Tíminn Sunnudagsblað - 26.03.1967, Side 15

Tíminn Sunnudagsblað - 26.03.1967, Side 15
Hér horfast þær í augu yfir þriggja alda haf, Kristín Svíadrottning í gylltum rammanum uppi á vegg í þjóðminjasafninu sænska og stúikan, sem gengur þar um sali til þess að rýna á gamlar myndir og muni. Það er íhygli í látbragði beggja — það er eins og þær virði hvor aðra fynr sér af forvitni líkt og dálítilli var- færni. Gætu þær komizt nær hvor annarri, ef þær fengju taiað saman? Munurinn á klæðaburði þeirra er augljós. Unga stúlkan, fædd kringum 1950, klæðist eins og henni þóknast. Hún stendur þarna óþrúguð í síðbuxum, bol og ilskóm með leðurjakka á hand leggnum, örugg í fasi og treystandi á dómgreind sjálfrar sín. Drottningin er búin að þeim hætti, er hefð henn- ar og aldarfar krafðist. Að því leyti er þessi ókunna stúlka frjálsari en sjálf drottningin á veldisstólnum fyrir þrjú hundruð árum. En í frelsi sínu til þess að klæðast að vild sinni, fara sínar götur og leggja rækt við það, sem henni er hugstætt, er unga stúlk- £ an þó í ósýnilegum viðjum, er marg- slunginn, vélrænn heimur og harð- snúið kapphlaup um gróða og lífs- þægindi hefur búið henni, án þess að hún geri sér kannski grein fyrir því. í stað gamallar ánauðar er komin önnur ný, sameiginleg karli og konu. Það er lausnargjaldið, sem þjóðirnar hafa orðið að greiða til þess að losna úr spennitreyju gamalla hugmynda og sið. En það er bót í máli, ef báð- um kynni þeim, stúlkunni og drottn- ingunni, að þykja sinn fugl fegri og sýnast sitt lífsform happasælla. KYNSYSTUR HORFAST í AUGU T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 255

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.