Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Page 6

Tíminn Sunnudagsblað - 28.05.1967, Page 6
og strengi þess heit, og bið mér til þess heilla góðra vætta, en ú- nlut illra, að ég, ef á landinu verð lifandi og heill heilsu, skal að sumri sækja Þingvöll hinn forna og þar, eða á Hofmannafleti, ef að glímum verður gengið, sem glímumaður halda velli til heiðurs Norðlendingum og ungmennafé- lagi voru, ella lítilmenni heita, óverðugur þess Norðlendingur að heita eða félagi U.M.F.A.“ Næstur reis upp Lárus Rist, it- urvaxinn sveinn, sem þá var fyrir skömmu orðinn leikfimikennari á Akureyri, og mælti á þessa leið: „Stig ég á stokk og strengi þess heit að synda yfir Eyjafjörð innan jafnlengdar, alklæddur og í sjóföt- um, á bilinu frá Glerárósum inn að Leiru, en áskil mér rétt til að kasta klæðum á sundinu, ella skal ég minni maður heita.“ Hinn þriðji var Þórhallur Bjarn- arson: „Stíg ég á stókk og strengi heit, bið mér heilla hollvina, þá er hver má veita og lið ljá, er lífs mér unna, að koma því til leiðar, að vér íslendingar stöndum eigi verr að vígi til sæmdarvænlegrar þátt- töku í hinum ólympísku leikjum innan fimm ára hér frá en aðrar þjóðir að tiltölu. Tel ég mig ella minni mann heita mega.“ Síðan komu hver af öðrum. Magnús Matthíasson, sonur þjóð- skáldsins, komst svo að orði: „Stíg ég á stokk og strengi heit — formálalaust — að hafa náð Súlutindi og Kerlingarfjallstindi fyrir næsta nýár.“ Erlingur Friðjónsson, bróðir Guðmundar á Sandi, mælti: „Stíg ég á stokk og strengi þess heit, og bið mér til þess liðsinnis góðra manna, að hafa safnað eitt hundrað og fimmtíu Þingeyingum undir merki ungmennafélagshug- sjónarinnar fyrir árið 1910 — ella sé ég minni maður og ekki verð- ur að heita Þingeyingur.“ Það er af efndunum að segja, að Magnús hratt af stað fjallgöngu- hreyfingu, og Erlingur tók að safna Þingeyingum í ungmennafé- lög. Þórhalli varð að því, að ís- lendingar sendu menn á Ólympíu- leikana, ekki einungis til Stokk- hólms árið 1912, eins og hann hafði í huga, heldur einnig til Lundúna, þegar árið 1908. En fræg astur varð þó Lárus Rist af heit- strengingu sinni. Hann stóð þetta vor í því, ásamt félögum sínum, að koma upp dálítilli útisundlaug i Grófargili á Akureyri, raunar í hálfgerðu trássi við bæjarstjómina, sem fannst ungmennafélagið vera að sletta sér fram í það, er því kæmi ekki við. Vannst honum lít- ill tími til æfinga, þegar sundpoll- urinn í gilinu var fullger, því að þá hófst sundkennsla, oft frá morgni til kvölds. Hlakkaði í þeim, sem litu ungmennafélagið ekki nema miðlungi hýru auga, að heitstrenging Lárusar myndi að litlu verða, og sá einn þeirra, er svo hugsaði, Björn Jónsson, rit- stjóri ýmissa blaða á Akureyri, sér þann leik á borði að fá annan mann til þess að synda yfir fjörð- inn, og hét sá Karl Hansson, einn úr hópi þeirra manna, sem Lárus hafði þjálfað. Tóku félagar Lárus- ar þetta óstinnt upp og töldu sund- ið þreytt honum til háðungar, en sjálfur lagði hann fátt til málanna. Svo var það morgun einn um sumarið, að Lárus gekk niður á Oddeyrartanga og bjóst þar sjó- klæðum öllum og hnéháum vað- stígvélum og batt sjóhatt á höfuð sér. Biðu hans þarna bátar tveir, og voru í þeim tveir læknar, Stein- grímur Matthiasson og Sigurður Hjörleifsson, auk ræðara og tíma- Guðmundur Friðjónsson — skáldið á Sandi var enn I flokki þeirra, er byltlngargjarnir tvöfaldast varða. Lagðist Lárus síðan 111 sunds frá syðstu bryggjunni á tanganum. Dreif þegar að fjölda manna á bátum til þess að horfa á. Þegar nokkuð kom frá landi, sparkaði Lárus af sér stígvélunum og smeygði sér síðan úr olíuföt- unum og jakkanum, sem hann var í innan undir þeim. Nokkru síðar tók hann að tína af sér aðrar spjar- ir, unz hann var allsnakinn. Tókst honum að komast úr öllum flík- um, án þess að dýfa höfði í sjó, eða fá nokkra skvettu framan í sig, nema þegar hann smokraði skyrt- unni fram af sér. Að lítilli stundu liðinni var hann kominn yfir fjörð- inn. Þegar hann kom á land, var honum ekki kaldara en svo, þótt ósmurður væri, að honum datt í hug að synda aftur til baka. En frá því hvarf hann, þar eð hann vildi ekki gera sig beran að neinu ofurkappi. En um hitt urðu menn ekki ásáttir, hve lengi Lárus hafði verið yfir fjörðinn. Læknana og tímaverðina greindi, og töldu hin- ir fyrrnefndu, að hann hefði verið þrjátiu og fimm mínútur, en tíma- verðir tuttugu og fimm mínútur. Það skipti heldur ekki mestu má'i, því að hitt var markmið Lárusar að færa sönnur á, að sjómenn gætu oft bjargað sér á sundi, er þeir féllu í sjó, þött sjóklæddir væru. Var það timabær eggjun. Voru ein- ungis tvö ár liðin, er þetta gerð- ist, síðan ellefu manns drukknaði við landsteina á Akranesi, þar á meðal fimm systkini. Af Jóhannesi Jósefssyni og Þing- vallaför hans segir síðar. 462 T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAf)

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.