Tíminn Sunnudagsblað - 26.03.1967, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 26.03.1967, Blaðsíða 16
WmmMmiiimimmiitlm Mmímw9 ílmmmmmm 11II1111 f ÍBMMmWw mmmw \wMMy If P’ I F Lengi lifi íslendingar — gáfaðasta, menntaðasta, listrænasta, stoltasta, sjálfstæðasta og ríkasta þjóð í heimi — þó ekki sé miðað við fólksfjölda. Þannig mæla tignir útlendingar fyrir minni fs- lands, þegar búið er að hella þá fulla I kokkteil- boðum. Og á tyllidögum þjóðarinnar — og við önnur hátíðleg tækifæri, þegar vín glóir á skálum — ger- um við orð þeirra að okkar orðum. Það er aldrei hörgull á tækifærum til að láta ljós sitt skína, og það er aldrei hörgull á mönnum, sem eiga þá ósk heitasta að hlusta á sjálfa sig tala í veizlum. Þetta er að sjálfsögðu blákaldur sannleikur — því flestum er sannleikurinn það eitt, sem þeir vilja trúa. Þeir fávísu og vantrúuðu kunna að velta vöng- um í einfeldni sinni og spyrja: Hvað höfum vér eiginlega afrekað í þúsund ár? Það stendur ekki á svari: í árdaga skráðu ís- lendingar ódauðleg listaverk á skinn. — Til út- flutnings þegar harðnaði í ári og þeir áttu ekki gur bót fyrir skó og voru ekki menn fyrir meira 'en því einu að tóra. Undir dönskum kóngum höfum vér hjarað öld fram af öld. Án þess að eiga öngul og snæri, járn í ljá, spækju í amboð. Lúsugir, líkþráir, sjúkir af skyrbjúgi, svartadauða og stórubólu drógum vér fram lífið á rímúm, guðsorði, skreið og skemmdri soðningu, þegar bezt lét. Djúpir og breiðir eru íslandsálar. Vísast værum vér ennþá utangarðsþjóð og án vonar, ef ekki hefði komið stríð — heimsstríð. Lögmálið kennir oss, að eins dauði sé annars líf. Ef svo væri ekki, hvar værum vér þá á vegi staddir? Án stríðs engir peningar. Án peninga engin viðreisn. Segi menn svo, að stríð sé ekki nytsamlegt og réttlætanlegt. En fyrst og fremst verður það að gefa nógu mikið í rétta hönd. Steindir bryndrekar kljúfa brimskafla norðurs- ins. Takmarkið: ísland. Vestan um himinboga fljúga stálvængjaðir gammar og helga sér varp- land á Miðnesheiði. Útlendir stríðsmenn hreiðra sig undir íslenzkum bæjarveggjum. Stálgrá morðtól bíða þess, að blóð renni. Hvarvetna er auga byssunnar á verði. íslenzkir ofurhugar fyllast eldmóði. Afkomend- ur víkinga og konunga geta ekki sóma síns vegna setið í öskustó, meðan aðrir leggja lífið í hættu. Vígreifir sverja þeir stríðsguðinum hollustueið — og taka sér sóp í hönd í von um veraldlegan ávitin- ing og ódauðlegan orðstír. Á Þingvöllum við Öxará afsögðum vér danskan kóng og strengdum þess heit, að á íslandi skyldi aldrei framar erlendu valdi í auðmýkt kropið. Full- valda þjóð steig sín fyrstu spor, ein og óstudd. Það var vor í lofti, ilmur úr jörð, nógir pen- ingar og gaman að vera íslendingur. En einn góðan veðurdag er stríðið allt í einu búið. Óvinurinn er sigraður. Hlutverki sprengjunn ar lokið. Saklaust fólk eygir von um líf. Gróðamenn heimsins vakna við vondan draum og nudda stírur úr augum, en sjá það eití, að nú er svartara í álinn en nokkru sinni fyrr. Pen- ingakýrin geld. Verðbréfin falla í verði. Fyrirtæk- ið, Stríð h.f., gjaldþrota. Upp af sæði þeirra vex einungis þistill hatursins hvarvetna um heimsbyggð ina. Friður á jörð er fátæklegur bissness fyrir þá, sem eiga allt sitt undir stríði. Þrúgaðir áhyggjum íhuga þeir, hvernig þeim megi auðnast að ávaxta sitt pund. Þetta er einnig þungt áfall fyrir litla þjóð, sem hefur fitnað af stríði og á ekki lengur neinn kóng til að senda bænarskjal. Af breiðgötu allsnægtanna fer enginn af fúsum vilja út á einstigi allsleysisins. En drottinn gróðahyggjunnar er börnum sínum Hendingar án ríms og hljóðstafa eftir Sigurð Róbertsson. 256 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.