hans. Síðan koma í fremstu röð Sverrir Arngrimsson kennari, Sigurður Sigurðsson listmálari, Gunnar Björnsson ræðis- maður, Ásmundur Jónsson frá Skúfsstöðum, Jón Svelnbjörnsson konungsritari, dr. Jakob Benediktsson, Jón Krabbe sendi- fulltrúi. í miðjum hópi og þó öllu meir til haegri stendur Jón Helgason prófessor og ber við húsvegginn. Til vinstrl handar við hann sést rétt á Jón Helgason stórkaupmann. Alllangt til hægri og heldur framarlega stendur Magnús Kjartansson ritstjóri.. — Alls voru um áttatiu íslendingar viðstaddir þessa athöfn, en ógerningur er að telja upp fleirl nöfn. gengið út í tóbaksbúð. — Vitið þér, að Þjóðverjar hafa h'ertekið Dan- mörku? var ég spurður þar. Nei, það vissi ég ekki. Ég hélt nú út á eystri járnbrautarstöðina, og álveg rétt, þarna voru þeir komnir. Um beinan skort var ekki að ræða þessi ár, því bjargaði ströng skömmtun, en aftur á móti var nokkur hörgull á fötum, þegar líða tók á stríðið. og ekki ann- að að fá en gervikaffi. Ég var þeirr- ar skoðunaj, að okkur íslendingum bæri ekki að hafa okkur frammi í þessu.m átökum, þrátt fyrir samúð okkar með dönsku þjóðinni, og að- staða mín sem rithöfundur breyttist lítið við hernámið. Tiltölulega kyrrt var i Danmörku allt til ársins 1943. en síðan agasamt til stríðsloka — Hvernig var sambandi íslend- inga í Höfn við umheiminn háttað styrjaldarárin? — Auðvitað var um allmikla ein- angrun að ræða. Stór hópu. manna komst hei^ Petsamo haustið 1940, en ég var ekki þar á meðal. Ég hafði þá staðfest ráð mitt, kynntist konu minni, Guðbjörgu Sigurðardóttur, í Höfn, og þóttist eiga ýmislegt ógert. Þá hafði ég heldur ekki á móti því að vera í miðdepli atburða. íslend- ingar í Höfn komu mjög oft saman styrjaldarárin, eftir því sem hægt var fyrir myrkvun og útgöngubanni, margar kvöldvökur voru haldnar, og Félag íslenzkra stúdenta í Kaup- mannahöfn gaf út tímaritið Frón. Fréttir að heiman voru mjög af skorn um skammti, en þó fékk sendiráðið fyrstu árin sent fréttablað í diplómata pósti frá Portúgal. Þá kornu ein- staka nýjar, íslenzkar bækur, og voru þær lesnar upp á kvöldvökum. — Hvernig brugðust Danir við sam- bandsslitunum árið 1944? — Ýmis blöð tóku þetta óstinnt upp, en bæði ég og kona min áttum allstóran kunningjahóp meðal Dana, og urðum við ekki vör neinnar per- sónulegrar andúðar. — Hver var annars afstaða Hafnar- fslendinga til sambandsmálsins? — Það er nokkur saga að segja frá því. Fundur landa í Höfn 7. maí 1943, er samþykkti áskorun um að fresta úrslitum í sambandsmálinu, þar til aðilar hefðu talazt við, eða fram yfir stríðslok, mun hafa vakið athygli hér á landi, _ og afstaða landa var dæmd hart. Ég var á þessum fundi, en greiddi ekki atkvæði vegna skorts á upplýsingum um málið, en slíkar upplýsingar virtust forsprakkar sam- þykktarinnar hafa í höndum, hvernig sem á því stóð. Naumast var hægt að verjast þeirri grunsemd vegna þess, hvernig málið var reifað á fundin- um, og eins er sást, hverjir gengu þar fram fyrir skjöldu, að hér hefði aðallega verið um andstæðinga lýð- veldisstofnunarinnar að ræða. Hinn mikli meirihluti með tillögunni hlaut fyrst og fremst túlkun á aðgerðum lands og stjórnar í því. Fáir munu hafa gert sér ljóst, að íslendingutn S92 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.